Dagbók - Eldri dagbækur

31.3.2004 | 12:16 | 9 dagar...
sit hérna og hlusta á hann jónsa okkar syngja heaven mér finnst þetta alveg magnað hjá honum jú eitthvað er maður að heyra að lagið sé eins og come what may en ég meina hey eru ekki öll lög orðin eins og hvert annað í dag...

Ég er allavega búin að sýna fólki þetta hérna á netinu og tilbúin að veða öðru eistanu að hann verði í topp 3 það er alveg á hreinu og taki allavega bretana í ósmurt....

Er búin að ákveða að vera með eurovision partý hérna 15 maí og verður gaman að prufa að vera annarstaðar og upplifa nýja euro stemmningu þó svo að sú íslenska sé alltaf best er það ekki... langar að vera með grill og svona útí garði og fylgjast með þessu í hitanum og sólinni...

Talandi um hitan og sólina það er bara að verða ansi heitt hérna úti á daginn aljgörlega heiðskýrt og sólinn farin að brosa sínu skærasta allavega fólk farið að mæta í kvartbuxum og á hlýrabolum menn farnir að sparka bolta og fleira sem er gert þegar sumar er... en nei þetta gerist og maður fer bara heim í einhvern snjó hvað er það að það sé snjór heima...?

aðeins svona rólegra framundan núna búin að læra báðar soneturnar mínar utan af og fara yfir þær í tímanum í morgun svo nú er bara að þylja þær og gera þær skýrari... svo var ég í sólóstorý og er sagan bara nánast tilbúin smá lagfæringar og svo sýni ég hana eftir viku.. svo þetta er allt að klárast sé fram á það að geta farið snemma að sofa í kvöld allavega að slappa aðeins af....

Var að fá staðfestingu á því að ég byrja ekki í skólanum fyrr en 4 október svo það lítur allt út fyrir langt sumarfrí frá 25 júní til 4 október ekki slæmt það ... nú er bara að vona að maður fái einhverja vinnu sem verður sennilega ekki auðvelt þar sem ég er svo seinn heim...

sjáumst eftir 9 daga
silli | Comment (1 )
29.3.2004 | 18:12 | Geðveiki...
Tíminn líður alltof hratt, það er alltof mikið að gera ég er alltof þreyttur, það er búið að breyta klukkunni, ég er svangur en hef ekki tíma til að borða, ég er stressaður og já þetta er svona rjóminn af því sem er að hrjá mann þessa dagana og maður veit bara ekki í hvorn fótinn maður á að stíga því um leið og maður stígur niður er komin nýr klukkutími nýr dagur ný verkefni svo ég held að það sé bara best að frjósa allt saman núna svo hægt sé að gera eitthvað..

Helgin er samt búin að vera bara ágæt hjá okkur í englandinu.. á föstudaginn fórum við og sáum sýningu hjá þriðja árinu sem var gríðalega skemmtileg og vel leikinn... eftir það var bara farið heim og slakað á enda tími strax morguninn eftir á laugardegi klukkan 9 í speech fundimental þar sem við erum að læra enska hljóðfræði svo allir geti nú farið að tala með allskyns hreimum...

Þar var sem sagt farið í þennan tíma og svo bara haldið heim og borað í nefið á sér í smástund og svo farið niður í bæ og var ætlunin að hitta hann Alla vin hans viktors við fórum aðeins í camden og svona og svo bara röltum við í bænum og skoðuðumm fólkið og svo hittum við Strákinn og héldum heim á leið þar sem var stutt stopp því við fórum nánast strax út því það var partý á fyrsta árinu niður í foots cray við vorum þar í smástund tókum svo leigara náðum í kónginn og héldum í partý sem var á þriðja árinu og var það rétt hjá okkur hérna í setrinu það var ágætispartý og svo bara heim og sofa... má kanski bæta einu við að það var mjög furðulegt að upplifa það að klukkan 2 var klukkunni breytt svo maður var í partýi klukkan tvö og svo á einni sek var klukkan orðin 3 ...


ætluðum í bolta en þreytan var það mikil að ég vaknaði ekki einu sinni við klukkuna, svo við vöknuðum eftir hádegi og Kokkurinn hann Alli ætlaði að elda fyrir okkur svo við fórum í safeway og versluðum í matinn svo kom kóngurinn og við fórum á nýja pubinn sem hérna rétt hjá okkur og horfðum á Ars man u og svo sem ágætis úrslit en við ekkert að spila sérstaklega vel það er nokkuð ljóst! en mjög fínn local pub sem við höfum hérna og verður nú horft á leiki þarna í framtíðinni...

Efitr það var haldið heim og allir byrjaði að elda á matseðlinum voru fylltar svínalundir með döðlum og valhnetum, kartöflugratín og sósan var púrtvínslöguð gráðostasósa og var þetta mjög gott hjá stráknum algjör veislumatur og voru menn vel saddir! svo var bara gert eitthvað spilað í tölvunni, horft á sjónvarpið spilað á gítar og eitthvað maður klikkaði náttúrulega alveg á því að læra um helgina svo maður er í smá súpu núna en maður þarf bara að læra mikið í kvöld og eitthvað frameftir þannig verður það bara það sem eftir er....

Get ekki sagt annað en ég verði feginn þegar öllu þessu er lokið og maður getur farið heim og slakað vel á eftir alla þessa vinnu ég kem ekki til með að stoppa þangað til ég kem heim gjörsamlega pakkaðir dagarnir núna fram að heimför... með sýningum og ef það eru ekki sýningar þá er það utanbókalærdómur og annað... en það eru bara 10 dagar í að kallinn komi heim og er það bara ótrúlegt!

Það er orðið staðfest að massarnir í hreyfingu kíkja hérna til mín í næstu viku og gista í 3 daga en þessi ferð heitir víst fótboltafár hjá þeim...

en nóg í bili verð að fara læra og borða

hvernig finnst ykkur húsið?
silli | Comment (1 )
26.3.2004 | 17:10 | Vikan búin...
og ég er gjörsamlega búin langar bara mest uppí rúm að leggja mig en ferðinni er víst heitið á sýningu hjá þriðja árinu og það er ágætisferðalag þangað inní london svo maður getur ekkert verið að leggja sig...

Myndirnar komnar inn og var ég að setja nýja könnunn inn og bara fá flesta til að taka þátt í þessari annars frábærlega skemmtilegu og æðsilegu könnunn!

Valdi eitthvað að tala um að hvað ég sé orðin hár ekki hef ég tekið eftir því en það er kanski að maður hafi eitthvað stækkað...;)

helgin ekkert plönuð nógu andskoti mikið að gera hérna og því verður örugglega lært bara um helgina.. skóli kl 9 í fyrramálið og því bara haldið beint heim eftir sýn...

Alli skoti kemur í heimsókn á morgun og ætlar að gista eitthvað hjá okkur og svo er maður að heyra að massarnir úr hreyfingu séu að koma í ferðalag í london og ætli að blóðsjúga litla manninn um gistingu í nokkra daga þetta er í vikunni sem ég fer heim.. shit hvað það er orðið stutt í það 2 vikur bara 14 dagar!

endilega skoðiði myndirnar og svona
silli | Comment (0 )
26.3.2004 | 02:41 | myndir komnar inn...
já myndir af húsinu komnar inn...
silli | Comment (1 )
25.3.2004 | 16:06 | engar myndir enþá ....
það er bara alldrei neinn helv. tími til að setja þetta inn maður tekur svo langan tíma alltaf því ég er með svona módem tengingu en ég ætla að reyna í kvöld er reyndar í skólanum til að verða 9 og ég byrjaði 9 í morgun svo ég er helvíti þreyttur það er nokkuð ljóst!

annars er ekkert mikið að frétta bara alltof mikið að gera í skólanum, eins og ég sagði 12 tíma í dag í skólanum og svo aftur strax í fyrramálið, svo þurfum við að fara á leiksýiningu hjá 3 árinu á morgun og svo mæta í tíma klukkan 9 á laugardagsmorgun sem er bara algjört helvíti en svona er þetta nám algjör viðvera og eins gott að fara bara venjast því strax!

en ekki mikið búið að gerast þar sem maður er bara sofa vakna skóli borða sofa vakna og svo framvegis og verður það örugglega þannig næstu tvær vikurnar og svo er maður bara dottinn heim á klakann! ekki leiðinlegt það...

en ég reyni að græja þetta í kvöld

einn þreyttur
silli | Comment (0 )
23.3.2004 | 18:16 | skemmtilegur afmælisdagur...
Já ég vil biðja á að þakka öllum sem sendu mér kveðju í gær þær fóru heldur betur að hrannast inn þegar líða tók á daginn...þeir hinir sem ekki gerðu það æi ég veit ekki.. frekar leiðinlegt er það ekki!

Allavega fékk fullt af kveðjum í gær og var því sæll og glaður þegar heim var komið úr skólanum og var ferðinni heitið á Pizza Express um kvöldið ég ætlaði að gera nokkrar æfingar það er þetta venjulega armbeygjur og annað og nota til þess svona teygju úr next sem ég keypti hérna úti... hefði betur sleppt því teygjan tók uppá því að slitna akkúrat þegar ég var að hífa helvítið upp og taka tvívöðvana og því skaust haldfangið niður á löppina á mér á þessum líka ógnarhraða og það var VONT mjög vont!

SVo fórum við bara á express og fengum okkur þessar dýrindis veislu flestir krakkarnir mættir þarna og fengum við afmælisbörnin svona afmælisköku í endann þar sem var sungið hástöfum og var eftirrétturinn minn í boði stóra björns sem var svo rausnarlegur að gefa mér köku í tilefni dagsins og er ég honum innilega þakkláttur fyrir það hann gaf mér líka svona mars páskaegg... veit ekki með ykkur en finnst það svona á lyktinni að hann sé að reyna að gera mig feitan...

en svo var bara farið heim og horft á premier fótboltan og slaka á... vaknaði svo í morgun og fékk pakkann minn frá stínu og var það sko flottur pakki hún er svo góð þessi elska... fékk 70 mín dvd diskinn sem ég ætla að horfa á í kvöld og united svitabönd og gjafabréf sem ég tek út þegar ég kem heim... þetta var víst einhver heimsreisa með henni í 4 mánuði eða eitthvað!

en jæja það er best að halda áfram í skólanum næstu þriðjudaga verðum við alltaf til hálf 10 í skólanum sem er bara VEI erum ða fara byrja að vinna með leikstjórunum okkur var skipt í 6 hópa og hver leikstjóri valdi leikrit og castaði í hlutverk og svona mjög gaman... minn leikstjóri fór og keypti kassa af bjór held ég sem hann ætlar að hafa á boðstólnum í kvöld þar sem þetta er fyrsti tíminn og ætlum við bara að lesa í gegnum þessar senur sem við tökum og ræða um hlutina... leikritið sem ég geri heitir Road og fjallar um lífð á einhverju stræti þar sem er mikið blótað og mikið hatur.. ég leik strák sem heitir joe sem er gríðalegur reiður eitthvað ágætt fyrir mig...

bless
silli | Comment (0 )
22.3.2004 | 12:27 | Hann á afmæli í dag!
þetta er nú soldið lélegt að vera ekki búin að fá neinar hamingjuóskir með daginn er það ekki ég meina klukkan er nú orðin 12 en maður er víst bara gleymdur og grafinn hérna úti í london ætli maður fari ekki bara að hætta skrifum hérna svo þið getið nú bara gleymd manni alveg sortit out will ya!

En allavega var þetta bara ágætis helgi hún byrjaði með þrusupartý á föstudaginn ætluðum reyndar að fara á sýninguna hjá einari en við skitum svo heiftarlega á okkur í orðsins fyllstu merkingu allavega stóri björn að við vorum of seinir og ákváðum því þegar á lestarstöðina var komið að fara bara heim og panta pizzu, horfa á vini og fara svo í partýið!

Við lögðum af stað í partýið um 10 þetta var svona afmæli hjá stelpu sem á reyndar afmæli í dag líka og því á hún sama afmælisdag og ég muniði ég á afmæli í dag!

Þetta var rosapartý minnti soldið á svona versló partý jafnvel partýið sem ég og gísli skipulögðum á reynisvatni í den, allavega var búið að tjalda stóru tjaldi úti garði og þar var ljósashow og lifandi DJ já hann var ekki dauður og bara massív stemmning og ég og viktor skemmtum okkur bara mjög vel fórum svo heim um 4 eða 5!

á laugardeginum fórum við svo á sýninguna hjá kónginum og vorum snemma í því í þetta skiptið, sýningin var fín og stóð kóngurinn sig bara með prýði hann fær 4 kökur frá sigganum!

Eftir sýninguna var komið við á kennaranum og fenginn sér einn ógeðslega feitan turn og svo haldið heim því við áttum að vera mættir í þetta furðupartý hjá hálfa íslendingnum um 7 leytið...

Við mættum þangað um 8 og hefðum við heldur betur bara ekki stigið þangað inn.. við löbbuðum inní viðbjóðslegt hús sem hafði ekki verið þrifið í 20 ár ÁN GRÍMS! og í þessu rosa partýi voru 3 þegar við mættum einhver maður sem var frá þýskalandi en sagðist vera frá öllum löndum og talaði öll tungumál sagðist meira að segja hafa verið með konu frá færeyjum.. reynslubolti þessi maður...

En allavega það fyrsta sem tók á móti okkur var ógeðslega skítugur hundur sem hafði heldur ekki verið þrifin í 100 ár og gaf hann bara frá sér einhver ógeðsleg hljóð og var alltaf að lykta af klofinu á mér... og ég með ofnæmi fyrir hundum og ég skal segja ykkur að ég varð var við á á svona 2mín, lýsingin á partýinu var lifandi tónlistarmenn matur og læti.. lifandi tónlistarmennirnir voru við ég og viktor t.d. því það voru fullt af hljóðfærum því meðleigjandinn var einhver composer og voru svona 10 tölvur í húsinu þannig að já live tónlist aha! svo matur reyndar var pasta sem viktor sagði að væri gott og svo einhverjir mjög svo ógeðslegir smá réttir sem ég hefði ekki einu sinni snert með priki.. ég meina maður hálfvorkenndi manninum bara en það er bara ekki annað hægt en að hlæja að þessu þetta var bara einum of fyndið...

Svo kom eitthvað fullt af fólki sem maður veit ekkert um og fór bara tjá sig um hitt og þetta.. einn sem ég vill kalla megas með sítt grátt hár og engar tennur og fannst mjög gaman að leika við hundinn... og æi ég veit ekki hvað og hvað.. viktor komst í eitthvað gítarsession með einhverjum gaur sem átti að vera gítarleikari og svona...

Svo átti þessi sean að vera fara gifast hann sagði að konan hans væri leikkona og hann ætlaði að sigla til íslands í brúðkaupsferðinni.. hanns bendi svo á mynd af kylie minoge og sagði að þetta væri konan hans þá er þetta einhver kona sem leikur aðrar poppstjörnur ég segi nú bara að þetta hafi bara verið plakat af kylie og þegar betur var gáð þá var þetta hún kylie á plakati og þá hugsaði ég með mér já ég held ég fari nú bara að koma mér enda var ofnæmið að gera út af við mig.. þetta er ein allra mesta skita sem ég hef komist í tæri við en ég meina samt fyndið að hafa farið.. hann endaði svo með því að segja ef þið viljið koma og horfa sjónvarpið eða hlusta á rúv á netinu þá bara hringja.... veistu ég held bara ekki!!!!

Svo fórum við í partý til Will sem er í sýningunni með einari og skemmtum okkur ágætilega þar reyndar orðinn frekar þreyttur og fórum heim um 4!

Ég hélt svo litla afmælisveislu í gær fyrir viktor og kónginn pantaði pizzu og var með kökur og nammi og svona og átum við gjörsamlega yfir okkur.. kónginum leist vel á húsið og á örugglega eftir að koma oftar í heimsókn núna!

Við tókum síðan smá gítarsession og fann ég að eitthvað hefur pabbi skilið eftir af músíkinni fyrir mig því ég er orðin alveg æstur í að spila á gítar hann var nú eitthvað búin að kenna mér en í gær lærði ég galdurinn við þvergripinn og ætla ég að æfa mig núna á gítarinn hjá viktori og fá mér svo minn eiginn gítar það er alveg á hreinu reynar alveg dáinn í hendinni en djöfull er þetta gaman ég segi að eftir 3 ár verði ég orðin partýhæfur spilari.. vitkor á þessa fínu gítarbók með öllum gripunum og náði ég mér í chordana af hard to say I am sorry með chicago og var það bara farið að hljóma vel í gærkvöldi.. allavega fínt kvöld í gær og ánægjuleg stund í setrinu...

tókum myndir í gær og höfum nú náð myndum af öllu húsinu og ætla ég að setja þær inn í kvöld svo bíðiði bara spennt ekki það að það sé einhver að lesa þessa síðu...

En allavega nóg af bulli þennan daginn

og já til hamingju með afmælið elsku siggi minn

Þinn vinur Siggi
silli | Comment (58 )
19.3.2004 | 15:07 | föstudagur
já bara komin föstudagur vikan búin helgin framundan, var búin snemma í dag þannig að maður hefur það bara gott í nýja húsinu. sit bara og tjilla í herberginu lesa og hlusta á tónlist bara alveg eins og það á að vera...

Fengum sófasettið okkar í gær, og þvílík snilld gott að sitja í því og ég tala nú ekki um að taka eina góða kríu en ég prufukeyrði kríuna í gær, lá og horfði á you've got mail sem er nú ekki sú allra skemmtilegasta en ég allavega sofnaði í sófanum og var það yndislegt er svona týpa sem á það til að sofna í stofunni stína veit allt um það.. allavega komin fín stofa til að hanga í og ég setti bara sjónvarpið fram svona til að byrja með þangað til við finnum stórt og ódýrt sjónvarp til að hafa í stofunni, mjög fínt að geta farið bara inní herbergi að lesa og svo inní stofu og kíkja á imbann!

Sýning hjá kóngnum í kvöld sem við hjóninn ætlum að sjá svo afmæli eftir það hjá bekkjarsystur okkar sem á sama afmælisdag og ég reyndar svo þetta er svona smá afmælisveisla fyrir mig líka... svo bara partýið á morgun hjá hálfa íslendingnum og svo æfing hjá hinu kyngimagnaða fótboltaliði Rosebruford sem setur stefnuna gríðalega hátt þessa dagana eftir þenna frækna sigur gegn drama center og fleiri leikir á döfunni og því eins gott að halda sér í formi...

Vorið kom og fór í vikunni og fór í dag komið rok og rigning reyndar eitthvað að birta til en maður bíður bara rólegur það hittnar meira og meira með hverjum deginum og áður en maður skreppur heim í frí verður örugglega orðið frekar heitt og ég tala nú ekki um í maí og júní þar sem meðalhitin er um 20 stig ekki slæmt það!

í dag eru nákvæmlega 3 vikur í að ég kíki heim á klakann sem verður nú ekki leiðinlegt, að hitta alla aftur hlakka allavega mikið til!

þessar 3 vikur verða samt held ég algjör geðveiki brjálað að gera í skólanum núna, og í síðustu vikunni verður dýrasýningin, söngsýningin og lagið mitt gengur bara mjög vel, og kem ég bara sjálfum mér á óvart því ég get víst alveg sungið... og svo er það spunsagan sem verður líka flutt í síðustu vikunni svo það er af nógu að taka fyrir utan alla tímana en ég á bara eftir 3 vikur af fyrsta árs þjálfuninni því eftir að við komum aftur er bara æfingar fyrir leikritið sem við setjum upp!

eigiði góða helgi!

silli | Comment (0 )
17.3.2004 | 23:31 | stofan að taka á sig mynd...
Fórum í dag í smá hléi ég og viktor og kíktum á sófabúð og fundum þetta líka snilldar sett, leðursófasett það er einn sófi fyrir þrjá og einn stakur stóll úr þykku leðri og gott að sitja í þessu og verðið ekki mikið 125 pund fyrir allt settið, sem er cirka 40 pund á mann og myndum við segja að það væri vel sloppið hef því ákveðið að bíða aðeins með myndirnar og taka myndir þegar sófasettið er komið í stofuna sem gerist bara sennilega á morgun fer allavega og kaupi settið á morgun..

Annars er lítið að frétta helgin að nálgast og nóg að gera um helgina sýningin hjá kónginum og tvö partý og svo afmælið mitt á mánudaginn...

Er reyndar að glíma við mjög svo erfitt klósettvandamál þessa dagana þetta virðist alltaf vera svona í nýju umhverfi hjá mér tekur smá tíma að venjast þessu allavega er ekkert að gerast í endurvinnslunni þarna niðri hjá mér.. kanski að maður þurfi bara að fara bryðja albran maður veit ekki allavega ef einhver er með gott tips til að losa um stíflur þá bara vera ófeiminn að commenta! þrýstingurinn orðin ansi mikill .....

jæja þetta var svona smá frá mér hérna og ef þið hafið ekki áhuga á að kíkja aftur á síðuna eftir upplýsingarnar hérna að ofan þá er það bara ykkar mál! maður verður jú að tjá sig um sín vandamál!

veriði sæl í bili ekki lengi samt!
silli | Comment (1 )
16.3.2004 | 23:44 | Netólfur kominn heim!
Þetta er allt saman að týnast til hérna í nýja húsinu nú síðast kominn símalína og net og svo fór ég og keypti síma og það þráðlausan fékk þráðlausan síma á 1700 kall;)

allavega er nýja númerið og allir upp með pennana það er miklu ódýrara að hringja heim og nú þarf ekkert að fara í gegnum eitthvað spítalaskiptiborð bara bein lína í setrið!

Sími: +44(0)2083010519 ég endurtek +44(0)2083010519 merkilegt hvað maður er alltaf fyndinn!

Pantaði nokkra miða á leikinn í dag shit hvað þetta verður gaman sjá Owen klúðra víti á móti Árna gauti, jóa kalla brjóta á Gerrard og hárið á beckham usss... allavega eru mágur minn og sonur hans að koma hérna út, ég og jónsi erum svona landsleikja félagar fór fyrst með honum og félaga hans á leik á laugardalsvellinum og hefur yfirleitt gengið vel þegar við förum saman á völlinn svo það er bara að sjá hvað þessi leikur hefur uppá að bjóða...svo var píanóið líka að hugsa um að kíkja þetta kemur allt saman í ljós allavega verða 4000 íslendingar á leiknum, það verður lítil nýlenda fyrir annað markið en við erum staðsett þar á þessum velli!

annars er bara voða lítið að frétta eins og staðan er erum að skoða sófa til að versla í stofuna og búin að finna þessa fínu góðgerða búð sem selur einum of ódýr húsgögn;) svo það ætti að komast í gagnið á næstunni...

Svo er london season að fara í gang en það gerum við á þriðja árinu, það er þriðja sýningin hjá þeim og er hún inní miðborg london og kóngurinn er að sýna núna um helgina þar og ætlum við að sjálfsögðu að mæta og styðja hann enda erum við grúppíurnar hans;)

Svo er annað maður ég og viktor maðurinn minn erum boðnir í partý á laugardaginn sem er ekki frásögufærandi nema hvað að maðurinn sem er að bjóða okkur er hálfur íslendingur... þannig er mál með vesti ;) að við fórum í partý í new cross um daginn þar sem við létum eins og vitleysingar ég var örugglega búin að tala um það... og þar var maður sem heyrði okkur tala og hann kannaðist við málið og spurði okkur hvaðan við værum og við sögðum íslandi og hann sagði þá að hana ætti íslenska móður og hún byggi í reykjavík og að hann færi þangað stundum... við spjölluðum við hann og skiptumst á númerum og hann sagðist ætla að bjóða okkur í mat og eitthvað... við bara já já ekkert mál en bjuggumst ekkert við að hann myndi hringja... hann sagði að hann byggi hérna og konan hans væri leikari og hann er eitthvað að vinna við fjölmiðla sjónvarp eða eitthvað og hvað haldið þið hann hringdi bara í mig á sunnudaginn og sagði að hann væri með rosalega flott partý á næsta laugardag...

og ég sagði bara Já ok við ættum að komast hann sagði að það yrðu svona 25 manns og það yrði lifandi tónlist og matur og allt saman sem hljómar náttúrulega mjög vel en við vitum ekkert hvað við erum að fara útí.. en hann sagðist endilega vilja fá okkur við hefðum verið svo skemmtilegir og svona... kanski erum við bara að fara í eitthvað fínt partý með leikurum og eitthvað og dottnir í lukkupottinn og birtumst sem gestaleikarar í footballers wives;) nei segi svona en þetta gæti orðið mjög gaman segi ykkur frá þessu á sunnudaginn!

Var að klára handritið að solostory sem við erum að gera núna í spunatíma þetta er saga sem við eigum í pokahorninu sem hefur gerst í okkar lífi og er ég að gera söguna um áreksturinn mikla sem tekur smá á sálarlega að upplifa hann aftur og aftur þegar ég er að vinna í þessu en það er bara gott að hugsa um þetta ætti að verða spennandi að sjá hvernig við útfærum það að flytja söguna en við gerum nokkurskonar einleik úr sögunni okkar!

jæja þá er fyrstu færslu minni lokið hérna í setrinu svo við getum öll andað rólegar og horft björtum augum til framtíðarinnar!
silli | Comment (1 )
15.3.2004 | 13:12 | Nýtt líf....
halló kæru vinir langt síðan ég hef skrifað ykkur en það er bara þannig þegar maður er ekki með net heima en það breytist allt á næstunni...

Við fluttum inn á föstudaginn og þvílík snilld, við troðfylltum einn leigubíl og hjóluðum svo sjálfir niðureftir, svo var bara hent út úr bílnum og inn í hús... við nenntum nú ekki að gera mikið svo við ákváðum að fara bara í Ikea og versla það sem við þurftum til að gera þetta heimilislegra... ég fékk símtal frá mömmu og þar sem ég var að fara í ikea mátti ég versla mér smá afmælisgjöf svo ég gerði það..

Ikea er náttúrulega aljgör snilldar búð, auðveldlega hægt að labba þar út með mikið dóti... allavega keypti ég mér Hillu, náttborð, vinnulampa, náttlampa, sjónvarpsskáp, og eitthvað meira af drasli spegil og eitthvað meira... allt fyrir lítinn pening...

Eftir Ikea var bara haldið heim og draslinu hent inn, þurftum að taka leigubíl vorum með svo mikið af drasli...

Laugardagurinn byrjaði snemma hjá mér ég vaknaði 11 eftir fyrstu nóttina sem var mjög góð... ég byrjaði á því að skrúfa allt saman frá Ikea sem gekk svona brösulega en hafðist allt á endanum maður er jú svo handlaginn.. EFtir það allt var bara byrjað að raða öllu inn fötum og annað og sett í hilluna, félagsmiðstöðin gerð klár það er sjónvarp tölvur og annað...

Svo lá leið okkar á Laugarveginn í nýja hverfinu og er hann bara mjög góður stutt að labba þangað og fullt af búðum og hann er miklu stærri en sá sem var nálægt okkur á hinum staðnum.. dagurinn fór svo bara í chill og sjónvarpsgláp enda stórleikur við drama centre daginn eftir...

Maður vaknaði fullur eftirvæntingar á sunnudagsmorgninum enda leikurinn að nálgast sem menn höfðu beðið eftir og töldum við okkur vera með mjög sterkt lið.. byrjunarliðið var skipað 3 árs nemum og svo mér og viktori og hinir strákarnir á fyrsta ári voru varamenn... Þegar við mættum á lestarstöðina rétt hjá Camden tók Jón Gunnar sem er í þeim skóla á móti okkur og fylgdi okkur að vellinum það var mikill rigning og bjuggust menn því fastlega við að einhver drulla yrði á vellinum.. Völlurinn leit vel út í fjarska stór völlur með línum á og mörkum bara propper völlur... En guð minn almáttugur þegar nær kom algjört drullumall...

Ég sem markmaður var í hættu við að drukkna í teignum því á báðum endum vallarinn nánar tiltekið í markteignum voru tveir risastórir pollar og frekar djúpir náðu mér allavega vel uppá ökla og ég hugsaði með mér jæja eitthvað á maður eftir að tína boltann úr netinu þennan daginn...

En svo varð ekki við rústuðum þessum leik 7-0 FOKKING 7-0 gjörsamlega mörðum þá og allir spiluðu mjög vel og íslenska súlan gekk algjörlega upp.. það er ég í markinu, Viktor í hjarta varnarinnar og Einar á miðjunni...

Ég tók mér alltaf stöðu fyrir framan pollinn því annars stóð ég bara í honum, reyndar eitt skiptið sem ég bjargaði þá var ég næstum drukknaður án gríns.. en ég átti fínan leik fékk Clean sheet og vörninn með viktor í farabroddi var massív og miðjan gríðarsterk og eftirleikurinn auðveldur fyrir framherjana... ég bjargaði alveg 5 eða 6 sinnum maður á mann þar sem ég fleygði mér bará á móti þeim og lokaði þessu gríðastóra marki.. tvisvar frá sama manninum og eftir það kom hann ekkert aftur...

En þetta var mjög gaman og ætlum við að endurtaka þetta hérna hjá okkur og vonandi þó í betra veðri en roki og rigningu við spiluðum í 90 mín held ég og var mér orðið ansi kalt enda ekki hreinn blettur eftir á mér var gjörsamlega brúnn frá toppi til táar...

Svo var bara haldið heim á leið og var manni mjög kalt á leiðinni heim maður var nú með eitthvað af hlýjum fötum en maður var gegnblautur svo það var kalt að sitja á rassinum og frekar langt ferðalag sem tók að komast heim...

En það var allavega gott að komast heim í nýtt hús þar sem maður gat bara sett beint í þvottavélina, ekki að labba uppí þvottahús og einhver leiðindi... þurftum reyndar að þvo tvisvar þetta var svo skítugt!

Svo var bara tekið því rólega lært og horft á imbann aðeins einum of kósi að hafa svona hús;) sé enga ástæðu fyrir að koma heim... jú það verður reyndar gott að komast og hitta ykkur öll og finna íslenska loftið!

Vaknaði svo í morgun átti að mæta 10:30 svo ég vaknaði um 9 og fékk mér morgunmat í nýja eldhúsinu og las blað og svona og ákvað svo að leggjast snemma af stað eða svona 5 yfir 10 bara svona til að vera á tíma því ég vissi ekki hvað það tók langan tíma að hjóla... en þá kom bara enn ein snilldin það tók mig 7 mínútur að hjóla þetta í skólann.. og ég var ekki einu sinni að flýta mér bara að hjóla í róleguheitum..

jæja þetta fer að verða gott ég ætla að reyna að græja netið í dag þarf að hafa samband við BT og fá þá til að tengja símalínuna heima.. svo erum við búnir að taka fullt af myndum og reynum að koma þeim inn um leið og netið kemur upp heima...

Snati

Já og eitt það er komið miðaverð á leikinn 3,750 krónur sem er ekki skítur ég ætla að fara og þeir sem vilja fara sendi mér meil með nafni kennitölu. heimilisfangi og kortanúmeri því ég sendi allar þessar upplýsingar á morgun því það er bara hægt að gera þetta á netinu tékkið á úrval-útsýn
silli | Comment (1 )
12.3.2004 | 11:25 | Skólanum lokað...
Var að koma heim frá frekar stuttum degi í skólanum... málið var að eftir að klukkutími var liðinn af fyrsta tímanum komu húsverðir og sögðu það er búið að loka skólanum vegna þess að það er vatnsleki og ekkert vatn í húsinu og það skýrði hvers vegna var svona kalt í skólanum... svo við ákváðum bara að fara heim ágætt þar sem ég er að fara flytja.. en fannst soldið asnalegt að það væri bara lokaður skólinn vegna þess að ekkert vatn var fannst það soldið aumingjalegt... en málið er að samkv. lögum verður að vera vatn..

En svo kom ég heim og þá var bara stórfrétt beint frá sidcup og ég missti bara andlitið það er bara flóð í sidcup og rétt hjá skólanum... málið er að eitt aðalvatnsrörið sprakk bara í tætlur í morgun og það er bara allt í vatni á ákveðnum stað í sidcup og það er víst að breiða úr sér.... það er ein kona föst í húsinu sínu með krakkana og kemst ekkert fyrr en er búið að tæma vatnið...

þetta er bara allt að gerast núna .. við skulum bara vona að vatnið fari ekkert að leggja leið sína að nýja húsinu mínu það væri nú frekar týpískt svona daginn sem við eigum að flytja inn...

en allavega flóð í sidcup og allt að gerast ég vona að ég sé ekki í hættu en maður er nú með sundlaugarvarðaprófið ef eitthvað fer úrskeiðis...

skrifa aftur heimilsfangið ef mamma var ekki búin að sjá það og hún fattar ekki að skrolla niður..

71 Clinton Avenue
Welling
London
DA16-2DY
UK

Hjálp!
silli | Comment (1 )
12.3.2004 | 00:52 | Að pakka..
Er í þessum töluðu eða skrifðu orðum að pakka síðasta draslinu niður ... ekki veit ég hvernig ég gat sankað að mér öllu þessu drasli á aðeins hálfu ári en þetta er mun meira en ég kom með hingað út.. tvær troðnar töskur... tvær tölvur... sjónvarp.. hátalarar, DVD og ég veit ekki hvað og hvað 20 séð og heyrt blöð.. svo mætti lengi telja ásamt fullt af drasli úr eldhúsinu allavega ekkert grín að flytja þetta allt en það skiptir ekk máli því það ríkir svo mikil hamingja hérna að maður gleymir bara því leiðinlega..

herbergið orðið frekar tómt og ekkert eftir nema tölvan og sjónvarpið sem ég klára bara á morgun.. kem heim eftir skóla og þa hringjum við á bíl og ferjum allt draslið niður í nýja húsið og komum okkur vel fyrir shit hvað það verður gaman að búa til nýtt heimili á alvöru heimili.. svo ikea á laugardaginn og eitthvað skemmtilegt ... afmæli á morgun hjá einum bekkjarbróðurinum svo kanski kíkir maður þangað ef maður nennir að gera eitthvað annað en að gera herbergið sitt og annað í húsinu flott;)

Svo ætla ég að setja myndir inn sem við reynum að taka um helgina af nýja húsinu græja það þegar netið verður komið á nýja húsið sem ætti að gerast á næstu dögum...

allavega mikið gaman og mikið fjör!

Og fyrir þá sem vilja senda mér pakka þá er komið nýtt heimilisfang og kemur það hérna

71 Clinton Avenue
Welling
London
DA16-2DY
UK

Þar hafiði það gott fólk

Ég fer þá að segja þetta gott hérna úr holunni og get loksins sagt glaður að þetta sé síðasta nóttin mín hérna og framunda nýir og spennandi tímar;)

Yfir og út
silli | Comment (0 )
10.3.2004 | 23:36 | Með lykla í hönd...
já það er staðfest við eigum okkar eigin hús núna shit hvað menn eru sáttir hérna í holunni sit og horfi á lykilinn að nýja setrinu hérna við hliðina á mér...

Við hittum manninn í dag skrifuðum undir skoðuðum húsið og maður er bara þvílíkt sáttur þetta er ekki nema 10 mín hjólafjarlægð frá skólanum, 2 mín labb í mjög stóran laugarveg sem er rétt hjá húsinu... landlordinn alveg frábær og konan hans enn betri þau eru bara búin að versla allt inní húsið nema sófa og sjónvarp inní stofu... konan sagði að hún myndi ekki vilja hafa sín börn í húsi þar sem allt vantaði svo hún keypti allt í eldhúsið, það er áhöld, diska, hnífapör, glös, tupperwere, og bara allt sem þið getið nefnt frá hreingerninga drasli og uppúr... svo er búið að verlsa straujárn og straubretti fyrir okkur, ryksugu, þvottaslár til að hengja þvottinn upp, allskonar framlenginarsnúrur og bara allt sem okkur vantaði.. einnig eru þau að setja upp alvöru sturtu fyrir okkur svona rafstýrða svo við getum bara stillt hitann á vatninu og skrúfað frá vildu að við gætum farið í góða sturtu á morgnana og eitt get ég sagt ykkur að það er ekki allir landlordar svona góðir það er alveg á hreinu... þau sögðu það skiptir okkur miklu máli að ykkur líði vel hérna í húsinu og ef það er eitthvað sem vantar þá bara hafiði samband við okkur... þetta er því næst síðasta kvöldið mitt hérna í holunni!

Við flytjum eftir skóla á föstudaginn því við erum öll búin frekar snemma, svo ætlum við viktor í ikea á laugardaginn eftir fyrstu nóttina í húsinu og kaupa svona það sem við viljum í herbergið lampa og náttiborð og svona kassa undir fótbolta föt og annað... en þetta er algjör snilld það er svona shet eða skýli stórt og fínt úti í garði og vel hægt að halda góðar grillveislur þarna þegar hittna fer... ekki slæmt að byrja sinn fyrsta alvöru búskap í tveggja hæða húsi með öllu tilheyrandi! allavega er ég mjög spenntur og sáttur með hvernig þetta þróaðist allt saman og nánast viss um að mér eigi eftir að líka þessi vist betur en hitt húsið sem við vorum að skoða, þetta er meira modern hús... og staðsetningin hljómar bara alltaf betur og betur og þægilegt að komast í allt þaðan sem við erum...

En sit hérna heima og er að undirbúa private móment fyrir karekterinn minn í leikritinu og ætla ég að undirbúa mig fyrir duel eða einvígi með byssum sem gerist í leikritinu fékk ég lánaða stóra og góða byssu frá zak bekkjarbróður mínum og held bara að þetta eigi eftir heppnast vel.. ætla að þurka af byssunni og æfa mig í að labba og snúa mér við og skjóta eins og ég væri að undirbúa mig undir einvígi!

en langaði bara svona að segja ykkur fréttirnar eftir daginn í dag og láta ykkur vita að á þessum tíma annaðkvöld verð ég bara að pakka öllu draslinu niður og gera mig ready fyrir síðasta kvöldið hérna í holunni...

og já eitt eldaði rosalega mat áðan er að verða massa kokkur, tók kjúklingabringur og vellti þeim uppúr kryddolíu sem ég bjó sjálfur til, og setti þær í eldfast mót og inní ofn, svo steikti ég sveppi uppúr smjöri og hvítlauk og sem gaf þeim mjög gott bragð svona hvítlauks smjör steiktir sveppir eitthvað... og svo gerði ég hollandersósu og bragðbætti hana með soðinu af sveppunum og hafði svo franskar með þessu öllu saman og þetta var bara hinn besti matur...

silli | Comment (2 )
10.3.2004 | 11:20 | hræðileg úrslit...
þetta byrjaði allt saman mjög vel í gær, við fórum til einars með pulsur og læti og var sannkallað pulsupartý garðar kom í heimsókn og allir ready í að horfa á leikinn... allavega ég og einar! ég fór í treyjuna svona í tilefni dagsins enda stórleikur framundan..

En þetta fór allt á versta veg.. við skoruðum og svo þegar maður gat varla andað fyrir stressi 2 mín eftir skora þessir hommar ógeðslegt mark og vonbrigðin leyndu sér ekki! ég kom bara ekki upp orði og það lá við að tárin streymdu bara niður svo sár og fúll var maður.. enda í fyrsta skipti í 8 ár sem united kemst ekki í 8 liða úrslit meistaradeildarinnar.. og það sem er sorglegt er hvað við vorum sorglega nálægt því og enþá sorglegra að við þyrftum að vera svona ótrúlega nálægt þessu ég meina við eigum að klára svona leiki báða tvo!

En það þýðir víst ekki að gráta björn bónda lengi allavega tímabilið er ónýtt algjörlega... það er eftir FA bikarinn en ég sé okkur ekki vinna fávitana í arsenal... jæja nóg af íþróttafréttum!

Erum að fara á eftir og hitta manninn sem leigir okkur húsið og að því sem ég veit að skrifa undir og fara yfir öll atriði.. og svo flytja inn á föstudaginn sem ætti að verða bara mjög gaman... koma sér bara fyrir á laugardeginum sjá hvað vantar og annað!
Reynum að koma myndum af húsinu inn eins fljótt og við getum ..

Svo er stórleikurinn við drama centre á sunnudag og kominn mikil spenna í mannskapinn og algjört must að vinna þennan leik við vitum ekkert um þá í rauninni en við tökum fast á þeim það er alveg ljóst...

ætlar sem sagt enginn að fara á þennan landsleik þið eruð nú meiru plebbarnir þarna heima, það þarf alltaf að færa leikinn heim í stofu til ykkar ussss þetta er ekki rétti stuðningsandinn!
silli | Comment (1 )
8.3.2004 | 19:37 | staðfest?
já það má nú eiginlega segja að hlutirnir séu farnir að skírast hérna úti í englandinu... við eigum að hitta elskulega manninn sem ætlar að leigja okkur hús á miðvikudaginn fara með honum aftur yfir íbúðina athuga að allt sé í lagi, skoða samninginn, skrifa undir, afhenda peninga og svo að flytja inn um helgina það er frá og með laugardeginum... svona lítur þetta út í dag svo það er bara að krossa puttana og vona! ég get svo sem sagt ykkur að það eina sem gæti klikkað er að það kviknaði í húsinu! en ég meina hey það getur allt gerst svo þangað til lifum við bara í voninni! vitandi það að næsta helgi gæti orðið skemmtileg..

Svo er pulsupartý á morgun hjá kónginum já og alvöru pulsupartý með íslenskum pulsum, þær gerðu sér lítið fyrir og smelltu sér út með viktori hingað til englands... svo við ætlum að fara til kóngsins bjóða fólkinu sem býr þar uppá pylsur með remó tómó sinnó laukó og öllu bara og kenna þeim að segja "eina með öllu takk" ekki nóg með að það sé pulsu partý heldur er líka meistaradeildinn svo maður verður að taka einn tvo öl með sér því mitt lið er að keppa á móti porto ogleikur uppá líf og dauða liggur við!

Var svo að fá fréttir frá KSÍ og sögðu þeir við mig að þeir fengju 4200 miða greinilega mikil aðsókn á þennan leik. allavega ég er búin að vera í góðu sambandi við hana margréti hjá ksí og hún ætlar að láta mig vita með fyrirvara hvenær ég get pantað miða sem verður sennilega í þessari viku!

Ég veit ekki með ykkur en ég ætla á þennan leik, málið er ef þið viljið fara kíkja í heimsókn til mín og fara á leikinn geta sent mér í commentinu eða í gestabókina.. og ég verð svo í frekara sambandi við ykkur, málið er að pakka tilboðin verða örugglega dýrara en það sem sigga.mis.is ferðir bjóða uppá það er bara að fá miða á leikinn og leita svo að ódýrasta fluginu út og gista hjá mér nú ef það verða margir þá verður bara tjalda í garðinum;) enda verður hitinn kominn vel yfir 25 stig á þessum tíma.. ég held að við ættum nú að fjölmenna á þennann leik það kostar nú ekki það mikið að skreppa hingað í tvo þrjá daga! mikilvægt að láta mig vita strax því það er örugglega brjáluð aðsókn á þennan leik.... ég meina hver vill ekki sjá england ísland...

Eitt svona fyrir valda píó ... er búin að vera hlusta á josh groban og you raise me up í þessari færslu og það lag er alveg eins eða svipað og " mér finnst ég varla heill né hálfur maður... með villa vill er það ekki..hvað segirðu um það valdi....

svo geta menn farið að undirbúa pakka sendingar þar sem ég á afmæli eftir 2 vikur í dag... þarf reyndar að gefa upp nýtt heimilsfang en allavega byrja að undirbúa pakkann

það hlýtur að vera hress!
silli | Comment (3 )
7.3.2004 | 17:29 | Strákahelgi Dauðans....
Enn ein helgin liðin og var hún bara mjög skemmtileg það verður að segjast eins og er...

Á föstudaginn hringdi kóngurinn í mig og bar upp þá hugmynd að taka bara öl og playstation týpuna á þetta og ég hugsaði með mér já því ekki það...

Svo ég fór útá blockbuster sem er videoleigukeðja sú stærsta hérna.. mjög flott og þar geturðu leigt allt milli himins og jarðar og lét ég loksins verða af því að næla mér í kort þarna og leigiði tvo leiki til að gera kvöldið skemmtilegra, leigði popidol og rallý leik..

Svo var bara ferðinni heitið til kónsins og spiluðum við ps2 drukkum öl eða bara það sem var hendi næst og svo horfðum við á formúluna eða ég allavega einsi fór að sofa...

Laugardagurinn byrjaði snemma enda stórleikur framundan leikur Man u og fullham í bikarnum og stóðu okkar menn sig bara mjög vel og kláruðu þetta 2-1 get ekki sagt annað en að ég hafi verið frekar hræddur við þennan leik miðað við gengið undanfarið...

Svo fórum við og versluðum ég ákvað vera bara áfram hjá einari enda voru fleiri íþróttir framundan... ég keypti meira öl og orkudrykki til að standast álagið að vaka eftir formúlunni. Þegar við komum til einars þá var pakkað hús hjá stráknum enda england að keppa í rúbbíinu og mikil eftirvænting svo við vorum þarna 8 strákar að horfa á sjónvarpið fyrst rúbbí og svo meiri fótbolta.

Eftir það fækkaði aðeins í hópnum en um leið tóku við fleiri activities, sumir voru í pílukasti, aðrir að spila fótbolta á svona borði með snúningsköllum... hinir spiluðu ps2 eða horfðu á og drukku öl.. svona gekk þetta allt kvöldið og bara mjög skemmtielgt kvöld í heildina þetta var eins og félagsmiðstöð og þegar maður var búin í einu tók annað við. við enduðum svo á að spila póker og mér til undrunar varð ég sá fyrsti til að detta út, þarf greinilega að æfa pókerfeisið!

Svo sofnaði einn fyrstur og alveg eins og 10 ára guttar fórum ég og einar að setja gel í hárið á honum og tannkrem og hlógum eins og litlir hobbitar þetta var allt saman tekið uppá videó, allavega mjög gaman en því miður á kostnað Wills. Svo týndust menn hver af öðrum inn í rúm nema ég ég ætlaði að horfa á formúluna sem ég og gerði og að sjálfsögðu vann minn maður og ætti þetta að slökkva rostann í liðinu á bröttutungu 5 í kópavogi!

Svo sló klukkan 5 og ég ákvað að fara sofa enda bolti daginn eftir, já og svo fórum við í boltann ég ferðaðist í skottinu á lítilli peugot bifreið og hafði ekkert um það að segja enda bara einn dvergur í hópnum og best að setja hann í skottið nennti ekki í strætó svo ég bara fór í skottið enda vanur því heima...

boltinn var fínn reyndar völlurinn blautur og drullugur en ég meina hei hverjum er ekki sama sérstaklega þar sem ég þarf hvort eð er að skutla mér svo það er alveg eins gott að verða drullugur, veit reyndar ekki hvernig þetta lið kemur til með að standa sig á næsta sunnudag ekki mikill skilningur hjá þessum leikmönnum og ekki mikið skipulag. bara einn með botlann hann hleypur og hinir hlaupa allir á marklinuna og bíða eftir sendingunni. ekki svona stutt og nett spil eins og í garðabænum!

jæja nenni þessu ekki lengur ætla að fara leggja mig alveg geldur úr þreytu ef það má segja það ...
silli | Comment (1 )
5.3.2004 | 18:49 | úfff
já það er ekki laust við að maður sé frekar þreyttur eftir þessa viku og bara freka down búin að vera það eiginlega alla vikuna veit ekki alveg hvað það er... pressan í skólanum sem er orðin rosaleg... ég myndi ekki bjóða neinum þetta! samt sem áður það skemmtilegasta námslega sem ég hef gert á æfinni minni en þvílíkt erfitt sennilega það erfiðasta sem ég hef gert skólalega á æfinni minni!

En ég var að koma heim og er einn í holunni um helgina því hinn íslendingurinn er farinn heim til íslands í brúðkaup... ekki segja neinum þetta á víst að vera suprise en hvað veit ég... svo ég veit ekki alveg hvað ég á að gera af mér eitthvað var talað um hitting í kvöld heima hjá tom og drekka þar öl og fleira gæti verið að maður kíkti þangað ... annars er þetta bara íþróttahelgi dauðans það er nokkuð ljóst og því fyllti ég ískápinn af bjór nú ef maður endar bara að vera einn hérna því það vill enginn vera með mér þá hef ég alltaf blessuðu íþróttirnar mína..

Það sem er á dagskránni er formúla í nótt tímatökur, á morgun fer ég á pubinn um hádegið og horfi á united mæta fullham í bikarnum... svo eftir það er rúbbí og svo klukkan 6 er arsenal pompey i beinni heima svo um nóttina er það svo formúlu keppninn og svo er komið að sjálfum mér að fara í bolta á sunnudaginn skemmtilegt;)

en allavega þá veit ég ekki hvort ég eigi að þora að segja þetta en ég læt það flakka með fyrirvara heyrðum frá konunni með húsið í dag og það voru engar fréttir svo jack sem ætlar að flytja með okkur talaði við gaurinn sem átti hitt húsið sem við skoðuðum og var það mjög flott bara betri staðsetning á húsinu sem við misstum... en þetta hefur uppá margt og mikið skemmtilegt að bjóða maður hjólar bara í skólann... það er góð búð rétt hjá húsinu... strætó stoppar beint fyrir utan húsið ég er 10 sek frá stoppistöðinni að húsinu... sem er einnig hentugt þegar næturvagninn er annars vegar því hann stoppar þarna líka á sama stað.. það er fully furnisherað og já allt í því nema sófi í stofunni bara svona stórt og flott nýtt borðstofu borð með 5 stólum... en allavega fínt hús...

hún allavega talaði við hann og það var enþá á lausu og hann sagði viljiði ekki bara flytja inn um næstu helgi það er á bilinu 12-14 og þá er húsið okkar og 15.mars byrjar leigan... við eigum að hitta hann á miðvikudaginn og skrifa undir þetta ? ég segi þetta með fyrirvara ég er ekkert spenntur fyrir þessu fyrr en ég miðvikudaginn þegar ég hef skrifað undir læt ykkur vita hvað gerist! ætlum allavega að flytja þangað inn og skrá húsið okkar í 6 mánuði og ef okkur líst vel á þá tökum við það bara áfram en gaurinn sem ég það er frábær til í að gera allt fyrir okkur!

já svona er þetta líf eina stundina er maður ánægður aðra stundina leiður og veit ekkert í hvorn fótinn maður á að stíga en allt saman rúllar þetta áfram og maður endar einhverstaðar og reynir að vera ánægður á þeim stað sem maður endar á! þrátt fyirr að þessa stundina virðist það vera frekar erfitt fyrir mig að taka gleði mína á ný og ýmsar ástæður fyrir því sem ég verð að ráða fram úr!

en allavega hafiði það gott þarna heima á íslandinu yfir helgina og ég heyri í ykkur fljótlega með nýjustu fréttir...

silli | Comment (1 )
4.3.2004 | 11:58 | Tumbling
mátti til með að segja ykkur aðeins frá þessum annars frábæru tímum... þetta eru svona stagefight tímar og eru algjör snilld.. í gær fengum við tildæmis að læra að sparka. byrjuðum á því að sparka í magann á hvor öðrum eða hvort öðru án þess þó að hinn aðilinn finni fyrir því og svo fengum við líka að sparka í pung já það er mjög auðvelt og raunverulegt án þess þó að bókstaflega að sparka í klofið á mótleikaranum...

Svo voru það karatespörk og þvílík útrás sem maður fær úr þessu tala nú ekki um ef mótleikarinn ýkir soldið viðbrögðin.. svo í lokinn fengum við að koma á ferðinni og hoppa á svona þykka dýnu og það var suddalega gaman.. bæði að hoppa áfram og láta sig pompa niður á dýnuna og að hoppa og snúa sér í loftinu og lenda á bakinu...

Var reyndar frekar þreyttur eftir þetta alllt saman, svo ég kom bara heim nennti ekki að elda og pantaði bara pizzu það er svona megadagar frá mán til mið en kosturinn er að við fáum pizzuna senda heim fyrir 1000 kall...

horfði svo á liverpool valta yfir soffíu frænku og horfði svo á footballers wife.. þessi þáttur er nú bara annað nafn yfir klámefni að mínu mati það er voðalega lítið rætt um fótbolta aðalega framhjáhald á klósettum og annað oj bara!

En helgin svona já ekkert eiginlega að gera eins og staðan er í dag.. jú nema ég get tekið fram gleði mína á ný því formúlan er að byrja og er fyrsta keppninn í ástralíu og verður gaman að fylgjast með schumi þar.. það þýðir að maður þarf að vaka eina helgina enn... svo er bara lokaæfing í boltanum á sunnudaginn því það er leikur eftir viku við drama centre

silli | Comment (1 )
3.3.2004 | 15:05 | Komin niður á jörðina
já maður er orðin svona rólegri enda ekki hægt að gera neitt annað þýðir ekkert að vera æsa sig yfir þessu bara halda áfram að vona að þetta detti inn...

annars er maður svona enþá að jafna sig á því að hafa vakað yfir öllum óskarnum... frekar þreyttur þessa stundina og ekki alveg tilbúin að fara í dýratíma og svo svona tumble tíma henda mér út um allt á gólfinu... en svo er það bara bolti í kvöld liverpool leikurinn sýndur i beinni og maður horfir nú á hann tippa kanski í lengjunni til að gera þetta skemmtilegra...

En veðrið hérna hefur heldur betur leikið við okkur þessa vikuna búið að vera sól og frekar heitt bara... fór til dæmis í smá kick about áðan meðan ég var að bíða eftir tíma og var það mjög nett fara bara út á gras og fá smá útrás!

er búin að vera leita að vinnu heima undanfarið a netinu og auglýsi því hér með vinnu ef einvher hefur áhuga á að ráða mig eða veit um vinnur sem ég gæti sótt um...

en maður er svona hálftómur hef ekki mikið að segja í bili enda á leiðinni í tíma að leika gæsina mína!

silli | Comment (0 )
1.3.2004 | 21:31 | Stundarreiði...
jákvæðni og barrátta hefur tekið sig aftur upp eftir spjall bæði við stóra björn ( viktor) og mömmu og biðst ég því afsökunar á þessu reiðisbréfi sem ég skrifaði hérna fyrir stundu...

En samt sem áður hvet ég fólk til að lesa það og sjá hversu reiður ég get orðið og hvað ég er eiginlega vitlaus þegar ég er reiður.. sé bara hlutina frá einu sjónarhorni og það er yfirleitt frekar neikvætt.

En það þýðir ekkert að gráta björn bónda heldur bara að kýla á þetta og segja að þetta verði allt í góðu og þegar það gerist verði það bara enn betra;)

kveðja
Furðulegur maður
silli | Comment (1 )
1.3.2004 | 20:20 | Nei nú nenni ég þessu ekki lengur!!!!!
Ég hef séð að fólk hefur tekið vel í jákvæðnina í mér að undanförnu og er það allt gott að blessað en þeirri er jákvæðni er hér með formlega lokið og held ég að ég geti bara ekki verið pirraðari, reiðari, enþá reiðari, og langað bara hreinlega til að gefa þessu landi einn stóran á kjaftinn og drulla mér í burtu héðan er gjörsamlega að missa mig hérna!

Og hvað er það annað en helvítis húsamál.. ég sagði ykkur frá því að allt gengi eins og í ævintýri og lukkan loksins að snúast okkur í hag enda komin tími til! en viti menn það er bara eins og EKKERT já ég meina EKKERT!!! geti gengið þegar ég á í hlut annarsvegar. Við áttum að flytja á miðvikudaginn já ekki á morgun heldur hinn í frábært hús.. og því ætti ég að vera pakka núna og hafa það bara skemmtilegt svona síðustu dagana í holunni.... en nei að sjálfsögðu kom eins asnaleg ástæða fyrir að það skuli ekki gerast og mögulegt var enda ekki að spyrja að því þegar ég er annarsvegar!!!

málið er að þau áttu að vera flytja í annað hús og gera það upp og áttu þau að fá lyklana að húsinu í síðustu viku og því gátum við flutt inní þessari.. en alltí einu þá ná þau ekki í manninn sem á húsið og enginn veit hvar hann er og ég veit ekki hvað og hvað svo í dag þá stöndum við með grænt ljós frá þeim um að fá húsið en höfum ekki hugmynd um hvenæar eða hvort þau geta flutt út!!!! hvað er eiginlega málið með þettta helvítis land er bara allt ómögulegt hérna ekki hægt að gera nokkurn skapaðan hlut nema eitthvað vesen eigi sér stað... ég sé það fyrir mér að fá vinnu hérna nei fyrirgefðu vinurinn þú ert með of stóra tá eða einhver önnur eins fáránleg ástæða....

Allavega síðan ég frétti þetta í gær að þau vissu ekkert hvernig málin stæðu hef ég bara verið gjörsamlega tómur í hausnum á mér ég er orðin svo leiður á því að vera fagna því að flytja í mitt fyrsta hús og fá almennilega aðstæðu... og svo er það kippt í burtu frá manni jafn óðum og eftir stendur maður í þessari andskotans holu ég er bara ekki að meika þetta lengur það er alveg á hreinu.. maður dettur gjörsamlega úr öllu stuði til að einbeita sér í skólanum í stað þess að taka þátt í umræðum þá bara pirrar maður sig á þessu ...

ég meina þetta er svo sem ekki búið húsið er okkar en við vitum ekkert soldið leiðinlegt að standa í þannig viðskiptum.. vita ekkert í hvorn fótinn maður á að stíga.. svo er hitt húsið sem við skoðuðum en það er sama vandamál þar og annarstaðar að það eru tvö herbergi stór og eitt svona lítið þó svo að það hafi verið alltí lagi þá er enginn að fara taka það á sig að vera í því herbergi..

ég veit ekki hvað maður á að segja kanski er þetta líka þreyta sem er að pirra mann við sofnuðum ekki fyrr en rétt fyrir 6 í morgun horfðum á allan óskarinn og var það ágætisskemmtun segi ekki annað gaman að horfa á það með viktori hann er séní þegar að óskarnum kemur...

en allavega ég er mjög pirraður og reiður og veit bara eiginlega ekkert hvernig ég á að vera... við tékkum á þessu fólki aftur í miðri viku og sjáum hvað staðan er annars bara ég veit ekki ætlum við endum ekki með því að búa bara hérna næstu þrjú ár !!!!! þá er mér öllum lokið og er ekki alveg tilbúin að fórna því tala nú ekki um þegar þetta er farið að hafa áhrif á námið sem ég er að borga ekki minni pening en milljón fyrir ....

Ég hef nóg annað að gera við lífið mitt en að vera standa endalaust í þessu... að mínu mati þegar maður er að borga annarsvegar svona mikið og hinsvegar að fá þau forréttindi að fá að stunda svona nám þá eigi það ekki að ganga svona fyrir sig.... þá er mun betra að gefa bara öðrum séns á því!

Fyrir mér er skólinn bara eins og köld stofnun í þessu máli mér líður allavega eins og þau séu frekar á eftir peningunum mínum heldur en hæfileikum og þá spyr maður sig aftur hvað í djöflinum maður er að gera hérna ... ætti maður ekki frekar að vera eyða peningunum í eitthvað annað...

ég veit ekki með ykkur en það er mín skoðun þessa stundina...


silli | Comment (2 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september