 |
 |
 |
Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 25.2.2005 | 11:54 | við erum að tala um |
Fackin snow hvað er að gerast það heldur bara áfram að kyngja niður snjó og maður var að koma úr snjókasti eins og litlu börnin en allir hérna missa sig yfir því þegar það fer að snjóa ég er að reyna að forðast snjóinn en veðurguðirnir vilja ekki leyfa mér það .... það er komin þekja yfir allt og það eru allir að fara á tauginni, þetta var aðalfréttin í gær og allir beðnir um að passa sig og bara helst að vera heima í dag... skólum frestað og eitthvað... ég meina hvað er að þessum aumingjum!
langaði bara að deila þessu með ykkur... það er leikur á sunnudaginn og ég er hættur við að fara á þorrablótið út af leiknum þurfum að leggja af stað snemma!
jæja snjór snjóri snjór |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 24.2.2005 | 14:59 | reiður sár og fleira |
já ég er mjög reiður og sár og gat ekkert sofið í nótt eftir leikinn í gær eins og flestir vita reyndist ekki góður fyrir mína menn... ég vil segja að ég mun ekki ræða fleiri mál hér fyrr en ég hef jafnað mig á þessum ósköpum... ég var að farast úr stresssi í allan gærdag og ekki var það skárra þegar leikurinn varí gangi en ég er brjálaður og lýsi því hér með að man u er dottið úr meistaradeildinni... ég veit að maður á að vera bjartsýnn en ég meina tjamón ef við skorum ekki eins og við áttum að gera í gær nokkrum sinnum og erum með svona ógeðslega markmenn sem kunna ekki basic hluti þá getum við gleymt þessu!
takk fyrir |
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 21.2.2005 | 18:13 | jamm jamm jamm |
hver er þetta sem er að skrifa hér þið eruð kanski búin að gleyma honum en þetta er litli álfurinn eða elfman sem loksins lætur undan mikilli pressu og skrifar hérna nokkur orð svona til að gera lífið aðeins skemmtilegra...
vikan sem ég var í fríi er liðin og var það bara ágætis vika þar sem var chillað og fleira skemmtilegt, en byrjum á byrjuninni. ég fór í crits á mándaginn og fékk bara bestu dóma fyrir frammistöðu mína í þessu leikriti og var það sagt að ég væri natural kómik leikari, ekki vissi ég það og hafði bara ekki hugmynd um að ég hefði það í mér, en þau voru ánægð og vilja næst sjá mig leika ekki alveg svona mikinn trúð, en hermaðurinn minn var ansi hress, heldur vilja þau sjá mig verða hetja eða ástfanginn og hvað er betra en að gera það bara í sheikspír.... ég held nú samt að það verði ansi erfitt efni fyrir mig ekki bara tungulega séð heldur að vera mjúki maðurinn því ég er nú ekki mjög mjúkur maður, en maður verður bara að kíla á þetta!
einkunin sem ég fékk fyrir þetta var 2.1 og er það næst besta einkunn sem völ er á... en maður er nú ekki hér fyrir einhverjar einkunnir heldur lærdóm og kunnáttu.
en vikan eftir þetta var ansi góð, ég fór og verslaði afmælisgjöf fyrir stínu keypti svona ipod, sem var reyndar ekki til en ég er svo sniðugur að ég náði í fullt af myndum og klippti saman smá bút um ipod sem stína opnaði svo í tölvunni minni á föstudaginn þegar hún átti afmæli, helvíti sniðugt og svo fórum við seinna um daginn og náðum í gripinn. dagurinn bara fínn borðuðum og eitthvað .. ég reyndar varð að hætta í miðri máltíð vegna þess að það var hár í matnum mínum mmmm!
svo verslaði ég athens 2004 á ps2 og höfum ég og björninn verið alveg vitlausir í þessu leik síðan ég fékk hann við erum að tala um brotna fjarstýringu og blöðrur á höndum en þessi leikur er algjör snilld og voru 2 eða þrjár nætur þar sem vakið var ansi lengi yfir því að reyna að slá heimsmet í hinu og þessu...
helgin var fín á laugardag var haldið til clappham til hans hannesar þar sem planað var að halda íslendinga partý, sem var gert og mættu þar hinir ýmsu vitleysingar meðal gesta voru helga dögg, hannes, stína, viktor, gunni who, eskimó, ísildor og sindri, og jón gunnar og vinur hans, og inga maren, þetta reyndist hin besta skemmtun og var bara tekið á því fram á rauða nótt enda ekki annað hægt þegar united vinnur svona létt alltaf
Talandi um boltann það er rosaleg vika framunda maður er búin að bíða hrikalega lengi eftir þessari viku meistaradeildin og allt að gerast þvílíkir leikir og maður er bara að missa vatn þegar maður hugsar um þetta...
svo er næsta helgi það er víst búið að plata mann á þorrablótið um næstu helgi, sem er á laugardeginum og er það hópurinn sem saman kominn var um þessa helgi sem er búiin að plata mann ég ætlaði ekkert að fara, heldur ætlaði ég bara að sleppa því og vera leiðó og viktor líka, en það er eitthvað að breytast vegna þess að það kostar víst bara 30 pund fyrir námsmenn.... en málið er að það er alltof mikið að gerast það er að það er leikur á sunnudaginn og verður maður að vera fitt fyrir það og það er ekki séð fyrir hvernig það á að gerast með því að vera í london fram eftir öllu, þessi leikur er á útivelli og tekur það um tvo tíma að komast þangað héðan....
ekki nóg með að þessi leikur er heldur er það líka óskarinn á sunnudaginn og ætlar maður að sjálfsögðu að vaka yfir honum! svo ég veit ekki alveg hvernig ég á að púsla þessu saman en þetta verður víst að koma í ljós ég læt ykkur vita betur hvernig fer...
en ég þarf að fara í tíma ég skrifa meira næst |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 13.2.2005 | 19:49 | Komin á stjá |
Halló halló allir saman Stína hér. Eins og sumir ykkar vita þá er ég búin að vera ógeðslega veik. Fékk þvagfærasýkingu en síðan fékk ég svo slæmt ofnæmi fyrir pensilíninu að ég fekk þvílíkan hita, hausverk, uppköst, skjáfltaköst og fleira viðbjóðslegt. Ég ákvað nú að hætta að taka þessi lyf og fór á spítalann. Þá var bara sýkingin búin að færast upp í nýrun og ég fékk ný sýklalyf og nú er allt að batna.....sem betur fer annars hefði ég gefist upp og komið heim!!! Jæja nú er allavegna betri, á eftir að taka lyfin í þrjá daga og þá verð ég útskrifuð.
Það gerðist samt margt áður en ég varð veik. Dúna, Ernir, Hörður og Telma komu til London og ég fór og hitti þau niðri miðbæ. Við stelpurnar fórum að versla og strákarnir fóru og fengu sér björ á einhverjum pöbb. Síðan fengum við okkur að borða, fórum á góðan japanskan stað á leistersquer sem var mjög spés. Dúna og Ernir gistu síðan hjá okkur í tvær nætur og fóru síðan til Mansester að horfa á leiki.
Ég fór að sjá leikritið hans Sigga á miðvikudaginn...var með smá hita en var orðin svo uppgefin að hanga heima að ég fór þrátt fyrir hitann. Leikrtitið var mjög skemmtilegt og fyndið...siggi stóð sig svaka vel og brilleraði alveg í hlutverki þessa skritna hermanns sem var mjög svo fyndinn og hlóð allur salurinn mikið af honum. Já siggi alveg tilvalinn til að leika trúð:-)
Í gær skellti ég mér í bluwater...ekkert jafnast á við hressa sig við í nettu búðarrápi og það er ekki verra ef maður nær eitthvað að versla og ef maður heitir Kristín Helga Einarsdóttir þá gerist þð pottþétt!!! Já ég fór inn í mína uppháldsbúð; frensh conncetion, og keyti mér gallabuxur, bol og belti...afi og amma voru búin að gefa mér pening til að kaupa mér afmælisgjöf fyrir svona þar sem afmælið mitt er næsta föstudag.....Vá annars hefði ég getað keypt alla búðina því að það var svo margt flott sem mig langaði í:-) Síðan keypti ég mér skó (svona þar sem ég ákvað bara að koma með eitt par af venjulegum skóm út) nýju týpuna af puma sem mér finnst mjög flottir.
Jæja nú ætla ég að fara að huga að matnum....er að elda kjúklingabringur, kartöflur í ofna með hvítlauksmjöri og er að fara gera sveppasósu....já já maður verður að reyna vera myndaleg.
Vona að þið hafið það gott og ég læt kannski heyra í mér aftur bráðlega.
Bæbb Stína Stuð |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 12.2.2005 | 16:40 | allt bú |
já það er allt búið og maður er bara alltí einu orðin maður sjálfur aftur farin að hugsa og þá meina ég hugsa bara sem ég minn persónuleiki hættur að lifa í heimi brecht ...
Það er ekki annað hægt að segja en að sýningin okkar hafi slegið í gegn meðal félaga okkar í skólanum og kennurunum sem voru yfir sig hrifin af því sem við náðum að gera á þessum stutta tíma... fyrsta sýningin var góð, önnur sýningin var ekki góð og svo var síðasta sýningin í gær sem bara var alveg frábær allt gekk upp og steve leikstjóri var í skýjunum hann bauð tveimur vinum sínum á sýn. önnur var kærasta hans sem er casting agent sem sér um að velja fólk í hin ýmsu verkefni og hinn var leikstjóri sem er ekki leiðinlegt því þeim fannst sýningin mjög góð og fólk í sýningunni sem þeim langaði að fylgjast betur með í framtíðinni sem er bara mjög gott mál.
eftir sýninguna í gær var svo kíkt aðeins á pubinn þar sem hann bauð öllum í glas og spjölluðum við um ýmislegt.. hann sagði til dæmis við mig að hann vildi að ég myndi verða áfram úti eftir að námið kláraðist því hann var viss um að ég fengi vinnu hérna miðað við að geta leikið og dansað og hann vildi fylgast með mér eftir að ég kláraði... sem er bara gaman...
en það er bara stutt stopp núna .. við mættum í skólann í morgun og fengum nýju hópana okkar og ég er í mjög góðum hópi og vinn í þriðja skiptið með henni tomashinu sem leikstýrði mér á þriðja árinu og ér ég ánægður með það því hún er góð og við erum með góðan hóp og erum ekki hálfur leik og hálfur tónlistarleik hópur heldur bara leikarar í mínum hópi sem ég er mjög ánægður með því hinir geta bara ekkert gert nema spila á einhver hlóðfæri ... voðalegur hroki er hlaupinn í mann!
allavega shakesphere framundan og ekki laust við að það verði frekar erfitt... allavega tungulega séð og annað... ég verð í leikritinu messure for messure sem á víst að vera mjög gott....
stínu er farið að líða betur.. allavega farin að fara út og svona og er í þessum orðum í bluewater að versla...
allavega smá svona update héðan nenni ekki að skrifa meira í bili.. ég reyni að bæta úr þessu á næstu dögum þesssu bloggleysi sem hefur verið alveg hrikalegt....
|
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 8.2.2005 | 21:33 | frumsýning |
já það er frumsýnt á morgun og ekki laust við að það sé komin smá fjöður í mann.... seinsta general prufa í dag og gekk hún bara vel, sem er gott því rennslið í gær var hræðilegt hálftíma lengur en vanalega og bara oj bara það voru allir í rusli i gær en menn hristu sig saman og þetta gekk bara vel í dag, svo er bara síðustu naglarnir negldir í fyrrmálið og svo sýning klukkan þrjú og svo aftur á fim og föst. helvíti gaman það og vonandi gengur þetta bara allt vel og ég sé fríið í hyllingum í næstu viku enda orðin hrikalega þreyttur..
stína er bara í ruglinu búin að vera í svitaköstum og ógeði... fékk sýklalyf en hún var með ofnæmi fyrir þeim eins og öllu öðru og for því aftur á spítalan í dag og þetta var víst komið í nýrun og eitthvað .... en hún er nú búin að fá ný lyf og vonandi fer þetta allt saman að ganga núna allavega líður henni aðeins betur...
ég skrifa ykkur annað kvöld ef ég get og segi hvernig gekk annars er þetta bara stuttar og létta fréttir að þessu sinni..
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 5.2.2005 | 00:06 | tilraun til að koma einhverju til skila... |
jæja elsku vinir loksins kemur hérna eitthvað frá lundúnaborginni þar sem allt er í gangi og já bara alltof mikið í gangi þessa dagana maður hefur ekki haft tíma til að hugsa, tíma til að vera maður sjálfur, maður lifir í heimi sem er ekki til eða listaheiminum, þar sem maður hugsar meira um hvað þessi ákveðni karakter myndi gera við þessar ákveðnu kringumstæður en maður sjálfur. hversu mikil geðveiki er það... allavega ég ætla að reyna að segja ykkur frá því hvað hefur gerst svona undanfarna daga... ég man ekkert hvað ég skrifaði um síðast, en það hlýtur samt að vera nóg til að þess að þið missið ekki af miklu í þessum æsispennandi sápu þætti um lífið í london....
eins og áður kom fram hef ég tekið mér stöðu í þeim heimi sem er ekki til og þessi heimur er heimur brechts og sá maður er skrtín kall en samt sem áður gaman að vinna verkin hans!
þessi vika og síðasta hafa verið í styðsta máli sem skrifað hefur verið á þessa leið: mánudag til föstudag í skólanum frá 9-9 það er tólf tíma á gólfinu þar sem ég er nú flestum senum, og svo á laugardögum frá 10 til 4 og er þar engin breyting á og mun ég mæta í skólann á morgun líka!
þetta hefur samt verið bara mjög skemmtilegur tími, ég hef lært mikið og er að enn að þróa karakterinn og það er frumsýning á miðvikudag, en þannig er brecht fyrir ykkur...
það hefur gengið mikið á og hefur þetta vera svona frá því að vera mjög gaman og allir hlæjandi út í það að allir eru hrikalega pirraðir og gráti næst!
ég gær var tekk rehersal og það var í heila þrettán tíma hvorki meira né minna.. og shit hvað maður var þreyttur eftir þetta, en gaman að sjá ljósin og hljóðin og annað bara svona hvernig sýningin lítur út, einnig gaman að því að maður er hálfnaður með annað árið og það er bara eins og maður sé að setja upp alvöru production sem er mjög gaman og bara ótrúlegt hvað castinu hefur tekist að gera flotta sýningu á aðeins tveim vikum með þessum nýja leikstjóra sem er algjör snillingur!
allavega maður valsar um skólan eins og sannur hermaður í öllum búningnum það er klossar og hermannaföt hjálmur og riffill sem er svona dóta rifill en það er partur af djókinu og með svona skammbyssu líka.. þið getið rétt ýmindað ykkur hitan sem fylgur þessu helvíti tala nú ekki um þegar ljósin eru á fullur, ég held að ég hafi tæmt vatnsbirgðir líkamans í gær í þessu tekki usss
svo er stína búin að vera veik síðan á miðvikudag ég vaknaði um nóttina og hún gat ekki sofið hún var með svo gríðalega þrýsiting í kviðnum svo ég beytti mínum lækna ráðum dópaði hana af verkjalyfjum, og lét hana drekka staup af jagermester svo við gætum nú farið að sofa aftur en þetta tók allt sinn tíma, svo gerðist það sama í nótt og ég varð að hjúkra henni aftur og koma henni fyrir í stofunni þar sem hún gat hálfpartinn setið og sofið þannig, ég lá svo á gólfinu þar til hún sofnaði og sofnaði ekki sjálfur fyrr en einhvern tíman í morgun, svo ég er enn þreyttari en hvað geriri maður ekki fyrir þessa elsku, en hún fór á spítalan í dag og læknirinn lét hana pissa og eitthvað og hún er með einhverja sýkingu í einhverju þvag drasli og fékk því sýklalyf og er á batavegi ekkert alvarlegt en samt sem áður mjög vont held ég... ég kenni alfarið því um að hennar ofnæmiskerfi er í rusli og pikkar það upp hverni vírusinn á fætur öðrum, og það er t.d. vatnið hérna sem getur haft þetta í för með sér og það að ef þér er mjög kalt á nóttinni sem er yfirleitt hérna úti, sem var fyrstu dagana hérna en nú erum við komin með rafmagns ofn hérna inn svo ég er að stikna á nóttinni...
en þetta var bara svona smá fréttir af okkur hérna úti, ég þarf að fara koma mér í bólið og hvíla mig. planið gæti verið hitta hannes og helgu á morgun eftir skóla og svo bara renna yfir línur og renna yfir línur og renna yfir línur, og svo frumsýning á miðvikudag.
en nóg í bili ekki skemmtilegt lestra efni en samt sem áður bara fréttir af okkur!
ble |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 2.2.2005 | 15:09 | alltof mikið að gera... |
| ég hef lítin sem engan tíma til að skrifa hérna inn er alla daga frá 9-9 í skólanum og bara hef ekki tíma ég reyni að græja þetta fljótlega.! |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|
|
|
 |
|
 |