Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 29.11.2004 | 14:11 | strákarnir okkar eða bara strákarnir mínir... |
já þessi færsla verður sko helguð mínum strákum í augnablik sem ég get ekki beðið eftir að komast heim og fá að sparka soldið í þá! en þeir gerður sér lítið fyrir og unnu sinn riðill í 4 deild í íslandsmótinu innanhús núna gær og verðum við því þriðjudeild á næsta ári. þetta er náttúrulega frábær árangur því við erum jú bara að stíga okkar fyrstu skref meðal stóru liðana og langaði mig mikið að vera þarna þeir unnu alla leikina nokkuð sannfærandi og maður fær bara kitling í magan yfir því að hafa ekki verið þarna ... er mikið að spá í að hætta þessu leiklistar bulli og vera ekki að eyða peningum í þetta rugl og fara bara og einbeita mér að fótboltanum ég er ungur og á því enn möguleika í þeirri grein... meðan þessi leiklistarbransi er bara bein stefna niður í helvíti.. já fótbolti skal það vera! en til hamingju strákar mínir og vonandi höldum við áfram á þessari leið!
hérna er linkur á mótið Augnablik
allavega þá var helgin hérna sú rólegasta sem sögur fara af! ekki neitt gert! þá meina ég ekki neitt! og já ekkert bara...
á föstudag var bara farið í pubinn í klukkutíma eða svo að hitta hann jerome og ákveðið að sunnudagur skyldi vera dagur boltans ég meina ef þú getur ekki spilað hann þá bara horfa á hann!
allavega laugardagur var bara þannig að það var mætt í movement klukkan 9 og var það alltí lagi en þreytan var orðin ansi mikil klukkan 1 enda var þá öllu lokið og haldið heim. laugardeginum var síðan eytt í lærdóm.. og meiri lærdóm og sjónvarp og góðan mat sem ég ég eldaði handa okkur hjónunum... ég drakk rauðvín svona almennilega í fyrsta skipti keypti flösku sem stóri benti á og mér bara fannst það mjög gott svo ég er að eldast greinilega... en horft á sjónvarp og maður situr límdur yfir X factor sem er svona ný útgáfa af idol og þar eru simon og sharon osbourne og luuie Wals að dæma og maður er alveg límdur yfir þessu... skemmtilegra en idol....
svo var það bara sunnudagur og þá kom jerome í heimsókn og í stuttu máli var horft á fótbolta frá 1 til 10 mjög gaman mjög karlmannlegt og mjög óhollt... við fundum uppá skemmtilegum leik sem var að taka gúmmí orma og lemja hvorn annan með því á vonda staði svo sem handlegginn kálfann og svo að sjálfsögðu rassinn sem var svo vont að menn hlupu inní frysti til að kæla sig...
en nenni ekki að skrifa meira sé ekki fyrir sólinni sem skín á skjáinn minn... sjáumst brátt! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 26.11.2004 | 15:24 | hingað og ekki lengra... |
hver sagði að leiklistarnám væri bara pís of keik allavega ekki ég núna eru tvær vikur eftir og ég sé fram á það að mínar rafhlöður ná ekki svo langt, það er alveg ljóst! ég meina ég er bara að leka niður.. skólinn er yfirleitt frá 9-9 í stanlausu actioni og maður bara heldur þetta varla út.. ég er komin með kvef og viðbjóð í allar holur sem hægt er að finna... röddinn mín er að hverfa en það þýðir ekki að maður geti slakað á nei ég þarf að harka þetta af mér allavega þessa viku og næstu því þá erum við að fara með ræðuna okkar og ljóðið og fyrirlestur og annað... ásamt því að vera á fullu í movement og voice og part time rehersals fyrir leikritið og þar þýðir ekkert að slaka á því maður verður jú að vera góður fyrir leikstjórann svo maður fái gott hlutverk ...
leikritið okkar fjallar um hermenn og því erum við búin að vera í herbúðum í hvert skipti sem við erum í leiklistartíma.. einn strákur í hópnum hefur gert basic training og hann skipar okkur fyrir við erum að marsera hérna úti í porti ... gera allskona army drill æfingar eins og að koma að skotstað vernda svæðið og ef maður klikkar þá eru það bara armbeygju dauðans... ég þurfti til dæmis í dag að taka 90 armbeygjur ekki í einu en í endann fékk í hláturskast og þurfti að fara út fyrir hópinn og taka 50 armbeygjur... sem var hell....
en þetta er það sem er gaman við að vera í drama skóla þú færð að gera allt sem þig langar og langar ekki... ég meina að vera í svona herbúðum er bara klikkun.. en samt gaman að sjá hvernig þetta er.
en helgin verður væntanlega bara tekin með rólegri sveiflu.. alltof þreyttur til að gera nokkurn skapaðan hlut og svo þurfum við að mæta í þriggja tíma movement á morgun laugardagsmorgun klukkan 9 jei voða gaman... en svo ætlum við stóri bara niður í bæ og kanski á leiksýningu eða eitthvað annað skemmtilegt.!
bara svona rétt að heyra í ykkur tvær vikur í kallinn verð nú reyndar ekki mjög skemmtilegur þar sem ég kem örugglega bara hálfur til baka... |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 23.11.2004 | 13:55 | hæ öll sömul |
kvikindi og skordýr og allt sem því fylgir er ekki megin atriði í þessari færslu heldur bara það sem hefur gerst hér undanfarna daga...
man nú ekki hvenær ég skrifaði síðast það er bara orðið alltof langt síðan verður maður að segja...
en það hefur ýmislegt gerst síðan þá.. t.d. það að ég hef orðið þunglyndur og risið upp frá því og nánast legið í valnum og risið upp frá því og ég veit bara ekki frá hverju ég þarf að rísa upp frá á þessari blessuðu lífsleið minni... en eitt er alveg víst að tímabilið frá 4.ágúst og til (óákveðið) er það óþægilegasta og mest pirrandi tímabil á minni lífsleið... það er sem snertir bara mig sjálfan.. þess má geta að þessi texti er á engum rökum reistur og því djöfulsins hneysa .. eða er hann á rökum reistur... ég veit það ekki.. hver veit það þá... ástæðan fyrir því að þetta er frekar ruglingslegur texti er að því að ég er að sýna mitt listræna eðli og skrifa á þann hátt sem mér líður... það er hvað er líkami minn að segja mér... hvað er hann segja þér... erfið spurning!
en nóg af rugli!
helgin var svo sem alveg fullbókuð eins og vanalega.. fór á pubelíus maximus á föstudaginn og vare það bara hundleiðinlegt eins og alltaf ég held að ég sé orðin of gamall til að vera að sulla í þessum bjór... því eitt sem ég hef ekki sagt hingað til að eftir bjórdrykkju kvöld og lítinn svefn er þrýstingurinn í kassanum á mér ekkert eðlilegur og því hef ég ákveðið að segja upp þessari bjórdrykkju, það er að vera ekki að djamma neitt kanski að fá sér bjór heima einn og einn á föstudegi en sjá hvað gerist ef ég sleppi þessum drykkjuskap alltaf.... ekki hollt! en ég vaknaði á laugardaginn eftir tiltölulega rólegan föstudag með þennan svína hausverk.. gleymdi reyndar að fara í sturtu þegar ég kom heim.. þannig að tóbaksreykurinn var bara fastur í taglinu... en þetta þýðir bara það að ég er að eldast og á því ekki að vera drekka bjór þó að það séu bara þrír pintar... reyndar er ég nokk viss um að þessi hausverkur hafi verið afleiðing þess að ég er þorna upp samkvæmt læknunum hérna úti ég drekk ekki nógu mikið vatn og svita alltof mikið.. það kom allavega í ljós í einhverri rannsókn!
shit hvað þetta er nú leiðinleg færsla en það er bara svoleiðis enda er ég enþá þreyttur eftir helgina...
á laugardaginn var ég bara einn heima og horfði á sky og sötraði bjór.. en svo um kvöldið var afmæli hjá theijs og var því haldið til london.. þar hittum við stóra jón og var þar djammað fram á rauða nótt eða þar til ég og stóri fórum heim í strætó um 4 leytið... sem er náttúrulega mjög heilbrigt þar sem það var leikur daginn eftír á móti central...
fórum að sofa um hálf 6 og vaknaði klukkan hálf 11 góður svefn það og er þetta bara orðið alltof algengt á þessum sunnudögum... en við mættu þarna á svæðið tilbúnir að taka á þessum djöflum við mættum 21 og þeir mættu 7 það týndist helmingurinn af þessu liði svo við stilltum upp okkar sterkasta liði og lánuðum þeim 6 menn og til að gera þessa færslu styttri þá unnum við 8-0 í svona hálfgerðum aumningja leik... en ég fékk ekki eitt skot á mig allan leikinn og sat á línunni og borðaði banana... gaman það!
en er orðin frekar spenntur fyrir því að koma heim í jólasnjóinn og annað... ekki það að ég sé eitthvað leiður á að vera hérna enda er maður búina að koma sér svo vel fyrir en það er bara orðið mikið að gera í skólanum og mikið að gera hjá sky þannig að maður verður nú að fara hvíla sig aðeins.
en jæja þetta er nú bara með ruglaðri og skrítnari færslum sem ég hef ritað... bið að heilsa ykkur öllum yfir og út og allir í kút!
ef það er eitthvað sem ég get hjálpað ykkur með þá bara að commenta |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 18.11.2004 | 13:41 | rigning súld og skyggni lítið |
er hægt að segja um veðrið í dag hér í london... en það er nú samt betra en það sem er heima ef ég heyrt...
ekki svo sem mikið til að tala um, helgin að nálgast og ætti það er vera tími hvíldar og rólegheita en það er nú víst alldrei svo og ekki er breyting á því plani.. leikur á sunnudaginn við central school of drama og svo er afmælið hans theijs á laugardaginn og verður haldið til london og hrist uppí liðinu..
get nú ekki sagt annað en að maður sé orðin smá spenntur fyrir heimkomu enda alveg kominn tími til þess enda bara þrjár vikur í að maður haldi heim! þetta líður náttúrlega alltof of hratt eins og ég hef marg oft sagt!
allavega er mikið að gerast heima sem mig langar að taka þátt í því fótboltaliðið mitt augnablik var að semja við breiðablik um að vera í samstarfi við þá og verður því heimavöllur Augnabliks á næsta ári fífan góða og ekki slæmt það! einnig fáum við að æfa þar og fáum liðsstyrk frá mönnum sem komast ekki í liðið hjá þeim... sem er bara gott og gaman.. mátti til með að segja ykkur þetta, þeir eru að fara keppa 28. nóvember í ísl.mótinu innanhús og hvet ég alla til að fara að horfa á strákana okkar!
en hérna er lífið bara eins og alltaf maður er í skólanum sem er hrikalega erfitt og er þreytan farin að segja til sín enda er maður alltaf á fullu og sumir af þessum tímum er bara eins og að hlaupa maraþon og vera endalaust að hugsa um næsta move hvað gerist næst og annað... svo er það bara heim og elda því sem hendi er næst og svo bara horfa á sjónvó og læra.. ekki mikið annað að gerast.. frekar vélrænt!
en vonandi verður nú slett aðeins úr klaufum um helgina.. er að fara á leikrit í kvöld það þriðja í röðinni hjá þriðja árinu og er það leikritið lysistrata...
en hafið það gott elskurnar mínar og ekki týnast í snjónum! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 15.11.2004 | 14:41 | sánudagur.... |
jæja kominn aftur í skólinn og ný vika að hefjast með nýjum hugmyndum og nýjum áskorunum...
helgin var svona með rólegra og leiðinlegra móti.. verður maður að segja.. nema að sky var nett eins og alltaf......
föstudagurinn var nú bara sá allra rólegasti sem ég hef upplifað síðan ég kom hingað út... við sátum bara tveir hjóninn heim og borðuðum góðan mat og horfðum á imbann og spjölluðum um heima og geima... meðan himininn var spilaður lágt undir!
Laugardagurinn var svo tekinn með trompi.. eða ef þannig mætti kalla.. vaknaði um hádegið og þá var leikur á himni leikur arsenal og tottenham sem reyndist vera hin mesta skemmtun fyrir ykkur sem vitið hvað ég er að tala um..
´
ég eldaði smá breskan verð fyrir mig og stóra björn og svo var ákveðið að fara á leik með welling united þar sem við búum en við urðum nú að fara að sjá leik með þessu liði þar sem völlurinn er nú bara rétt hjá okkur... þeir spila í einhverri suð austur deild og eru á botninum en unni þennan leik 3-2 og við skemmtum okkur bara ágætilega þrátt fyrir mikinn kulda sem hefur verið að hrjá okkur þessa helgi... við fórum heim og það var ekkert annað í stöðunni en að fá sér eitt staup af jagermeister því kuldinn inní húsinu var gríðalegur.. og kaldir kropparnir urðu að fá smá yl...
svo var bara pöntuð pizzulus og horft á himinn og svo farið í partý sem var vægast sagt ekkert sérstakt yfirleitt þegar ég og stóri björn erum ananrsvegar eru partýin yfirleitt góð því látum jú bara eins og asnar en það var eitthvað við þetta sem var bara ekki að blíva.. þetta var jú eitthvað fyrsta árs partý og ekkert sérstakt við það ár svo sem... en svo fór sem fór og við héldum heim um þrjú leitið og ég horfði á himinn til að verða 6 þetta er náttúrulega ekki hægt hvað alltaf er hægt að horfa á þennan himinn maður sefur bara ekki neitt...
vaknaði svo í gær og fór á æfingu sem var ágætt að hreyfa sig aðeins... eftir það kom tom hopper í heimsókn og við horfðum á okkar menn í man u taka newcastle og innsigla þrjú mikilvæg stig! svo bara bara chillað fram eftir kvöldi... og farið í rúmið tiltölulega snemma
eins og fólk veit þá hef ég verið að safna hári svo um munar og orðin ansi hárfagur... en þeir tíma gætu senn verið á enda sem er alveg hræðilegt og ég veit ekki í hvorn fótinn ég á að stíga allt þetta erfiði öll þessi stig sem þarf að ganga í gegnum þegar safna skal hári allt fyrir ekki neitt... þannig er mál með vexti að ég var að koma af fyrstu æfingunni minni á leikritinu sem við setjum upp í janúar og viti menn þetta er leikrit um hermenn eftir brecht og þeir ferðast alltaf um í hóp og það gæti farið svo að við þurfum allir að raka af okkur hárið... eitthvað sem ég hef alldrei gert... reyndar sagði ég við mig þegar ég byrjaði að safna að ég skildi ekki klippa mig fyrr en einhver leikstjóri myndi segja jæja siggi nú þurfum við að klipppa ég bjóst bara ekki við þessu svona snemma en þetta er jú non naturlism svo ég gæti sloppið og við skulum bara vona það besta því ég kann ágætilega við mig með svona mikið hár...
en nóg í bili endilega skrifa meira af þessum kommentum alltaf gaman að lesa þau
og til að svara honum gauja mínum þá kem ég heim 11 des sem er laugardagur! |
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 11.11.2004 | 14:37 | rassgat í bala.... |
það er bara ekkert að frétta... ekki neitt... og þá meina ég ekki neitt... maður er bara í skólanum... svo er það heim og horfa á sjónvarpið sem maður er bara orðin límdur við skjáinn enda ekki hægt annað...
maður er jú frekar þreyttur þessa dagana drattast alldrei i rúmið fyrr en seint og síðar meir... er að fara á leiksýningu hjá þriðja árinu í kvöld... og svo er bara helgin framundan.. en þá er víst eitthvað partý á laugardaginn sem ég og stóri ætlum að kíkja í .. ásamt því að horfa á sjónvarpið helst bara allan daginn...
langaði nú bara að skrifa eitthvað pínu.. það er eins og ég sagði ekkert að frétta.. og ég er of þreyttur til að skrifa eitthvað skemmtilegt!
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 8.11.2004 | 18:23 | helgina að baki |
og allt í plati ef svo mætti að orði komast... frekar viðburðarík helgi og ég er frekar þreyttur eftir hana...
föstudagurinn eins og ég sagði ykkur var fluelda kvöld og hittums við strákarnir á öðru árinu og skemmtum okkur konunglega yfir púðri og bjór... algjör snilld! ég held að ég hafi ekki skotið einum flugeld upp heldur datt í hug það snjall ræði að reka prikinn svo langt ofan í jörðina að þeir færu ekkert upp... og hvellirnir maður usss svona á þetta að vera!
jæja fór svo heim og lagði mig og vaknaði við að sky mennirnir komu klukkan 12 og settu snilldina upp! og ég bara horfði allan laugardaginn á sky.. fyrir utan að ég ákvað um kvöldið eftir að hafa smsað hannes allan daginn og ekki fengið neitt til baka að ég skyldi hitta thejis og þá í eltham en það var eitthvað fótbolta partý þar... svo ég hoppa uppá hjólið og hjóla til eltham sem tekur alveg um það bil 20 mínútur.. og þegar ég er rétt búin að koma mér fyrir panta mér bjór fæ ég smeess frá honum nesa sem sagði erum á leiðinni verðum heima hjá þér eftir 30 mín svo ég varð að hjóla aftur ... þetta var reyndar bara smá mis því hann hafði sent sms en ég ekki fengið þau!
svo það var glápt á sky alveg langt fram á nótt og hlegið og spjallað...
svo var það leikurinn á sunnudag... vaknaði frekar þreyttur en ákveðin í að standa mig og hélt af stað til norður london þar sem leikurinn var... ég ákvað að fá mér tvo red bull og ég á ekki að drekka þann óþverra sérstaklega ekki svona fyrir leik því ég verð alveg kolvitlaus af þessu rugli...
við mættum þarna ekki með okkar sterkasta lið en til að gera langa sögu stutta þá unnum við 3-1 og er því enn ósigraðir í þrjú ár... ég þurfti lögreglu fylgd útaf vellinum þar sem ég var búin að pirra alla í hinu liðinu svo mikið að þeir ætluðu allir að fara í mig...
ég átti mjög góðan leik gerði hitt liðið vitlaust missti röddina.. varði víti og nokkrum sinnum einn á einn og já átti mjög góðan dag! við spiluðum ekki vel en vorum skynsamir og skoruðum úr okkar færum!
svo var haldið til london central nánar tiltekið á leister sq .. þar sem við borðuðum sem lið á einhverjum pub og ég og 3 aðrir ákváðum að vera lengur þar sem við fundum pub sem var alveg hrikalega ódýr við erum að tala um GT fyrir 1.30 pund sem er ekki neitt... kom heim klukkan 2 í nótt og já er bara alveg búinn...
svo ég ræðí nú aðeins um verkina mína þá hef ég verið hinn allra besti síðan stína kom og fór en svo í gær eftir leikinn fékk ég þennan hrikalega sting vinstra meginn í brjóst kassanum og allt fór í sama horf... það er ég fékk þvílíkt kvíðakast inní sjálfum mér hélt að allt væri að byrja aftur og það hefur ekki stoppað síðan í gær alveg hrikalegT með stóru Ti ..... helvítis crap!
en nenni ekki að skrifa meira...
bless |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 5.11.2004 | 12:26 | Flugelda dagurinn mikli! |
já já allt að gerast hérna úti.. skólinn á fullu, sky á morgun og fleira skemmtilegt!
við strákarnir fórum í gær og keyptum okkur nokkra skammta af skemmtilegu púðri fyrir kvöldið í kvöld og verður drukkinn bjór og skemmt sér að flugeldum... allavega er það planið í kvöld! svo maður er bara frekar spenntur enda þeir sem þekkja mig vita hvernig ég og flugeldar erum saman!
Gaman að segja frá því að strákarnir í fótbolta liðinu heima eru að ganga frá félagsskiptum og annað því maður er yfirleitt skráður í félag enn þann dag í dag þrátt fyrir að hafa hætt fyrir löngu svo ég fór á ksí og tékkaði á kallinum og Kringar hafa greinilega tekið mig af launaskrá hjá sér enda dýr leikmaður á ferðinni! svo mér er frjálst að fara til hvaða félags sem er!
verð einn í setrinu um helgina þar sem stóri björn heldur til bítla borgarinnar miklu að skemmta sér yfir köllunum á vellinum! ég verð hinsvegar bara heima og horfi límdur á sky eða himininn eins og stóri kallar það! og hlakka ég mikið til!
svo er leikur á sunnudaginn og verður það tekið með trompi liðið okkar verður reyndar eitthvað brothætt svo fyrsti tapleikurinn minn með rbc gæti verið staðreynd en við erum taplausir í þremur leikjum síðan ég kom en ég held að liðið hafi ekki tapað í 3 ár .. ég segi bara arsenal hvað það eru öll lið að gera þetta!
Ein svona spurning til strákana sem kunna á tölvur ég er með svona myndavélasíma... og tek oft upp skemmtileg myndbönd sem gaman væri að sýna hérna á síðunni er það of flókt eða... það er video úr símanum..... væri gaman að fá upplýsingar um það!
annars sakna ég ykkar allra elsku vinir mínir, fer oft á skúlann bara til að sjá myndirnar af okkur og blessaði dvd diskurinn er oft í tölvunni minni það er skúla diskurinn og gaman að ylja sér við matrix eða myndirnar af okkur...
fólk er líka að taka almennt vel í nýja lagið hérna úti!
svo ég hef ekkert meira að segja í bili er í löngu gati og langaði að drepa tímann....
ég mæli líka með að þið lesið síðuna hans viktors aka stóra björns því þar eru fyndnu sögurnar frá london ég er bara með fréttir... linkinn er að finna hægra megin á síðunni!
takk og góðar stundir!
|
 |
| silli | Comment (4 ) |
 |
 |
 |
| 3.11.2004 | 11:35 | shit in a bucket! |
ja hérna hér ekkert blogg búið að vera og allir að verða vitlausir en það er búið að vera mikið að gera svo ég hef bara ekki haft tíma fyrir ykkur þarna á klakanum en ég ætla að fara yfir það sem hefur gerst undanfarna daga í einhverjum orðum svo það er best að drífa sig bara í vitleysuna...
stína kom og heiðraði okkur með nærveru sinni þessa síðustu viku.. hún kom á miðvikudaginn ásamt fleiru sem ég átti von á en dótið sem ég keypti mér á ebay var líka að koma þennan dag... ég keypti mér nefnilega glænýtt sjónvarp á ebay 28 tommu widescreen sjónvarp fyrir 100 pund plús reyndar smá sendinga kostnað... og ég keypti mér líka digital box á ebay svo ég gæti náð fleiri stöðvum en það er svona fullt af fríum rásum sem þú nærð í gegnum það box.... svo stofan mín inniheldur risa sjónvarp, surround kerfi, playstation2 og já leðursófasett og fleira... en var það nóg nei ... málið var að það er svo lélegt signal á þessu boxi því það er ekki loftnet á húsinu og ég er með inni loftnet ... og ég er búin að dreyma að fá sky sports í heilt ár núna.. svo ég bjallaði í mömmu og systu og viti menn þær ætla að styrkja mig um að fá sky sem er bara algjör fokking snilld! ég meina allir premier leikirnir, landsleikir, champions league og ég veit ekki hvað og hvað... 300 stöðvar fyrir 30 pund á mánuði og gaurinn kemur og setur þetta allt saman frítt upp á laugardaginn... svo ég verð ekki viðræðu hæfur næstu mánuðina og kem sennilega ekkert heim um jólin enda enginn ástæða til þess með þessa stofu, græjur og dagskrá! takk fyrir mæðgur fyrir að sýna mér sýndan stuðning í baráttu minni við íþróttafíknina.. nú þarf ég alldrei að fara á pubinn aftur! og héðan í frá fyrir þá sem ég koma í heimsókn þá verður seldur bjór í stofunni á vægu verði!
en allavega úr tæknimálum og yfir í eitthvað skemmtilegra þrátt fyrir að það sé ekkert skemmtilegra en ég að fá sky var ég búin að segja ykkur að ég er að fara fá sky... já ok ég held þá áfram .. sky... sky ...sky ....sky...sky..!
allavega stína kom og var öllu tekið með ró svona framan af viku það er á fimmtudag.. svo á föstu dag fórum við eða stína fór og ég á eftir í blá vatnið fræga og versluðum við eitthvað og fengum okkur svo dýrindismat á fridays og svo bara heim... og kvöldinu eytt í fangi stóra björns fyrir framan sjónvarpið!
laugardagurinn var tekinn með trompi og haldið niður í bæ með bangsímon því stefnan var að fara versla en ég vissi alltaf betur hvað átti að gera.. strákarnir ætluðu að fara á leik charlton midlesb. og ætluðu að sjá hvort ekki fengust ódýrir miðar... þegar niður í bæ var komið plataði ég stínu til að koma með okkur og sagði hei hvort er skemmtilegra að fara að versla eða fara á leik í englandi... og viti menn við skelltum okkur með strákunum... fengum miða á 15 pund sem er ekki rassgat í bala... og sætin neðst niðri við völlinn fyrir aftan eitt markið! allgjör snilld og skemmtum við okkur konunglega það er strákarnir og stelpan!
eftir leikinn var haldið aftur niður í bæ það er ég viktor og stína.. þar fórum við strákarnir inná pub ( til þess að horfa á leik ég þarf ekki að gera það aftur horfi bara á hann heima) og stína fór að versla... bara svona eins og hlutirnir eiga að vera.. svo kom hann hannes minn og eyddi með okkur kvöldinu í london þar sem var borðað og rölt og fleira skemmtilegt! svo var bara haldið heim og chillað fyrir framan skjáinn stóra!
sunnudagur verslað meira á oxford og ég segi hér með að london er mesti orkuspillari í evrópu þetta er alltof of erfitt að vera svona niður í bæ maður deyr bara úr orkuleysi...
stína eldaði svo dýrindismat og eftirrétt og rúlluðum við öll úr stofunni og uppí rúm!
mánudagur ekkert merkilegt bara skóli og svona síðastakvöldið hennar stínu og já ...
í gær stína fór og ég pantaði sky sem er algjör snilld! gaurinn kemur sem sagt á laugardags morgun og setur þetta allt saman upp... sem er ágætt því ég verð einn heima þessa helgi því viktor er að fara í ferðalag til liverpool á fund við rafael bernessósu og ræða leikskipulag fylgjast með æfingum og fleira.... en ég verð bara í sófanum mínum með bjórinn minn og horfa á fótbolta í 24 tíma sem verður mögulegt frá og með laugardeginum... t.d. er hægt með meistaradeildina að velja hvaða leik þú villt horfa af þeim átta sem eru í gangi á digital boxinu... og ef þú missir af leik um helgina eru þeir allir endusýndir á einni rás um kvöldið og þú velur bara hvaða leik þú villt sjá! ekki slæmt það fyrir utan að geta farið að horfa á 24 og alla þættina sem eru í gangi heima ég læt hér fylgja lista yfir þær stöðvar sem fylgja;)
SPORTS Sky Sports 1 Sky Sports 2 Sky Sports 3 Sky Sports Xtra Sky Sports News British Eurosport Eurosport News 24hr Motors TV attheraces Extreme Sports Golf TV i Sports TV ENTERTAINMENT Sky One Sky One Mix UKTV Gold UKTV Gold +1 UKTV G2 Living TV Living TV +1 Plus Challenge? Bravo Bravo +1 Paramount Paramount 2 Sci-Fi Home & Leisure Home & Leisure + 1 Men and Motors Sky Travel Sky Travel Extra UKTV Style UKTV Style + 1 UKTV Food UKTV Drama UKTV Food +1 Hallmark Discovery Health E4 E4 +1 ITV2 E! UKTV Bright Ideas Ftn Sky Travel Shop TV5 TVEi TCM FX Star News Star Plus Biography Sky Vegas Live NEWS & DOCUMENTARIES Sky News* Bloomberg CNBC Fox News Discovery Channel Discovery Channel + 1hr Discovery Travel and Adventure Discovery Civilisation Discovery Science Channel Discovery Wings National Geographic National Geographic Channel + 1 Adventure One The History Channel History + 1 hr Animal Planet Animal Planet + 1 UKTV History UKTV Documentary UKTV Documentary + 1 UK People DW-TV MUSIC & RADIO The Amp Scuzz Flaunt MTV MTV Hits VH1 VH1 Classic MTV 2 MTV Base MTV Dance TMF The Box KISS Smash Hits Magic Q Kerrang! The Hits Music Choice (10 channels) Plus over 75 radio channels VH2 BBC Radio 1 BBC Radio 2 BBC Radio 3 BBC Radio 4 FM BBC Radio 5 Live Classic FM Virgin Radio Classic Gold The Storm Planet Rock Core Capital Gold XFM BBC World Service BBC Radio Scotland BBC Radio Wales BBC Radio Ulster BBC Asian Network BBC6 Music The Mix WRN Europe Premier Radio Heart UCB Europe Cross Rhythm OneWord Raaj Radio Solar Radio Panjab Radio BBC 7 service PrimeTime Sunrise Radio UCB Bible UCB Talk UCB Insp BBC 1Xtra Radio Transworld Radio (TWR) BBC RnGael Pure Dance Raaj Radio RTE Europe BBC Radio 4 LW BBC Radio 5 Live Sports Extra Club Asia Real Radio EWTN Sukh Sagar Asian Gold BBC World Service Extra BBC Radio Cymru Pulse Unsignd CalvaryRadio Globecast Radio Gaydar Radio Family Radio RTE Radio 1 The Arrow Capital Disney Apple FM RTE 2FM RTE Lyric FM RTE R na G Jazz FM Akash Radio Desi Radio The Hits Galaxy FM Smash Hits MeanCountry Century Radio Capital FM Amrit Bani LBC Radio Kiss Heat Radio Magic Q Mojo Kerrang! Radio Spectrum 1 Liberty Radio Yarr Radio Choice FM KIDS Cartoon Network Cartoon Network + 1 Boomerang Nickelodeon Nick Replay Nick Toons TV Trouble Fox Kids Fox Kids + 1 Discovery Kids Nick Jr. Trouble Reload Toonami NON-SUBSCRIPTION BBC ONE BBC TWO ITV1 London Channel 4 five BBC THREE BBC FOUR Travel Channel Travel Channel 2 S4C ~ Digitol Life TV Overload Fashion TV Game Network You TV AVAGO BEN Reality TV Classics TV Performance Rapture TV FRIENDLY TV LIVE TV Motors TV Extreme Sports Chart Show TV Video Vault Classic FM TV channel U BBC News 24 BBC Parliament CNN S42 ~ 2 ITV News Channel Euro News CCTV9 POP CBBC CBeebies TV Travelshop TV Travelshop 2 TV Shop Ideal World Price Drop TV Shop America Travel Deals Direct Simply Shop Best Direct Simply Home Simply Ideas TV Warehouse Shopping Genie bid-up.tv Thomas Cook TV Telsell letsgoshop+ Auction World Shop on TV Simply Hols TV Thane Direct ShopSmart TVWarehouse Shop 24/7 Stop+ Shop Yes Screenshop TV High Street JML Direct Phoneworld Vitality Factory Outlet God Channel God 2 Wonderful TBN Europe Revelation TV Job Shop Community Channel Dating Channel txt me Open Access TDC2 Create & Craft PCNE Chinese mta- muslim TV Abu Dhabi Asia TV SAB TV BBC 2W Golf TV i Sports TV Apple FM ATN Vectone Urdu Vectone Hindi Vectone Tamil Vectone Bangla E & M TV OBE Record TV Information TV FO2 Teletext Hols Broadband TV Hollywood TV Horror Channel The Wrestling Channel Islam Channel Golf Pro-Shop Get Lucky TV B4U Music Musicians Channel Move Channel London TV Soundtrack Channel ExpressShop POP Plus
þetta er enginn smá run og vonandi hafiði skilið eitthvað af þessu... en ef ekki þá er þetta geðveikt!
svo er flugelda kvöld á föstudaginn en þá er bonfire þið munið þarna einvher gaur sem að var í góðum fíling og kveikti í einhverju...
en ég ætla að kaupa mér eitthvað af flugeldum og skjóta upp á föstudaginn með strákunum...
svo er leikur hjá okkur á sunnudaginn og spurning hvort maður komist út úr húsi vegna sjónvarpsgláps en það eru 5 leikir í beinni á sunnudaginn enski spænski nba og ítalski...
heyrumst
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|