Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 10.12.2004 | 10:15 | usssss |
hvernig er það eru bara allir hættir að lesa síðuna mína... er ég bara einn hérna í london.. og enginn að fylgjast með... hvar eru allir vinir mínir... ég fæ enginn comment lengur... ég fæ engar kveðjur.... ég fæ bara ekki neitt þessa dagana...
langaði bara að koma þessu á framfæri...
sjáumst á morgun! |
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 9.12.2004 | 19:24 | elskurnar |
jæja þá er kallinn bara á leiðinni heim og bara einn dagur eftir hérna í dýflissunni góðu...
ekkert að frétta svo sem, bara mest lítið söngurinn gekk bara mjög vel og sagan segir að fólk hafi skemmt sér bara mjög vel... búin að fá góð feedback af því sem maður hefur gert á þessari önn og því ekki mikið eftir en að klára þetta á morgun, pakka og drulla sér svo heim í hitann því kuldinn hérna er að gera mann alveg gráhærðan...
prófaði enskan jólamat í dag það er víst til svona ekta þannig eins og ekta enskur morgunverður og þakka ég guði fyrir að ég fái minn hammara á aðfangadag því þetta var bara alls ekki nógu gott og mjög skrítin blanda af hinu og þessu...
en langaði bara svona að kasta kveðju á ykkur kem sennilega ekkert til með að blogga meira fyrir jólinn þar sem ég er jú bara heima...
ég lendi á laugardaginn klukkan 4 og er bara til í allskonar fjör á laugardags kvöldið fyrir ykkur sem viljið og gaman væri að hitta sem flesta...
elska ykkur öll! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 6.12.2004 | 14:04 | raddlaus og vitlaus... |
já það eru smá crises í gangi núna hjá litla hobbitanum .... málið er að ég er hálfraddlaus og ég er að fara syngja á morgun fyrir fullt af fólki og er maður því hálfstressaður ... því það er jú ekki gott að vera með lamaða rödd þegar maður þarf á henni að halda... en þetta er að sjálfsögðu bara misnotkunn á blessaðri röddinni frá mér...
helgina var góð smá pub eitthvað á föstudag og svo bara 9 tíma svefn og vaknaði maður á laugardaginn ferskari en nokkru sinni fyrr og tilbúin að takast á við eitthvað af jólainnkaupunum... ég klæddi mig upp að vanda eins og maður gerir þegar jólakaupinn eru annars vegar betra að vera snyrtilegur svo maður fari ekki í jólaköttinn eins og mamma sagði alltaf....
ég og stóri björn fórum því að versla í lundúnaborg og skemmtum okkur bara vel.. get ekki sagt að jólafílingurinn hérna sé sá sami og heima... þúsundir manna en enginn jólafíló... allavega keypti hitt og þetta.. aðalega að versla fyrir mömmu gömlu en hún bað mig að hjálpa sér og hún hefur nú verið svo frábær í þessari dvöl minni hérna úti að minna getur maður nú varla gert....
svo hittum við hannes og helgu sem voru eitthvað að versla líka og þau héldu leiðinni áfram með okkur.. svo fórum við í partý til jóns gunnars sem var svona lala ekkert sérstakt 2 bjórar drukknir og svo tekinn sú asnalega ákvörðun að fara á klúbb í camden og vorum þar mjög stutt og svo bara heim og komnir heim um 5 leytið en lögðum af stað um þrjú leytið heim ... vei elska london á næturnar...
leikur daginn eftir og maður vaknaði ágætilega ferskur röddinn reyndar eitthvað farin að gefa sig en maður fékk sér bara te og toast og svo bara af stað út á völl ... þessi leikur var á móti liðinu sem við unnum 12-2 í fyrsta leiknum... þeir voru miklu betri núna og áttum við í mesta basli...
við fengum dæmda á okkur vítaspyrnu út ef einhverjum fávita sem var að dæma einhver vinur einvhvers og vissi greinilega ekki neitt dæmdi hendi á eitthvað rugl.. og ég með mitt skap ætlaði bara að vaða í helvítis manninn og neitaði að standa í markinu í smá stund... kallaði manninn öllum ófögrum orðum sem til eru í minni orðabók og var svo hársbreidd frá því að verja vítið... þess má geta að við höfum fengið á okkur 4 mörk á tímabilinu 2 from an open play og tvo úr víti og ég hef varið eitt víti sem sagt víti í hverjum einasta leik.. mjög gaman að þurfa alltaf að standa í því...
mér tókst náttúrulega að fá alla í hinu liðinu til að þess að hata mig... en þeim tókst ekki að skora annað mark vegna baráttu íslendingana í hjarta varnarinnar það er ég í marki og viktor fyrir framan sem var maður leiksins að mínu mati og skaut mönnum eins og Rio Ferdinand ref fyrir rass.... ég átti mína fallegustu vörslu fyrr og síðar en mig hefur alltaf langað til að verja boltan með því að kasta mér uppí skeytin og blaka boltanum yfir slánna þegar menn reyna að skjóta yfir mig og það tókst þarna tiltölulega fast skot og alveg útí horn og ég bara fleygði mér aftur á bak og blakaði honum yfir... usss
allavega við spiluðum ekki vel í fyrrihálfleik en tókum okkur saman í andlitinu í þeim síðari og spiluðum betur.. það fór að fara um mann þegar 10 mín voru eftir og staðan en 1-0 þeim í vil... enda höfum við ekki tapað í þrjú ár... en svo voru tvær mín eftir og við skoruðum.. ég hef alldrei fagnað jafn mikið og ég held enginn af okkur ég hljóp fram allan völlinn að þeirra vítateig og öskraði sál mína í burtu og kallaði allskonar blót og viðbjóð og bara var eins og versti villimaður... og þar með var röddinn dáinn og er hún það enn...
og svo var bara chill heima það sem eftir var enda frekar þreyttur og subbulegur... drakk fullt af tei og hef ekki talað mikið síðan í gær er að reyna að spara röddina...
allavega kem heim á laugardaginn skrifa kanski eitthvað á næstu dögum ef eitthvað sniðugt gerist....
eitt hérna þeir sem vilja koma og sjá leikritin okkar í byrjun febrúar eru að sjálfsögðu velkomnir við verðum með gisti hús í welling á þessum tíma...
hlakka til að sjá ykkur öll um helgina...
þetta var sagan um röddina sem var og var síðan ekki.. |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 3.12.2004 | 16:51 | Fokking Snilld! |
já kallinn er helvíti sáttur.. meira en sáttur því öll vinnan sem maður hefur lagt í þessa önn þrátt fyrir verki og annað er að borga sig all svakalega...
ég fór með ræðuna mína gær og rúllaði henni upp fékk alla til að standa á gæsinni og bara var eins og castro sjálfur en ég flutti ræðu eftir hann... svo var það fyrirlestur um leikritið okkar sem við flytjum í febrúar næst á dagskrá og gekk það bara vel.... eftir þetta allt saman var bara farið og slakað vel á heima eftir erfiðan og langan dag... þess má geta að þessar ræður eru fluttar hérna úti í porti í skólanum og fullt af fólki að horfa á ...
Svo í dag var það leiklistin og maður hefur beðið með köttinn í hálsinum eftir því hvaða hlutverk maður fengi.. það voru svona 1 til tvö sem manni langaði í , í fyrsta lagi að vera einn af fyndnu hermönnunum sem halda leikritinu uppi.. og svo er það aðal gaurinn sem þeir ákveða að breyta í hermann.. til að fá betri útskýringar þá bara lesa man equals man... málið með aðal gaurinn að honum er skipt uppí fjóra hluta svo það eru fjórir sem leika hann og skemmtilegra að vera því bara einn með sitt hlutverk... hann las upp hlutverkinn og endaði á hermönnunum 3 og viti menn nafnið mitt var ekki komið upp svo ég öskraði bara inní mér af kæt og svo sagði hann Jesse sem er nafnið á einum gaurnum og ég er gríðalega sáttur ... að fá hlutverk sem manni langar í er ekki alltaf á dagskránni svo ég veit ekki hvað meira ég á að segja þetta leikrit snýst um þessa gaura og herinn almennt í bresku indíu árið 1926 og maður fær bara að vera einn af aðalgaurunum... það borgar sig að vinna vel og leggja hart að sér... þannig að það þýðir að nú fer maður að vakna klukkan 6 á morgnana og hlaupa hérna í kringum vatnið og lifa lífi alveg eins og hermaður... geri það reyndar ekki fyrr en ég kem aftur út en nú þýðir ekkert annað en bara agi! þurfum sennilega ekki að klippa hárið á okkur ég og thejis sem leikur einn af hermönnunum er líka með sítt hár og leikstjórinn sá fyrir sér svona villta hermenn með síðara hár en vanalega. klippum það sennilega eitthvað en það verður bara að koma í ljós.
helgin verður svona sneisafull af skemmtun líka ætla að fara á morgun og versla eitthvað inn fyrir jólinn með stóra birni og hitta hannes og fara svo í partý hjá jóni gunnari (kvisthaga 14) en hann ákvað að bjóða okkur heim til sín... svo það verður bara gaman svo er það enn einn leikurinn á sunnudag.. á móti liðinu sem við unnnum 12-2 um daginn.. en þeir mæta víst með rosalegt lið... svo við sjáum til ég reikna með að ég spili frammi...
nóg af bulli kallinn er á leiðinni heim eftir viku.... |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|