Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 26.1.2005 | 18:33 | What's up!!! |
Halló halló Stína stuð hér. Já trúið þið því....karlinn leyfði mér bara að nota síðuna sína sem mína og héðan í frá fáið þið einnig fréttir af mér á siggi.mis.is.
Það er allt gott að frétta af mér, ég er núna búin að vera hér í landi búðanna í eina viku og er svona búin að vera koma mér fyrir í húsinu. Eins og þið hafið kannski lesið þá fórum ég og litli hobbitinn minn í IKEA á laugardaginn. Ferðin byrjaði nú ekki vel því að það var verið að gera við svo mikið að undergroundinu og því ekki auðvelt að komast á milli staða. Siggi var orðin nett pirraður og það lá við að hann gæfist bara upp og færi aftur heim....já já þið þekkið hann sigga minn, en svo var ekki og fann hann út hvernig við áttum að komast þangað. Þegar komið var í IkEA....vá hef aldrei séð svona stóra BÚÐ...byrjuðum við nú á því að fá okkur sænskar kjötbollur því eins og allir vita þá er ekki gott að versla með tóman maga. Siggi fékk sér einn bjór með bolunum og það var nú líka bara blessun því að haldið þið að karlinn hafi bara ekki verið ljúfur sem lamb í búðinni....já stelpur þetta er töfrabragðið ef þið viljið hafa kallana góða í búðum:-) Klukkan níu staulumst við svo út úr iKEA, eftir að hafa verið þar í rúma 5 tíma!! já ég var meiri að segja orðin þreytt á að versla og þá er nú mikið sagt. Jæja en það er ekki hægt að segja annað en að við höfum gert góð kaup og versluðum við rúm, skrifborð og hillusamstæðu ofan á það, kommóðuskúffu fyrir fötin mín, lak, sængurföt sem by the way kostuðu 2,5 pund...sem er ekki neitt, ábreiðu yfir rúmið, púða, kertastjaka og fleira og fleira smádót. Þetta var síðan sent til okkar sama kvöld og vorum við að smíða og setja saman allt draslið til hálf þrjú um nóttina. Já síðan kom ég öllu snúllinu mínu fyrir og barabúmm...herbergið var breytt úr fótbolltagryfju í stínuherbergi og siggi þykist ekki fíla það en hann alveg hreint elskar að koma inn í nýja snúllu herbergið sitt...í alvöru:-)
Eins og þið hafið kannski tekið eftir þá hef ég ekki verið á msn en það breytist allt með deginum í dag því að ég hef alltaf verið í sigga tölvu (man ekki passwordið að mínu msn og nenni ekki að finna það) því að við erum ekki búin að tengja netið í mína tölvu...eða eitthvað svoleiðins og það gerist í kvöld því að við fengum adsl í gær. En allavegna þá verð ég á msn á morgun...vei!.. fyrir þá sem hafa áhuga.
Ég er búin að finna rækt sem ég er byrjuð að æfa í....voða stuð, þetta er lítill staður en voða cosy með svona sæmilegum tækjum og það eru fjórir mismunandi tímar sem ég get farið í, spinning, einhver boxtími, pilates sem ég er mjög spennt yfir að prófa og svo eitthvað sem ég veit ekki hvað heitir. Þarna er gufa og mjög góð sturtuaðstaða og mjög gott að vera og mun ég líklega eyða parti af deginum þarna...já já það er svona þegar maður hefur tíma í að dunda sér. Lærdómurinn hefur bara gengið vel og er ég enn að komast inn í þetta að læra í gegnum tölvu en með skipulagi og aga tekst þetta allt. Planið næstu daga er að læra, æfa og síðan ætla ég að kíkja með Alison, sem er kærasta stráks sem siggi er með í skóla, í miðborgina við ætlum að þræða markaðina...já já Mæja mín ég þarf að hafa þetta allt á hreinu áður en þú kemur í heimsókn:-)
Jæja nú ætla ég að hætta þessu bulli en hér er samt gsm númerið mitt fyrir þá sem vilja vita það: 004407854891820.
Leiter...... |
 |
| silli | Comment (4 ) |
 |
 |
 |
| 25.1.2005 | 00:20 | fréttir að utan |
já það er allt vitlaust að gera bara og maður er að deyja bókstaflega úr þreytu! nýi leikstjórinn er mjög góður en hann er líka mjög kröfuharður og þarf maður að vera á tánum allan tímann annars er kveikurinn mjög stuttur hjá herra stjóra en djöfull er hann fær maður!
helgin liðin og ekki hægt að segja annað en að manni hafi verið þrælað út í leiðindabúðum IKEA þar sem stína fór á kostum ef hægt er að kalla það að fara á kostum! djöfull er þetta leiðinlegt maður ekki nóg með að hafa farið þangað heldur voru allar lestir dauðar og allt í fokki en allt hafðist þetta á endanum og um tvö leytið á laugardag vorum við mætt í húsakynni sænsku mafíunnar þar sem allt er gullt og blátt! oj bara!
keyptum rúm sem er hrikalega stórt og er maður ekki vanur svona góðu hérna út.. keyptum skrifborð sem ég sit hérna við núna sem er algjör snilld reyndar komið fullt af einhverjum tjellingarblöðum í svona rekka sem eru hengdir á skrifborðshillurnar og það er fleira í þessum dúr inní herberginu sem eitt sinn var karlmanns herbergi en er langt frá því að vera það lengur það er búið að færa fótboltabúningana.. draslið... og búið að bæta við einhverjum kremum og kertum og viðbjóði.. sem maður verður víst að lifa við ! svo var bara skrúfað og skrúfað langt fram á nótt
á sunnudag var svo leikurinn og voru þeir í east 15 ansi leiðinlegir eins og væntanlega þeim fannst ég vera... það liðu ekki margar mínútur þar til ég var komin með andlitið mitt ofan í nasa hárin á tveggja metra manni fyrir að vera með einhverja stæla í vítateignum... alla vega til að gera langa sögu stutta þá gerðum við jafntefli 2-2 og hefðum getað unnið því við klúðruðum víti á síðustu sek... ég varði ágætilega og tók mitt meðaltal að verja svona 5 sinnum einn á móti einum.. en helvítis fávitar samt!
og var það bara handboltinn í gær sem ég hlustaði á í beinni útsendingu í nýja barbí herberginu mínu og djöfull var ég ánægður með strákana ég lá hérna með öndina í hálsinum síðustu mínúturnar og var þetta bara algjör snilld hjá gaurunum og sýndi að við eigum mikið inni! svo er það bara slóvenar á morgun...
það er húsfyllir þessa dagana í setrinu því tryggvi vinur viktors er hér í nokkrar nætur og svo er stínan kominn svo það er fjör í welling...
farin að sofa því ég er alltof þreyttur og nenni ekki að skrifa meira! |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 21.1.2005 | 14:13 | meiri fréttir af gangi mála |
ég var komin uppá flugvöll á miðvikudags kvöld þegar ég fékk símrhingingu um það að nýr director væri væntanlegur strax morguninn eftir svo ég ákvað að doka aðeins við...
tók á móti stínu þetta sama kvöld og er mjög gaman að vera búin að fá hana hingað út... en allavega þessi nýi leikstjóri er frægur leikari hérna í bretlandi og hefur hann gert margt mjög stórt í gegnum feril sinn sem leikari...
og ég er bara feginn að ég staldraði við því þessi maður er algjör snillingur ! hvar þeir fundu hann er góð spurning en þessi maður er bara það sem við þuftum erum reyndar að byrja bara frá grunni aftur og aðeins þrjár vikur í sýn en hópurinn hefur heldur betur hrist sig saman og tilbúin í þessa áskorun!
þessi maður er snillingur í comedy og vonandi verða bara allir að deyja úr hlátri á sýn!
svo þannig standa mál í dag og allt svona að verða bara í besta lagi fyrir utan það hversu fáránlega mikil vinna er framundan!
ég fer í ikea á morgun með stínu og ætla að versla rúm og annað svo það verður bara nett!
á sunnudag er svo leikur sem er búin að breytast aðeins en fyrri mótherjar okkar beiluðu svo við höfðum samband við East 15 og þeir ætla að mæta svo það er rosaleg keppni framundan enda er þetta svona derby slagur af bestu gerð!
jæja bless í bili |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 19.1.2005 | 19:38 | ok |
það er sem sagt alltí rugli LEIKSTJÓRINN hætti í dag og enginn veit neitt það er allt í mauki í hópnum.. leikstjórinn búin að vera eitthvað skrítinn síðan við komum til baka og ekki alveg með hugan við verkið svo hann sagði okkur í dag að hann yrði ekki lengur með okkur vegna persónulegra ástæðna... svo að því að ég segi það sem mér finnst og sagði að ég vildi fá að vita hvað yrði um okkur því ég væri að borga góð 8000 pund á ári fyrir þetta og það fór ekki vel í sumar af þessum bresku pempíum þar sem ekkert má segja...
allavega ég er sennilega bara hættur og á leiðinni heim enda ekkert vit í að vera borga fyrir svona rugl og leggja sig í skulda hala lífsins fyrir eitthvað sem maður er ekki sure á...
þetta var hugsunarháttur minn í dag og er sennnilega enn ef við fáum ekki nýjan leikstjóra á morgun.. en málið er að ég er hér til að læra og setja upp góðar sýningar og ég sé ekki hvernig það gengur upp þegar hálf æfingaferlið er búið að nýr gaur komi inn og allt bara frá grunni og tvær og hálf vika í frumsýningu
allavega allir í sjokki og ég í tárum í morgun og bara allt í volli og stína á leið út í þennan pakka en sennilega bara fljótlega aftur heim ef þetta heldur svona áfram
allaveag það á að fá nýjan gaur sem á víst að vera frægur leikari og mjög succsessful og eitthvað en ef það gerist ekki ámorgun þá er ég ekki sáttur og mun endurskoða þessa endurskoðun mína!
sem sagt allt í fokki hérna útí englandi ekki gaman og kallinn bara væntanlegur heim á næstu dögum
fylgist með gangi mála hérna á siggi.mis.is |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 18.1.2005 | 18:28 | úffff |
það er bara allt á haus hérna það er svo mikið að gera að maður nær ekki andanum ekki eini sinni tími til að sinna eyðnis veikinni og hjartaflöktinu sem er að hrjá mig þessa dagana.. maður er bara laminn áfram og ekkert múður...er í skólanum frá svona 930 til 7 og alveg til 9 stundum... svo er það bara heim og pizza í ofninn enda ekki tími fyrir neitt annað og svo bara smá bolti í sjónpó og læra línur svona verða næstu dagar hjá mér...
en maður getur svo sem huggað sig við það tjellingin er að koma út og verður það ágætt að þurfa ekki að þrífa lengur og elda og svona að loksins verður bara séð um þetta fyrir mann! nei bara djóka er mjög spenntur að fá hana stínu mína hingað og er hún bara væntanleg á morgun! annað kvöld til að vera nákvæmur...
helgin var ágæt... föstudagur var tekinn með mestu ró! svaf bara fyrir framan imbann mest allt kvöldið...
laugar dagur var svo góð verslunar ferð til eltham hjá okkur hjónakornunum... og svo gott partý um kvöldið mjög venjulegt samt afmæli hjá aaron og steve.. komið heim um 4 og bara farið að sofa enda æfing daginn eftir klukkan 12
góð æfing og gaman að spila aftur í sólinni og á grasinu já hér er allt grænt hehe! enginn snjór!
og svo bara læra og reyna að slappa af...
horfi á golden globsen í gær þegar ég kom heim og skemmti mér bara ágætilega sá nokkra myndir sem ég verð að sjá og þar fremsta í flokki Ray myndina maður hefur bara ekki séð annan eins method leik usssss
en já já hér er bara þið vitið ekkert að gerast annað en skóli og nóg að gera í því
næsta helgi vel pökkuð sennilega ikea á laugardaginn stína þarf að versla drasl og eitthvað og svo bara leikur strax næsta sunnudag þar sem við reynum að halda þessari sigurgöngu áfram en við höfum ekki verið sigraðir í að verða 4 ár
jæja verðum í bandi kæru vinir!
og eitt get ekki svarað kommentum svo ég verð að gera að hérna.. dúna það er best að fara á virgin.co.uk það er aðal lesta síðan hérna úti þar fara lestirnar frá euston til manchester og það er frekar langt frá okkur... góður klukkutími að komast þangað!
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 14.1.2005 | 13:02 | jæja allt komið á fullt |
já allt komið á fullt í englandinu góða... skólinn og æfingar og annað í 5.gír...
gengur bara svona lala að komast inní þennan gaur sem ég er að leika.. pínu erfitt að finna hann en það hlýtur að koma.... enda bara fyrsta vika liðin en maður verður samt að hafa hraðan á því eftir tvær vikur byrjar tækni vikan og þá verður maður að vera komin með allt á hreint eða svona næstum því ... allavega nóg af helvítis línum til að læra... allavega!
vikan hefur liðið eins hratt og hún gerir alltaf hérna úti... maður vaknar á morgnana í fallegu veðri sól og birtu en pínu kalt en það lagast þegar að líður á daginn og núna er bara ágætis veður frekar heitt bara um 13 gráður eða svo!
ég fékk gjöfina frá handbolta sambandinu eða IHF senda til mín í gær ég sagði ykkur frá því að ég hefði unnið í einhverri net kosningu og viti menn ég hélt að þetta yrði einhver bolur en nei þetta var bara glænýr adidas galli sem myndi kosta svona 8kall út úr búð... mjög sáttur með það...
gott að vera kominn aftur út í sky veröldina mína þar sem nóg er af fótbolta og bíðum við hjóninn spenntir eftir leiknum á morgunn en þá mætast bæði liðin úr setrinu man u og liverpool... ég ætla gera tilraun og búa til svona kjúklingavængi ti að hafa með og er því á leið á jóa fel síðuna að leita að uppskriftum...
hef verið mjög upptekinn öll kvöld við að klippa og skemmt mér konunlega við það og orðin bara frekar sleipur en langt frá því að vera útskrifaður á þetta forrit er premier heitir! þið sjáið vonandi afraksturinn einhvern tíman á netinu ef því verður reddað!
svo var ég að panta adsl módem svo ég verð með hraða tengingu heim frá og með næstu dögum enda stína á leiðinni og það dugar ekkert minna fyrir svona stóra stelpu!
en eitt hjössi minn ein spurning til þín þegar maður er að klippa og búin að keyra út... og ætlar að horfa á þetta í media playernum þá tók ég eftir því að alltaf þegar ég var með einhverja fídusa á eins og setja texta við mynd eða bara eitthvað þá minnkaði alltaf skjárinn á media og svissaði svo strax í stóran skjá... einhverja hugmynd akkuru það er ...?
allavega nó af búllí í bílí hírímust síðír íg gíðír stíndír ífrím Mín Ínítíd! |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 11.1.2005 | 12:56 | kominn út og allt |
bara svona lala... er mjög þreyttur eftir fríið sem var ekkert frí heldur bara vinna og svo var flugvélin alltof sein í loftið og leiðindi biðum á flugvellinum í góða 5 tíma vei!
hitti gulla 5 á flugvellinum og eyddi hann þessum skemmtilegu tímum með okkur!
flugum með vél frá my travel.com einhverjum airbus viðbjóði sem var nú svo sem alltí lagi...er annars bara svona að koma mér fyrir og verð því með ítarlegri fréttir á næstu dögum
en allavega komin út í hlýjuna úr kuldanum! |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|