Dagbók - Eldri dagbækur
|
| 26.10.2004 | 12:15 | enn ein helgin búin |
og var hún alveg jafn þreytandi og allar hinar... sem sagt ekki mikið sofið.. föstudagurinn var bara venjulegur bara pubinn og hittum við þar welska risann hann jerome sem bjó með herra kóngi en eins og áður bara rassgata kvöld á metró
daginn eftir var svo vaknað frekar snemma og ákveðið að fara á markað í deptford .. byrjuðum á langri strætóferð til greenwich þar sem við hittum risann aftur og héldum svo á markað sem viktor var æstur í að fara á .. en þessi markaður var nú ekki uppá marga fiska... nema kanski nokkra og var lyktin ekkert til að hjálpa jerome að komast í gegnum daginn... en allavega það er samt mjög erfitt fyrir mig að vera með jerome niður í bæ því að drekka bjór og eða bara eitthvað með þessum manni er ekki human.. því hann er svo stór sem dæmi á föstudeginum þegar við hittum hann á barnum var hann búin með kassa af stellu bara svona rétt fyrir framan sjónvarpið áður en haldið var á pubinn.. þannig að þetta er ekkert eðlilegt að glíma við svona mann...
en allavega það var svo tvöfald partý um kvöldið eitt svona dress upp partý sem var camp as tits eða ginger as hell.. og hannes og helga komu með okkur í þessi partý og skemmtum við okkur bara ágætilega.. ég var ginger as hell í hollenska búningnum og með appelsínu gult belti... en já ágætispartý....
svo kom sunnudagurinn sem var fótbolta leikur á milli okkar skóla og einhvers annars og maður var eitthvað slappur í maganum og ákvað því að grípa til þess ráðs að æla bara svona rétt til að koma mér í gírinn... en þessi leikur var ekkert sérstakur nema hvad að við rústuðum honum 12-2 og ekkert meira um það að segja átti fínan dag og varði oft einn á móti einum...
er að fara til læknis á eftir í skoðun... bara svona almenna skoðun til að ég geti skráð mig hjá honum... en ætla að ræða um þetta svokallaða vandamál mitt við hann því þrýstingurinn í mínum kassa er ekkert eðlilegur þessa dagana....
en anywho heyrumst bara
|
 |
| silli | Comment (4 ) |
 |
 |
 |
| 22.10.2004 | 12:58 | loksins |
eitthvað héðan úr london kæru vinir...reyndar lítið búið að vera gerast bara skóli og skóli og já meiri skóli... reyndar búin að finna mér nýtt hobbí og það er ebay sem er algjör snilld... búin að versla mér þrjá hluti sem ég segi ykkur betur frá seinna...
helgin að taka á sig mynd.. það er nú eitthvað partý í new cross í kvöld en það er svo mikið krimma bæli að ég held að maður láti það eiga sig! svo maður kíkir kanski bara í staðinn á pubinn eða eitthvað.. svo á morgun er stefnan að fara með manninum mínum í einhvern markað í deptford að skoða og spekulera... svo eru tvö partý um kvöldið annars vegar afmæli hjá stelpu á okkar ári og afmæli á þriðja árinu líka..
svo er leikur á sunnudaginn og kallinn að sjálfsögðu í byrjunarliðinu enda ekki mikið um markmenn hérna í skólanum svo þetta er nokkuð sjálfskipuð staða... viktor er líka í byrjunarliðinu enda nokkuð þéttur varnamaður þar á ferðinni!
man nú ekki eftir meiru það er ekkert til að segja nema bara að skólinn er algjört pain það er hrikalega mikið að gera og maður er álíka stirður og gamall kall!
en ég heyri í ykkur betur seinna ætla að kíkja á ebay og skemmta mér aðeins þar!
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 17.10.2004 | 16:39 | jæja enn einn sunnudagurinn.. |
helgin verið með eindæmum góð og margt gert til dundurs.... á föstudaginn var bara komið heim eftir skóla og þá biðu mín tveir pakkar það er að segja flatkökur frá ömmu og svo blátönninn mín svo ég geti notað tölvuna mína við símann minn.. og fór ég strax og prufaði það og helvíti gaman að geta sett bara hvaða lög sem er inná símann;)
svo kom óli einn af tenórunum og vinur hans viktors en hann ætlaði að gista í setrinu eina nótt.. nú við dróum hann bara niður á pub með okkur og voru drukknir nokkrir kaldir þar og bara ágætiskvöld sem endaði í partý við hliðina á pubnum!
nú svo var vaknað snemma á laugardagsmorgni og stefnan sett á hina íðilfögru miðborg london... við vorum samferða óla niður eftir það er ég og viktor en viktor var að fara hitta braga félaga sinn og ég ætlaði að fara hitta hannes helgu og gunna who sem var í heimsókn hjá þeim....
ég byrjaði reyndar á pubnum eins og góðum breta sæmir og horfði á united leikinn klukkan tólf sem var ekki alveg nógu góður fyrir mína menn... en ég kynntist einum united aðdáenda og sátum við og spjölluðum mikið hann bauð mér svo að kíkja á hann um næstu helgi þegar stórleikur united og arsenal er !
en eftir þetta hélt ég leið minni áfram og skundaði mér niður á euston og hitti þar helgu og gunna sem voru að bíða eftir að hannes væri búin á æfingu.. svo kíktum við á einn pub saman og héldum svo heim til hannesar og helgu... hannes er nýfluttur hingað út og hannes var að byrja í danskóla hérna... hannes býr í clappham hannes býr þar með helgu og ingu maren dansara og einum alveg þveröfugum... hannes hafði það á orði við mig í gær að ég minntist alldrei á hannes í blogginu mínu svo hannes núna er ég búin að skrifa hannes nokkuð oft....
allvega stór björn ákvað að heiðra okkur með nærveru sinni þetta kvöld og sá enginn eftir því .. ég held að þetta lið hafi alldrei hlegið eins mikið og í gær.. allavega er ég með harðar perur í maganum...
við sátum þarna og spjölluðum og sötruðum vínandann í okkur... og hlógum eins og apamenn... svo var ákveðið að fara bara down town og var klukkan þá um hálf tólf ... við héldum niður á einn stað sem er rétt hjá hannesi og má segja að við höfum eignað okkur þennan stað.. við mættum þarna inn og staðurinn pakkaður og við 7 íslendingar + ein skotastelpa og við tókum það bara á okkur að skemmta fólkinu þarna í einn klukkutíma eða svo... með alskonar skrípaleik og asnaskap! og var maður alveg búin á því ... það lá við að okkur yrði bara boðin vinna þarna við að skemmta fólkinu... fólk tók allavega í hendina á okkur og spurði hvert ætti að halda næst svo það gæti farið með okkur... hvað við gerðum veit ég ekki alveg.. nema kanski bara að gera okkur að fíflum með allskonar skemmtilegum sporum og annað!
eftir þetta var bara ákveðið að halda áfram og fara niður á liverpool street og finna einhverja klúbba og við fundum einn og var maður orðin frekar þreyttur og tónlistin kanski ekki alveg fyrir mig. en hannes var að fíla þessa tónlist... þau fóru svo aðeins á undan og við fljótlega á eftir þeim... heimkoma var svo um 6:30 í morgun og maður svona rétt vaknaður...
meira er svo sem ekki að frétta í bili... kvöldið verður sennilega með eindæma rólegheitum enda þarf maður að læra og svona...
svo ég bið að heilsa ykkur í bili ...
this has been london news see you again soon!
Kredit listi!
Umsjón
Sigurður Hrannar Hjaltason
Dagskrágerð
Sigurður Hrannar Hjaltason
Vinnsla
Sigurður Hrannar Hjaltason
Heimasíða
Hjörtur Hjartarson
hugbúnaður
Hjörtur Hjartarson
Hörður Már
Fram komu
Sigurður Hrannar Hjaltason
Hannes Þór Egilsson
Helga Dögg Helgadóttir
Inga Maren
Viktor Már
Óli Tenór
Rósalind (skoska stelpan)
Þveröfugi maðurinn
Gunnar Who
Amma og aðrir sem komu fram við gerð þessarar færslu
Tónlist
HVH flokkurinn
Sérstakar þakkir
Hannes og helga fyrir að bjóða okkur í heimsókn
Framleiðsla
siggi.mis.is
2004 |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 14.10.2004 | 19:05 | fréttir |
er að elda kjúkling og allt að gerast... flottur á því... já er það ekki bara ég veit það ekki... allavega þreyttur..... og sveittur.... og nokkuð nettur......
en eitt sem ég vil minnast á þar sem ég verð að spila næsta sumar meðal þeirra bestu í þriðjudeildinni já mitt utandeildarlið hefur ákveðið að taka þátt í þriðjudeildinni svo maður er bara loksins komin í meistarflokk.... allavega þá er okkar fyrsta verkefni íslandsmeistarmótið innanhús....
ég vil bara biðja fólk um að vinsamlega þegar það tippar á netinu eða annars staðar að setja x við okkar félag því við fáum getrauntekjur eins og önnur íþróttafélög..
okkar númer er 207
en allavega þá er mest lítið að frétta mikil spenna í skólanum vegna leiksins á sunnudaginn og allt að gerast...
skrifa meira á morgun... |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 12.10.2004 | 16:52 | smá fréttir |
jæja þá er þriðjudagur búin og ekki hægt að segja að þreytan hafi neitt minnkað enda hunskast maður alldrei í bólið fyrr en seint og síðar meir....
en dagurinn í dag var svoldið götóttur.. við vorum í 4 tíma gati eftir fyrsta tíma og ég thejis og ian fórum í bexley og versluðum smá þeir meira en ég ég verslaði tvo dvd diska og eitthvað meira skóladót... en fínt að fara í smá leiðangur...
prufaði heildræði sem einn movement kennarinn gaf mér í um daginn í sambandi við verkina mína... hann sagði þegar þú ferð að finna mikið til og verður stressaður taktu þá lítið staup af brandí og leggstu á gólfið og slakaðu á... og ég prufaði þetta í gær... reyndar ekki brandí heldur jagermeister sem pabbi og pálmi komu með.. og bara pínu lögg og viti menn þetta bara svínvirkaði ég var allavega mjög fínn í allt gærkvöld... langaði að segja ykkur frá þessu...
en svo var ég að fá sóló lagið mitt sem ég á að syngja núna fyrir jól og þegar ég heyrði það þá vissi ég strax hvaða lag þetta var.. málið er að við verðum með svona music hall þema sem er svona eitthvað gamalt breskt thing þar sem fólk safnaðist saman við píóið og sönglaði eitthvað og til urðu lög... þetta lag sem ég á að syngja heitir Daisy Bell og var einmitt notað í einum a f mínum uppáhalds myndum eða NERDS sem ég horfði á ósjaldan;) fyndið það...
en allavega lítið annað að frétta í bili... leikur á morgun hlusta sennilega á lýsinguna hérna heima á netinu eða fer á pubinn og horfi á england aserbeid eitthvað....
þangað til bestu kveðjur úr hobbitahéraðinu |
 |
| silli | Comment (1 ) |
 |
 |
 |
| 11.10.2004 | 17:05 | helgin liðin og |
ekkert merkilegt að frétta svo sem... ísland tapaði en maður varð svo sem ekkert hrikalega var við það hérna úti enda komst lítið annað að en stórleikur englands og wales hérna í þessu landi...
en það var farið á pubinn og svo í eitthvað partý á föstudaginn svona venjulegur föstudagur... svo var vaknað og horft á leikinn á laugardaginn og farið í supprise afmælisveislu hjá skoska james á mínu ári... það var svona lala og ekkert meira um það að segja...
í gær var svo vaknað og farið eldsnemma í fótbolta sem maður hefur ekki gert lengi og er maður handónýtur í þessum blessaða líkama eftir það... en það er leikur á næsta sunnudag við central sem við gerðum 3-3 jafntefli í fyrra eftir að hafa leitt þann leik 3-0 en það verður gaman að fá að spila aftur og ætla ég að taka vel á þessum tjalla djöflum en er litli strumpurinn ekki þekktur fyrir neitt annað...
skólinn í dag mjög erfiður sérstaklega þar sem ég svaf ekki mikið um helgina.. sennilega merki þess að ég sé að verða gamall því ég gat bara sofið svona 6 tíma hvorn daginn sem er ekki nó fyrir mig.... en allavega hundþreyttur núna og var að koma heim úr skólanum/búðinni.. og búin að vaska upp, setja í þvottavél og er svona bráðum að fara elda eitthvað....
er mikið búinn að vera leika mér í nýja símanum mínum sem er náttúrulega einum of nettur... pantaði mér bluetooth á netinu í gær svo ég geti farið að downloada lögum og fleira inní símann minn og myndum og svona...
en segjum þetta gott í bili ég segi ykkur meira skemmtilegt næst....
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 9.10.2004 | 11:49 | adressa |
hérna er adressan mín úti fyrir þá sem ekki vita...
71 clinton avenue
Welling
DA16-2DY
UK |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 8.10.2004 | 17:45 | svalur |
já ekki laust við að maður sé orðin úber teknískur og svalur með nýja símann minn.. nokia 6230 með myndó vél upptöku vél útvarpi hátölurum og já bara allt sem hugurinn girnist... nældi mér í samning áðan við O2 sem er reyndar stuðningsaðilli erkióvinana en hei mér er svo sem sama... reyndar eins og allt þá var þetta mjög erfitt og þurfti mikið af sönnunum og fleira til að þetta gengi í gegn en ég er sem sagt komin með glænýjan síma og hættur þessu frelsisdrasli og farin að fá fullt af frímínútum og fríum smsum og fleira... shit hvað ég er nettur.. síminnn reyndar ekki til í tuskið fyrr en á morgun þar sem það þarf að hlaða hann en ég get alveg beðið
stórleikur á morgun það er að segja england wales og ætla ég að sjálfsögðu að horfa á hann enda ekkert annað að gera en að fá sér einn kaldan og horfa á skemmtilega leik...svo er það bara djamm á morgun með hannesi og gunna og einhverjum töppum úr london veit reyndar ekkert hvað planið er en maður kíkir á það á morgun...
langaði bara að segja ykkur frá símon og þarf að fara huga að bjórnum sem bíður ískaldur á borðinu.....
chao |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 6.10.2004 | 17:52 | mörg mál á dagskrá.... |
já það er ekki laust við að maður þurfi að skrifa slatta hérna núna bara til að gera ykkur ánægð þarna heima...
skólinn fer rosalega af stað maður er bara sveittur allan daginn hlaupandi um og gerandi hinar og þessar æfingar því það er endalaust verið að impra á því núna við okkur " you need to FIT" so start now við erum í c.a. þremur movement tímum á dag og maður er bara alltaf hundblautur eftir hvern einasta tíma og endalaust tékkandi púlsinn hvort hann sé nú ekki í lagi... ekki nóg með að vera alltaf á fullu í þessum tímum heldur er maður hjólandi fram og til baka... engir bílar og ekki neitt... maður er sem sagt komin heim!
skemmtileg saga sem ég þarf að segja ykkur frá þannig er mál með vexti að í júní tók ég þátt í könnun á netinu hjá alþjóða handbolta sambandinu um hver væri besti handbolta maður heims árið 2003 og að sjálfsögðu valdi ég óla stef... en svo var líka eitthvað þú gætir unnið flottar sport vörur og eitthvað voða ..en ég var svo sem ekkert að hugsa það... svo förum við strákarnir í pósthólfið í skólanum og þar bíða mín tvö bréf eitt frá alþjóða handbolta sambandinu þar sem stóð að ég hefði unnið og að ég mætti vænta pakka á næstu dögum... svo stóð líka að nafn mitt hefði birst í stærsta handbolta blaðinu í dag sem heitir world handball magasín.. og ég vissi ekki neitt... en svo kom rúsínan málið var að það var bréf frá alsír og nafn mitt utan á bréfinu og við strákarnir bara hvað í djöflinum er þetta...
ég opna bréfið og það fyrsta sem ég dreg upp er póst kort með blómi á og inn í því stendur I hope you will accept this simple gift! og ég bara hvaða brjálaðingur er þetta...
svo opna ég bréfið frá manni sem heitir larbi eitthvað... og þar er hann að tala um að hann sé handboltaáhugamaður og vilji eignast pennavini út um allt sem hafa áhuga á íþróttum... og hann hafi séð nafnið mitt í þessu blaði en hann hafi lesið þetta blað í mörg ár og einnig að hann spili með litlu handbolta liði í alsír.... einnig skrifar hann um það að hann sé menntaður í íþróttafræði og sé 28 ára og hann starfi við að kenna íþróttir...
og hann vann líka í þessari keppni víst svo við eigum margt sameiginlegt ég og þessi nýi vinur minn...
þetta er náttúrulega einum of fyndið eða finnst ykkur það ekki ég meina það er gaur að senda mér frá alsír...en það er mikil pressa á mér að senda honum aftur og ætla ég að gera það... þannig að það má segja að hér sé að fæðast ný mústafa saga í beinni útsendingu á netinu... þessir gaurar eru eitthvað voðalega kurteisir því hann þakkaði mér svona þúsund sinnum í bréfinu og hvað það væri ánægjulegt fyrir hann að skrifa mér en allavega fylgist spennt með þessari annars skemmtilegu framhaldssögu um hann larbi og hvað ég fæ í verðlaun og fleira...
annað takk fyrir commentin og umhyggjurnar kim minn og beikonbróðir ég er að sjálfsögðu búin að versla nóg að beikoni og eggjum og steiki villt og galið... þú myndir fíla beikonið hérna úti og hinn beikonbróðirinn því það er allt eins og lúxusbeikon þykkar sneiðar mmmm
hjössi minn hér er uppskriftin að matnum svo þú getir prufað hana ég eldaði svoleiðis um daginn...
það sem þarf!
pasta þið veljið hvernig c.a. 250 grömm
kartöflu bátar til að setja í ofninn c.a. 150 grömm kryddað
bakaðar baunir 100 grömm
ostur 20 grömm
majónes, pasta og bbq sósa
sjóða pastað í svona 10 mín í salt og olíu vatni, setja bátana í ofninn og hita bökuðu baunirnar..
pastað hært saman með pasta sósunni og sett neðst á diskinn, þar næst er stráð kartöflunum yfir og svo hellt bökuðu baununum útá.. því næst er ostnum stráð yfir og þetta svo borið fram með smá majónesi og bbq sósu á kantinum!
og ekki væri leiðinlegt hjössi minn ef eitthvað nýtt og skemmtilegt myndi birtast;)
en annars bið ég að heilsa öllum... þarf að fara leggjast niður svo mér líði bærilega... eða elda eða eitthvað fara á fyllerí eða bara hvíla mig eftir erfiðan dag...
hafið það gott vinir og bless í bili
þess má geta að lag þessarar færslu var nýja lagið með HHV flokknum og verð ég að segja að ég gæti vart verið hér án skúla disksins allir búnir að hlæja mikið að þessu...
|
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
| 5.10.2004 | 12:50 | þriðjudagur... |
já skólinn komin á fullt og ekki mikið meira um það að segja... maður er dauður af harðsperum eftir daginn í gær en það er orðið ansi langt síðan maður hefur tekið sig til og tekið movement æfingar.... og já bara svona fyrir ykkur þá er ég að verða geiðveikur á vinstri hliðinni á mínum brjóstkassa sem ætlar bara ekkert að vera betri bara verri ef eitthvað er... þannig að ef einhver getur fundið út góða læknismeðferð þá er ég alveg maður í að fá smá upplýsingar... þetta er bara ekki hægt 2 mánuðir og stingirnir fara bara ekkert! en allavega er ekki dottin niður dauður ennþá þrátt fyrir að hafa tekið vel á því í movement tímum í gær og í dag...
en annars lítið að frétta, bara eins og maður hafi verið hérna í allt sumar því það er lítil breyting maður dettur bara í hitt lífið sem maður á hérna úti í london... það er að elda pasta og horfa á sjónvarpið á kvöldin og hlæja pínu með stóra birni sem er alltaf hress....
sit hérna og hlusta á valtýr og félaga ágætt að heyra í þeim köppum aftur...
en lítið annað að frétta svo ég set bara punktinn hérna...
|
 |
| silli | Comment (3 ) |
 |
 |
 |
| 3.10.2004 | 12:45 | sunnudagur |
verð að segja að það er lítil viðbrigði við að koma hérna út... maður dettur bara í sama pakkan það er strætó hjóla pubinn og fleira er einmitt að fara detta niður á pubinn núna að horfa á tvo leiki...
það er náttúrulega bara ein breyting að ég er með þessa ógeðslegu verki áfram og guð veit hvað þetta getur verið allaveag hafa allir læknar íslands reynt að finna það út en tja hver og einn einasti segir bara usss vinur ekki þetta stress og borga svo í afgreiðslunni... ég held að ég sé bara komin með sjúkdóm sem heitir vöðvar í þessum líkama eru ekki virkir og verða það ekki náinni framtíð vinsamlega hafið samband við heilann um frekari upplýsingar....
ætli maður fari ekki bara að fara heimsækja læknana í london... kanski vita þeir meira...
allavega farin út og fá mér sunnudagsbjórinn og beikon á pubnum að horfa á leikinn
viktor biður að heilsa og gerir grín að ykkur öllum!
blesss |
 |
| silli | Comment (2 ) |
 |
 |
 |
| 1.10.2004 | 11:18 | Hold sjefte du jevler |
I AM BACK!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
og ekkert djofulsins rugl! |
 |
| silli | Comment (0 ) |
 |
 |
 |
|
síða 1 af 1
|