Um mig
|
Hæ Siggi heiti ég eða Sigurður Hrannar Hjaltason eða Siggi litli eða Siggi litli nemó dansari eða siggi litli nemó dvergur eða Silli lax en flestir kalla mig bara Siggi og er það ágætt.
Þetta er síðan mín og hér mun ég skrifa dagbók um það sem ég er að gera, ég er að læra leiklist útí london í skóla sem heitir Rose Bruford og er hann staðsettur í Kent og bænum sidcup. Ég verð hérna næstu 3 árin að læra að verða leikari.
Á þessari síðu er dagbókinn mín þar sem ég skrifa um hitt og þetta, það er einnig gestabók þar sem þið getið kvittað fyrir komu ykkar og svo er hérna svona spjall borð þar sem þið getið komið af stað umræðum og ef þið viljið spyrja mig einhvers eða bara til að tjá ykkur um allt og ekkert, þá smellið þið bara á comment sem er neðst á eftir hverri frétt. Einnig verður eitthvað að myndum hérna og svo kannanir og margt fleira skemmtilegt.
En veriði alltaf hjartanlega velkominn hingað inn því hér er alltaf opið hús og allt í gangi;)
Siggi |
|