Dagbók - Eldri dagbækur

31.1.2006 | 16:34 | Ertu að djóta....
shitturinn í fokkanum hvað ég er sáttur núna maður.. íslenska hjartað er að rifna.. ég sit hérna uppá bókasafni hljóp upp í miðjum æfingum til að ná seinni hálfleik og ég öskraði eins og köttur og enginn vissi hvað var að gerast... ég er ekki að trúa þessu .. þetta er farið að minna á em 2002 þegar allt var kreisí...

shitt ég trúi þessu ekki vildi deila þessu með ykkur því ég er í skýjunum...

nú er bara stefnan sett á fokking undanúrslitin.. og ég fer ekki úr húsi næstu daga þarf að undirbúa mig andlega undir þessa leiki sem eftir eru!!!!

áfram ísland
silli | Comment (0 )
29.1.2006 | 23:47 | Sunnudagur til lukku..... tja!
Halló allir sem lesa þessa síðu sem er örugglega enginn... nema kanski mamma mín og amma svo ég geri þær allavega ánægðar með að skrifa pínu hérna inn...

Sit hérna undir teppi í nýju fínu stofunni okkar í Villunni sem er nýja nafnið á nýja húsinu.. setrið farið og villan tekinn við. Við ákváðum það hjóninn að hafa allsherjar þrifnaðar dag í gær og var allt þrifið svoleiðis hátt og lágt... enda kominn tími til þar sem rykmaurarnir voru heldur betur farnir að færa sig uppá skaftið.. t.d. vaknaði ég útá túni á laugardagsmorgun þar sem þeim fannst ég taka of mikið pláss í herberginu mínu....

En já allt farið á fullt á æfingum á spánska leikritinu Peribanez og líst mér bara vel á þetta... ég leik svona gaur sem er hægri hönd herforingja bæjarins og viti menn hann er leikinnn af viktori svo það er íslensk samloka heldur betur sem samnemendur okkar fá að sjá í lok febrúar... og við fundum það út í gær að ég er svo vondur að það er ekki boðlegt. vill bara drepa alla og geng um á eftir öllum að svíkja og plata alla til að koma mér á toppinn... og þeir segja typecast.. er það ég?

helginn búin að vera alltí lagi þangað til þessi dagur rann upp oj bara leiðinlegri dag hef ég ekki upplifað lengi.. fórum í afmæli í gær og fór að sofa alltof seint sem varð til þess að ég fékk aðeins tveggja tíma svefn en við áttum að keppa við the kebab turks í morgun.. klukkan hálf tólf og ég er með alla búningana svo ég varð að fara.. stóri björn ákvað að vera heima og senda litla með búningana.. núna sit ég og vildi að ég hefði ekkert farið. fyrsta lagi var þetta hundleiðinlegur leikur.. þar sem við rústuðum þessu með varaliði okkar þar sem það voru allir þunnir og viðbjóðslegir og mættu ekki... en ég mætti bara fullur í staðinn.. jesús hvað maður er að skemma líkamann á svona rugli. En á leið heim áttaði ég mig á því að veskið mitt var horfið og ég leitaði og leitaði og leitaði og leitaði en allt kom fyrir ekki og veskið týnt! frábært öll kortin og tóm leiðindi... búin að loka öllu en bara svona leiðindi skiluru að endurheimta öll kortin og svona oj bara!!!!!

Þannig að eitt orð yfir þennan dag er leiðindi en það þýðir lítið að gráta björn bónda heldur bara hætta að pirra sig á þessu og horfa framan í nýja viku sem vonandi verður laus við öll leiðindi.

Veðrið í london er algjört bull ég meina bara fyrir neðan allar hellur.. það er miklu kaldara hér en heima og þurfum við ekki einu sinni að setja kókið í ískápinn svo kalt er hérna... ligg undir teppi og skelf!

ísland tapaði fyrir ungverjum.. hvað er það.. búnir að vera geðveikir ég meina ég fékk næstum hjartaáfall þegar ég hlustaði á leikinn gegn dönum. og svo bara tap fyrir ungverjum kemur svo sem ekki að sök förum áfram með þrjú stig og nú er bara að taka á honum stóra sínum og vinna fyrir litla strákinn því annars verð ég of brjálaður!!!

fleiri fréttir jónsi mávur eins og ég kalla hann verður 40 ára 11 febrúar næstkomandi og riddaraliðið heima gerði sér lítið fyrir og splæsti í ferð fyrir dverginn svo mar kemur í gríðalega stutt en vonandi ótrúlega skemmtilegt stopp þarna þessa helgi... mottóið þar verður travel light please.. bakpoki og einar nærbuxur í vasanum til skiptana.

En ætli ég láti þessa fyrstu færslu í langan langan tíma ekki lokið og bið ykkur öll að fara vel með ykkur. og megi lífið faðma ykkur fallega.

Ykkar ritstjóri

p.s. she's all that er svo sæt mynd!

silli | Comment (1 )
23.1.2006 | 13:53 | MAMMA mín....
Blogg!!!!

Sigurður Hrannar Hjaltason
Sonur þinn hefur það fínt.
Hér er allt gott að frétta!
Vona að þið hafið það sem allra Best!

Bloggið verður vonandi meira á næstunni!
silli | Comment (3 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september