Dagbók - Eldri dagbækur

29.6.2004 | 18:38 | jæja
þá er kallinn komin heim og allt got og blessað með það kom reyndar ekki fyrr en á sunnudeginum sökum vélarbilunar í express vélinni en fékk hótel og mat í boði þess félags og flaug svo heim í leðursætum og fíneríi mjög gaman og gott að vera kominn heim!

en ég mun ekki blogga hérna í sumar því þetta er jú london blogg og hitti ég ykkur bara frekar en að skrifa hérna hvað ég er að gera á daginn...

ég vil þakka öllum þeim sem hafa heimsótt mig á þessu ári og vona að þið haldið því áfram á því næsta ;)

hlakka til að sjá ykkur öll og eigiði gott sumar!

siggi
silli | Comment (0 )
26.6.2004 | 10:02 | Ágæti þingheimur.....
Nú er svo komið að því að ég er á leiðinni heim eftir nokkra viðveru í landi engilsaxa... ég mun mæta heim í kvöld og vonandi sjá ykkur flest á næstu dögum allavega vitiði hvar mig er að finna;)

ég vil þakka öllum þeim hafa nennt að lesa síðuna mína þetta árið en heimsóknir eru orðnar ansi margar þrátt fyrir litla síðu og lítinn mann sem á hana skrifar...

En núna mun síðan fara í sumarfrí og mun ekki verða skrifað hérna næstu þrjá mánuði eða svo.. nema að mér detti eitthvað ótrúlega sniðugt í hug... en þar sem ég er ekki mjög sniðugur er það mjög ósennilegt!

ég vil biðja ykkur vel að lifa og hlakka til að hefja skrif aftur þegar ég hef snúið aftur til lands saxa!

Góðar stundir!
silli | Comment (0 )
24.6.2004 | 23:01 | Grátur....
Djöfull er ég fáránlega fúll þessa stundina helvítis svissneska fíflið rændi okkur englendingana þessum sigri enda ekki við öðru að búast frá nágranna landi hálvitana í Þýskalandi!!! shit hvað ég hata þessi lönd.. og hvað er með minn mann hann bakskinku að klúðra tveimur vítum í sömu keppninni...

ég veit ekki hvað meira maður á að segja.. ég er að reyna að pakka en ég held bara áfram að fleygja hlutum í veggi og blóta öllu í sand og ösku... mætti halda að maður væri bara orðin enskur..

en allavega fer bara bráðum að koma heim.. lokadagurinn á morgun árshátíð og fótbolta mót .. eitthvað til að gleðja mann svona aftur og svo að sjálfsögðu að koma heim og hitta ykkur öll sem verður nú voðalega gaman!

sjáumst þar!
silli | Comment (0 )
23.6.2004 | 12:48 | 3 eitthvað....
já það styttist bara í heimför og því ekkert mikið að frétta héðan úr englandinu... það er búið að vera skítaveður hérna síðustu daga rigning og rok og því verður maður ánægður að komast heim í sólina...

en var að klára svona spuna tíma núna og er ég því búin í dag nema að ég á eftir að fara í viðtal hjá yfirmanni leiklistardeildarinna hérna úti og spyrja hann um loka einkunn og svona sem verður gaman...

hló endalaust í gær að svindlinu hjá dansvíðþjóð eins og ég vil kalla þá þessa dagana... ég spáði leiknum 2-2 eins og margir aðrir og viti menn hann fór svo ... svindl... ég veit ekki.. allavega feginn að ítalir eru dottnir út því þeir eru of lélegir!

en ekkert mikið að gerast bara smá skóli og svo heim að gera ekki neitt og horfa á fótbolta ... ágætis tími en líður svona frekar hægt allt saman!

ekki get ég heldur sagt að ég sé orðin spenntur yfir þessu blessaða flugi en það hlýtur allt saman að reddast og ég að komast heim fyrir rest!

nettur í bili!

var að tékka á því að það heimsóttu 1555 manns síðuna mína í gær sem verður að teljast ansi gott... ég verð að fara komast að heildar heimsóknarfjölda á síðuna læt ykkur vita en það er vel á einhver þúsund
silli | Comment (0 )
21.6.2004 | 15:33 | 4 dagar...
Já var svo til að koma úr minni fyrstu critík og er ekki annað hægt að segja en að kennarar og aðrir hafi verið ánægðir með framtak sigurðar Hrannars Hjaltasonar í verki þriggja systra eftir checkhov!

Nei kallinn fékk mjög fína dóma og allir bara hreint út sagt ánægðir með hversu mikið ég hef þróast og þroskast síðan þau sáu mig síðast og sögðu að ég væri á mjög góðum stað! ég er því mjög ánægður með þetta og ekki hægt að segja annað en ég hafi klárað þetta fyrsta ár með stæl...hvort það haldi svo áfram á því öðru er allt annar handleggur og allt annað umhverfi miklu erfiðara en maður geriri sitt besta það er nokkuð ljóst!

En ég tók upp það sem þau sögðu og getið þið hlustað á það þegar ég kem heim sem er ekki svo langt skal ég segja ykkur.. bara á næsta laugardag mun kallinn svífa yfir landið í litlu iceland express vélinni sinni á leið til ykkar allra og þá geta hátíðarhöld sumarsins loks hafist og staðið yfir næstu þrjá mánuði...

er orðin frekar spenntur að fara heim og hitta ykkur öll og geta verið heima bara í þrjá mánuði sem er það mesta sem ég hef gert síðastliðið ár;) nú er allt að klárast hérna þetta búið og þar með fyrsta árið... eina sem er eftir er fundur með head of acting sem er chris white sem er aðal gaurinn hérna og getum við talað við hann um allt og ekkert og verður fróðlegt að sjá hvernig honum fannst mér ganga þetta fyrsta ár! eftir það er það bara smá spuna tími og svo bara árshátíðin á föstudagskvöldið og verður hún haldin með pompi og prakti hérna úti á skólalóðinni nánar tiltekið á stóra grassvæðinu... sem er núna verið að girða af og setja upp risatjald og annað.. fyrr um daginn verður svo 5 a side mótið sem er mikil spenna fyrir og já svo er það bara heim daginn eftir...

en í kvöld er lítið annað sem kemst að en hinn stóri og mikilvægi leikur englendinga og króata og ekki annað hægt að segja að flest hjörtu hér skjálfi að stressi og tilhlökkun.. ég hef fulla trú á þeim og spái þeim 3-1 sigri held að það sé nokkuð ljóst!

allavega ekkert meira að segja í bili heyrumst eða sjáumst hress á næstunni!

ENGELENAAAND!!!!!

og já haukur minn til hamingju með afmælið í dag! þið hafið það gott þarna vonandi á spáni hlakka til að sjá ykkur í sumar!
silli | Comment (3 )
18.6.2004 | 18:48 | já það verður ekki.....
annað sagt en að maður hafi bara tekið chekhov og snýtt honum ærlega!!! mátti til með að segja ykkur hvernig gekk á fundinum með kennaranum og ég labbaði að henni og hún sagði bara "clearly a 1st" sem er náttúrulega bara snilldin ein! ég meina að fá fyrstu einkunn fyrir chekhov er mjög erfitt og þýðir það bara að ég hafi unnið vinnuna mína frá fyrsta degi...

þessi einkunn er fyrir processinn það er æfingatímabilið og annað og er ekki hægt að segja annað en að maður sé bara í skýjunum yfir þessu öllu saman! hún sagðist eiginlega ekki geta sagt neitt annað en það að þetta var brilliant work og ótrúlega vel útfærður karakter og annað sem einkenndi æfingatímabilið! hún sagði að það væri gott að vinna með mér ég væri órhæddur við að prufa nýja hluti og hún þyrfit alldrei að kenna mér neitt ég áttaði mig bara á því sjálfur og prufaði eitthvað nýtt næst!

allavega mátti til með að segja ykkur frá þessu því þetta er frábær endir á góðu ári fyrir mig! hún sagði að ég væri meira en tilbúin að takast á við stærri verkefni á 2. árinu og sagðist hlakka mikið til að sjá hvernig ég myndi höndla það! einnig sagði hún að það væri nánast öruggt að ég fengi góða kritík þar sem allir hefðu trúað því sem ég væri að gera og að ég hefði allt það sem þarf til að búa til mjög góðan leikara;) svo já ég er mjög sáttur!

ekki var það meira að sinni læt ykkur vita hvernig critsið fara og svo fer maður bara að hætta þessu bloggi bráðum því ég er að koma heim eftir viku;)

sjáumst!

og já eitt annað kallinn rakaði sig áðan í fyrsta skipti það er alveg síðan í febrúar ljótt að segja frá því en ég hef verið með þetta hey framan í mér síðan í feb. en núna lít ég bara út eins og 17 ára strákur;)
silli | Comment (1 )
18.6.2004 | 10:21 | Allt gekk
Já það gekk allt mjög vel í gær.. sýningin okkar gekk mjög vel og hjá öllum hinum hópunum einnig og var gaman að sjá alla leika svona í fyrsta skipti...

Eftir allar sýningarnar var svo farið á pubinn og fengið sér pint og sungið með öllum hinum englendingunum og var það mjög gaman sérstaklega þar sem vel fór ég hefði verið fljótur að hlaupa heim ef illa hefði farið það er nokkuð ljóst! enda eru þessir bretar allir klikkaðir!

en í dag er það svo bara einhver ársfundur eftir hálftíma og svo svona tutorial með kennaranum okkar sem verður athyglisvert því þá segir hún okkur hvernig allt saman gekk það er hjá hverjum og einum fyrir sig;) maður vonar að maður fái bara góða dóma frá henni... svo eru það crits á mánudaginn og þar veit maður ekkert hvað gerist en ég læt ykkur vita;)

bara vika í að kallinn komi heim það verður gott að sjá ykkur öll;)

silli | Comment (0 )
17.6.2004 | 00:34 | Hæ hó og jbbí jei og allt það!
já komin 17.júní og ég er svona rétt að klára lokaundirbúning fyrir sýninguna á morgun.. langaði bara að kasta kveðju á ykkur þarna heima...

Það gengur allt vel tvö rennsli í dag og gengu þau bæði mjög vel.. og því ekkert sem kemur í veg fyrir góða sýningu ámorgun enda eins gott því núna koma tveir kennarar og dæma okkur af sýningunni og fáum við sem sagt svona crits í næstu viku úff það verður stressandi en samt bara gaman held ég ! nema að manni verði slátrað!

en ég fékk vinnu í dag já kallinn er komin með vinnu og því er ég úber glaður í dag.. hann hjössi vinur minn öðru nafni hjössi plö kom eins og riddari úr einhvers konar lofti og bjargaði málunum ég verð að vinna hjá selecta í sumar og verð þar í hlutverki þjónustu eitthvað að fylla á sjálfsala frá selecta vatnsbrúsa og kaffieitthvað í fyrirtækjum! ekkert nema snilldin einar bara keyra um og vinna eins og móðir;) gríðalega sáttur og hjössi algjör snillingur fyrir að hafa mig í huga.. að einhverju leiti er þetta klíka en maður kemst samt ekkert áfram heima nema með klíku..

allavega kallinn sáttur og get ég bara notið þess að vera hérna í sólinni sem er búin að vera rosaleg síðustu daga og ég er komin með gamla hlýrabolafarið mikla sem ég hlaut á spáni í gamla daga.. þetta er bara eins og að vera í sólarlandafríi að vera hérna svo rosalegur er hitinn

en ég fæ líka að losna við helvítis skeggið framan í mér á morgun þegar við klárum sýninguna þó að það þurfi nú ekki mikið meira en smá vind til að feykja þessu framan úr mér... allavega segir viktor það!

en hef þetta ekki lengra í bili á morgun er sýning og verður maður að fara sofa það er nokkuð ljóst... svo er bara bjór og meiri fótbolti.. þetta hljóta að vera bestu tímar í lífi fótboltaunnenda þessar keppnir allavega er ég límdur fyrir framan skjáinn öll kvöld!
silli | Comment (2 )
12.6.2004 | 15:02 | ekkert að frétta
nema kanski það að evrópumeistaramótið er að byrja í dag og mikil tilhlökkun hérna í setrinu sérstaklega fyrir leiknum á morgun eins og kanksi heima líka...

en æfingar ganga mjög vel fyrsta rennsli í gær á þremur systrum og sýningin verður svo næsta fimmtudag og ekki laust við að kallinn sé orðin spenntur og vill bara fara klára þetta... hefur gengið rosaleg vel á æfingum og er ég meira en tilbúin í þessa sýningu hef líka fengið mikið um góð comment frá hinum og þessum kennurum sem hafa kíkt inn á æfingar að undanförnu!

þannig að það verður gaman að sýna á þjóðhátíðardegi okkar íslendinga og mun ég fagna deginum þannig að eiga góða sýningu vonandi... í gær fór svo fyrsta árið eða allavega eitthvað af því út að borða indverskan það var svo sem ágætt ekkert brjálað en fínt...

svo er planið í dag að horfa á fyrri hálfleik í portúgal grikkland og fara svo of horfa á síðustu sýninguna hjá öðru árinu en ég sá þrjár og miðvikudag.. þeirra þema er shakespheare og hef ég horft á rómeo og júlíu, as you like it og machbeth og síðasta sýningin í kvöld er svo twelfth night.. eftir hana er svo farið og horft á seinni leikinn í dag það er spánn rússland og svo farið í partý með öðru árinu...

en ég hef ekki skrifað mikið þar sem ég hélt að ég hefði fengið einhvern kúk á tölvuna mína en svo var ekki allavega ekkert gerst ennþá en það er einhver mynd sem kom á desktoppinn og ég eyddi henni úr tölvunni þannig að nú er desktoppinn bara grár og ég get ekki breytt því til baka þannig að ef einhver veit hvernig á að gera það má endilega skrifa í comment! gamla desktops myndin er undir ég hef prufað að færa slána niðri og þá birtist gamla myndin!

en já það styttist bara í heimför sem er alveg hreint ótrúlegt maður er bara nýkomin út og virkilega farin að njóta þess að vera hérna í hitanum og annað... en þetta er bara svo fljótt að líða allt saman! ég er væntanlegur heim eftir 2 vikur nákvæmlega í dag það verður samt gott að komast heim og hitta ykkur öll... og vera heima í þrjá mánuði því ég byrja ekki fyrr en 4 októrber aftur í skólanum;)

ég hef ekkert verið alltof duglegur við bloggið á þessari önn en það hefur bara verið svo mikið að gera og alltof heitt til að vera í tölvunni eins og ég hef áður sagt;)

en vona að allir hafa það gott heima og sakni mín mikið en ég er samt rétt ókomin svo við sjáumst fljótt!

silli | Comment (0 )
8.6.2004 | 02:53 | Föruneyti Leiksins....
jæja nú kemur loksins sagan af föruneytinu mikla á leið sinni til að fylgjast með landi og þjóð í manchester...

Part one!

tekið var á móti gestum, fyrst píanóinu og svo mávinum og unganum reyndar kom tenórinn þar á undan en ég var nú búin að minnast á það...

á föstudagskvöldið var svo haldið íslenskt pulsupartý og voru um 10 manns í húsinu þegar mest var.. og var þetta vægast sagt mjög skemmtilegt partý ekki hægt að segja annað og mikið drukkið og sungið.. til að mynda var þjóðsöngurinn sunginn um miðnætti og var hann meira að segja raddaður og fánanum flaggað og allir í landsliðsbúningnum sem hann áttu.. þetta var afar fallegt og skemmtilegt móment og einn af hápunktum kvöldsins og góður undirbúningur fyrir daginn stóra... ég byrjaði að taka til um 4 leytið og var komin í bólið um 5 sem þýddi að framundan var klukkutíma svefn fyrir ferðalagið langa til Manchester..... Góða nótt!

Part 2

Klukkan er 6 að morgni og vekjaraklukkan hringir shit hvað ég nenni ekki að vakna... jú ég er bara að grínast ég stekk á fætur og kveiki á tölvunni sem var inní stofu og skelli áfram ísland laginu á fóninn og nota það svona til að vekja mannskapinn sem byrjaði svona einn af öðrum að týnast inní stofu til að koma sér í stemmninguna sem var orðin alveg rosaleg allavega hjá mér... maður skellti sér í treyjurnar og fékk sér smá morgunmat, ég og viktor höfðum ákveðið að gera svona documentary um ferðina og því höfðu mávurinn og unginn ákveðið að koma með cameruna þeirra svo við gætum notað hana... við tókum því stutt viðtal við flesta í húsinu áður en leigubílinn kom.. hann mætti svo korter í 7 og keyrði okkur á viktoría station þar sem rútan beið okkar.

Rétt fyrir átta vorum við svo öll kominn uppí rútu og mikil eftirvænting fyrir þessi skemmtilega ferðalagi... það var nokkuð um enska stuðningsmenn í rútunni sem átti bara eftir að gera ferðalagið skemmtilegra... það gerðist margt skemmtilegt í rútunni, viktor hélt uppi stuðinu mest alla leiðina með skemmtilegum commentum og var hann ansi spjalda glaður líka en hann var dómari í þessari ferð og ferðaðist um allt með gul og rauð dómaraspjöld ásamt flautu. við stoppuðum einu sinni á leiðinni og höfðu þá allir sofið pínu enda frekar mikill þreyta í gangi, í stoppinu var gætt sér á burger king og sögur herma að eithvað hafi sá borgari farið illa í ungann og átti hann að hafa skilið borgarann eftir fyrir utan rútuna áður en haldið var af stað.. og fór því söfnun af stað fyrir ljósatíma handa unganum því hann var jú ansi fölur eftir þessa losun... en ekkert sem átti eftir að skemma ferðalagið... eftir stoppið átti ekki að vera nema um klukkutími eftir af rútuferðinni en það lengdist aðeins sökum umferðar...

en við tókum þá á það ráð að syngja svona í tilefni dagsins og eftir nokkur dry vodka staup til að koma okkur í gírinn reyndar voru það bara ég píanóið og mávurinn sem vorum í þeim pakka... en fljótlega eftir sönginn heyrðist í hátalarakerfinu frá bílstjóranum sem var hress kall hvort einhver væri með byssu og ef svo væri ekki vera feiminn við að nota hana og var þessum orðum beint til viktors... þetta var náttúrulega ekki honum bjóðandi svo hann rölti bara frammí og bókaði rútubílstjórann við mikinn fögnuð;) mjög fyndið atvik þetta er allt til í heimildamyndinni...

en svo komum við til manchester og lá þá leiðinn á pub sem heitir printworks en þar hittust allir íslendingarnir fyrir leikinn, þegar við komum þangað var mikil stemmning þegar byrjuð að myndast svo það var bara haldið beinustu leið á barinn og fyrsti bjór dagsins keyptur... ásamt því að kaupa fána,húfur og fleira!

Eftir stutt stopp samt aðeins of langt enda lentum við í spóluveseni og þurfti undirritaður og stóri björn að fara leita af slíkum þar sem hinar gleymdust heima.. en það hafðist allt á endanum svo ferðinni var haldið á city ground....

við tókum tvo leigubíla og hittumst á götunni sem labbað er að vellinum og við tók mikill söngur og gleði ótrúlegt að sjá allan þennan fjölda af íslendingum saman komna alla í fánum og öðru að kyra söngva saman... mjög gaman! þegar inn á völlinn var kominn var fenginn sér meiri bjór og svo bara upp og þjóðsöngurinn sunginn og verð ég að viðurkenna að sjaldan hef ég fengið jafn mikla gæsahúð enda var þetta ótrúleg upplifun...

Leikinn ætla ég ekkert að ræða um sérstaklega enda vitum við öll að við vorum alltof gestrisnir! en við skemmtum okkur eins vel og við gátum ég tók reyndar smá fýlukast af og til í leiknum eins og við var að búast en við reyndum allt til að koma með góða stemmningu sem gekk frekar erfiðlega það er að koma með nýja söngva og annað því við byrjuðum og sumir tóku undir en svo byrjaði alltaf ísland klapp klapp klapp ísland og svo framvegis... en okkur tókst til dæmis áður en fyrsta markið leit dagsins ljós að öskra hei í hvert skipti sem við náðum sendingu á milli okkar manna sem var mjög gaman;) þess má líka geta að valdimar ákvað að fara og fá sér bara bjór þegar 4 mínútur voru eftir af hálfleiknum og missti því að markinu greyið! en það var gaman að geta fagnað þessu marki!

leikurinn endaði og maður strauk tárin í burtu og reyndi að bera höfuðið hátt og söng píanóið alla leiðina aftur niður í bæ ICELAND ONE eða hvort hann sagði ICELAND WON þið náið alla vega pælingunni, við ekki svo mikinn fögnuð heimamanna...

Svo tók við lengsta bið eftir mat sem ég hef upplifað tveir og hálfur tími á hard rock djöfulsins rugl en þar var bara drukkinn meiri bjór og tekið meira upp og viðtal við hina og þessa og fólk spjaldað út um allt af dómaranum mikla... þar sem flest þessi spjöld gerðust fyrir framan myndavélina verður þessi dómari nefndur graham paul hér eftir!

eftir hard rock var svo farið að hugsa sér til hreyfings enda átti rútan að fara með okkur til baka á miðnætti svo við vildum ekki verða sein...

við drifum okkur niðureftir og héldum áfram að bulla í fólki og þetta er allt til á cameru sem ég á eftir að klippa til í sumar og sýna ykkur flestum vonandi....

Part 3

rútan lagði af stað á miðnætti og var mannskapurinn orðin vægast sagt mjög þreyttur enda búin að vera lengi að og lítill svefn nóttina á undan... margret tatcher keyrði víst rútuna og var hún hörð í horn að taka kellingin því við byrjuðum víst með smá læti á leiðinni og hlógum og annað sérstaklega sökum eftir hermu valdimars á jóhönnu sigurðardóttur og var það vægast sagt fyndið en fljótlega kom margret aftur í og sagði okkur að þegja ( ekki vissi ég að það væri bannað að tala í rútu en svona er þetta víst) hún sagðist ætla að hringja á lögregluna og láta hana fleygja okkur frá borði ef við myndum ekki steinhalda kjafti! svo við gerðum það....

Þessi ferð tók alltof langan tíma og má geta þess að við komum til baka til london um 6 leytið eftir 6 tíma ferðalag, valdimar sagði þá skilið við okkur enda átti hann eftir að tékka sig inná hótel, tékka á tékkanum og tékka sig svo inná flugvöll seinna um kvöldið..( valdimar á þennan brandara bara svo þið vitið það) en ferðin okkar endaði um 9 leytið hér aftur í welling og hef ég sjaldan verið jafn þreyttur á ævi minni! við tók langur svefn frameftir degi sem endaði svo með frábærum mat frá alla kokki um kvöldið og við horfðum svo á efnið sem var tekið upp en alltí allt tókum við upp c.a. tvo og hálfan tíma af rugli!

The end!

þetta var frábær ferð í alla staði og frábær helgi, eitthvað sem maður gleymir seint og frábært að hafa verið partur af þessu öllu saman og er ég viss um að aðrir í föruneytinu eru á sama máli það er alveg ljóst!

hér eru svo nokkrar fleygar setningar úr þessari ferð sem mér er svo sem alveg sama hvort þið skiljið eða ekki en okkur fannst það allavega mjög fyndið!

Þetta er ekki hvítum manni bjóðandi
Er þetta vanillu kók sem ég er að drekka eða situr svartur maður við hliðina á mér..

þetta var reyndar ekkert fyndið heldur voru þetta íslendinga hálvitar sem voru með okkur i rútunni á leiðinni heim og eiginlega bara gert til að sýna hversu sorgleg við erum...

Iceland one! england few
Iceland Won england had sex
We scored a goal ( hlátur)
Rútan Dó sem er frægur rithöfundur

og ég man ekki meira en þess má geta að DVD diskurinn um föruneyti leiksins verður gefinn út í ágúst það er fyrsta bindi og mun svo alltaf verið gefið nýtt bindi út á hverju ári þar til þú lesandi góður hefur nælt þér í öll þrjú bindin mikiði verður um aukaefni og annað eins og gengur og gerist á þessum diskum;)

en þetta er orðið ágætt og ég er að hugsa um að fara leggja mig enda sólbaðs dagur á morgun því það er spáð 29 gráðu hita hér í london á morgun og það er ekki leiðinlegt að vera í fríi þegar svoleiðis er!

bless kex!
silli | Comment (4 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september