 |
 |
 |
Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 27.10.2005 | 00:40 | kominn aftur eftir gott stoppp |
já ég hitti nú flesta .. ekki alla en litli skellti sér á klakann og var það bara algjör snillld.... var heim í tæpar tvær vikur og tók bara gott tjill á þetta... gerði margt og ekkert... eyddi mestum mínum tíma í höllinni hjá kónginum... að drekka bjór.. fara í gufu.. og svo voru helgarnar algjör snilld... já bara ísland er snilld og lífið er beautifull... en svona blogg stuðið mitt er ekki alveg að gera sig þessa dagana... ég er svo sem ekki að gera mikið... en var að kaupa gítar og sit núna öllum stundum hérna inni hjá mér og spila og æfi mig á gítar... og djöfull er það gaman maður ertu að djóda.... eða ertu að skjóta...
æfingar byrja á mánudaginn.. og þangað til ætlar maður nú bara að reyna að slappa af og kanski lesa svona eins og einu sinni yfir leikritið...
en já allavega bara svo sem ekkert mikið að frétta.. langaði bara að skrifa eitthvað.. þetta er mjög leiðinleg færsla og kenni ég mér alfarið um það... ég gæti skrifað allt sem ég gerði heima.. en þeir sem lesa þetta vita allt sem gerðist heima svo algjör óþarfi að vera að eyða plássi í það.....
svo ég ætla núna að reyna að skrifa eitthvað meira en svo æi þú veist.. það djengast alltaf eitthvað í burtu...
helgin hérna úti svona að taka á sig mynd.. kanski að kíkja á trabant... og svo eitthvað partý hjá hannesi um helgina.. og svo leikur á sunnudaginn við mount view annan leiklistar skóla!
en þangað til G |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 10.10.2005 | 02:31 | Pistill frá Einari Djeng Kóngi |
Tvær færslur á einum degi..usss.. en hérna er smá pistill frá Kónginum sem mér þótti mjög vænt um og ákvað að birta hann hérna svo allir gætu nú lesið þetta!
Sá dagur er liðinn,,
er maður stóð útá porti í Rose Bruford, sól lék við hvern sinn fingur og vermdi nemendur og aðra félagsmenn skólans, heyrði ég allt einu íslenskt mál vera talað. Tilbreyting frá síðastliðins árs er enskan var í fyrirrúmi og greinilegt að nýja skólaárið tekið við og nýjir nememdur búnir að bæta sér í hópinn. Stóðu þar tveir íslenskir ungir piltar. Annar stór að vexti, hávær og mikill að hárvexti, nema á höfði. Hinn eitthvað minni, tölvuert, en hávær samt sem áður, óloðinn en með mikið hár á höfði. Ég skundaði mér í átt til þeirra, bjóða þeim velkomna í skólann. Annann, þann stærri, þekkti ég frá fyrri tíð. Hinn hafði ég hitt eitt augnablik á knæpu Reykjavíkur fyrr um sumarið. Margt var skemmtilegt í þessu samtali í sólskininu á 24.000.- punda granít bekknum sem skólinn splæsti í og lofaði framtíðin að framundan væru gríðaleg ánægjuleg kynni sem tækju sig á flug i kringum þessa vænu drengi.
En fljótlega í kynningu við litla manninn sem þar sat var manni alveg það ljóst, að þar fór aumur drengur á ferð. Hjartað lítið og heimþráin að kreista alla líftóru úr sál hans. Hófst þá mikil uppbygging og söfnun af stað. Uppbygging fólst í því að byggja grunn undir fætur litla mannsins með gleði og hlátrasköllum og söfnunin fólst í því að safna í öl-dósir frá Sainsbury´s, Tescos eða búðarinnar á horninu og blása til góðrar félagaskapar í Höllinni frægu sem margar góðar minningar lifa í huga manna sem þar drápu niður fæti og eflaust fleiri sem lifað hafa í gegnum okkur og fylgst með skrifum piltanna.
"En nú er sá dagur liðinn..." Nú er sá litli drengur að hefja þriðja og loka ár sitt við skóla leiklistarinnar og finnur það í sér að eiga tvö heimili, eitt á Íslandi og hitt í Bretlandi. Öllum hugsunum um að hætta og koma sér heim, er hvergi að finna. (Jú, nema þegar fréttist að Footlose ætti að vera sett upp á Íslandi)
Svona getur lífið verið furðulegt og leikið við mann. En hverjum manni farnast vel að þroskast og dafna, safna minningum og una sér glaðan dag í gegnum lífsins braut. Damien Rice er stórt skref í þroskaferils hvers manns.
Ég kveð í bili og þakka ykkur álesturinn..
Kveðja,
Koooongurinn |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 9.10.2005 | 15:35 | nú er illt í efni... eða hvað sem maður segir... |
Halló og já ég er lifandi og já ég sakna ykkar og já sérstaklega þín!!!! þú veist það alveg.... best að skrifa eitthvað sniðugt svo þið haldið nú áfram að kíkja hingað inn... held nú bara að amma kíki hingað inn þó!
byrjum á leiðinlegu fréttunum... ég er að verða heimilislaus! já terry landlordið okkar sagði víst við jack um daginn að hann þyrfti að selja húsið og setja það á markað núna sem þýðir að það verður örugglega búið að selja það um jólin..... svo ég á ekkert hús frá og með þeim tíma.. ég og viktor erum náttúrulega brjálaðir en ekkert sem hægt er að gera nema bara gefast upp og pakka niður og halda heim á leið! já þannig fór um sjóferð þá.. leiðinlegt en svona er þetta jú bara!
við erum ekkert sérstaklega sáttir við helvítis nunnuna sem býr með okkur og hún hefur greinilega farið vitlaust ofan í mig eftir þetta sumarfrí því allt sem hún gerir og gerir ekki pirrar mig alveg gríðalega og nú hef ég dregið bangsa með mér í þennan pirring... en hún sagði bara við terry já já ekkert mál ég flyt bara inn með vinkonu minni ... hei tjamón þó að þú sérst búin að vera vinna stanslaust 2 ár átt þér ekkert líf.. talar alldrei við neinn nema leiðinlegt fólk... lítur út fyrir að vera sextug... og já bara allt annað sem fer í taugarnar á mér.. þó að þú sérst búin að redda þér þá er ekki alltí lagi því við þurfum að redda okkur líka.. og það er miklu erfiðara fyrir okkur þar sem við erum jú ekki héðan.. við erum búnir að sanka að okkur ótrúlega miklu dóti og búnir að koma okkur ótrúlega vel fyrir.. þráðlaust net.. sky og allt annað... og nóta bene hún hefur ekki gert neitt á ekki neitt nema þvotta körfu.. djöfull er ég brjálaður eins og þið sjáið! en svona er þetta skólinn misssir þarna af góðum leikara og ég af frábærum ferli! því það er hrikalega erfitt að finna hús og ég tala nú ekki um bara fyrir sex mánðui því við vitum ekkert hvað gerist eftir skólann.. og hvað kemur til með að gerast ....
en já þannig er það nú bara ég að verða heimilislaus og veit ekkert hvað mun gerast á næstu dögum og vikum... en ég er nú í fríi í 4 vikur sem er já frekar leiðinlegt því það er ekki neitt að gera hérna..vá hvað ég er pirraður og leiðinlegur maður..
en terry ætlar eitthvað að reyna að hjálpa mér og viktor að finna eitthvað... náttúrulega ekkert sem greyið kallinn getur gert bara eitthvað persónulegt sagði hann og því verður hann selja.. hann erbúin að vera frábær en bara nunnnan var að spila þetta svo asnalega þegar hann kom hérna í morgun.. ég og viktor vorum bara að ræða möguleikana og hún var bara já strákar hann á húsið og ef hann vill selja er ekkert sem við getum gertt... hei braniac við vitum það alveg erum bara að ræða málin farðu að vinna eða eitthvað!
jæja þá er þetta í burt.. ekkert mikið að gerast annað var að koma úr fótbolta.. hlaupa og voða gaman.. hef verið mjög duglegur að hlaupa og finn alveg gríðalegan mun á mér.. hleyp alla virka daga ooo ég er svo duglegur!
búin með eina viku í fríinu ... 4 eftir... þarf að skrifa BA ritgerð.. nenni því ekki strax.. ég er meira svona last minute maður í svona lærdóms fjöri...
fórum að djenga í london í gær.. ég og viktor og strákarnir á árinu chris átti afmæli ágætis fjör allir hressir og strætóferðin heim alveg frábær... ég meina klukkutími í strætó jibbí!
framundan hjá litla strák.. sennilega bara meiri hlaup.. bæði þá ég og hlaupin.. þvottur.. nýr sími.. nýir skór.. nýtt hús.. þó að það gerist ekki.. þarf sennilega að flytja bara allt heim um jólin... en ég meina þetta hefur nú verið gaman og góð reynsla það getur ekki allt endað eins og í ævintýri... og já bara ekkert rosa mikið framundan.. en hjá ykkur... eitthvað fjör!
hef þetta ekki lengra að sinni... það hefur fullt af fyndnum hlutum gerst... og ekki svo fyndnum hlutum... en ég segi ykkur það bara seinna... þangað til ætla ég að fara leggja mig í nýja herberginu mínu hérna úti á stétt ... og í leiðinni að dangla aðeins í nunnuógeðið! frábært að búa með mér maður!
Leiter! |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|
|
|
 |
|
 |