Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 28.9.2005 | 22:46 | frekar slappur... |
já það er ekki annað hægt að segja en að ég sé alveg hrikalega slappur í þessu blogg-fjöri! ég hef bara svo lítinn tíma til að standa í þessu en ætla að reyna að segja ykkur frá einhverju núna svona rétt áður en maður svífur inní draumaheiminn!
maður er búin að vera á fullu að æfa þetta spunastykki og nú er svo komið að því að maður frumsýni þetta fjör á morgun.. og það er bara tilhlökkun í manni.. þetta er búin að vera mjög skemmtilegur prossess og mikið hlegið og fíflast allan daginn í skólanum .. enda ekki oft sem maður fær að leika svona hrikalega gamalt fólk.. við höfum verið tíðir gestir á elliheimilinu að stútera okkar fólk og erum bara orðin nánast að þessu fólki... en frumsýning á morgun, og tvær sýningar á föstudaginn og svo er bara skólinn búin í bili.. eða þangað til æfingar hefjast á comedy seasoninu í byrjun nóvember! þetta er svona skólinn í hnotskurn allt gengur vel og mjög gaman! og soldið spes að vera svona þriðja árs nemi það er nokkuð ljóst! og mikil virðing borin fyrir okkur elstu leikurunum....
Annað sem er að frétta er að pabbi og jónsi fóru heim til kalda fróns á sunnudag eftir viku dvöl hér í landinu sem kennt er við heitt rusl.. það var gaman að hafa þá drengi og gerðum við ýmislegt saman.. en það allra skemmtilegasta var að sjálfsögðu að fara á þessa þrjá leiki.. og er ég þeim ævinlega þakkláttur fyrir þau miklu ævintýri því þetta er eitthvað sem maður gleymir ekki svo fljótt... ætla svo sem ekki að vera ræða þetta eitthvað frekar þetta var bara geðveikt í alla staði og ég segi ykkur betur frá þessu heima seinna...
ég og bangsi höfum verið duglegri að kíkja út á lífið eftir skólann það er á pubinn og svona og það á heldur betur að nýta þetta síðasta ár og ekki að láta það fara til spillis í sófanum heima þó það sé voða þægilegt! t.d. var afmæli hjá bekkjarsystur okkar og var svona school disco þema þar sem allir voru klæddir eins og bresk skólabörn og það voru skólastjóri og aðstoðarskólastjóri sem var að sjálfsögðu bangsi og voru þeir að senda menn í skammakrókinn og flengja menn og annað... skemmtilegt að prufa þennan heim... það voru þrír hópar nördar, rebilar og svo popular fólkið og var ég þeirri categoríu..
nú annað sem hægt er að minnast á er að maður er endalaust að hlaupa og gera æfingar eins og mér einum er lagið.. og hef ég fengið bangsa með mér í þetta fjör.. og það er hlaupið á hverjum degi og það er skylda það er virku dagana.. frí á laugardögum og fótbolti á sunnudögum.... stefni hratt á 50 kg múrinn...
hjólinu mínu var stolið í gær en ég stal því aftur.. ég ákvað að læsa ekki hjólinu eftir skóla í gærkvöldi þegar ég stoppaði í búðinni til að kaupa kjúkling í salatið mitt... til að spara tíma vegna þessa að united var að keppa... ég var 2 mín í búðinni og kom aftur út og hjólið að sjálfsögðu farið... og ég brjálaður byrja að hlaupa um allt og finn ekki neitt.. rekst á eitthvað unglingagengi en ekkert hjól.. sé svo ekki langt frá búiðiinni hjólið mitt og mann á því.. og ég hendi af mér töskuni og búðarpokunum og hleyp af stað.. og næ stráknum og ríf aftan í hann og þrykki honum í jörðina og læt öllum illum látum meðan hann liggur í götunni og ekki viss um hvað er að gerast.. en sér óðan strump vera að blóta mjög svo ljót orð.. hann stendur upp og og segir sorry ég var bara að skila hjólinu jobba gengið tók það og ég bara já já komdu bara með hjólið helvískur ... í öllu þessu myrkri stendur hann upp og er svona helmingi stærri en ég og að sjálfsögðu heldökkur... og mér var ekki alveg sama þá og bara reif hjólið og spretti í burtu.. og hann byrjaði að kalla á vini sína.. en ég komst undan og má því segja áð ég hafi stolið hjólinu til baka;) gott hjá mér!
veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur meira enda svo langt siðan ég bloggaði... en ég ætla að reyna að vera duglegri að blogga svona á næstunni en ég lofa samt engu..
þangað til næst hafiði það sem allra best! |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 23.9.2005 | 00:14 | ekkert blogg... |
eins og þeir sem nenna að kíkja á þessa síðu hafa séð hef ég ekkert bloggað undanfarið.. enda verið alltof mikið að gera og ég lítið verið að fjörast á netinu.. pabbi og jónsi eru í heimsókn og ég sit inní stofu með þráðlausa netið en ég sef þar þessa dagana...
en það gengur allt rosalega vel... spuninn gengur fínt og við sýnum í næstu viku og svo bara frí í fjórar vikur... hvað ætli maður geri þá...? kemur í ljós held ég bara...
en hef verið að fara á fótbolta leiki með köllunum.. og ég skrifa meira um það vonandi á sunnudagskvöldið þegar hlutirnar fara aðeins að róast hérna niður og gestagangurinn orðinn aðeins minni... óþolandi með þennan gest hann gengur hér um allt og er alltaf útum allt... hver er þessi gestur eiginlega... og afhverju er þetta kallað gestagangur... furðulegt líf...
en já allt bara gengur sinn vanagang fyrir utan gest.. og ég mun koma með betri færslu á næstu dögum og reyna að gera þetta aðeins reglulegra ... en ég er nú svona nokkuð viss um að það séu nú ekki margir að lesa þessa síðu..
eitt sem ég er frekar fúll með að hafa ekki komist á M.Bolton tónleikana í gær... ég sit einmitt og hlusta á How am I supposed to live without you.. og ég heyrði að sumir ef ekki flestir hefðu barasta bráðnað í sætinu þegar maðurinn flutti þetta lag... ég hefði viljað vera þar og sjá þennan snilling!
einn annar snillingur James blunt verður með tónleika í london í október og shit hvað mig langar að fara.. það yrði bara geðveiki.. M.Bolton er flottur en James er ... bara eitt orð sem hægt er að nota hér..GVAKAMÓLÍ.....
Fyrsta árið mætti í skólann í dag og annað árið og soldið skrítið að vera allt í einu orðin elstur.. en ég hef nú verið með þeim eldri lengi þar sem þetta eru jú allt krakkar yngri en ég og maður er orðin svo fjörgamall...
ég hef líka verið með heilahristing alla vikuna en ég lenti næstum uppá spítala á mánudaginn á æfingu... ákvað að ég gæti nú alveg gert handstöðu á svona göngugrind sem gamla fólkið notar og mér tókst það næstum því eiginlega tókst það bara þangað til ég hallaði mér of mikið á hjólahlutann á grindinni og hún bara sópaðist undan mér og ég plompaði til jarðar og höggið var gríðalegt var bara rotaður og vankaður allan daginn.. og gat á hausnum og eitthvað fjör... sniðugt ég segi ykkur betur frá því seinna....
heyrumst fljótt!
|
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 11.9.2005 | 17:37 | 11.september.... |
Stór dagur í dag.. 4 ár síðan bandaríkin voru sprengd í loft upp... og núna dagurinn sem ég hef skrif aftur á þessa síðu... bara svo þið fáið að fylgjast með mér hérna á þessu síðasta ári....
Fyrir ykkur sem eruð búin að gleyma hvernig þetta fer allt fram þá skrifa ég svona það helsta sem gerist hérna úti bæði skemmtilegt og ekkert svo skemmtilegt... en ég hef haft þá reglu að vera ekkert að spá mikið í að stafsetja rétt né að setja kommur og punkta þar sem við á... stundum læðast þessi atriði rétt með en það er bara svona af slysni. eins og þarna nema hvað að ég skrifaði ekki stóran staf á eftir kommunni. ég vil bara hafa þetta svo frekar afslappað menn geta kommentað á ef þeir fíla það ekki.. en þetta er meira svona ég bara að tala en að blogga.. maður setur alldrei punkta og kommur þegar maður talar og ég geri það heldur ekki hérna;) en nóg af þessu bulli áfram með söguna!
Maður er komin aftur út og búin að vera hérna í viku og þessi vika bara verið ágæt, mest megnis búin að fara í það að koma sér fyrir og borga útistandandi skuldir en þær stóðu hérna allt í kringum húsið þegar ég mætti á svæðið! nánast bara ráðist á mann....
Hef ekki verið mikið í skólanum en þetta var radio vikan mín, það er útvarpsvinna og okkur kent að tala í míkrafón og fleira skemmtilegt. ágætis lærdómur en ekki mikill tími sem fór í þetta, ég fékk hálftíma á fimmtudag þar sem ég fór með einn mónalóg og las smá kafla úr sögu, fékk að lesa aðeins á íslensku og las úr gíslasögu súrsonar. Konan sagði þetta hljómaði ágætilega en ég skildi ekki staf svo ég get ekki mikið hjálpað þér. Hin sagan sem ég las var að sjálfsögðu um fjölskyldu mína sem kend er við héraðið, hobbita og fleira skemmtilegt! það gekk ágætilega og svona bara lala tími. Maður er náttúrulega útlendingur og á ekki mikin séns að fá að lesa í útvarpinu hérna úti. á föstudegi var svo hóptími þar sem við vorum 4 saman og fengum við þrjá tíma til að lesa ýmsar senur og spinna eitt lítð útvarpsleikrit og var það bara gaman. sem sagt þetta var skólinn minn þessa fyrstu viku og ekkert meira um það að segja. skólinn í framhaldinu er núna þriggja vikna spuna prósess og svo bara frí í 4 vikur. en ég segi ykkur meira frá því á eftir.
Eins og ég sagði áðan hefur þetta mest megnis farið í að græja og gera hluti eins og fm gaurarnir segja svo oft... ég og viktor sem nefnist oftast hér eftir bangsi fórum til london á miðvikudag og var það hin besta verslunarferð langaði hreinlega að kaupa allt, en undanfarið hef ég orðið var við þessa algengu veiki sem er kaupæði sem er stórhættulegur hlutur! hræddur um að ég hafi smitast einhverstaðar.... en allavega langaði að kaupa allt og endaði með því að versla mér bara eitt stykki gríðalega skemmtilegan og flottan Ipod með lita skjá á fullt af peningum! en þetta er bara einum of skemmtilegur gripur og á eftir nýtast manni vel hérna úti.. þegar maður er að hjóla og hlaupa og bara í allt held ég! algjör snilld!
Svo er húsið orðið gríðalega tæknilegt, litli maðurinn hefur setið sveittur við að koma upp þráðlausu neti og eyddi ég öllu fimmtudagskvöldinu í það... bangsi komin með fartölvu og ég tók ekki annað í mál en að fá okkur bara þráðlaust net... auka hraðan á tengingunni og nú erum við bara í góðum gír með lappana út um allt hús á netinu einum og nett! sem sagt maður er námsmaður í útlöndum með sky, sem maður horfir á í mjög stóru sjónvarpi, þráðlaust net og ég veit ekki hvað og hvað..
eitt annað maður er bara farin að borða salat í öll mál... hef eitthvað miskilið salatið í gegnum tíðina en núna er þetta bara það besta sem ég fæ... og svona einna helst hið geysivinæla sesar salat shit hvað það er gott!!! fékk mikið lof frá bangsa fyrir eldamennskuna og bara orðin helvíti myndarlegur í að skera niður grænmeti og annað og steikja góða kjúklinga bringu með. svo er alltaf gott að eiga eina hvítvínsflösku inní skáp með. svona á spari mómentum!!! er allavega mjög glaður með að hafa komist upp á lag með þetta þetta er jú svo hrikalega hollt!
Helginni er að ljúka og hún hefur bara verið fín... fór aðeins út á föstudags kvöld með bangsa og krökkunum og fórum við á metro local pubinn og svo á deja vú sem er klúbbur hérna rétt hjá og var tekið gott maraþon dans session á gólfinu heim rétt fyrir 2 og bara ánægður með gott kvöld.
á laugardag heyrðum við í Jerome vin okkar sem var með einari á ári og bjó með honum og eiginlega okkur líka þar sem við vorum jú allar helgar þar á fyrsta árinu. fórum og horfðum á hann spila rugby sem var mjög gaman, fyrsti rugby leikur sem maður fer á hérna í þessu landi. um kvöldið skelltum við okkur svo á eitt stykki söngleik sem heitir seven brides for seven brothers og var það bara hin besta skemmtun... ein af uppáhalds myndum bangsa, ég hafði alldrei séð þetta og var bara ánægður.. svo bara heim í gott bolta tjill....
í dag hefur svo verið svona típískur sunnudagur sem eru alldrei skemmtilegir hérna úti... voða lítið að gera þannig lagað. en við fórum allavega í smá bbq til strákana á faraday avenue þar sem okkar ár var saman komið til að kveðja Ally sem er kærasta hans aarons. og vorum við að koma þaðan, ágæt að brjóta þetta svona upp en samt eru sunnudagar soldið svona leiðó eitthvað .....
En Já maður er bara í 4 vikna fríí frá byrjun október og alldrei að vita hvað maður gerir.. kanski að maður kíki bara heim... reyndar eru james blunt tónleikar hérna 11-13 október og langar mig mjög mikið að fara á þá... en þetta kemur allt í ljós kíki samt mjög líklega heim í viku eða svo...
Það er svolítið skrítið að vera svona á síðasta árinu... þetta er allt öðruvísi enginn skóli bara ákveðin verkefni og sýningar sem við tökum þátt í ... samt fullt af hlutum sem við þurfum að fara í gegnum... t.d. á þriðjudag förum ég og bangsi í myndatöku hjá konu útí bæ fyrir leikhús myndirnar af okkur og það sem við sendum út til agenta... hittum ráðgjafa á þriðjudaginn síðasta og hún tók okkur út og sagði hvað við ættum að sækjast eftir í myndunum og annað... verður gaman að sjá hvað kemur útúr þessum myndum.
En jæja þetta fer nú að verða ágæt í bili, frekar skrítið að vera komin út og svona soldið eins og maður hafi ekkert farið .. en það er oft þannig.
heyrumst síðar!
Diskur færslunar er tvímælalaust O með damien Rice .. snilldar diskur sem fær hárin til að rísa! sérstaklega Volcano og Cannonball! |
 |
| silli | Comment (4 ) |
 |
 |
 |
| 9.9.2005 | 20:46 | Gvakamóli |
OK....
Bíðið bara róleg....
ég mun græja þetta á næstu tímum!!!!
ef þið eruð heppin.....
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 7.9.2005 | 12:30 | Come Back..... |
já elsku vinir!
ég er mættur aftur ferskari en nokkru sinni fyrr!!!!!!
framhald mjög fljótlega það er of heitt hérna til að skrifa!
Siggs |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|