Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 28.4.2005 | 12:40 | Hlutverkin komin.... |
Þá er það komið úr hreinsun hvað kallinn komi til með að leika í sjeikspír gamla... og verð ég að segja að ég er mjög sáttur... ég fæ eitt af aðalhlutverkunum... og annan karakter til. svo það verður mjög mikið að gera... ég Leik Angelo í Measure For Measure.. ( sem væri gaman að fá að vita hvað er á íslensku þar sem ég hef reynt að komast að því en ekki tekist það enþá. en allavega ég leik þennan mann sem kemur og tekur við öllum völdum af dúkinum í viena og verð alveg kreisí og missi frá mér allt vit og fer að dæma alla til dauða og verð svo fyrir því að verða lostahrifin af systur eins manns sem ég dæmdi til dauða og veit ekkert hvað ég á að gera en eitt er víst að á þessu tímabili í leikritinu er þessi maður sem var fengin til að taka við starfinu vegna röggsemi og maður sem fylgir lögunum orðin all skuggalegur og ógeðslegur! ég leik hann í fyrri hluta leikritsins... og james sá skoski leikur hann á móti mér í seinni hluta leikritsins.
en það er ekki nóg heldur deilum við með okkur einng hlutverki Escales sem er háttsettur maður innan veianna og hægri hönd dúksins. en dúkurinn lítur fram hjá honum og fær angelo til að taka við . og því er þessi escales orðin hægri maður angelo núna svo ég leik angelo og færist svo í það að leika þennan mann í seinni hlutanum. hann er gamall og vitur og verður það mjög intresting hvað manni tekst að gera..
sem sagt mjög sáttur fæ mjög stórt og ábyrgðarfullt hlutverk og greinilegt að mér er treyst fyrir þessu öllu saman! en eitt er víst að sumarið er búið hjá mér það er alveg á hreinu! þetta eru gríðalega margar línur sem ég þarf að læra og helst að vera búin að læra þær eftir tvær vikur þegar við byrjum á fullu að æfa! úfffffffff
svo á kanski að setja upp leikritið á 80's tímabilinu svo það verður líka gaman! en allt gaman allt að gerast og kallinn að gera góða hluti greinilega....
sit hérna á bókó að hlusta á selmu hvað annað og er að bíða í 4 tíma eftir því að hitta kennara í 10 mínútur út af fyrirlestri sem við eigum að gera í næstu viku ... mjög gott skipulag!
leikurinn í gær mikil vonbrigði.. búin að bíða spenntur eftir þessum leikí langan tíma og var mjög fúll hvernig hann þróaðist bara of mikil taktík liðin þekkja hvort annað of vel! andrúmsloftið var rólegt í setrinu og björninn alveg rólegur yfir þessu öllu saman... ágætis úrslit fyrir liverpool og gaman að sjá hvort að þeir fari ekki bara alla leið... þó að svona innst inni vona ég að chelsea og eiður fari alla leið!
í gær voru þrumur og eldingar voða spúkí og í dag er bara milt veður og ekkert við því að kvarta!
heyrumst hress! |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 25.4.2005 | 13:06 | jamm jamm jamm |
kallinn er bara orðin godfather nr .1 það er staðfest litla prinsessan skýrð og það í höfuðið á myndarlega guðfaðirnum.. já hún heitir... barbarababanmmm Klara Hrönn Pálmadóttir og er hún vel að þessu nafni komin blessuninn! hún er einum of mikið krútt og mun ég passa hana af öllum mínum sálar og lífs kröftum eða þar til í geispa golunni sem verður örugglega fljótlega miðað við líkamlegar þjáningar undanfarna daga.. kallinn bara alveg að hníga niður svo vondir eru þessir verkir! og ekki búin að vera með þetta lengi svo ég skelli skuldinni á london...
sit hérna á bókasafninu í viðbjóðslegri rigningu vægast sagt og sumarið ekkert komið hér úti... bara vetur enþá.. reyndar mjög heitt en rigning. veðrið um helgina og dagana þar á unda hafa hinsvegar verið mjög góðir.
Helgin var hrikalega róleg... ég og Vik fórum á sellhurst park til að tékka á miðum og fundum einn sem vildi selja miða liverpool megin en fyrir hundrað pund sem er alltof mikið fyrir svona kúka leik enda tapaði liverpool og vik hefði orðið einum og pirraður... hefðum reyndar með smá heppni geta fengið miða í gegnum miðasöluna en vorum aðeins of seinir ....
fórum því næst bara á þessa vanalega staði það er oxford og knoxville og fleiri staði og ég keypti mér pro evo 4 fótbolta leikinn og var hann spilaður frá laugardagskvöldi heima í setri og fram á sunnudags kvöld og þar hafiði helgina eins og hún var... fyrir utan að ég horfði á man u vinna newcastle 2-1 meira var ekki gert...
er að hlusta á eurovision lagið og búin að gera það ansi oft undanfarna daga og er að komast í mikinn fíling.. farin að plana stóra eurovision partýið heima í setri þar sem verður sko dansað! það er á hreinu með skemmtilegum leikjum og annað.
hef eiginlega ekkert meira að segja... var voðalegur blús í mér í gær..sakna stínu minnar mikið og erfitt að vera svona langt í burtu frá henni, ég er allavega búin að væla aðeins núna hérna á síðunni svo það er bara allt í góðu...
hversu sorglegt er það að bíða í ofvæni eftir eurovision til að fylgjast með íslandi með fullt af íslendingum allir blindfullir nema vik.. það er allavega það sem heldur mér gangandi þessa dagana.....get ekki beðið! keypti fishcer manns friend nammi í fríhöfnini og ætla að búa til þannig staup sem er jú orðið svo vinsælt heima.. gaman verður að sjá hvort ég geti startað svona buisness hérna því það veit enginn hvað þetta er hér!
en nó af bulli í bili orðin þreyttur og er að fara syngja eftir hálftíma... og svo er það leiklist þar á eftir þar sem við fáum að vita hvað við komum til með að leika í shakesphere spennandi og ég segi ykkur frá því seinna...
If I had your love! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 21.4.2005 | 16:56 | hér sé sól... |
já ætli maður láti ekki aðeins heyra í sér... páskafríið búið sem var bara fínt! allavega komin hingað aftur út og veðurguðirnri greinilega elt kallinn því veðrið hér er ansi gott... reyndar ekki búið að vera svo alla dagana en hitastigið töluvert hærr en heima... í dag hefur bara verið heiðskýrt sól og 20 stiga hiti... við káruðum í dag klukkan 12 og fórum á pubin og sátum úti í garði hjá barnum og borðuðum hádara og fengum okkur einn pint við strákarnir þurftum reyndar að fara aftur í skólan í einhvern bóka kúk.. svo maður mætti bara húrrandi fullur nei ekki eftir pint!
annars er mjög lítið að frétta svo ég segi sjálfur frá við höfum verið að klára alla daga klukkan tólf... reyndar lærði ég það um daginn að það auðveldlega hægt að komast upp með lámarkslærdóm og komast vel frá því líka... ég var búin að reyna læra eitthvað ljóð heima sem ég átti að flytja í vikunni sem æfingu fyrir alvöru ljóðakvöldið sem verður eftir 3 vikur... ég kunni ekki staf.. og mætti í tímann og sagði kennaranum að ég hefði átt í vandræðum með að læra þetta og hún sagði þú ferð samt upp og einhver hvíslar að þér orðunum... ég var síðastur í röðinni og gerði mér lítið fyrir og lærði ljóðið á svona hálftíma.. 27 línur takk fyrir af erfiðum texta... og flutti það og kennarinn sagði bara hvaða rugl er þetta í þér siggi.. þú eisaðir þetta og þetta hefði gefið þér fyrstu einkunn á kvöldinu sjálfu ég hef alldrei heyrt þig jafn clear og núna það er talandi og annað.. svo maður lærði ýmislegt úr versló en aðalega bara að redda sér!
horfði á leikina í gær og nenni ekki að tjá mig um þetta því þetta er bara drasl! bara bikarinn eftir og það verður gaman enda er hann sama dag og úróvisíon og þá verður sko fengin sér bjór og haldið gott íslenskt partý! enda selma að fara vinna þetta....
man nú ekki eftir meiru sem mig langar að segja ykkur í bili.. hér er gott veður og maður er að verða brúnn eftir einn sólardag!
einnig er gaman að segja frá því að maður er jú orðin guðfaðir, hann pálmi bróðir útnefndi bara kallinn til að taka þetta að sér og verð ég að segja eftir að ég hitti guðdóttur mína daginn áður en ég fór varð ég algjörlega heillaður... stína bara í panik og heldur að ég vilji bara fara eiga strax.. en það er ekkert á dagskránni enda alveg nó að vera guðfaðir í bili.....
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 20.4.2005 | 22:20 | komin til londrésar |
| og nenni ekki að blogga alveg strax en það koma fréttir fljótlega... á meðan getiði bara lesið moggan! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|