Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 29.2.2004 | 18:52 | komin mars...tæknilega séð... |
já komin mars eða næstum því og hvað þýðir það... jú ég á afmæli bráðum verð alveg 22 ára og það sem meira er að ég verð 22 ára 22 mars hvað eru margir 2 í því...?
Annars búin að vera ágætis helgi, fengum reyndar pínu slæmar fréttir á föstudaginn, málið er að það er komin smá babb í bátinn þó ekki phil, nei heldur bara smá húsavesen. Maður er reyndar orðin svo vanur því að maður er hættur að kippa sér upp við það en málið er að það gæti seinkast eitthvað aðeins að flytja inn, en við erum samt að pressa á þau þar sem þau sögðu að við gætum flutt inn á miðvikudag og gerðu við plön í samræmi við það t.d. eins og að afhenda lyklana að okkar íbúðum mánudag eftir viku svo maður verður bara að vona að þetta gangi allt saman upp, húsið er allavega okkar það er bara spurning um dagsetningu úr þessu. Við erum samt ekkert í neinum vandræðum þannig lagað við fáum bara að vera aðeins lengur hérna...
allavega eftir þessar fréttir fórum við hjóninn bara í greenwich á bíó sáum along came polly og varð ég fyrir smá vonbrigðum með hana ekki alveg nógu fyndinn en það geta víst ekki allar myndirnar hans stillers verið fyndnar. Samt ein á leiðinni Starsky og hutch eitthvað líst vel á þá mynd með honum og Owen wilson zoolander gengið mætt aftur! en svo var bara farið heim og tjillað.
Á laugardeginum fór ég í dýragarðinn með strákunum, ég var búin að borga fyrir árs kort í dýró þó svo að dýrið mitt sé ekki þarna þá ákvað ég að kíkja á þetta því ég hef jú ekki farið í dýragarð allavega ekki svo ég muni! þetta var mjög gaman hreifst mjög að dýri sem heitir Spiter Monkey sem sveiflar sér svona með skottinu og það er hægt að segja að hann hafi hrifist af mér líka, enda margir sagt að ég sé líkur öpunum hann sá allavega eitthvað við mig elti mig út um allt blessaður... Svo voru það tígrísdýrin úfff þau er flott maður rosalegar skeppnur og ljóninn samt ekkert svona Múfasar ljón bara svona stuttklipp ljón vantaði alveg makkan þau voru ekkert ógnandi allavega fannst mér það ekki! fannst tígrinn flottari!
Svo fórum við bara aftur í centralinn og duttum inná einhern bar og settumst niður enda búið að vera frekar kalt og vorum svona að bíða eftir því að fara til New cross í partý sem hún Bunting hélt sem er bekkjarsystir okkar... þangað héldum við um 10 eftir tvo bjóra hjá mér og þetta partý var fínt svona international partý fólk allstaðar af veit ekkert afhverju. Ég byrjaði partýið reyndar að laumast inní eitt herbergið fann sjonvarp og horfði á premier deildina sem var í sjónvarpinu... til hamingju Arsenal menn þið eruð algjörlega búnir að vinna þetta hvað getur maður sagt þetta eru stig sem mínir menn eiga að taka maður er bara orðin hræddur um að við náum 2 sætinu með þessu áframhaldi hvað þá að komast áfram í meistó eftir gengið undanfarið... en fór síðan niður um 12 eftir að hafa setið þarna einn og drukkið bjór og talað við pabba um boltan og svona... þvílíkur félagsskítur en hei þetta er bara möst að horfa á ... þess má geta að jón ólafsson píanóleikari var þarna á svæðinu allavega gaur sem var alveg eins og hann fyrir svona 20 árum... kallaði alltaf jón ólafsson þegar hann birtist í eldhúsinu eða stofunni ég er svo sniðugur.... svo var bara haldið heim með næturvagninum góða og góða nótt!
Í morgun vaknaði ég svo um hálftólf og gerði mig ready í fótbolta hittast átti klukkan tólf og taka góða æfingu enda er leikur í vændum gegn drama center 14 mars og um að gera að koma liðinu í form! þetta var fínn bolti ágætis barátta í mönnum og svona frekar fámennt 5 á 5 svona nettur garðabæjar bolti og ágætis veður frekar heitt lendum reyndar í því þegar boltinn var búin að þá kyngdi niður snjó í svona 4 mínútur og mjög heitt úti.. fyndin samsetning! svo héltum við bara á pubuinn og horfðum á carling cup og eitthvað drasl...
Sit núna bara hérna heima lærandi texta, syngjandi lag, analysa lagið, þylja ljóð, lifa mig inní chekhov, læra mieiri texta, finna nútíma mónalóg, og já blogga og er svona frekar þreyttur eftir helgina...
En vona að þið hafið haft það gott ég hafði það bara fínt um helgina, nú tekur ný vika við og skulum við í sameiningu takast á við hana með jákvæðni og af fullri tilhlökkun og þakka fyrir allt sem lífið hefur að bjóða uppá!
Ég læt þetta vera lokaorðin mín í kvöld og bið ykkur öll vel að lifa ....
Bestu kveðjur
Sigurður Hrannar Hjaltason |
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 27.2.2004 | 15:03 | Fyrir mömmu og fleiri... |
var að fá sms frá mömmu, sem kom eiginlega úr hörðustu átt! það hljómaði svona " hvað er ekki alltí lagi þarna hjá þér úti ekkert blogg síðan 24. feb" það eru hvað þrír dagar og ég er bara búin að vera á útopnu í þrjá daga að horfa á fótbolta og tippa í lengjunni fyrir morðfé heilar 300 krónur en mamma þú lést ekki heyra í þér í tvær vikur og enginn blöð svo við erum farnir að syngja bara á klósettinu í stað þess að lesa þannig að er ekki alltí lagi hjá þér kona;) nei nei bara smá svona hugleiðsla!
Það er alltí lagi hjá mér bara ekki haft mikinn tíma, en svo er líka bara lítið búið að gerast bara búið að vera skóli fótbolti og sofa síðustu þrjá daga! En helgin lítur bara svona út skilduði þetta ekkert planað bara ekkert skilurðu já eða ekkert! allavega kanski partý á morgun og svo bara að kveðja holuna þar sem þetta er síðasta helgin þar forever! gott að segja þetta FOREVER!
Ég vil benda öllum á það kostar núna einungis krónu að fljúga með express og virðist það vera allir miðvikudagar eða föstudagar í mars, svo það kostar 92 pund fram og til baka sem er svona 11000 kall sem er bara gefins, allavega tékkið á þessu!
Gætum dottið í bíó í kvöld en eins og brandarinn sagði áðan allt óráðið!
já ég vann i lengjunni í vikunni tippaði fyrir 300 og vann heilar 3000 krónur ekki slæmt það;)
en þetta er orðið frekar leiðinlegt svo ég segi bara bæjó
|
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 24.2.2004 | 18:57 | Bolti = pizza + bjór og fleira.. |
já meistaradeildin í kvöld og viti menn við hérna sem erum ekki með gervihnött eða skybox fáum að njóta hennar í kvöld, leikur arsenal og celta eða öfugt. ég segi bara áfram celta djöfull vona ég að arsenal aumingjarnir detti út..
Ég hef keypt mér freshcetta pizzu og svo er til einhver bjór og sé ég fram á skemtilegt og gott kvöld, enda ágætt að njóta tímans í holunni þangað til maður fer í Setrið, þar sem ég verður digital box fleiri stöðvar, stofa og já bara allt sem hugurinn girnist!
var að vinna aðeins í dag fyrir skólann sat í prufum og horfði á stressaða krakkana fara með ræðurnar sína og ég átti að vera á klukkunni á modern mónalógnum þeirra, þetta var mjög gaman og þarna sá maður hvað ég er heppinn að vera með pláss hérna því það eru 1700 manns að keppa um 22 stöður og ég fékk eitt pláss í fyrra maður gleymir alltaf að athuga hversu heppinn maður er að fá að gera það sem mannig langar og dreymir um því allir þessir 1700 eða allavega 1500 langar virkilega að komast inní svona skóla ég er allavega mjög ánægður með mig að hafa komist hingað því keppninn er rosaleg sá það í dag og ákvað að hugsa aðeins meira um að meta það að vera hérna! sumir fóru að gráta ef eitthvað misstókst og eitthvað, 40 krakkar í mínu holli og svona 5 sem fengu að halda áfram.
en hafði ekkert að gera svo ég ákvað að segja ykkur eitthvað en nú fer leikurinn bráðum að byrja og ég þarf að snúa mér að eldamennskunni!
Áfram Celta |
 |
| silli | Comment (6 ) |
 |
 |
 |
| 23.2.2004 | 18:40 | Allt að koma í ljós... |
Já vildi svona skrifa ykkur stuttan pistill um hvernig málin standa þar sem ég veit að allir bíða spenntir...
Það er staðfest frá og með deginum í dag að við flytjum miðvikudaginn 3 mars. eftir skóla í nýja og fína húsið okkar við hurst road, það er á tveimur hæðum með 3 mjög stórum herbergjum og einu gestaherbergi sem er bara algjör snilld við erum við hliðina á Tom bekkjarbróður okkar og já svona 3 mín að hjóla í skólann... þetta kom allt í ljós í dag og er ég þvílíkt ánægður.. það verður innlit útlit þáttur einhvern tímann í næstu viku fyrir ykkur hin sem ekki getið séð nýja SETRIÐ en það mun verða nafnið á þessu húsi og á viktor heiðurinn af því.. allavega er það höllinn og svo setrið...
Svo fengum við hlutverkin okkar í dag og leik ég hin furðulega Solyoni í þremur systrum hann er svona doldið fyndinn gaur og á eftir að verða mjög gaman að búa til hans karakter þar sem hann hefur margt og mikið spennandi að geyma..
En allavega nóg í dag mjög skemmtilegar og góðar fréttir og getum við hjóninn bara ekki verið ánægðari með þetta allt saman!
drekinn |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 22.2.2004 | 15:04 | sorgardagur.. |
já það er víst komið að því að kveðja stínuna mína hún er á leiðinni heim í dag og er að pakka niður akkúrat þessa stundina..
Annars er þetta búið að mjög skemmtileg helgi á föstudaginn fórum við að skoða húsið sem við sáum bara að utan síðast og leit það mjög vel út, en samt er hitt húsið sem er nær skólanum og sem er bara flottara okkar fyrsti kostur í og í gær fengum við þær fréttir að á mánudaginn ættum við að hitta konuna og sennilega ganga bara frá þessu og því ætti húsið að vera okkar sem er náttúrulega bara algjör snilld, þá erum við að tala um 3 herbeggja hús með einu gestaherbergi samtal 4 herbergi. Eldhús með öllu þurkara og uppþvottavél og já bara öllu sem maður gæti óskað sér;) ég læt ykkur vita hvernig þetta fer á mánudaginn en það lítur allt út fyrir að við flytjum í byrjun næstu viku, ég veit ég hef sagt þetta áður en þetta er staðfest enginn fasteignastofa bara kona sem er að leigja nemendum hús og stórt og flott hús....
En allavega á föstudaginn eftir húsaskoðun fórum við á núðluhúsið ég stína og viktor og svo í bíó og sáum snilldarmyndina school of rock, mæli með henni...
Svo í gær ákváðum við bara að fara í london og rölta um og skoða mannlífið og hvar enduðum við jú á oxford ekki að spyrja að því þegar stína er annarsvegar ég veit ekki hvernig hún ætlar heim með allt þetta drasl sem hún er búin að kaupa.. og þessar verslunarferðir hafa yfirleitt verið þannig að ég fer inní tölvubúð eða HMV og skoða leiki og dvd meðan hún verslar og hún hefur komið með svona 4 poka fulla af fötum og náð í mig, ég keypti samt smá handa pabba og pálma í gær dvd disk með The Who sem þeir geta horft á saman feðgarnir að næturlagi þegar mamma er sofnuð...
Eftir oxford var bara farið á Leister torg og fengum við okkur heitt kakó og svo á næsta bar og ég fékk mér bjór og stína eitthvað drasl.. svo héldum við bara heim enda fótbolti að byrja í sjónvarpinu;)
Stína keypti handa mér meiri bjór svo ég yrði þægur og drakk ég því sorgum mínum í gær eftir að Manchester menn höfðu endanlega tapað titlunum það er alveg ljóst og fagnaði á sama tíma því að við værum að fara flytja í frábært hús....
þetta var svona helgin í stuttumáli og ætli ég verði ekki að fara hætta þessu og kveðja hana stínu mína...
En ég mæli með meðlaginu með strákunum úr kaupfélaginu gott lag þið getið náð í það á síðunni hans ómars... svo mæli ég með að allir fái sér skype því ég var að fá mér heyrnatól til að tala við alla
Og eitt MAMMA hvar eru blöðin mín og svona þetta er náttúrulega bara ekki hægt usss jæja
Drekinn |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 20.2.2004 | 01:09 | Flóð og fleira |
taka 2
Djöfulsins var búin að skrifa helling en tölvan skeit á sig jæja byrja bara aftur...
Afsaka lítið blogg undanfarið en það hefur bara verið gríðalega mikið að gera þessa vikuna...
Það má segja að vikan hafi bara liði eins og ýkt elding svo mikil hefur ösin verið. Ég á fullu í skólanum og stína að versla í centralnum.. hún er voðalega stollt af sér að geta þrammað svona um götur london borgar og tekið lestirnar sjálf án teljandi vandræða.. hún þarf reyndar að fá lánaða aukatösku hjá mér til að koma öllu draslinu fyrir sem hún hefur hirt upp af mörkuðunum hérna...
Skólinn hefur farið vel af stað og leggst nýr hópur og nýir tímar mjög vel í mig.. það er vitlaust að gera og erum við á fullu að læra mónalóga sonetur texta og annað sem við komum til með að vinna með á næstunni ásamt því að finna lag sem ég á að flytja í lok þessarar annar, er með nokkur lög í huga þurfa að vera svona söngleikja lög eða lög tengt leikhúsi. Ég er að skoða lög úr hryllingsbúðinni og jesús kristi það er draumur pílateusar og söngur herods sem eru bæði fín lög svo lög sem mig langar til að syngja eins og somewhere out there úr músateiknimyndinni frá ameríku og fleiri lög læt ykkur vita hvaða lag ég vel... allavega nóg að gera og líkaminn minn svo til látinn af þreytu sökum tíma eins stage fighting og movement sem eru orðnir frekar erfiðir...
Erum líka að vinna á fullu í þremur systrum eftir chekhov og verður castað í það í næstu viku og verður spennandi að vita hvaða hlutverk maður fær segi ykkur líka frá því seinna;)
Stína átti svo afmæli á miðvikudaginn og bakaði þessi elska kökur og héldum við til kóngsins í höllina og borðuðum þar og héldum svona smá afmælisveislu þar sem menn á borð við garðar aka nonni litu við og gæddi sér á kræsingunum sem voru vægast sagt mjög góðar. horfðum svo á svínasúpuna sem stína hafði komið með að heiman fínt kvöld og ágætis afmælisveisla...
Svo eru prufurnar fyrir næsta ár í fullum gangi og eru um 1800 manns að sækja um leiklistar deildina í skólanum á næsta ári fyrir utan staðina sem þeir fara á t.d. ísland, ég verð að vinna við prufurnar næsta þriðjudag þar sem ég byrja ekki fyrr enn tvö þennan þriðjudag og verður gaman að fá að vera inní prufunum og fylgjast með fólkinu sem er að sækja um fara með sína mónalóga og syngja og ekki nóg með að það sé gaman að fylgjast með því og læra af þessu heldur fæ ég líka borgað fyrir þetta 40 pund fyrir c.a. 3 tíma sem er bara frekar gott c.a. 6000 kall;) gott fyrir fátækan námsmann.
Svo var stefán að fara í bað áðan það er steve og lét hann renna í baðið sem er ekki frásögu færandi nema hvað að hann gleymdi að fara í baðið og alltí einu hleypur hann fram og þá er allt á floti og vatnið farið að streyma út á gang en sem betur fer þá vorum við snögg til og gripum öll handklæðin í húsinu og þurkuðum mest allt upp mjög fyndið eftir á en samt svona frekar pirrandi...
jæja orðin mjög þreyttur og er að hugsa um að fara bara í sturtu þar sem það er flóðhætta inná baði og skella mér svo bara í bólið enda þarf ég að vakna 8 í fyrramálið, ætlum að kíkja á hús á morgun það sem við sáum bara að utan síðast og svo ræðst það um helgina hvert við flytjum og mun það eiga sér stað í næstu viku eða vikunni þar á eftir...
Drekinn
|
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 15.2.2004 | 22:37 | skemmtilegar stundir... |
langaði svona að segja ykkur eitthvað af mér og stínu hérna úti...
fyrir utan stafsetningarvillur og málvillur og annað hefur allt bara verið mjög gott og allir skemmt sér hið besta, á föstudaginn var farið með einsa í eltham og skoðað þar og keypt brennslari og farið svo í höllina og horft á sjónvarp drukkið öl og spjallað mjög fínt kvöld, sáum líka hobbita söguna miklu af einari og sverri vini hans þegar þeir fóru á trafford á miðvikudaginn.
Í gær var svo vaknað snemma og farið á pubinn ( já stína fór líka með ;) og horft á fyrri hálfleik man u og man city og svo fórum við á leikrit hjá þriðja árinu niður í skóla svo ég sá ekki seinni hálfleikinn en mínir menn kláruðu þetta með stæl þrátt fyrir að vera 5 mönnum færri. Viktor eða stóri björn eða tony tígur eða já bara viktor kom svo heim frá danmörku rétt áður en við fórum á leikritið og skellti sér með okkur, kvöldið var svo tekið með rólegheitum horft á meiri fótbolta drukkið öl ( stína las blöð) og já bara svona fínt kvöld í holunni.
Dagurinn í dag hefur verið mjög skemmtilegur við vöknuðum rétt fyrir hádegi og kíkti ég á arsenal chels rétt áður en við fórum niður í bæ sá svona 20 mín en þess má geta að einar var á leiknum helvítið á honum annar stórleikurinn á 3 dögum, helvíti duglegir félagar hans að koma og bjóða honum á leiki;) svo er víst í deiglunni hjá honum að sjá rimnu þessara liða aftur um næstu helgi.
en alllavega við fórum niður í bæ og vorum samferða viktori hann var að fara í dýragarðinn og fylgjast með tígranum sínum fyrir dýra analysið hjá okkur sem við gerum á þessari önn fyrir ykkur sem ekki muna er ég kanadísk gæs;) okkar ferð var hins vegar heitið á Spitalfield markaðinn og var það bara mjög gaman skemmtilegra fyrir stínu því ég var svona meira bara í eftirdragi með henni en samt ágætt og mjög stór markaður og fullt af sniðugum fötum.
Eftir markaðsþramm héldum við aftur niður í bæ og fórum á ítalskan stað og fórum svo í 3D Imax bíóið og var það bara hin besta skemmtun reyndar frekar stutt en þvílík stærð á tjaldi og allir með svona asnaleg 3d gleraugu en ég mæli bara með þessu alltaf gaman að upplifa eitthvað nýtt!
vorum svo bara að koma heim eftir langan dag og er ég bara að fara undirbúa skólann sem hefst aftur í fyrramálið, nýr hópur og ný önn að hefjast og allt lítur þetta mjög spennandi út fer t.d. í nýja tíma sem heita tumbling og er það svona stage fight og læra að detta og henda sér og fleira gaman það;)
en ég gleymdi að skrifa það mágur minn hann jónsi átti afmæli í fyrradag föstudaginn 13 og óska ég honum til hamingju með afmælið;) og bið að heilsa öllum bæði á bröttutungunni og neðstatröðinni.
|
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 14.2.2004 | 19:37 | BORIÐ Á GARÐ? |
ég vil bara biðjast afsökunar á þessum orðaslangri mínu þetta orðtak er víst ekki til samkvæmt honum viktori og það er sennilega rétt!
hann hló víst mikið af þessu sagði að ég væri að blanda saman einhverjum orðum sem eiga ekki vel saman, enda kanski ekki mikið um menn að bera á garða eða hvað?
en allavega allt gott að frétta og mikið borið á garð hérna úti!
óvitur maður
|
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 12.2.2004 | 13:51 | Túristadagar í london... |
hæhæ kæru vinir það er bara kominn fimmtudagur þetta líður svo hratt bráðum verð ég bara aftur orðin einn hérna nei nei segi svona...
Við erum búin að vera túristast soldið síðustu tvo daga reyndar gerðum við mest lítið á þriðjudaginn ég sýndi stínu húsið sem við erum að skoða og henni leist vel á sá reyndar bara það að utan en samt sem áður sátt við það...
Svo í gær byrjuðum við daginn snemma og ákváðum að halda inní london enda ætluðum við að hitta haukenn um kvöldið, við byrjuðum á að þramma göturnar og fórum í covent garden og skoðuðum okkur þar um eða aðalega stína því ég ákvað að hringja bara í valdann og heyra í honum... eftir þetta lá leið okkar uppá liverpool street þar sem stína ætlaði að kíkja á spitalfield markað einhvern þar sem hönnuðir koma saman og selja fötin sín eitthvað voðalega svona nýtt og flott veit ekkert hvað þetta er en allavega þegar við komum var búið að loka svo við þurfum að kíkja aftur þangað,
Svo um kvöldið um klukkan 7 biðum við fyrir framan stanstead lestina og skimuðum eftir hauken og hann mætti þangað sem betur fer síminn hans virkaði ekki hérna svo við vissum ekkert hvar hann var en hann birtist allavega. Hakur hafði ekki komið til london svo ég fór með hann niður í centralinn og við komum töskunni hans fyrir í geymslu. ég var búin að redda honum lestarmiðunum til luton flugvallar og átti hann að fara korter yfir 11 frá london bridge, þannig að við höfðum þarna fína 3 tíma til að fá okkur að borða og eins og eina kollu, Pizza hut varð fyrir valinu á leister squere og svo kíktum við á lokin á chelsea og pompey í premier á einum bar þarna á torginu, sá þá að mínir menn voru að skíta á sig og fann ég til með honum einari mínum því hann var á leiknum og ekki gaman að fara á old trafford og tapa fyrir svona kúkum eins og í boro! djöfulsins aumingjar þarna í vörninni ekki hægt bara hvert stefnir þetta eiginlega...
En allavega við héldum því næst á london brigde og lentum þá í smá ævintýri þegar við ætluðum að skella okkur út þá stóð stína og reyndi að opna lestardyrnar en sá ekki stóran miða á þeim sem stór OUT OF SERVICE svo ég hljóp að næstu dyrum og lestin mjög pökkuð og þau á eftir mér og ég bara bað fólk um að færa sig ég yrði að komast út sem og ég gerði en það bólaði ekkert á þeim svo ég stóð fyrir hurðinni að reyna blokka skynjarann en það virkaði ekki svo það var annaðhvort að klemmast á milli eða stökkva út, ég stökk út og sá þau bara fara áfram með lestinni og ég varð einn eftir á liverpool street, en sem betur fer náðu þau bara lest strax til baka í tæka tíð frá næstu stöð og voru kominn aftur eftir svona korter 20 mín, sem betur fer vorum við líka bara á ágætistíma því annars hefði þetta getað endað illa!
En hef ekki frá meiru að segja í bili held ég sennilega bara rólegur dagur í dag án þess að ég viti það, svo er stína kominn með kvef og einhvern viðbjóð!
|
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 10.2.2004 | 14:59 | smá frá okkur hérna úti... |
sorry hvað það hafa verið lítil skrif undanfarið bara ekki haft tíma en ég ætla að hlaupa yfir nokkur atriði sem hafa borið á garð hérna úti undafarið...
Stína lendi á laugardaginn og þessi dagur ætlaði að verða mér erfiður því ég ætlaði að ná í hana uppá liverpool street og eftir hrakfarir gærdagsins þá héld ég að ég væri nú sloppinn en mér tókst að fara í vitlausa lest sagði við sjálfan mig ég fer í gulu circle lestina og gekk uppí grænu district lestina og fattaði það svona hálftíma seinna... þurfti því að taka auka hálftíma rúnt í neðanjarðarlestina hmm gaman! en ég komst á strætið og var rétt á undan stínu.
Við fórum því næst uppá hótelið í canary whorf sem var með öllu bara frábært hótel, þvílíkt flott herbergi og glæsileg heit.. við fengum okkur pizzu niðri á jarðhæðinni og svo uppá herbergi að taka okkur til og fara á ballið sem var niðri ( þorrablótið)
Það var frábær skemmtun að vera á því þó svo að þegar við mættum þektum við ekki marga, en þegar líða tók á kvöldið höfðum við hitt allnokkra til að vera með ég nefni einhver nöfn, Védís var að sjálfsögðu þarna..., svo hittum við emelíu sem var með okkur í hagaskóla og er að læra hérna úti... Óli sk með z var þarna og hún ísgerður, svo komu Egill Birgison fyrrv. verslingur og liðsmaður PSV Einal ásamt öðrum liðsmanni PSV Honum Geir. svo voru þarna fullt af liði sem maður hafði séð áður heima..
Land og synir voru þarna að spila og stóðu þeir sig mjög vel, sverrir stormsker tók með þeim lagið sitt og allir skemmtu sér vel, ballið var búið um þrjú og þá tóku við einhver eftirpartý en við vorum ekkert að vesensast í svoleiðis.
sunnudagurinn var bara tekin með róleg heitum en í gær fór ég með hana stínu í bluewater sem er stærsta mall eða eitt af þeim í evrópu og hún bara missti sig ég náði ekki sambandi við hana í svona 3 tíma hún var svo upptekinn ég fór því bara í dvd búðir og diska búðir og keypti mér nokkra dvd diska á kjarakaupum stína keypti sér einhverja skó og eitthvað hún sýnir ykkur það bara heima, allavega mjög fín byrjun á þessum tíma okkar hérna saman erum að fara kíkja í smá göngutúr og eitthvað...
Svo á morgun er það held ég bara centrallinn yfir daginn og svo að hitta hann haukenn en hann stoppar hérna í smástund í flugi sínu til spánar gaman það;)
chao
|
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 7.2.2004 | 13:38 | ein allra mesta SKITA sem ég hef lent í! |
Shit þetta hlýtur að hafa verið leiðinlegasta atvik sem gat gerst á þessum tíma... í gær var ég í góðum fíling og ákvað því að kíkja með strákunum út í nokkrar kollur sem urðu alls 2 vildi vera hress í dag þegar hún stína mín kæmi í heimsókn...
Kvöldið fór ágætilega af stað og ég kvaddi viktor rétt áður en ég fór.... um tvö ákáðum við að fara labba heim frá klúbbnum fórumk á klúbb í swanley og ég hafði bara nánast ekki eytt neinum pening.. þannig að við löbbuðum til að spara meira tók c.a. 40 mín ekkert mál það!
Þegar heim var hinsvegar komið og mér orðið frekar kalt ætla ég að ná í lyklana að húsini mínu og viti menn "hvar eru lyklarnir mínir" Fokking Shééét ég trúi þessu ekki hvernig fer ég að þessu þetta virðist alltaf gerast fyrir mig að týna einhverju það er eins og hlutir sem ég á hafi sjálfstæðan vilja og gangi bara úr vösum mínum þegar þeim hentar allavega gerðu lyklarnir það... en það er ekki allt ég náttúrulega bý á svona spítala drasli svo það er ekkert alltof auðvelt að komast inn þar sem ég þarf að hafa lykla að mínu herbergi ég ráfaði hérna úm í einn og hálfan tíma leitandi að húsverði á spítala en hann fannst ekki reyndi að opna gluggan og var orðin svo pirraður að það fauk í gegnum kollinn á mér að brjóta bara gluggann shit hvað ég var reiður ég sá fram á það að ég yrði að taka má móti stínu kaldur skítugur og ógðeslegur þar sem skrifstofan er ekki opin um helgar....
Ég fór aftur niður og bankaði hjá stefáni (steve) og hann var sem betur fer heima svo ég komst inní íbúðina en ekki herbergið mitt skítkalt klukkan orðin 4 og ég eins vondur og það gat orðið típískt fyrir mig að lenda í þessu, miðað við hvað tók mig langan tíma að ákveða að ég skildi fara út í kvöld...
þegar inn var komið reyndi ég að ná í númer sem mér var gefið sem eru svona off hours númer en ekkert gekk ég sat einn með sjálfum mér inní eldhúsi og komst ekki einu sinni inn til mín til að fara í hlýrri föt... mér leið eins og fokking djöfulsins róna og til að róa mig niður réðst ég á hurðina já ég hinn óði maður réðst á hurðina inn í hjá mér í þeirri von um að hún myndi gefast upp og opnast en það sem hún gerði var bara að hlæja að mér eiginlega hvað þessi dvergur væri að reyna þjösnast á sér;) en allavega steve lánaði mér kodda og lak enda klukkan orðin 6 og ég gat ekki meira var búin að skrúfa allt í sundur á hurðina en gat ekki bifað lásnum hugsaði með mér að brjóta hurðina en hún hefði örugglega frekar brotið mig...
Þannig endaði þetta þá ég lá fyrir framan hurðina mína og reyndi að hvíla mig ég yrði þó allavega að sofa eitthvað því stína væri að koma ég vaknaði aftur og reyndi númerið og það svaraði YES það fokking svaraði og hann sagðist geta komið og opnað fyrir mér en það var auðvitað að vera hængur á þessu öllu saman það kosti lítil 50 pund að fá hann til að koma ok fair enough en þetta er ekki þjónusta fyrir 5 aura þar með fór það að hafa sparað pening þetta kvöldið ég var að hlaupa út klukkan 8 um morguninn og ná í pening skítkalt eftir að hafa sofið á gólfinu en það var sól úti og ég reyndi að róa mig niður ég kæmist þó allavega inní herbergið mitt það væri fyrir öllu...
þar með er þessi saga nánast öll sögð ég náði í pening virti fyrir mér fólkið á ferli ég í sömu fötum og kvöldið áður með laukbragð dauðans uppí mér eftir rottuborgara sem ég hafði fengið mér á leiðinni heim um nóttina... en smátt og smátt fór ég að jafna mig á þessu og líta bara á þetta sem eitt af mínum asnalegu ævintýrum því þau geta verið ansi skrautleg og hafa verið það í gegnum tíðina...
Maðurinn kom rétt eftir 9 og ég sá fram á það að komast í sturtu og leggjast uppí rúm og hvíla mig eftir þessar raunir... ég borgaði honum 50 pund fyrir að koma og stinga lykli inn og opna svo reif ég aðeins kjaft við hann og sagði að þetta væri bara enginn þjónusta bara svona til að líða betur eftir á enda hefur viðskiptavinurinn alltaf rétt fyrir sér...
But at the end of the day þá held ég að það sé bara hægt að hlæja að þessu allavega veit ég að viktor og einar gera það því þeir hafa oftar en ekki séð mig missa eitthvað eða tína einhverju hérna úti þeta eru einhver álög held ég.... en ef þið hlæið þá verðiði að skilja hvað ég gekk í gegnum fyrst því þetta var ekki það skemmtilegasta sem gat gerst en ég er hress núna í góðum fíling að borða samloku og fylgjast með fótbolta
Heppni maðurinn....
|
 |
| silli | Comment (8 ) |
 |
 |
 |
| 6.2.2004 | 19:14 | Tíminn líður hratt á gerfi eitthvað... |
Já það er bara komið að því að stínan mín komi aftur hérna út hún er væntanlega á morgun og er ég mikið spenntur og hreint ótrúlegt að það séu að verða komnar 6 vikur síðan ég kom hingað aftur til Lundúna...
Annars er allt gott að frétta, skoðuðum annað massívt hús í gær svo við getum valið á milli tveggja hús ekki slæmt það svo ég held að ég geti farið að slá því föstu núna að kallinn sé að fara flytja þetta eru bæði svona einka landlordar og því þarf enga ábyrgð og ekki neitt... bara borga fyrifram og smá tryggingu! húsið sem við skoðuðum í gær hafði bara allt saman 3 stór herbergi, eitt gestaherbergi og flott eldhús þar sem var þurkari, þvottavél og uppþvottavél ekki slæmt það..
Orðin soldið þreyttur á að horfa á leiksýningar en búin að sjá 5 á síðustu 3 dögum, og sú sem stendur uppúr er að sjálfsögðu frammistaða kóngsins sem Heins Byer þýskur hermaður sá það leikrit í gær og var það bara hin besta skemmtun og alltaf gaman að horfa á kónginn performa, 2. árs sýningarnar hafa líka verið ágætar og gefið manni hugmynd um hvað sé framundan á næsta ári.
Viktor fer senn að kveðja holuna í bili er að fara skunda út á stanstead á leið til danaveldis til að hitta sinn betri helming þar og verð ég því einn hérna í kvöld, alldrei að vita reyndar að maður kíki eitthvað með gaurunum þeir ætla að fá sér nokkrar kollur í kvöld.. en allt óráðið.
Setti nýjar myndir inn í gær af djammi og annað tékkiði endilega á því og fleiri myndir á leiðinni á næstu dögum erum svo duglegir að taka myndir að maður hefur varla við að setja þær inn!
En segi þetta gott frá lundúna borg fer á þorrablótið á morgun og sæki stínu svo það er gaman hjá mér á næstunni, heyri í ykkur fljótlega aftur!
|
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 4.2.2004 | 19:00 | ekki örvænta... |
Þrátt fyrir slæmar fréttir undanfarið þá er farið að birta til i húsnæðis málum lítur allt út fyrir að við höfum fundið tvö hús til að velja um bæði á frábærum staðsetningum og bæði með húsgögnum, hittum manninn sem á hitt í dag fyrir utan og leist okkur mjög vel á það utanfrá og hann sýndi okkur myndir og allt leit mjög vel út þarna inni... flottar inréttingar garður og góð svefnherbergi og strætóstoppistöð beint fyrir utan falleg aðkoma og allt, hitt húsið skoðum við á morgun klukkan 4.
Svo þetta lítur allt vel út húsið sem við skoðuðum í dag er laust 20 feb með nýjum rúmum og þvottavél og allt saman og enginn ábyrgðarmaður ótrúlega fínn kall sem á þetta hús og leist mér vel á hann ekkert fasteignastofu rugl!!! allavega hann er með tvö önnur hús sem hann leigir nemendum í okkar skóla og það er mjög gott! Svo nú er bara að vona að allt gangi eftir og við fáum hús á næstu tveim vikum það er nokkuð ljóst!
Í dag fór ég á eina sýningu hjá 2 árinu það er þeirra tími núna og fer ég á 2 á föstudaginn. gaman að sjá hvað verður gaman hjá mér á næsta ári þetta eru 2 tíma sýningar í gamla leikhúsinu í skólanum og hlýtur þetta að vera mjög skemmtilegt! Kóngurinn er svo með sýna sýningu á morgun þar sem hann leikur þýskan homma eða eitthvað Heitir Hans eitthvað veit reyndar ekki hvort hann er hommi eða ekki, sennilega ekki.....
Fengum nýju hópana okkar í dag og öllum til mikillar undrunar voru ég og viktor ekki saman í hópi nei djók það var vitað fyrir fram! en ég er mjög ánægður með minn hóp og sama kennarann Thom og það er bara fínt! minn hópur samanstendur bara af leikurum það er leiklistarbrautinni 10 krakkar en hinir hafa blandast leik/tónlistar fólki, allavega mjög ánægður með minn hóp gæti orðið flott önn. Erum að fara í Chekhov og ég verð í leikritinu 3 Sisters og á það að vera fínt stykki...
en segjum það bara í bili ætla að fara elda
P.s. það er bara komið sumar hérna svona 16 stiga hiti mjög fínt fórum út að skokka og svona bara eins og sumar.
|
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 3.2.2004 | 15:37 | Allt á byrjunarreit aftur.... |
Frekar leiðinlegt þessir helvítis hálvitar hjá þessari fasteignastofu eru náttúrulega mestu fífl í heimi... Fórum í gær til að greiða inná húsið og fara með umsóknareyðublöðin svo þeir geti tékkað okkur út og mamma búin að stússast heima og senda þetta út og við bara fórum út frá þeim og allt átti að vera í lagi... nei svo tveim tímum seinna hringdu þeir og þá bara Ekkert hús getum ekki tekið ábyrgðarmenn frá íslandi, það er náttúrulega fáranlegt að það sé komið fram við okkur pakistana ég meina við erum nánast næsta land við...
Allavega alveg brjálaður og tók nett kast heima skrifaði bréf til eins af brösurunum og henti því undir hurðina og sagði honum að taka puttana úr rassgatinu á sér og reyna að þrífa einhvern tímann þarna heima í þessari andsk holu! ég var þarna á hnjánum að skrúbba gólfin og reyna að fá útrás þreif allt hátt og lágt enda stína að koma og við verðum að vera þarna eitthvað áfram,
En við erum að leita áfram og búin að finna annað hús ekki í gegnum stofum sem losnar föstudaginn eftir viku og ætlum við að kíkja á það það er með húsgögnum svo vonandi gengur það eftir...
Sýningin gekk bara vel í gær og í samtali mínu við kennarann var hún bara nokkuð sátt ég verð áfram með henni sem kennara og það er fínt held ég bara byrja árið með henni og halda áfram og klára það og sjá hversu mikið hún getur þróað mig sem leikara... næsta leikrit sem ég verð í og við æfum í lok næstu annar heitir Three sisters eftir Checkhov og ætla ég að lesa það á næstu dögum það kemur sér vel að vera með mikið hár í Chekhov svo ég er í góðum málum...
allavega svona allt í lala málum hérna það góða er að stína er að koma á laugardaginn og það er mikið tilhlökkunarefni get ég sagt ykkur;)
en bara svona nokkur orð frá london kanski koma fleiri nýjar myndir í kvöld... á meðan skemmtiði ykkur bara yfir tenórnum og holumyndunum sem ég setti inn á sunnudaginn |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 1.2.2004 | 22:11 | fín helgi... |
Loksins kemur ný færsla hérna á sigganum búið að vera annasöm helgi og ekki eytt miklum tíma fyrir framan tölvuna en hérna kemur svona yfirlit yfir það helsta sem gerðist hérna úti!
Á föstudaginn komum við heim frekar þreyttir eftir erfiðan dag síðasta æfinginn fyirr sýninguna á morgun, ég ákvað að skella mér út á lífið með strákunum á fyrsta árinu... viktor var orðin slappur og varð því skynsamur og varð eftir heima
Við fórum á pub/club í bexleyheath sem heitir Yates sem er frekar stór keðja hérna í englandi, þetta var massaflottur staður og skemmtum við okkur mjög vel þar staðnum var lokað klukkan 11 og þá biðu rútur fyrir utan sem keyrðu okkur á næsta nætur klúbb sem heitir Deja wu og var rútuferðin ein bara stórskemmtileg þar var sungið og trallað alla leiðina og allir skemmtu sér konunglega, þessi klúbbur er í swanley sem er hérna rétt hjá og vissum við ekki um þennan stað en ætlum að fara oftar þarna því þetta er mjög nettur staður brjálað dansgólf og svo stór svona VIP stofa fyrir innann með leðursófum og chillaðri tónlist við eyddum mestum tímanum þar
Staðnum var svo lokað um tvö leytið og héldum við heim á leið í rútunni aftur í bexley og tókum þaðan leigubíl, þetta var í alla staði mjög fínt kvöld og mjög ódýrt og ágætt að vita að maður þurfi ekki að fara í centralinn til að go clubing eins og sagt er hérna úti!
Vaknaði um hádegi hérna í holunni bara frekar hress og hengum við hérna framan af degi fórum svo í smá göngutúr og heyrðum í kónginum og ákváðum að kíkja til hans um kvöldið og horfa á premier ship þáttinn um kvöldið bara svona frekar rólegt kvöld með bolta og bjór í höllinni góðu!
Farið frekar seint að sofa og eyddum við deginum í dag heima í höllinni svo seinnipartinn kom Nonni í heimsókn ( garðar vinur einars sem lék Nonna í Nonna og Manna) hann er að vinna hérna úti núna við að syngja.
Hann var á bíl svo við ákváðum að skella okkur í bíltúr niður á núðlustaðinn okkar í greenwich og var mjög nett að skella sér svona í bíltúr ( gerum ekki mikið af því hérna) allavega núðlustaðurinn stóð fyrir sínu eins og alltaf og svo rúntuðum við aðeins og garðar skutlaði okkur svo heim og hér er ég eftir þessa annars ágætu helgi...
sit hérna og er að horfa á celebrity... get me out of here og þetta er mjög fyndinn þáttur svona survivor týpa 10 frægir einstaklingar í ástralíu t.d. Peter andre og Jordan ( brjósta stelpa) og það er sjóðandi á milli þeirra peter er alltaf að syngja eitthvað ( held að það sé alltaf sama lagið... átti hann ekki bara eitt lag;) svo er neil ruddok líka þarna allaveg fyndinn þáttur!
Á morgun er svo stóri dagurinn sýninginn sjálf erum núna búin að æfa í 4 vikur og komið að því að sýna árangurinn fyrir alla kennarana okkar og fleiri ...svo það er smá fiðringur en líka tilhlökkun að klára þetta leikrit og halda áfram að læra eitthvað nýtt... og eftir morgun daginn er þessari önn lokið og ný önn byrjar aftur 16 feb svo það er smá frí núna...
Þá verður öllu skipt uppá nýtt það er hópum og kennurum og verður fróðlegt að fara vinna með nýjum andlitum. svo líka á morgun göngum við sennielga frá húsamálum og fleira svo við getum flutt í þessari vikur shit hvað það verður gaman!
Svo eru náttúrulega frábærar fréttir að England keppir við Ísland 5 júní í manchester og verður það loka leikurinn sem england keppir fyrir EM og að sjálfsögðu verðum við hérna enþá og ætlum að skella okkur til manchester og styðja strákana einum of gaman að sjá loksins ísland keppa við england, ykkur sem langar að koma endilega mæta bara;) taka lestina snemma á laugardeginum til manchester og eiga þar góðan dag.
Stína er svo að koma um næstu helgi og það verður gott að sjá hana aftur, ætlum á þorrablótið og bara hafa það gott vonandi í nýja húsinu;)
man ekki eftir meiru svo ég kveð í bili
Nýjar myndir ættu að detta inn í kvöld eða á morgun... |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|