Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 23.3.2005 | 17:41 | til pálma |
Til hamingju með litlu stelpuna elsku pálmi og anna!
ég er sem sagt orðin frændi en hún fæddist í nótt eftir erfiða fæðingu víst... ég er náttúrulega alveg brjál að hún skyldi ekki koma sér út fyrr en það þurfti að kalla á keisara til að koma barninu út... er þeir alltaf á vakt eða...?
allavega hlakka til að sjá ykkur í hundraðasta skiptið! |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 23.3.2005 | 00:31 | einn og yfirgefinn.... |
jæja elsku vinir nú er lítið eftir af þessum dýrðardegi 22.mars sem er jú dagurinn sem ég fæddist árið 1982 og er ég því í dag 23 ára og orðin vel gamall maður!
þessi dagur hefur bara verið ágætur, ég kláraði snemma og fór þá bara í búðina og keypti í matinn fyrir kvöldið en ég bauð viktor og frú í afmælis mat og var þar sjálfsögðu chicken fajitas og svo bakaði kallinn eitt stykki skúffu köku með kókos á toppnum og bauð vanilu ís fram með henni og var kökunni og matnum mikið hrósað...
ég hefði sennilega geta fengið frábæra afmælis gjöf en flestir vita að bróðir minn er að verða pabbi og í þessum töluðu orðum eru hann og konan hans á spítalanum að reyna að rembast við að komu litlu stelpunni út á réttum tíma svo hún geti nú verið uppáhaldsfrænkan mín... en hún verður það nú örugglega þrátt fyrir að þetta hafi ekki tekist en ég reikna með að þetta gerist hinum megin við miðnættið eða 23. mars sem er fínn dagur en ekki jafn góður og dagurinn í dag....
ég fékk nú ekki eins margar kveðjur og ég hefði viljað en þeim fækkar sennilega með aldrinum en ég vil nú þakka gísla, höllu og hannesi fyrir að senda mér hlýjar kveðjur á þessum annars ágæta degi... og svo að sjálfsögðu fjölskyldan og stína mín!
ég kem nú heim á föstudaginn og þá verður gaman... kanski reynir maður að smala þeim sem vilja í síðbúið afmælispartý hver veit... en allavega stuðmenn á fimmtudaginn og það verður nú helvíti gaman ég og viktor ætlum að mála bæinn rauðan og gera allt vitlaust!
en sjáumst um helgina!
ég finn hvað aldurinn færist yfir mig!
|
 |
| silli | Comment (5 ) |
 |
 |
 |
| 21.3.2005 | 14:05 | brúnn og að deyja |
jamm maður er bara orðin vel útitekin og sólaður eftir þessa helgi enda búið að vera alveg sjóðandi heitt og sumarið greinilega á leiðinni.. eða náttúrulega vorið fyrst sem er sumar fyrir mér allavega hérna úti...
en helgin sú síðasta hérna úti sem betur fer! var svo sem bara svona lalala á föstudag fór ég reyndar í leikhús og sá þar engan annan en BIG KEV eða kevin spacey sem maður sér nú ekki á hverjum degi en hann er í sýningu í old vic um þessar mundir og var gaman að sjá svona stóra hollywood stjörnu á sviði og kallinn getur sko leikið það er á hreinu! eftir sýn hittum við hannes og helgu og ég skemmti mér eitthvað fram á nótt með þeim enda átti drengurinn afmæli!
á laugardag var svo vaknað í gríðarlega góðu veðri sjóðandi hiti og sól... maður dró fram kvartbuxurnar dustaði rykið af þeim og hélt útí góða veðrið með viktor og frú. við röltum í gegnum danson park sem er stór garður rétt hjá okkur og var það mjög gaman að sjá það helvíti hef ekkert labbað þarna í kring! svo héldum við strákarnir á leik með vængjunum í Welling en það er local fótbolta liðið ... það var helvíti fínt og gaman að sjá strákana aftur og í þessu veðri þeir töpuðu reyndar 3-2 en það voru 5 mörk, tvö víti og rautt spjald svo þetta var vel þess virði!
svo var bara eitthvað ömurlegt suprise afmælispartý fyrir stelpu með okkur á ári en hún á afmæli sama dag og ég sem er á morgun.. já kallinn bara að verða gamall!
en þetta var náttúrulega alveg hundleiðinlegt og var maður mættur heim rétt eftir tólf og bara tjillaði eftir það...
svo var það bolti á sunnudag og bara venjulegir hlutir... ætlaði reyndar að frumsýna videóið sem ég er búin að búa til af honum micheal en það fór allt í háaloft strákurinn brjálaður og var hann bara mættur heim til okkar til að finna spóluna og eyða henni .. hann horfði á þetta með okkur og var eitthvað voða sorry ef allir sæu þetta... tom hopper kom reyndar og hann fékk að horfa á þetta líka en svo var rifst og rifist og hann bað mig að eyða þessu og ég fór og eyddi einum file út af tölvunni en það var greinilega ekki nóg og þurfti að fara í gegnum eitthvað þvílíkt drama til að fá hann til að að trúa að þetta væri nú ekki til... en að sjálfsögðu geymdi ég copy á vísum stað;) svo það geta allir séð þetta þegar ég kem heim enda ansi skemmtilegt videó!
en ég er að deyja úr leiðindum nenni ekki þessum skóla lengur komin með ógeð á liðinu hérna og er bara að klepera eða að fá græna bólur eins og mamma myndi segja...
en ég er nú á leið heim svo það er eins gott... gerum eitthvað skemmtilegt um helgina... kanski verður síðbúið afmæli bara á laugardeginum hver veit maður á jú afmæli á morgun og gaman að væri að gera eitthvað þó það væri nú bara um helgina!
stuðmenn á fimmtudag og svo heim á föstudag... lendi um hálf ellefu krakkar mínir.. nema að sjálfsögðu að flugvélin týnist eins og hefur verið vaninn þegar ég og viktor fljúgum með iceland express það er alltaf eitthvað vesen...
nenni ekki að skrifa meira held ég svo ég sé ykkur um helgina! |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 17.3.2005 | 16:00 | jamm jamm |
mátti til að með að skrifa ykkur smá
núna sit ég hérna ber að ofan og á stuttara því já sumarið er komið þetta er ótrúlegt þetta byrjaði bara í gær og er hitastigið í dag nánast 20 gráður og skapið hefur svo sannalega breyst maður er í sólskins skapi og bara jolly gaur. var bara í 45 mín í skólanum í dag... það er leiklist gekk ágætilega en þarf að fara ná orðunum almennilega enda bara vika í að við sýnum þessa senuvinnu... en svo var bara fótbolti með stráknum eftir skólann og þvílíkur hiti maður.. ég var bara löðrandi í svita og er enn.. það er bara heiðskýr himinn og er ég búin að sitja hérna úti í garði og hafa það gott... fór núna inn því ég er jú að klippa videóið á fullu og verð helst að ná að klára það áður en ég fer heim... sem styttist óðum bara 7 dagar... ekki neitt.. reyndar hefur heimþráin minnkað aðeins eftir að ég heyrði veðrið heima og hvernig veðrið er orðið hérna...
allavega ekkert meira að segja nema bara hafiði það gott í frostinu og ég ætla að sóla mig meira...
sól sól sól |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 13.3.2005 | 22:37 | Næst síðasta helgin afstaðin... |
og allt í háalofti það eru allir brjálaðir og þar sem ég líka það er alveg á hreinu... ég er brjálaður algjörlega útúrfríkaður, en samt sem áður bara helvíti fínn ef maður lítur á það þannig...
hvað er nú búið að gerast síðan ég skrifaði síðast ... ekkert mikið maður er bara búin að vera skólast og svo heimast og ekkert þar á milli.... og svona þess á milli þess að vera að gera ekkert á milli er maður búin að vera telja dagana að heimkomu. já það má eiginlega segja að maður sé orðin algjörlega bensínlaus og bara útbrunninn ræfill, sem nennir ekki neinu nema að drekka vatn, borða pínu og gera æfingar það er svona það sem kemst að hjá manni þessa dagana... t.d. á ég að fara með eitt stykki shakesphere senu eftir eina og hálfa viku og ég hef lært sex línur ekki meira en það... nenni þessu bara ekki lengur... !
en maður reynir að keyra þessa viku á aðeins meiri hraða og bjarga sér fyrir horn því maður þarf jú að skila skólanum frá sér sómasamlega áður en maður heldur í þetta stutta páskafrí. enda er ég ekki þekktur fyrir annað en að skila hlutunum rétt frá mér!
en já lítið að gera, gengur vel í skólanum þannig lagað, fæ alltaf nostalgíu kast á föstudögum í danstímunum og kenni þar krökkunum að dansa almennilega og verður oft hugsað til þess ef maður hefði bara haldið áfram í þessum dansi.. nei oj bara hefði alldrei nennt því! allavega mjög gaman að dansa með liðinu og verð ég bara að segja að stóri björn er gríðalega efnilegur dansari.. hann hefur þetta mjúka element sem þarf að hafa til að verða góður dansari!
föstudagurinn var tekinn með mestu ró, bara kjúklinga fajitas smá bjór með og american idol. hef fundið mér uppáhaldssöngvara þar og fylgist spenntur með. laugardagurinn var svo tekinn með trompi.. vaknaði rétt fyrir hádegi og horfði á arsenal bolton, fór svo á leikrit og fór svo heim og horfði á mína menn valta yfir southampton reyndar var mér alveg sama eiginlega eftir það sem gerðist í vikunni en ágætt að komast áfram. svo var bara farið í partý gallann, nokkrum bjórum skolað niður, cameran gerð ready og haldið af stað í afmæli til hans micheals á árinu okkar. hann átti sannalega eftir að verða stjarna kvöldsins.
við strákarnir pöntuðum strippara fyrir kjellinn svo hann hefði nú góðar minningar um þennan dag... ég var að sjálfsögðu með kameruna og tók upp öll herlegheitin og meira til... þessi strippari var frá miami og var nítján ára gömul... flott það! hún mætti þarna og strippaði og ég var með vélina heldur betur á lofti og náði allskonar skotum af þessum viðburði. eftir þetta héldum við nú að hún myndi fara heim, en hún varð svo hress eftir eitt glas með okkur að hún ákvað að vera áfram og þá fóru hlutirnir heldur betur að geras... herra M ákvað bara að snoga gelluna á dansgólfinu( gaurinn er svona hrikaleg lúðatýpa og var þetta því fyndnari fyrir vikið) og gellan alveg tilí þetta... ekki leið á löngu að þau voru bara farinn uppí rúm og farin að fækka fötum.. þá vaknaði gamli 1200 púkinn í mér úr versló og ég leit á myndavélina og fékk að sjálfsögðu þá hugmynd að taka helvítið upp... við fórum upp og opnuðum hurðina aðeins og náðum nokkrum skotum þar, og voru hlutirnar að starta hjá parinu og allt að gerast ... helvítið sá okkur svo og við hættum bara og dæmið var búið... en litli dvergurinn var ekki hættur ... hann fór útí garð og sá þar eitt stykki stiga.. og viti menn ég og stróri björn og fleiri bárum stigann að þessum glugga sem var á annari hæðinni og viktor fór fyrstur upp og teipaði actionið,... og náði helvíti góðum myndum ... ég fór svo næstur og gerði enn betur og náði að koma vélinni inn um gluggan og tók þetta bara upp live og var þetta bara eins og besta porn video... ljótt að gera þetta en þetta var nú bara einhver stryppari svo ég meina tjamón bara fyndið.. svo heyrði hann eitthvað brusk og sá vélina og þetta er fyndnasti frysti gluggi sem ég hef séð andlitið á honum eins og ég veit ekki hvað. maður stökk náttúrlega bara niður stigann og hló sig máttlausan að þessu uppátæki okkar..
þetta var fyndið er fyndið og verður fyndið .. ég ætla eitthvað að leika mér að klippa þetta saman og afhenda micheal svo þetta annars skemmtilega video.
svo í dag var bara fótbolti og horft á fótbolta og eiginlega ekki gert neitt.. ég hefði reyndar geta dáið í fótbolta í dag... málið var að það er svona spítugrindverk þar sem við spilum og við ég og vik fórum og náðum í fjórar stangir til að nota á vellinum... ein spítan var frekar slöpp... ég er svo í marki þeim megin sem þessi slappa spíta er og það kemur skot og ég fleygi mér eins og köttur uppí loftið til að reyna að bjarga skotinu... og ég var frekar hátt uppí loftinu.. svo lít ég niður þegar aðdráttaraflið tekur við og ég sé bara þessa spítu og svo búmmm og það heyrist bara brak og allir bara fá ógeðis fílinginn alveg... ég lendi án gríns bara ofan á spítunni og braut helvítið í tvennt...ef þetta hefði verið aðeins sterkari spíta þá hefði ég sennilega bara brotnað og legið með eitt stykki spítu í gegnum mig... því það var svona oddur á öllum af þessum spítum ... klikkun... en gaman samt!
en já svo bara skóli og kallinn fer alveg að koma heim allavega ekki langtí það c.a 12 dagar og þá verður gaman!
jæja passið ykkur á myrkrinu krakkar mínir! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 8.3.2005 | 18:41 | tölvu drasl... |
hjössi minn ef þú lest þetta geturðu hjálpað mér... það var einhver skítur að ganga á msn og ég veit það ekki það fór allt í rugl er búin að keyra norton og hann fann fullt af einhverju drasli og eitthvað ...en málið er að það eru alltaf þrír filar eftir sem er sidefind.exe og ég get ekki eytt því hvar get ég fundið eitthvað svona sniðugt til að eyða þessu...held að þetta sé að gera tölvunni minni einhvern grikk...
einnig eftir að þetta gerðist þá kemur alltaf svona activex eitthvað að ég sé með það þannig stillt.. ég ætlaði síðan að breyta því í option og þá gat ég ekki farið í custom settings heldur bara gert default.. veit að þetta er kanski eitthvað skrítið orðað hjá mér.. en ég las það á netinu að þessi sidefind gæti haft eitthvað með þetta active að gera... allavega er norton ekki að takast að eyða þessu...
ef þú getur hjálpað mér þá veistu að þú átt inni flösku eða kippu!!!1 |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 7.3.2005 | 18:06 | allt verður einfalt... |
eða er það... ég veit að ekki.. hér tala allir um veðrið en það er svo leiðinlegt að tala um veðrið, það er búið að vera snjór og snjór og snjór og frost hérna úti... menn bara muna ekki eftir þessu... ég er þá að tala kanski um mesta lagi 2 cm sem er náttúrulega ekki rassgat en það er samt nóg til að að fresta skólum og öðru... en það er svo leiðinlegt að tala um veðrið .. allir að spyrja hvernig er veðrið já hjá okkur er vor en hvað er vor... er vor á íslandi vetur á englandi er vor á englandi vetur á íslandi... ég veit það ekki en þetta virðist vera á vörum allra allan daginn. og því hef ég ákveðið að tala ekki um veðrið í þessari færslu!
en ég hef það annars bara ágætt, eftir frábæra helgi og þá meina ég svona ekta stráka helgi.. þar sem bjór, nammi, mikill hlátur og þar af leiðandi mikill viðrekstur enda áreynslan alveg gríðaleg á hring greyið og allt sem honum fylgir... en málið var að það er ekkert búið að gerast merkilegt í þessari viku.. ekki nema það að augnablik komst í fréttirnar fyrir samning sinn við breiðablik og allt er á uppleið hjá þessu frábæra félagi.. ég hlakka mikið til að koma heim og spila með þeim... eins og staðan er í dag þá væri ég til í að segja fokk skóli og bara beint heim! já krakkar mínir skólaleiði dauðans hefur tekið öll völd í líkama mínum ... ég er þreyttur og bara búin á því... þrátt fyrir afslappaða helgi þá er ég bara búin á því... og tel dagana niður að heimför!
en svo ég haldi nú áfram með söguna.. það gerðist ekkert í síðust viku fyrr en hann hannes vinur minn og heiðurs vinur setursins lét plata sig til að koma sér yfir til welling.. helga dögg tjellingin hans hafði nefnilega farið heim og því ekki annað hægt að gera en að slá upp lítið partý með hinum piparsveinunum sem búa í setrinu.. það er kellingalausir ( þó að ég sé náttúrlega ekkert kellinga laus bara gaman að segja það... reyndar eru ekkert af okkur kellingalausir svo þetta var bara asnalegt að segja þetta svona...) en allavega þá kom kvikindið, eða homminn eins og hann er kallaður í setrinu.. ekkert illla meint við köllum okkur allla svona nöfnum ég er t.d. álfur.. dvergur... hobbit, fífl og fleira.. allavega það var skroppið á pubiinn og svo í eitthvað lítið partý sem var stoppað stutt enda einhverjir fyrsta árs nemar og skelltum við okkur bara með viktori og tjellingunni hans og fórum svo fljótlega heim... og löbbuðum bara heim skal ég segja ykkur frekar langt en hressandi og ræddum við um heima og geima...
laugardagurinn var svona helvíti fínn... maður vaknaði og skellti sér í blá vatnið með hannesi ... fann þar óttrúleg en satt tvær alveg magnaðar buxur og gerist það ekki á hverjum degi að ég finni buxur enda fann ég síðust buxur fyrir ári síðan og hef ekki gengið í neinu öðru í ár og því löbbuðu þær sjálfar út fyrir helgi og varð ég að kaupa.. fékk loksins svona margra vasa buxur úr top shop og eru þær algjör snilld... og svo galla buxur úr madhouse mjög svona funky og flottar og kostuðu þær 10 pund... sem er bara snilld kanski ekki fyrir snobb hænurnar sem vilja bara sjá diesel eða eitthvað en gott fyrir mig!
svo keypti ég san andreas nýja grandtheft auto og var hann á dúndu tilboði 19 pund sem er ekki neitt fyrir svona leik...
enda var hann spilaður bara frá því á miðnætti á laugardag og til að verða 12 á sunnudags kvöld með smá pásum.. pizzur voru pantaðar... klósettið stíflað, vond lykt í húsinu og bara svona ekta stráka stemmning, myndi mann á gömlu góðu helgarnar í höllinni hjá kónginum!
góð helgi og framundan eru tvær vikur sem maður verður að þrauka og svo bara heim... reyndar stuðmenn daginn áður en maður fer heim sem verður gjeðveikt.. en svo heim daginn eftir sem verður líka snilld!
rakspír ( sjeik homminn þarna íslensk þýðing) gengur æi ég veit ekkert hvernig það gengur er bara með hausinn allt annars staðar en í skólanum.. eða ég held það allavega.. þetta reddast samt alveg eins og allt þegar ég er annars vegar.. maður er vel lærður reddari og maður græjar þetta bara..
sá að davíð datt út.. gaurinn sem ég hélt með.. og vonaði að hann færi áfram en guð minn almáttugur miðað við frammistöðu hans þetta kvöld átti hann ekki skilið að vera í keppninni ég hefði sungið þetta take on me lag betur og þá er mikið sagt... eins og hann er nú búin að vera frábær... þá er þessi keppni bara ráðinn og eins og flestir spáðu þegar þeir sáu andlitið í fyrsta skipti.. Til hamingju heiða!
en leiðinlegt nenni þessu ekki lengur og segi bara snjór og rassgat og bara vona að þið hafið ekki lesið þetta!
og hvernig er það er menn bara dauðir heima ...hvað er að gerast er ekki alltaf eitthvað nýtt á döfinni.. allt að gerast allir í boltanum |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 2.3.2005 | 18:39 | síðasta vika .... |
jammjamm jamm jamm... maður á víst að blogga meira en hei ég bara hef ekki tíma sorry! en ég ætla nú samt að leyfa ykkur að skyggnast aðeins inní líf mitt undanfarna daga... sem hafa bara verið nokkuð kátir og góðir....
fyrst ber að nefna að ég er aftur orðin einn míns liðs hérna í setrinu... já konan er farin og bara illa farin.. ég sit uppi með eitthvað barbí herbergi með skrítinni lykt og alltof stóru rúmi og ég tala nú ekki um skrifborðið veit ekkert hvað ég að gera við þetta allt saman ... en allavega ég er bara aftur orðin einn.. reyndar ekki einn hef alltaf stóra manninn minn til að kúra hjá en hann er nú alltaf að kúra hjá einhverju öðru... allavega stína farin og kemur alldrei aftur! ekki ég heldur! og þið ekki heldur!
síðasta vika var bara ansi skemmtileg í skólanum.. og þar ber helst að nefna að ég er að fara vinna senuvinnu úr othello og það er bara gott og gaman... svo voru nýju danstímarnir að byrja og kallinn náttúrulega á heimaslóðum.. ég meina hvað annað.. vals og fleira jive og svona kennarinn sagði að þetta væri í fyrsta skipti sem hún hefði strák sem gæti leitt stelpurnar á rétta braut í dansinum! gott hrós það.. hún sagði bara að ég ætti að sjá um danskensluna ég hefði meiri menntun en hún.. ...
svo var svona tvist og bast hugsanir hvort það yrði skellt sér á þetta íslendinga fyllerí og viti menn maður endaði bara með því að skella sér og sé ekki eftir því... mamma var með þvílíka pressu að ég skildi fara og síðasta helgin hennar stínu hérna úti og svona þannig að ég sló bara til.. kvöldið byrjaði að sjálfsögðu á því að ég þurfti að við þurftum að fara snemma niður í bæ til að horfa á fótboltan enda man u að keppa ... já ég fer á þorrablótið en glætan að ég sleppi leik... svo var reyndar leikur daginn eftir svo maður varð bara að vera rólegur...
þorrablótið var ágætt til að byrja með leiðinlega ræður en hann felix vinur minn stóð sig með prýði og bjargaði því sem bjargað var... maður var þarna að sötra bjór og fleira... ballið byrjaði svo heldur betur þegar buff menn byrjuðu að spila og verð ég að segja að þeir eru frábær ball hljómsveit... ég held bara að ég hafi sjaldan dansað jafn mikið var á gólfinu í þrjá tíma nánast non stop... en það er nú yfir leitt þannig þegar ég og hannes erum saman já hannes og helga voru með okkur þarna ásamt mönnum eins og gulli 5 jón gunnar tryggvi védís og já fullt af liði sem maður þekkti , atli rafn , andri björn , sveinn bieiring og fleiri... þetta stóð til tvö og maður var að fríka út þarna og leiklistarhæfileikarnir að gera út af við mann og athyglissýkin... ég fékk til að mynda hálfan salinn til að horfa á mig grenja.. það byrjaði eitthvað rólega lag og allir fóru að vanga og ég hljóp að fyrsta borðinu og tók upp sérvéttu og byrjaði að vorkenn sjálfum mér og tók upp blóma vasann og faðmaði og kyssti blómið .. og áður en ég vissi af var ég komin með áhorfenda hóp og fólk að taka myndir... svo leit ég snöggt upp og hló að liðinu sem var að taka mynd... og þetta lið bara sprakk enþá meira úr hlátri ásamt liðinu sem með mér í farabroddi svona gekk þetta allt kvöldið og bara helvíti gaman... heim klukkan tvö og í bólið um 3 enda leikur daginn eftir...
nú það var vaknað um 9 leytið og við tók ferða lag til essex við fórum á bílum og var gaman að ferðast um sveitir englands... leikurinn var spilaður við hrikalegar vallaraðstæður... þvílíkur vindur,v ið erum að tala um að ef boltinn fór upp í loftið á miðjunni þá snerist hann til baka í loftinu og var nánast skot á markið... við lendum undir á 2 mínútu eftir hrikaleg varnarmistök ... en náðum að halda boltanum niður á móti þessum hrikalega vindi.. í seinni hálfleik var ég aðalega að leika mér við fuglana á vellinum og stóð oftar enn ekki í miðju hringnum en inn vildi boltinn ekki... bara einn af þessum dögum og við sáum fram á tap í fyrsta skipti í fjögur ár... ég meina við áttum svona 20 skot.. 3 í slá , 20 horn og fleira en inn vildi boltinn ekki svo þegar allir voru búnir að gefast upp c.a. 30 sekúndur eftir fær aaron boltann hægra meginn á vellinum rétt inn á þeirra vallarhelmingi og ætlar sennilega crossa boltann og viti menn hann syngur svo leiðis í fjær horninu alveg uppí skeytum og fagnaðarlætin voru gríðaleg enda vildum við ekki taka uppá því að taapa... skólastjórinn nefnilega búin að segja að hann bjóði okkur út að borða ef við höldum hreinu...
svo bara róleg heit og búið að vera ansi rólegt síðan þá.. bara að reyna að læra.. hlakka til að koma heim... má reyndar ekki gleyma því að ég horfði að sjálfsögðu á óskarinn á sunnudaginn og var það bara gaman en djöfull var ég dauður á mánudaginn í skólanum og er enn hálf þreyttur.. já ég kem 25 mars föstudaginn langa...
kvöldið áður verð ég í konunglegu höllinni með stóra að horfa á stuðmenn og verður það góður endir á þessu annars ágæta tímabili hérna úti... þrjár vikur í heim för og allt í góðum gír....
verð með risastóra afmælisveislu helgina þegar ég kem heim..
nóg í bili áfram augnablik og muna að ef þið eruð að tippa þarna úti setjiði 207 á seðilinn og styrkið litla dverginn...
bless |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|