Dagbók - Eldri dagbækur

11.4.2004 | 17:26 | kallinn kominn heim
já vildi bara segja ykkur að ég er komin heim og allt gekk vel á leiðinni heim... gaman að fljúga með flugleiðum!

en annars þá ætla ég í smá frí frá bloggi meðan ég er heima enda algjör vitleysa að blogga um eitthvað sem ég geri hérna heim þegar ég hitti ykkur bara frekar...

Gleðilega páska og sjáumst í bænum í kvöld!

siggi
silli | Comment (0 )
7.4.2004 | 23:29 | Allt búið!
Já kæru vinir tæknilegri þjálfun á fyrsta árinu er svo gott sem lokið bara dagurinn á morgun eftir sem er bara svona lokadagur...

Þetta var stór dagur í dag bæði sólóstory og songsharið og er ekki hægt að segja annað en að litli dvergurinn hafi staðið sig með stakri prýði og er ég bara mjög stoltu af sjálfum mér þessa stundina enda sit ég fyrir framan tölvuna skrifa þessi orð og sötra bjór svona í tilefni dagsins....

Já ég rúllaði þessu bara upp sólóstoryið um bílslysið fræga fékk marga til að hlæja og gráta um leið því ég gerði söguna mjög fyndna og dramatíska og reyndar frekar ógeðfelda um leið því hún hefur alla þessa hluti og var kennarinn minn mjög ánægður með vinnuna sem ég hafði lagt í þetta...

Ég söng fyrir framan áhorfendur í fyrsta skipti sólónúmer á minni lífsleið og vonandi ekki það síðasta því þetta var mjög gaman stressandi en gaman.... miðað við fyrsta skipti og það að mér finns ég aldrei hafa getað sungið skít þá gerði ég vel! það var líka mjög gaman að fylgjast með hinum krökkunum flytja lögin sín stóri björn með sína sönghæfileika fór náttúrulega á kostum og á ég eftir að læra mikið af hans sönghæfni vonandi;)

þetta var langur dagur byrjaði klukkan 9 í morgun og var komin heim rétt fyrir 10 í kvöld og svona frekar þreyttur en janfframt mjög ánægður og glaður enda á leið heim að hitta ykkur öll, hef varla haft tíma til að hugsa um flugferðina heim og vonum bara að til þess komi ekkert..

var að enda við að tala við massana tvo sem eru hérna í london það er vassi og galdi og ætla þeir að koma til mín á morgun og eyða minni síðustu kvöldstund hérna í bili með mér í setrinu og hlakka ég mikið til að sýna þeim hvernig ég bý hérna úti.... ætla síðan að fara með þeim eitthvað í bæinn á föstudaginn og jafnvel pæling að fara fyrir utan higbury og reyna að fá miða á leikinn á föstudaginn arsenal liverpool og taka björnin með okkur í það verkefni... gæti verið gaman að detta inná svona stórleik og halda svo heim bara;)

þessi vika hefur verið stór og ánægjuleg í alla staði allt hefur gengið mjög vel og maður að blómstra á rétta tímanum þar sem allt skiptir máli...

hef ekki mikið meira um þetta allt saman að segja nema að ég eigi eftir að sofna með bros á vör og fullur af tilhlökkun enda verður þetta yndislegt að koma heim og eiga góða stund með vinum og vandamönnum og ástinni minni um páskana.....

klukkan er núna að verða hálfeitt á aðfaranótt fimmtudags svo tæknilega séð kem ég heim á morgun...

Sjáumst hress á morgun!

heyrumst kanski fyrr ef ég finn eitthvað skemmtilegt að skrifa....
silli | Comment (1 )
5.4.2004 | 17:18 | Dauð hönd....
vaknaði í morgun með dauða hönd ég veit ekki hvernig það er hægt en allavega þá tók það mig 20 mínútur að vekja hana aftur til lífsins þetta er ekkert grín...

vaknaði í morgun og sá hendina bara detta úr rúminu og ég talaði við hendina sagði henni að fara aftur uppí rúm en hún vildi ekki hlýða svo ég lyfti henni upp með hinni hendinni en hún datt jafnóðum niður aftur ég vissi ekki hvað ég áttii að gera svo ég byrjaði að sveifla hendinni í rúmið og í vegginn og ekkert gerðist nuddaði svo hendina og ekkert gerðist gekk svo um alllta berjandi hendinni í allt saman og eftir 20 mínútur af þessu fór ég að finna fyrir blóði streyma niður og ég gat byrjað að hreyfa hana aftur!

þetta var skrýtið og sannar að það er stórhættulegt að sofa maður veit ekkert hvað maður gerir af sér í svefninum ég hef sofið svona illa á hendinni að hún dó næstum því bara og hefur verið í áfallahjálp í dag.. ef einhver veit hversu lengi þú þarft að liggja svona á hendinni til þess að eitthvað gerist þá má hann segja mér það því þetta var viðbjóður að lenda í þessu...

allavega stuttur skóli í dag svo maður fór bara heim um 4 og var að gera æfingar og svo bara tjill í kvöld kanski læra aðeins ekki mikið... þarf ekki að mæta á morgun fyrr en um 4 sem er mjög nett...

Allt að gerast heima bara... FAME og hárið bara í sumar og maður er að læra eins og samkynhneigður maður og getur því ekki verið með... svekkjandi fyrir mig akkúrat þegar ég ákveð að læra að verða leikari þá fer allt að gerast heima við skulum vona að þróuninn verði sú sama áfram....

Svo kom kennarinn min sem kennir mér historical dance að kona hefði hringt í hann í síðustu viku og verið að leit að leikara sem gæti dansað bæði ballroom og latin dansa því það er verið að setja upp nýja sýn í london sem heitir ballroom og erfitt að finna leikara með þessa hæfileika og hann sagði við mig synd að ég væri ekki að klára því hann hefði komið mér í auditions sem hefði verið nett en hann ætlar að hafa mig í huga í framtíðinni og það er mjög gott að vita af því!

en nenni ekki að skrifa meira svangur og svona!

sjáumst eftir 4 daga sem er náttúrulega ekki neitt...
silli | Comment (72 )
4.4.2004 | 17:05 | Drepast í bakinu...
Er að farast í bakinu í dag eftir helvítis gæsina í gær..

Já við kláruðum dýravinnuna okkar í gær með því að halda dýragarð niður í skóla og var það mjög gaman... vöknuðum klukkan hálf 9 því við áttum að flytja sóneturnar okkar sem gekk bara mjög vel var með góðan pitch í röddinni og vel centraður held ég og klikkaði ekki á texta þannig að ég gef sjálfum mér bara svona 3 kökur held ég fyrir það! svo kemur bara í ljós hvað kennarinn segir..

Eftir sóneturnar voru það svo dýrin sem tóku völdin, þetta er nú bara eitt það skemmtielgasta sem ég hef gert fullt af fólki sem var hleypt inní dýragarðinn og skoða dýrin sem við vorum að leika, er reyndar alveg búin í bakinu því ég þarf að fetta svo mikið uppá það þegar ég leik gæsina og þurftum við að vera sem dýrið í svona tæðar 50 mínútur og það er mjög erfitt!

Gæsin stóð sig mjög vel og skemmti hún fólkinu í dýragarðinum og tók ekkert aukalega fyrir það ... ég sýni ykkur hvernig gæsin er þegar ég kem heim! fékk meira að segja klapp þannig var það að ein stelpa kom og var að hrekkja mig svo ég stóð upp þar sem ég sat í róleguheitum og flaug af stað og tók svona hring í kringum fólkið og lendi síðan aftur og fékk klapp fyrir herlegheitin því lendingin var svo flott og raunveruleg! svo rak ég einn íkorna í burtu og stal brauðinu hans, borðaði brauð uppúr polli sem var þarna og fullt af grasi og var mér frekar illt í maganum...

Svo var bara farið á kentucky það er ég og stóri björn og keypti ég mér tvo tölvuleiki í tilefni dagsins tveir fyrir einn á 2000 kall sem er bara gefins og fór heim og spila tölvu og drekkar bjór því það var partý um kvöldið sem átti að fara í, óli vinur viktors kom og krassaði hjá okkur í sófanum og við skildum hann bara eftir og fórum í tvo partý og svo heim ekkert merkilegt frekar leiðinleg partý bara og já ekkert meira um það að segja!

Svo er dagurinn í dag bara búin að vera bor í rass, bara horfa á formúluna sitja úti í sólinni, læra smá horfa á sjónvarpið spjalla við björninn og margt fleira gott að taka svona tjill einu sinni eftir öll erfiðin!

Tenórahjónin garðar og kóngurinn eru á leiðinni í heimsókn og ætlum við að panta pizzu og borða ís og bara já hafa það gott hérna í setrinu það þýðir ekkert annað...

en það er kominn sunnudagur sem þýðir að það eru einungis 5 dagar í að ég komi heim sem er náttúrulega bara snilldin einar!

man ekki eftir meiru til að segja ykkur nema kanski bara áfram man u eftir sigurinn í gær helvíti fínt að london fíflin vinni ekki þrennuna!

Sjáumst eftir 5 daga
silli | Comment (0 )
1.4.2004 | 18:23 | Lyklar til lukku...?
Hvað er málið með lykla og að tínast þetta er nú bara alveg ótrúlegt! þannig er mál með vexti að Viktor kemur til mín í gær rétt áður en ég fer í tíma og segir við mig að hann sé búin að týna hjólalyklininum og ég segi nei djöfullinn hafi það helvíti var það leiðinlegt hérna taktu bara mitt hjól farðu heim og náðu í varalykilinn en þegar ég ætlaði að fara ná ég lykilinn minn þá brá mér heldur betur haldiði ekki bara að minn lykill hafi líka verið týndur sennilega einhverstaðar úti á vatni eftir allar æfingarnar þar í sólinni þetta var nú frekar asnalegt að við skyldum báðir glata lyklinum sama daginn! svo maður tók bara á það ráð að skokka heim sem var ágætt enda svitnaði maður helvíti mikið við það og ekkert nema gott um að að segja enda verður maður að grenna sig það þýðir ekkert annað!

Bara næstum því kominn föstudagur og bara vika í að kallinn stóri komi heim til ykkar á ný þá verða nú fagnaðarfundir það er nokkuð ljóst er það ekki! ég bíð allavega spenntur eftir því að sjá ykkur öll!

dýradagurinn á laugardaginn hlakka bara til fékk fullt af commentum í dag að gæsin mín væri rosalega fyndin og væri mjög gaman að horfa á hana, svo sagði shona kennarinn minn líka að hún væri tilbúin til sýningar! svo það verður bara gaman, einnig flytjum við sonetur á laugardaginn svo maður gæti ákveðið að skella sér eitthvað út um kvöldið enda svona önninn eða bara fyrsta árs þjálfuninn búin í næstu viku og bara eftir að sýna chekhov!

Er að hugsa um að sofa í svona 3 mánuði þegar ég kem heim um páskana er alveg að leka niður úr þreytu... kom mér nefnilega upp smá plani til að græða tíma en samt sem áður að tapa honum jafnóðum. ég ákvað að breyta ekki klukkunni hérna heima svo ég gæti lært lengur það er hefði alltaf einn klukkutíma til viðbótar en svo dytti hann jafnóðum út og um leið annar til viðbótar þegar ég færi í skólann morguninn eftir og er alveg hægt að segja að þetta sé að koma niður á mér núna!

sjáumst eftir 8 daga
silli | Comment (3 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september