Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 31.5.2004 | 21:54 | Busy helgi... |
Já það hefur verið mikið að gera í setrinu undanfarna daga enda feðgahelgin mikla... þeir félagar komu á fimmtudagskvöldið til welling sáu höfuðstöðvar mína hérna úti og leist þeim bara vel á enda ekki annað hægt! frábært hús!
þeir fóru svo til london á föstudeginum meðan ég var í skólanum og sögur herma að hann karl faðir minn hafi ekki labbað jafn mikið síðan á skáta jambory in the seventies! en allavega þeir skemmtu sér vel og ég kom síðan heim um kvöldið eftir smá bjórþamp á pubnum og ákvað að taka litla bróður eða hvernig sem þið viljið kalla það á smá djamm hérna í london.. viktor kom með og við byrjuðum á einhverjum skítapub hérna í welling þar sem voru samankomnir við þrír og einn annar róni svo við smelltum stóri L-i á þann stað of ákvaðum bara að flippa og fara inní london... við fórum á O-bar í london og hittum þar einhverja norska menn og konur sem við kölluðum bara íslenskum nöfnum enda þessir norsku nöfn frekar ansaleg ég meina ef einhver heitir lars þá hlýtur það að vera lárus... svo var bara haldið heim með nætustrætó sem kostar 1 pund og höfum við ekki verið nógu duglegir að mínu mati að skella okkur í bæinn og taka gott djamm og fara með nætur businum heim en það verður vonandi einhver breyting þar á!
á laugardeginum var svo farið í stærsta mall í heimi en það er í bluewater og ýmsilegt verslað aðalega dvd diskar og svo skelltum við okkur í bíó, reyndar meðan á verslunaleiðangrinum stóð var pabba bara hent inná næsta pub og prýsaði hann sig sælan þar í smástund... við fórum á day after to CRAP og varð ég fyrir miklum vonbrigðum hélt að þetta væri miklu meira spennandi mynd en allt kom fyrir ekki mæli ekki með henni!
svo bara heim og slakað á reyndar fór pálmi á pubinn og kynntist einhverju liði sem hann hefur svo hitt á pubnum undanfarið og er það ákkurat núna... ekki þekki ég neinn allaveag hérna....
í gær var svo dagurinn tekinn snemma og farið á pubinn þar sem var horft á ísland japan og voru álíka fáir á leiknum og á pubnum en við skemmtum okkur vel og kom kóngurinn líka og horfði á þennan slag með okkur... einnig sá hann um skemmtiatriði í hálfleik..leikurinn fór ekki vel og hef ég ákveðið að fara ekki til manchester sökum þess að við getum ekki unnið mótið sem er algjör skita.. ég meina til hvers að horfa á england ísland ef það eina sem við getum fengið út úr leiknum er skitin sigur en ekki sigur í mótinu algjört húmbúkk.. reyndar sagði viktor að ég væri nú bara ekki í lagi að halda að við gætum unnið þetta enska lið en hei ´eg er keppnismaður og sætti mig ekki við eitthvað annað sæti!!! ég meina beckham og owen og eitthvað við erum með miklu betra lið en þeir á góðum degi!!!!
eftir leikinn var svo tjillað úti og spjallað og feðgarnir fóru í safeway og keyptu í matinn enda átti kokkurinn að elda um kvöldið... þess má geta að þessi svo nefndi kokkur hefur kvartað yfir öllum mat síðan hann kom hingað!! en maturinn sem hann gerði grillaðar svína eitthvað brögðuðust mjög vel og ekkert út á þann mat að segja... svo bara haft það gott í setrinu það sem eftir lifði kvölds...
í dag var svo brjálæðislega gott veður og það nýtt til fullnustu... pabbi fór til vinar síns í melksham sem er smá ferðlag fyrir utan london og hann er á leið til baka og sagðist hafa skemmt sér bara mjög vel... pálmi fór einn sem túristi til borgarinnar enda best geymdur einn og keypti sér meðal annars skotapils og eitthvað fleira.. hann er nú á pubnum eins og áður hefur komið fram í þessari frétt... ég og viktor fórum hinsvegar út að hlaupa og hlupum út um allt eins og óðir kettir og var það mjög gaman í þessu veðri bara vippa sér í stuttbuxurnar og hlýrabolinn og af stað.. eftir langt og gott hlaup var svo komið heim og fengið sér einn bragðgóðan viktor sem er svona boozt drykkur sem vitkor fann upp og svo legið í sólinni í allan dag ásamt því að horfa á fótbolta dvd hinn fullkomni frídagur eins og ég vil kalla það... og liturinn sem kallinn tók usss ekkert smá brúnn enda makaði ég mig oft og mörgum sinnum í bananaboat olíu með engri vörn... einnig sást til viktors stela sér í smá olíu en það hefur ekki gerst síðan tja það hefur held ég bara allldrei gerst! en ég er núna eins og kolavinnumaður og hefði betur farið út að hlaupa bara ber að ofan því ég er með þvílíkt hlýrabola far sem er bara fyndið finnst mér.... það gera gulræturnar sem ég var látinn borða þegar ég var yngri... en allavega er vel grillaður í húðinni sem er bara gott ... svo var bara grillað áðan og horft á meiri fótbolta...
en feðgarnir fara á morgun og við tekur annað sett af feðgum,vinum og vandamönnum enda hin ótrúlega för til manchester á england ísland á leiðinni.. og þvílík tilhlökkun er að missa mig bara... og það geta allir notið ferðarinnar í sumar því ég bað ranný systur um að senda strákana með cameru og ætlum við leiklistarnemarnir að vera með documentary um þessa ferð sem hefst eldsnemma á föstudagskvöldið með nokkrum bjórum og svo áframhald á laugardaginn þetta verður rosalegt! meira um það seinna..
er ekki í skólanum fyrr en á fimmtudaginn svo það er bara að halda áfram að hafa það gott og njóta sólarinn sem heldur vonandi áfram að sleikja okkur!
bið að heilsa og vildi að þið væruð að fara á leikinn á laugardaginn... en nei svekkjandi fyrir ykkur sem eruð ekki að fara hahahahahaha!!!!!
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 26.5.2004 | 23:32 | fréttir og fleira... |
halló kæru vinir langaði bara svona að koma að smá fréttum hérna frá englandinu... var að tala við stínuna mína og hún hljómaði bara frekar jákvæð og er það gott! reyndar þarf hún að fara aftur í aðgerð á morgun læknarnir vilja hafa hana alveg perfect og sáu eitthvað sem mátti betur fara og því ætla þeir að laga þetta í fyrramálið... ég treysti þeim fullkomnlega fyrir því að standa sig enda fínasta fólk og stína ánægð með lækninn! enda ef þeir standa sig ekki er mér að mæta;) en hún hefur fengið mikið af heilla óskum og þykir okkur báðum afar vænt um það og megið endilega halda áfram að senda henni hlýjar kveðjur eða bara kíkja í heimsókn það er jú jákvæðnin sem kemur henni í gegnum þetta annars leiðinlega slys...
annars er lítið að frétta frá london nema það að við erum búnir að vera í fríi og notuðum daginn til að redda ferðinni til manchester og gekk það bara ágætilega þrátt fyrir heilmikin tíma sem fór í þetta ég panta bara bjór frá þeim ferðalöngum sem eru að koma hingað fyrir vinnuna;) en ég skrifa hérna fyrir neðan upplýsingar um hvernig ferðin lítur út í dag og mér líst bara ansi vel á þetta en ég skrifa meira hérna neðst fyrir ykkur manchester fara...
eftir stússið í dag var bara haldið heim í fótbolta og svo horft á meistaradeildina þar sem porto rúllaði yfir monaco og var það miður.. ekkert sérstakur leikur heldur! mæti svo í skólann 9 í fyrramálið og feðgarnir koma svo um hádegi á morgun til lundúna og hitti ég þá annað kvöld það verður örugglega mjög gaman og gaman að sýna þeim hvernig ég bý og annað;)
annars var ég að átta mig á því að það eru einungis 4 vikur í að ég komi heim aftur sem er náttúrulega bara ekki neitt þetta líður allt svo hratt!
en man ekki eftir meiru í bili svo ég enda þetta á upplýsingum fyrir ferðalangana...
Staðan er þannig að ferðamátur okkar til manchester verður rúta sem mér líst bara vel á meiri stemmning yfir því;) eða vonum það allavega ástæðan fyrir þessu er sú að við gátum fengið ferð fram og til baka fyrir 32 pund með lestinni sem átti að fara þá átta um morguninn og aftur klukkan 18:47 til baka sem okkur fannst vera pínu tæpt svo við ákváðum að hringja í liðið og athuga hvernig þið mynduð taka í þetta eftir smá stúss fórum við og ákváðum að skella okkur á þessa miða en þegar við komum aftur var bara allt orðið uppselt það er ódýru sætin og ferðin því komin upp í 53 pund fram og til baka sem er alveg 4000 krónum dýrara og mér fannst það ekki alltof nett að ferðin myndi kosta um 7000 krónur svo eftir miklar pælingar var okkur bent á að tékka á rútunum og þetta voru mjög leiðinlegar pælingar og fólkið ekkert alltof hjálpsamt en lítið við því að gera og ég vildi athuga hvort ekki fengist ódýrari ferðamáti.. þess má geta að það liðu svona 15 mínútur á milli þess sem miðarnir voru til og ekki... frekar skrýtið en lestarkerfið til manchester er í einhverju bulli svo það var ekkert við þessu að gera....
Við fórum því og tékkuðum á rútunum og fengum miða á spott prís eða 20 pund fram og til baka sem er algjör snilld... ég meina 2500 kall til manchester það er mjög gott og vorum við bara stoltir af því... ferðin tekur aðeins lengri tíma lestin er 3 og hálfan tíma en rútan 4 og 50 mínútur en þetta eru alvöru rútur risastórar og góðar og mjög rúmgóðar að sögn... við leggjum af stað klukkan 8 um morguninn með rútunni eins og lestartíminn var upphaflega og verðum komnir rétt fyrir eitt og þá eru 2 og hálfur tími í leik... ferðin til baka var svo smá spurningamerki en það var hægt að fara klukkan 18:30 sem er frekar tæpt og við ákváðum þá fyrir hópinn að fara klukkan 23:59 til baka ég veit að það er pínu seint en það verður bara skemmtilegra að geta tekið smá djamm með fólkinu í manchester tala nú ekki um ef vel gengur á leiknum og svo er bara hægt að sofa í rútunni á leiðinni til baka;) verðum því komin aftur í setrið með ferðalaginu frá manchester og frá því sem rútan stoppar á um 6 leytið um morguninn;) þetta verður bara stemmning held ég það var erfitt að púsla þessu öllu saman en við spöruðum allavega 30000 krónur fyrir allan hópinn þrátt fyrir aðeins óhentugri tíma held ég að 20 pund sé betri kostur en 53 pund ekki sammála ég meina þetta er jú bara tími sem við erum að tapa eða græða égmeina kanski verður bara mjög gaman í manch. eftir leikinn allavega verðum við komnir aftur eftir góðan svefn í rútunum og sunnudagurinn því opinn til frjálsrar iðkunar;)
ég vona að allir séu sáttir við þetta ( jón, jón þór og valdi) ég og viktor og alli erum allavega sáttir með þetta;)
þið getið bara tjáð ykkur hérna ef þetta er alveg off eða bara sagt já takk fyrir að redda þessu og komið með bros á vör til lundúna og SHIT hvað þetta verður gaman hjá okkur;)
Áfram ísland! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 26.5.2004 | 03:29 | Slæmar fréttir |
já ég fékk heldur betur slæmar fréttir af elskunni minni henni stínu í gær...
ég ætlaði að fara hringja í hana eins og svo oft á kvöldin þegar mamma hringir í mig og segir að stína hafi lent í slysi á hestbaki fyrr um daginn og tvíbrotnað á öklanum og hafi verið um opið beinbrot að ræða ég hef alltaf sagt að ég hata þessa hesta þeir eru stórhættulegir... en það þýðir lítið að vera reiður út í þá!
Hún er allavega á spítalanum eftir langa aðgerð í gær og maður er hálf lamaður hérna svona langt í burtu frá henni.. ég var að enda við að tala við hana og hún veit ekki alveg hver staðan en nema fyrir utan hrikalega verki í löppinni enda var þetta mjög slæmt brot beinið stóð víst út úr löppinni!!!
en það er lítið sem ég get gert og það er kanski það versta, ég fór út í garð í staðinn og sló allann blettinn og snyrti garðinn eins vel og ég gat þetta tók bara heila 4 tíma... viss um að mamma bölvar mér núna fyrir að gera þetta alldrei í hennar garði en það er víst alltaf öðruvísi þegar maður á sjálfur í hlut!
en allavega þá er hún á A-4 deild á borgarspítalanum og ég kemst ekki til að heimsækja hana en ef eitthvað af ykkur vill það þá þætti henni örugglega vænt um það því þetta er hræðilegt að lenda í svona en það er alltaf hægt að hugsa að sem betur fer fór ekki verr... og hugtakið þetta græðir áður en þú (við) giftir þig;)
Breytt fyrir mömmu ! þetta á víst að vera þetta grær áður en þú giftir þig en ekki græðir það er víst ekki mikið hægt að græða á þessu!
en ætla að fara held ég á tónleika með stóra birni í kvöld hérna niður í london það hljómsveitin ske sem er að spila og vinur viktors hann kalli að deita söngkonuna í þeirri hljómsveit bauð okkur að koma... ég er svo sem ekki í miklu stuði til að gera eitthvað en það er sjálfsagt betra að gera eitthvað en að stara út í loftið og hugsa hvort maður eigi ekki að koma heim! en ætli það sé nokkuð sem ég geti gert meira ef ég væri heima....
allavega bara svona stutt frétt frá mér til að segja ykkur þessi tíðindi
Förum varlega elsku vinir! |
 |
| silli | Comment (5 ) |
 |
 |
 |
| 23.5.2004 | 16:02 | Djöfullinn sjálfur!!!!!! |
maður er svona rétt að ná sér niður eftir leikinn en djöfull er ég alltof tapsár og fúll og við töpuðum ekki einu sinni leikurinn endaði 3-3 en hefði átt að enda þrjú núll fyrir okkur því þannig var staðan eftir 70 mínútur andskotinnn held að ég hafi alldrei blótað jafn mikið á íslensku og ensku eins og í dag!!!!
ég vaknaði klukkan 11 og tilbúin í slaginn veðrið frábært til knattspyrnu iðkunar sól og smá gola algjör snilld svo það var borið á sig sólakrem hárið greitt aftur skellt sér í gallan og niður á völl og stóri björn að sjálfsögðu með í för !
Það er völlur fyrir aftan skólann sem við notuðum stálumst inná hann og þurftum að búa til okkar eigin mörk þeir voru nefnilega nýbúnir að taka allt niður enda tímabilið búiið hérna úti! strákarnir í sviðshönnuninni voru búnir að útbúa stangir sem við settum upp þar sem stangirnar voru áður fyrr einnig höfðu þeir útbúið horn fána og sláinn var búin til með svona plast dæmi og það var bara fínt allt til reiðu við ákváðum að þeir myndi dæma fyrrihálfleik og við seinni.
við byrjuðum mjög vel gott lið og með öfluga vörn með rússan (viktor) í hjarta varnarinnar... við áttum betri færi og fengum víti sem aaron misnotaði sem var ekki nógu gott, en svona er það bara. boltinn barst svo meðfram hliðarlínunni við hornfánan og litli dvergurinn mættur til að sweepa svæðið og ekkert svo sem að gerast og ég sparka honum bara útaf fæ svo þessa rosalegu tæklingu og er þvílíkt bólginn í hnéinu ég náttúrulega trompast eins og menn þekkja og stend upp og hendi þessu stóra manni sem tæklaðu mig aftur í jörðina og segi á íslensku " hvað ertu að gera þarna helvítis fíflið þitt" og dómarinn hleypur að mér og segir OJ calm down og ég var ekki einu sinni að tækla og dæmir á mig.. og svo segir hann I have heard about you! keep it calm! ég hef spilað einn leik en menn eru strax farnir að þekkja mig hérna hvað er það kanski hafa þeir fengið einhverjar upplýsingar frá liðinu sem við spiluðum síðast við ekki það að ég hafi gert eitthvað þar nema bara látið eins og fífl;) en allavega ég hristi þetta af mér og á fína vörslu og þá einu í fyrrihálfleik varði einn á móti einum og boltinn barst lengra úti í teiginn og þar kom gaur hlaupandi fyrir opnu marki en mér tekst einhvern vegin að henda löppunum fyrir skotið og ver hann í horn!
Þetta var svona það sem gerðist markvert hjá mér í fyrri hálfleik við spiluðum góða vörn og þeir komust ekki neitt! en við sköpuðum okkur heldur ekki mikið. en við byrjuðum þann seinni með látum skoruðum tvö mörk á fyrstu fimm mínútunum og allt gekk eins og í sögu bættum svo við því þriðja og staðan þrjú núll og ég ekki búin að fá eitt skot á mig og sigurinn nánast í höfn ég meina þrjú núll! en nei við gerðum þá breytingar og skitum alveg uppá bak, það var moð í teignum hjá okkur boltinn berst út á scholes svæðið og mínir menn bara með tjaldhælana alveg fasta niður enginn fer út í manninn og hann smellir honum laglega í hornið óverjandi fyrir mig sá ekki einu sinni boltann en samt í rétt horn.... svo fljótlega fá þeir sendingu inn fyrir vörnin einhverstaðar í rugli og hann kemur einn á mig ég hef hann allan tímann og legst fyrir hann ver og lít svo við og boltinn á leið í markið þá varði ég hann og boltin fór aftur í bumbuna á gaurnum og þaðan í markið frábært! shit hvað ég var reiður !!!
þess má geta að dómarinn okkar var bróðir aarons og í stað þess að vera hlutdrægur fór hann í hina áttina og dæmdi allt okkur í óhag sem var bara rugl hann vissi ekkert hvað hann var að gera svo er öskrað ein mínúta eftir boltinn berst inní teig viktor skýlir boltanum og einhver strumpur dettur og hann dæmir víti það var náttúrulega allt vitlaust og ég varð brjálaður en það var allavega víti og gaurinn hleypur að boltanum og setur hann vintra megin við mig ég skutla mér þangað og ver hann og inn og það var gríðalega sárt að sjá á eftir boltanum inn sérstaklega eftir að hafa varið hann og svo var flautað af 3-3 út af einhverju kúka víti á síðustu sekúndunum... ég hljóp náttúrulega beint í dómarann og sagði hvað ertu að spá þarna og viktor varð enn reiðari og sagði bara þú ert bilaður í hausnum að dæma á þetta og hann vildi meina að viktor hefði rifið hann niður en hann var örugglega svona hrikalega stoned en hann er soldið svoleiðis að hann sá ekki betur!!!! þetta endaði næstum mjög illa en við fórum báðir í hann ég og viktor kanski aðeins meira enda ekki skrítið að fá svona dóm í hausinn frá einhverjum kjána sem veit ekki neitt!
en allavega þeir fögnuðu og ég varð brjálaður og ekki í fyrsta skipti þennan daginn ég meina þetta var unninn leikur... en svona er fótboltinn víst og ekki mikið hægt að gera menn róuðu sig niður og ég ákvað svona í lokinn að þakka þessum mönunm fyrir leikinn en þetta voru nú samt meiri fíflin! og við reyndum að segja hei þetta er bara leikur sem þetta er jú en ég meina tjamón 3-0 yfir og svo þetta! kanski sárast að vera svona nálægt því að verja vítið!
en ætli þetta sé ekki ágætt búin að taka út reiðina við töpuðum allavega ekki en mér finnst það samt þar sem þetta endaði svona en ég biðst afsökunar ég ljótum orðum í þessari grein og fyrir ykkur sem lásuð þetta og hafið engan áhuga á fótbolta biðst ég líka afsökunnar;)
hef svo sem ekki miklu við þetta að bæta nema kanski að maður verður að læra að slaka á ekki vera eins geðklofi alltaf þegar maður spilar en við áttum góðan leik í 70 mínútur og ekki hægt að sakast við littla manninn milli stanganna!
hafiði það bara gott þarna í rigningunni og vonda veðrinu ég reyni að hafa það gott í sólinni;) |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 21.5.2004 | 16:01 | ekkert að frétta.. |
já maður er bara sokkinn í listina og því ekkert að frétta frá london... það hefur verið soldið um hitaskúra í gær og í dag en þetta á víst allt að lagast um helgina... heyra í manni einn daginn kvartar maður yfir hita svo fer maður að versla fullt af sólríkum fötum og svo þegar það kólnar aðeins þá er maður alveg brjálaður... það er víst alldrei hægt að gera manni til geðs eins og mamma sagði alltaf er víst mjög erfiður í þeim málum!
helgin bara komin og maður þarf víst að læra allar línurnar sínar um helgina ásamt því að sjálfsögðu að drekka bjór yfir öllum fótboltanum og formúlunni...það er bikarleikurinn á morgun man u á móti millwall en millwall er einmitt lið flestra hérna í þeim hluta sem ég bý svo maður lætur ekkert mikið sjá sig ef man ú vinnur það er allavega að ekki vera að fara í búninginn og hlaupa um gæti endað illa!
en það er þvílík stemmining allir með fána hangandi út um gluggana sína og á bílunum svo þetta er bara snilld!
veit ekki hvað maður á að gera af sér í kvöld væri til í að gera eitthvað en svo sem ekkert í boði gæti dottið inná pubinn og fá mér kanski bara einn kaldan.... hver veit!
en annars gengur allt bara frekar vel æfingar og annað bara helvíti gaman!
en það er víst verið að loka bókasafninu svo maður verður að fara hætta þessu rugli og koma sér eitthvað
passið ykkur á rigningunni hún getur verið alveg stórhættuleg! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 19.5.2004 | 01:23 | Sól og blíða... |
já ég veit ekki alveg hvort ég hafi farið á réttum stað útúr vélinni þegar ég kom hingað því ekki vissi ég að bretland væri sólarnýlenda en annað hefur komið á daginn og er það aðalorsökin fyrir því að ég hef ekki verið duglegri við skrifin en raun ber vitni það er bara alltof HEITT!!!
átti frí í dag og naut þess vel en áður en ég kem að því er ágætt að taka svona kets up á því sem hefur gerst undanfarið, ég fór í euro partý þarna á laugardaginn og voru ekki nema 10 norðmenn stattir á svæðinu og þeir voru svo nettir að þeir töluðu bara norsku þangað til ég stóð upp og sagði hold shefte du jevler eða hvernig sem það er skrifað og eftir það heyrðist meira af enskri tungu í húsinu helvítis dónar þessir norðmenn, en okkur gekk ekki alveg nógu vel en sem betur fer gekk norðmönnunum enn betur;) ég gerði allavega nógu mikið grín að þeim! eins og mér einum er lagið.. ég fór því næst bara fljótlega heim eftir partýið og strætó ákvað að vera 5 mín of fljótur í tilefni dagsins og þar sem þetta var síðasti vagninn í new eltham þá varð ég bara að gjöra svo vel að hlaupa og þetta er ansi langt skal ég segja ykkur frá einari og heim til mín svona svipað og að hlaupa úr bænum og heim til stínu uppí sala hverfi en ég húkkaði smá strætó far með einhverjum vagni áleiðis og var því svona hálftíma á leiðinni heim og fékk mér nokkra G&T og svo bara í rúmið enda æfing daginn eftir...
vaknaði hress og tilbúin í góða æfingu og hún var bara mjög góð og skemmtileg í steikjandi hita að sjálfsögðu, svo bara heim og grillað og haft það gott í kvöldsólinni ....
svo á mánudaginn var fyrsta æfing í chekhov stykkinu og var gaman að fá gamla hópinn aftur.. en jesús hvað maður á eftir að deyja á þessum æfingum ég leik rússneskan hermann með mikið hár og mikið skegg, ekki nóg með að hitinn sé ómannlega hár þá þurfum við flestir strákarnir að bæta hann með því að vera í svörtum þykkum skóm, ég er í frakka sem er mjög þykkur, þykkum rúllukragabol og já ég mun sennilega deyja einn daginn úr hita því æfingarnar eru langar og strangar! við erum að tala um frá 9 til svona 6 í frakka og viðbjóði!
En nú er maður alveg dottinn inní puba stemmninguna maður fer eftir skóla sest úti í sólinni með einn kaldan sem er algjör snilld gott að enda daginn þannig....
í dag var ég svo í fríi og fór því að spóka mig um í bænum, fann gallabuxur sem pössuðu á alla kanta sem er ótrúlegt fyrir mig þar sem ég þarf alltaf að stytta allar buxur sem ég kaupi, nældi mér einnig í eintak af back to the future og fékk þessa báða gripi fyrir aðeins 2000 krónur sem er bara ekki neitt! ætla svo að fara aftur á morgun með stóra manninum og versla eitthvað pínu meira boli og eitthvað svo maður þoli hitan betur, það eina sem gildir hérna eru kvart buxur og hlýra bolur og nóg af vatni!
Setrið breytist nú á næstu dögum í gistiheimili fyrir ferðalanga frá íslandi og annarstaðar.. pabbi og pálmi bróðir eru að koma í helgar puba ferð hérna í næstu viku og vinkona jack er líka að koma svo þegar feðgarnir fara koma aðrir feðgar jónsi og jón þór í heimsókn til að sjá leikinn einnig verður alli tenór vinur viktors hérna og eitthvað hefur maður heyrt að píanóið láti sjá sig í lundúnarborg svo það er nóg að gera í gistirbransanum!
mikil spenna er farin að fara um mann fyrir leikinn Sven var að tilkynna hópinn og mikið búið að vera rætt um það og hverja hann kemur til með að nota en þetta er síðasti leikurinn fyrir england frakklands leikinn svo hann ætti að nota alla sína bestu menn! svo þetta verður bara snilldin einar!
Svo unnu strákarnir mínir í FC Läter glæsilegan sigur á fótbolta bullum úr einhverjum klúbbi í utandeildinni 5-0 og verður það að teljast mjög góð byrjun á sumrinu hjá okkur eða þeim þar sem ég hafði ekkert með þetta að gera, byrjuðum reyndar mjög vel í fyrra líka með 7-1 sigri svo nú er bara að klára þetta dæmi strákar!
en bestu kveðjur heim og fariði vel með ykkur!
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 15.5.2004 | 13:45 | frábær dagur í gær! |
hæ hæ ekki annað hægt að segja en að veðrið leiki við okkur hérna í englandinu... úfff hvað það var heitt í gær við erum að tala um svona 24 gráður í skugga og brjáluð sól og hitinn hækkar bara og hækkar það er spáð 26 til 27 gráðum út næstu viku shit ég held að ég deyi bara núna!
Við sýndum littla verkefnið okkar í gær og var það bara mjög fínt enn ein senan sem ég leik uppí rúmi og virðist fólk bara almennt vilja hafa mig uppí rúmi í þessum skóla við tókum bút úr leikritinu Road eins og ég hef áður sagt en það sem var furðulegt við þetta að áhorfendur sem voru kennarar og aðrir um það bil svona 20 manns löbbuðu á milli atriðana sem við settum upp, ég var í rúminu og það var mjög erfitt að hafa 20 manns standandi yfir rúminu og horfa á þig úr minna en meters fjarlægð en mjög gaman og krefjandi allt gekk þetta mjög vel og átti ég mitt besta rennsli hingað til!
Eftir þetta var haldið niður á pubinn og fengið sér mat og einn kaldan á kantinn! þetta var snilld sátum öll úti og hóparnir kláruðu hverjir á fætur öðrum og staðurinn var bara fullur af fólki úr skólanum! þvílikt veður svo ég haldi áfram að tala um það að sitja bara úti á pubnum með sólgleraugu og á bolnum að hafa það gott!
Svo ákáðum við nokkrir strákar að fara í fótbolta og ég er vel brúnn eftir gærdaginn hvernig verður maður þegar maður kemur heim usss orðin vel brúnn í framan allavega eftir einn dag í sólinni... við spiluðum í svona 3 tíma í brjáluðum hita og vatnið var ekki sparað held ég hafi drukkið svona 6 lítra af vatni reyndar eitt vont þegar það er svnoa heitt verður grasið svo þurrt að það er verra en gerfigras og þvílík brunar sár á löppunum sem ég fékk var að deyja í gær! maður var bara á stuttaranum og ber að ofan þarna í boltanum svo heitt var á köflum...
eftir það var farið aftur niður á pub sveittir og góðir og fengið sér annan kaldan sem var bara einum of gott;) svo fórum ég og stóri björn að sjá little shop of horror sem nokkrir krakkar settu upp í skólanum og var það bara gaman...
Svo var farið heim og pöntuð pizza og lífinu tekið með ró eftir langan og strangan dag! ég var í því að leita af köldum stöðum til að kæla minn litla líkama niður eftir sólina...
er orðin vel spenntur fyrir kvöldinu enda eurovision að byrja í kvöld, ekki alveg orðið ljóst hvað verður gert. annaðhvort farið í höllina í eitthvað norsara partý sem á víst að vera þar ein stelpan sem býr þar er norsk.. eða farið í íslendinga partýið niður í london sem á víst að vera mjög nett en nokkuð ljóst að það verður gerrt eitthvað skemmtilegt! enda veðrið alveg frábært shit hvað ég er búin að tala mikið um veðrið í þessari færslu en ég kvarta samt mest yfir þessu hérna úti því ég og viktor erum bara ekki gerðir fyrir svona hita kanski meira gert til að gera ykkur smá öfundsjúk;) sérstaklega hana stínu mína sem lifir fyrir hita allavega er hún alveg sót ill yfir þessu öllu saman!
en ég segi bara áfram ísland í kvöld og skemmtið ykkur bara vel þarna heima allavega ætla ég að gera það;)
Sólin biður að heilsa og ég líka!
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 13.5.2004 | 14:49 | Steikjandi hiti.... |
já algjör steik hérna í london, það er svona rúmlega 20 gráðu hiti og sólin í megastuði maður er að kafna hérna... en þetta er samt sem áður yndislegt að hafa svona gott veður svo framalega sem það verði ekki mikið heitara en þetta.... en ég þoli ekki of mikin hita en ég verð víst að fara undirbúa mig undir það því þetta er víst bara byrjunin!
Mikið hefur gengið á undanfarna daga á æfingum það hefur verið hrein martröð að vinna með mótleikara mínum undanfarið ég hef sagt ykkur frá henni stelpan sem fór alltaf að grenja og vissi allt betur en nú sem betur fer meiddi hún sig í einhverjum árekstri fyrir 2mánuðum síðan og kom síðan aftur því hún varð að gera þetta annars myndi hún ekki ná árinu sem yrði náttúrulega alveg hræðilegt fyrir okkur hin...NEI það yrði fínt! en hún var með einhverjar drama stæla og meiddi sig og verður því ekki meira með og æfði ég með Gí sem er önnur stelpa voða fín og skemmtileg með mér í aðalhópnum það er chekhov hópnum svo ég er sáttur við lífið í dag! ljótt að segja það en hei ég meina.....
Annars er bara allt gott að frétta reyndar erum við miðri hryðjuverka árás maura á setrið okkar ég vakna nú orðið og drep svona hand fylli af þessum andskotum meinlaus kvikindi en ekki gaman ef þeir fara að stela matnum eins og í tomma og jenna þeir gerður það alltaf þar!
en þrátt fyrir maurana og allt hitt skemmtum við okkur bara vel ég er í því að kynda menn upp fyrir eurovision og orðin vel spenntur get ég sagt ykkur, það verður örugglega eitthvað bara í höllinni hjá kónginum án þess þó að ég viti það en við gerum eitthvað skemmtilegt allavega er eitt á hreinu að maður hlýtur að verða fullur;) þetta er svo skemmtilegt kvöld verst að maður verður ekki í skipholtinu en svona er það bara maður prufar allavega eitthvað nýtt, reyndar gæti þetta orðið bara hin mesta skemmtun þar sem það er fullt af norðmönnum, og írum og bretum náttúrulega tyrkjum og allskyns verur!
nú svo er annað maður er nú orðin svo stressaður að maður er hættur að geta farið á klósettið og slakað á sökum þess að enginn vinna hefur boðist mér í sumar ég hef farið í nokkur viðtöl og send enþá fleiri email en ekkert gengið, mér hafa verið boðnar nokkrar vinnur en þegare ég segi þeim hernær ég geti byrjað þá bara já ok þá ert þú ekki alveg rétti maðurinn fyrir okkur. svo ef þið vitið um einhverja eða einhvern sem er að leita að fólki í vinnu og þið vitið nú hversu frábær ég er og duglegur strákur þá megiði láta mig vita því ég verð að fá vinnu því annars er þessi leiklistardraumur bara úti held ég, enginn pressa bara ef þið sjáið auglýsingu eða eitthvað erfitt fyrir mig að fylgjast með öllu heima;)
nú svo fyrir ykkur sem þekkja mig ekki þá eru hér smá upplýsingar um mig;)
Sæl veriði,
Sigurður heiti ég og er Hjaltason, ég er 22 leiklistarnemi út í london. Ég sendi ykkur hér með umsókn um starf hjá ykkur í
sumar.. Ég er á fyrsta ári í leiklist í skóla sem heitir Rose Bruford
College í london og er að leita að vinnu fyrir sumarið.
Málið er að ég get ekki byrjað fyrr en 28. júní en ég klára ekki skólann fyrr en 25 júní sökum skólakerfisins í Bretlandi... En
ég get unnið út allan september mánuð og er að leita að mikilli vinnu vegna þess að þetta er mjög dýrt nám en eins og markað
urinn er í dag tek ég allt sem býðst svo ég geti haldið námi mínu áfram.
Ég er mjög duglegur og reglusamur maður,ég á mjög auðvelt með að tala við
fólk. Ég er stundvís, hress og reyni að gera allt sem ég tek mér fyrir hendur alveg 100%!
Ég er með stúdentspróf frá verzlunarskóla íslands og útskrifaðist þar fyrir tveimur árum á viðskiptabraut þar var ég virku meðlimur í félagslífinu og setti upp sönleikinn slappaðu af í
Borgarleikhúsinu og sat þar af leiðandi í stjórn nemendafélagasins, ásamt því að taka þátt í tveimur söngleikjum á undan.
ég hef unnið sem:
Sundlaugarvörður í vesturbæjarlaug 2003
Tengiliður á auglýsinga og markaðstofunni 1001 nótt 2002
Flokkstjóri í unglingavinnu
Áfyllingamaður hjá sól víking, keyrði þá út og fyllti á í búðum og pantaði inn það sem þurfti.
þetta er svona það helsta sem ég hef gert á síðastliðnum árum.
Ef þið teljið ykkur geta nýtt mína starfskrafta endilega hafið samband!
Bestu kveðjur
Sigurður Hrannar Hjaltason
kt. 220382-3039
Email: sigurdur@hamstur.is
en nú er þetta orðið ansi langt og leiðinlegt svo ég fer nú bara að ljúka þessu...
reyni að vera duglegri að skrifa veit að ykkur finnst það svo skemmtilegt! það er bara svo erfitt þegar það er svona HEITT! |
 |
| silli | Comment (9 ) |
 |
 |
 |
| 10.5.2004 | 16:03 | Komin aftur út.... |
já þá er maður kominn aftur út og ekki var ferðin sú allra skemmtilegasta... hef bara sjaldan orðið jafnhræddur!
Við sóttum stóra björn um 12 leytið og héldum af stað til keflavíkur.. það var frábært veður og ég sá fram á gott og skemmtilegt flug, en NEI rauninn átti eftir að verða allt önnur!
ég sá reyndar að þegar ég var að labba inní flugvélina að ég kannaðist eitthvað við aðstoðarflugmanninn og viti menn jú ég þekkti hann bara þetta var hann Börkur félagi minn úr verzlunarskólanum ( sem var í þriller nefndinni) og ég hugsaði með mér já þá er þetta nú bara allt í góðu enda börkur traustur gaur...
Svo við förum af stað og þvílíkur titiringur ég hélt að vélin ætlaði alldrei að fara komast í loftið það nötraði allt á leiðinni upp... ég spurði konunarnar hvernig þetta yrði og þeirra svar var " þetta verður alveg Smooth" aha segjum það flugvélin náði svo loks smá skriði og ég sá fram á að hún næði klifra í rétta hæð...
Uppáhalds tíminn minn rann upp beltaljósin slokknuðu og ég beint á klósettið veit ekki ahverju en geri þetta alltaf fá að hreyfa mig aðeins... ég var ekki fyrr búin að hneppa frá en BÚMM og pissið út um allt... ég hendist til inná klósetti og svo heyri ég það er ókyrð allir í sætin og spenna beltin og ég trúði þessu bara ekki.. ég reyni að mjaka mér í sætið það var mjög erfitt svo mikið hentist vélin til og frá... þetta tók svona 15 mínútur og ég að farast úr hræðslu en björninn alveg rólegur og segir mér bara að SLAKA á!
Ljósin slokkna aftur og ég næ að anda léttar og fer og næ í tölvuna og við ætlum að fara horfa á eitthvað skemmtilegt ég er ekki fyrr búin að tengja en ég heyri í helvítist flugstjóranum það er ókyrrð allir í sætin og spenna beltin og ljósin slokknuðu aftur þarna erum við búin að fljúga í 50 mín og ennþá var vélin að reyna klifra... þarna var mér bara öllum lokið ég reyndi að horfa á tölvuna en ekkert gekk svo hræddur var ég andskotinn ég sem var að komast yfir þetta svo koma einhverjir flugmenn og bara stúta þessu öllu...
eftir klukkutíma flug fór allt að lagast og ég gat andað léttar og fengið mér bjór! enda vorum við bara komin í 40 og eitthvað þús feta hæð andskotinn hafi það! ég komst svo að því eftir mikið spjall við flugfreyjur og aðra í vélina að ástæðan fyrir þessu er rosalegt uppstreymi frá jörðinni og enginn ský nálægt sáum öll skipinn niðri á hafinu og því enginn vörn þetta skellur allt á vélinni... ég komst allavega á leiðarenda lendingin var skemmtilegt eins og alltaf og er ég viss um að berki vini mínum hefur bara þótt þetta gaman... reyndar sagði flugfreyjan við mig að henni fannst þetta óþarflega mikill hristingur á þessari leið svo víst hún sagði það þá var þetta eitthvað ekki bara væl í mér!
en við komum heim svona um hálf ellefu eftir leiðinlegar lestarferðir og svona, horfði þá á formúlu og valdi fífl sagði við mig á leiðinni uppá flugvél þegar ég var að kveðja hann í símann að schumacher hefði farið út af svo ég var ánægður að sjá að hann hefði unnið!
var að fá einkunnarblöðin og fékk gríðalega góðar einkunnir sennilega örugglega með þeim hærri á árinu miðað við fólk sem ég hef hitt en einkunnir í leiklist skipta ekki miklu máli svo sem bara gaman fyrir okkur sjálf!
ég fékk 3 fyrstu einkunnir en það er gefið í F sem er fall 3 einkunn 2.2 einkunn 2.1 einkunn og svo 1 sem er fyrsta ég fékk 3 fyrstu einkunni fyrir rödd, sögulegan dans, og dýravinnuna mína, og svo þrjár einkunnir uppá 2.1 fyrir solostory, sönginn minn og hljóðfræði! svo ég er einum of sáttur enda rosalega góðar einkunnir. það var sagt við okkur að það væri mjög erfitt að fá 1 einkunn hérna í skólanum! ég kanski henti inn commentunum sem ég fékk þegar ég verð búin að laga tölvuna heima en hún er víst eitthvað lasinn eftir að ég fór á internetið heima get ekki farið lengur á internetið!
Hjössi minn ég skrifa bara í comment hvað málið var svo allir þurfi ekki að lesa það!
heyrumst bæjó
já og það er 20 stiga hiti og sól og ský til skiptis alltof heitt! er bara á bolnum! |
 |
| silli | Comment (4 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|