Dagbók - Eldri dagbækur

29.1.2004 | 13:32 | Snjór já það snjóar
Hæ kæru vinir hérna er bara eins og maður sé heima á íslandi í gærkvöldi byrjaði að kyngja niður snjó og vitleysu og núna morgun var bara allt ísilagt á leiðinni í skólann gamla góða brakið undir skónum þegar maður gengur yfir snjóinn.

En allavega þetta verður ekki lengi en það stoppaði bara allt í gær gjörsamlega, flug samgöngur og annað! maður skilur þetta ekki alveg en svona er þetta... En við það er ég og maðurinn minn fórum í Ikea í gær og vorum að skoða okkur um fyrir nýja húsið okkar sem við flytjum væntanlega í bara í næstu viku allavega er bréfið á leiðinni frá mömmu að heiman sem opnar allar dyr fyrir okkur ( takk mamma þú ert snilli) Við skemmtum okkur vel í Ikea ásamt sænsku vinum okkar sem vinna þar.... en við ferðuðumst smá þurftum að fara til Creoyton held að það sé skrifað svoleiðis og var það smá spölur í lestinni!

En tíminn gjörsamlega flýgur áfram sérstaklega núna þegar maður er í þessum tveggja daga fríum og rennir leikritinu hina dagana var það er bara kominn helgi aftur og ég man bara ekki að hin hafi klárast... reyndar orðin frekar þreyttur á þessum ferðalögum og búðarölti en það er gaman að skoða húsgögn þó að það verði nú örugglega meira skemmtilegra þegar stína mín kemur hérna út í næstu viku!

Allavega gengur ágætilega að renna þessu ,eitt rennsli eftir í dag svo tvö á morgun svo bara sýna þetta á mánudaginn það verður fínt að klára þetta og fara takast á við eitthvað nýtt enda búin að vera vinna í þessu síðan í nóvember...

Meira hef ég held ég ekki að segja að svo stöddu þannig að ég kveð hér úr snjónum og frostinu og vona að þið hafið það gott í hlýjunni heima;)
silli | Comment (26 )
27.1.2004 | 13:12 | allt að verða vitlaust! snjór og frost....
mátti til með að segja ykkur þessar fréttir var að vakna enda í fríi í dag og á morgun og það eina sem er í fréttunum er að það var spáð þvílíki frosti og snjó hérna í englandinu....

En þessir bretar eru nú bara ekki vanir því hérna á veturna... það er einhversstaðar búið að kyngja niður snjó reyndar ekki hérna í london en það er allt að verða vitlaust og hvað erum við að tala um mikið jú svona mesta lagi 2 cm sem er náttúrulega bara djók og hlæjum við íslendingarnir bara að þessu menn eru að byrgja sig upp af gasi og heitu vatni því það fer jú enginn út fyrir dyr í svona miklum snjó þetta eru nú meiru aumingjarnir...

Strax komið eitt rútuslys vegna centimeters snjó á einum autobananum og maður bara spyr sig hvað er eiginlega að þessum mönnum hérna .. þeir þekkja ekki nagla né snjódekk reyndar á að frysta allrosalega hérna í lundúnum og menn tala jafnvel um að það geti farið í 15 stiga frost í næsta nágreni sem er örugglega frekar kalt!

Mér finnst þetta allavega mjög fyndið að menn séu svona paranoid yfir þessu öllu saman hvernig er hægt að festa bíl í nánast engum snjó ja hérna hér þetta eru náttúrulega bara aumingjar hérna!

en annars er bara allt í góðu tókum tvö rennsli í gær og fyrra var ekki nógu gott en það seinna gekk mun betur... allavega eru mínar senur svona nokkurn veginn komnar og líta bara ágætlega út að eigin sögn.

núna eru svona 15 veðurfréttinar síðan 10 í morgun alveg ótrúlegt! en við ætlum síðan að fara kíkja á einhver rúm og eitthvað því ef allt gengur eftir þá flytjum við í nýja húsið í næstu viku og ekki laust við að það sé kominn spenna í okkur hjóninn að losna úr skítaholunni;)

þessvegna ætlum við að nota útsölurnar og reyna að versla okkur eitthvað til að sofa á allavega að skoða okkur um...

Var síðan að heyra að í DV sport í gær hefði verið opna sem var bara svört og á hana hefði verið prentað með hvítum stöfum "Hérna átti að fjalla um handboltalandsliðið" mér finnst þetta nú bara helvítis hroki í þessum mönnum væri ekki betra að kryfja hvað fór úrskeiðis heldur en að vera með svona stæla ég meina þeir skrifuðu nú nógu andskoti mikið þegar atli var að skíta sem mest uppábak með fótboltaliðið....

En ég held að ég kveðji bara héðan úr frostinu og "snjónum" og bið bara að heilsa öllum..
silli | Comment (26 )
25.1.2004 | 19:46 | Nú er mér öllum lokið!
Pirraður nei nei þeir stóðu sig vel strákarnir okkar! Adólf góður lýsari já já hann er frábær í útvarpinu kann sitt fag! líður mér vel jájá gæti bara ekki liðið betur þessa stundina!

Hvað eiga þessar setningar sameiginlegt... Jú þetta er allt saman þversagnir og ekkert annað! var að koma úr höllinni og var orðin tiltölulega spenntur að hlusta á leikinn burt séð frá því hvað ég þoli ekki Adólf! en shit hvað þetta var ekki þeirra mót algjör skita tapa á móti algjöru B liði á þessu móti Tékkum nenni ekki að kryfja leikinn því þetta var rugl og vitleysa eitt samt við fengum bara austantjaldsdómara í þessari keppni og virðist það hafa verið rætt um það fyrir mótið að senda okkur bara helst heim eftir riðlakeppnina! þökkum Viggó Sigurðssyni fyrir þetta innslag , en allavega algjört rassgat!

Helgin var hinsvegar góð eftir að ég hafði jafnað mig eftir tapið gegn hommunum í ungverjalandi var ákveðið að fara með kónginum og mark í greenwich og fá okkar kínverskan og bara hafa það gott, það var fínt svo var farið á flottan bara þar rétt hjá og setið og drukkið til að verða 12 og þaðan bara haldið heim á leið enda átti laugardagurinn að byrja með látum klukkan tólf á pubnum að horfa á scarb. chels. og var það hin ágætisskemtun bara.

Þaðan fórum ég og einar í búðina og versluðum okkur hráefni til að blanda hvítan rússa ( drykkur í uppáhaldi hjá mér þessa dagana!) og rauðvín og annað og var stefnan að eiga gott kvöld hjá kónginum horfa á fótbolta og svo idol og svínasúpuna sem ég fékk sent.

Við horfðum á liver. new og gátum við svo sem glaðst fyrir viktors hönd að hans menn skildu nú loksins gera eitthvað ... en mér var svo sem sama hver myndi vinna þennan leik!

Eftir þann leik fórum við og keyptum okkur kínverskan sem átti ekki eftir að fara mjög vel í magann minn ... en allavega svo var bara tekin góð drykkja á þetta allt saman kanski einum of góð fyrir mann að minni stærðagráðu... við byrjuðum að stúta hverja glasinu af hvítrússa og alltaf var blandað jafnóðum og allir með fullan maga af hrísgrjóna viðbjóði.... við horfðum á Idol og núna veit ég hver vann til hamingju Kalli og ekki skrýtið að hann hafi unnið flottur strákrurinn var allavega ánægður með hann.... svo drápum við nokkrar æðar í hausnum sökum hláturs yfir svínasúpunni shit hvað þáttur nr tvö var fyndinn og þá sérstaklega gróður húsa atriðið " djöfull er þetta drullupussu flott hjá þér helvítis fávitinn þinn" við gátum ekki hætt að tala og atriðið í gyminu var líka massívt!

En þegar við vorum að klára seinni spóluna hefur klukkan verið svona að ganga 5 eða 6 þá allt í einu ákvað magi litla mannsins skyndilega að segja hingað og ekki lengra og fékk ég ekki mikinn tíma það bara gossaði upp hrísgrjón og viðbjóður og mér brá svo því þetta gerðist bara allt í einu var ekkert veikur eða neitt svo ég stóð upp með fullan munninn af notuðum hrísgrjónum og bara yppti öxlum slettur á gólfinu því þetta var svo massívur kraftur en svo hljóp ég út og bara kláraði þetta kom svo aftur inn og bara alltí góðu þannig lagað nema mér fannst ekki gaman að þrífa þetta upp úti og inni en sem betur fer var þetta lítið inni... en andskotinn fyrr má nú vera dónaskapurinn hjá þeim þarna niðri að gefa manni ekki smá viðvörun seinna mér fór ég að hugsa hversu mikið ég hefði nú sett ofan í mig og þá svona fór þetta að meika sens c.a. kippa af bjór og svona já 10 glös af hvít rússa og ógeðslegan kínamat þar á undan er uppskriftin að svona líka skemmtilegu atviki! reyndar vöru uppi sögur um að kóngurinnn hefði verið ansi duglegur að blanda vel í glasið mitt og fannst þeim þetta því frekar fyndið þessum trúðum! en eftir þetta var ég bara fínn og sofnuðum við um hálf 9 sem er náttúrulega bara rugl....

En ég gleymdi að segja að viðkvæmir ættu ekki að lesa þetta sorry!

sit bara heima og varð að gera eitthvað eftir þetta leiðinlega tap svo ég ákvað að skrifa þessa skemmtilegu sögu... en þannig fór um sjóferð þá fín helgi þannig lagað en ömurlegt að fara inní nýja viku vitandi til þess að strákarnir séu á leiðinni heim oeg ég fái ekki að hlusta á meiri handbolta og ennþá asnalegra að lðiði sem varð í 4 sæti á síðasta EM sé dottið út með drulluna uppá bak held ég að hægt sé að segja.

gubbólfur
silli | Comment (25 )
23.1.2004 | 12:00 | djöfulsins andskotans helvítis aumingjar...
Djöfull var ég fúll í gær afsakið blótið en það er bara ekki annað hægt þegar eitt stykki handboltalið tekur frá manni alla vellíðan og ánægju, hvernig er hægt að skíta svona mikið á sig ok þetta var fyrsti leikurinn og allt og þetta er á heimavelli slóvena en við erum bara svo miklu betri en þeir það er vitað mál. ég hlustaði á útsendinguna í gær og var það leiðinlegi maðurinn Adolf Ingi sem lýsti þessu kanski var hann líka í sjónvarpinu en shit hvað hann er lélegur lýsari allavega útvarpslega séð dæmi " ísland í sókn og þessa má geta að Guðmundur á afmæli í dag MARK ísland hefur skorað eins og maður vissi bara hvað var að gerast í leiknum en nei adólf ég var að hlusta á rás 2 fíflið þitt! allvega ekki góð byrjun og getum við mest tekið með okkur tvö stig uppí milliriðilinn en þar verðum við bara að gera góða hluti en ég er bara ekkert svo viss um að að við vinnum ungverjana í dag miðað við leikinn í gær en ég segi bara áfram strákar!

Gerði ekki mikið eftir leikinn lá á gólfinu í svona góðan hálftíma gat ekki hreyft mig fyrir reiði shit hvað ég get stundum verið geðveikur. svo var bara glápt á sjónvarpið og eitthvað drasl...

Senuvinnann gengur mjög vel og fékk ég mjög gott hrós í gær frá kennaranum fyrir að koma alltaf með til baka það sem hún segir mér og það var það sama og gunni helga sagði alltaf við mig í versló og var því gaman að heyra þetta svona frá öðrum;) en allt gengur vel og er ein vika eftir að æfingum og svo er sýn. á mánudaginn eftir viku og já þetta lítur bara allt vel út!

Erum að fara skoða húsið aftur í dag og virða það aðeins betur fyrir okkur tékka betur á þessu og ef allt gengur eftir þá bara verður kallinn kominn með tveggja hæða raðhús eftir svona viku helvíti gaman!

Helgin svona að planast pósturinn páll vakti mig klukkan átta í morgun með pakka með tveimur spólum frá elskunni minni heima sem var svo góð að taka upp fyrir mig sweinsúpen og idol svo það verður videogláp hjá strákunum annaðkvöldið sennilega einhver bjór með því svona fyrst þetta er idol reikna með því að við horfum á þetta í kvöld þar sem það er föstudagur og svona hafa þetta alvöru sjáðu til;)

en hef tæmt blöðruna í þetta skiptið og stóllinn orðin rennandi blautur og því best fyrir mig að standa upp og fara á klósettið!
silli | Comment (26 )
22.1.2004 | 11:16 | We Will Rock You
Dagurinn í gær var hin mesta skemmtun get ég sagt ykkur, þetta var frídagur og var ákveðið að fara á Portrait safnið í london og reyna að finna mynd sem við gætum tengt við karakterinn.

Ég Viktor og Tom fórum um hádegi og eyddum við þó nokkrum tíma í að skoða okkur um á safninu, eftir það var magin farin að ganga sjálfur til fundar við einhvern mat svo við hlupum á eftir honum og fengum okkur að borða fyrir valinu varð kínverskur staður í chinatown london.

Allt var voðalega fínt hjá þeim enda voru þeir að viktors sögn að fagna nýju ári og því var allskona skraut á götunum og fleira... ég get nú ekki sagt að maturinn sem við fengum hafi verið sérstakur allavega ekkert eins og í greenwich en þetta er víst bara happa glappa 100 kínverskir staðir og þú velur einn og við bíðum enþá eftir að viktor fái matareitrun eftir þennan óbjóð sem maðurinn fékk....

Eftir þessar ógöngur var ákveðið að spóka sig um í soho og tékka á stemmningunni þar hún var vægast sagt enginn fullir og ógeðslegir menn að biðja um skiptimynd á hverju horni svo við bara fórum úr þessu annars ágæta hverfi, og héldum niður á Leister squere og planið var að reyna að fara á einhverja sýningu sem við myndum finna ódýrt og strax sáum við skilti með We will rock you qeen söngleiknum og var búið að segja við tom að hann væri frekar þétt nettur!

Svo við ákváðum að fara þangað það er í Dominion leikhúsið sem er á oxford stræti og reyndum að prútta fólkið í box officinu niður og það gekk leikaranemar, nemar og fátækir menn voru lykilorðin og fengum við miða á góðum stað fyrir 20 pund fínt verð og fyrir þennan líka magnaða söngleik.

Ég vissi svo sem ekki hvað ég var að fara sjá enda átti ég erfitt að ýminda mér sögu sem gæti tengst qeen og sem myndi virka sem söngleikur en þeim tókst það svo sannarlega þvílíkt show ljós brjálaður hávaði flottur söngur og skemmtileg saga... maður var bara blown away eins og maður segir hérna úti. Sagan gerist í framtíðinni þegar allt er orðið svo tæknivætt að ekki er lengur búin til tónlist á gamla mátan ( eitthvað sem pabba og pálma kvíður örugglega fyrir, ég fer með þá á þessa sýningu þegar þeir koma hingað!) en allavega bannað að spila á gítar og önnur hljóðfæri, það sem hélt fólki gangandi var Globalsoft.com og voru allir eins klæddir og eitthvað og hlustuðu á pop og menn hétur www.eitthvað.com sem var mjög góð hugmynd en það voru tvö einn strákur og ein stelpa sem trúðu á að eitthvað annað en þessi tölvuheimur væri til og því hófst sagan. allavega mjög skemmtilegt saga og vel útfærð.

Svo kom það í ljós að Jack sem við erum að fara flytja inn með tókst að sannafæra landlordið sem er svona leigjandi að þó við værum stúdentar þá værum við þroskaðir og fullorðnir stúdentar og myndum ekki skemma eigina hans en þetta er nefnilega frekar flott hús að innan allt nýgert svo hann vildi ekki stúdenta en allavega komið grænt ljós á þetta læt ykkur vita meira síðar!

Svo í kvöld maður ussss Ísland-Slóvenía ég verð búin að koma mér vel fyrir í stólnum heima og búin að stilla á www.ruv.is/ras2 og ætla að hlusta á útsendinguna verð reyndar örugglega alveg vitlaus að fá ekki að sjá þetta en maður verður bara að gera gott úr því sem maður hefur.

úff þetta er orðið langt jæja áfram ísland og góðar stundir!

We will rock you

silli | Comment (27 )
20.1.2004 | 19:32 | Langur og blautur dagur...
já þetta er búin að vera frekar langur og erfiður dagur það get ég sagt ykkur við byrjuðum hann klukkan 11 og stefnan í dag var að nota fríið og finna okkur hús og við skoðuðum 3 hús í dag og eitt var algjör snilld reyndar enginn húsgögn en við getum reddað þeim notuðum og annað frá leiguaðilanum og fleira vonandi segi því það er ekkert staðfest í þessu... en allavega var húsið með 3 góðum svefnherbergjum og gríðalega nýtýskulegu og flottu eldhúsi og ég gæti alveg hugsað mér að taka jóa fel á þetta í eldhúsinu og elda góðan kjúkling í ermabol eða ber að ofan og gera þrek meðan ég bíð eftir kjúllanum í ofninum en vonandi gengur þetta eftir ekkert öruggt en það kemur sennilega í ljós á morgun hvernig þetta stendur allavega mjög nett hús Hérna er mynd af húsinu...

Vorum að koma heim frá þessu og maður er svona frekar þreyttur bara en ég er með smá skilaboð til hjössa eða bliðks maður er alldrei nógu klár á þessu neti ef ég vill setja mynd í frétt getiði leiðbeint mér hérna í commenti hvernig ég geri það reyndi að gera það en það tókst alldrei kom alltaf eitthvað debug þegar ég fór inná síðun og ýtti á myndina svo ég var að spá í hvort þið gætuð útskýrt þetta hvernig maður gerir þetta;)

Annars er maður bara frekar hress er að fara panta flugið sennilega í kvöld og fer sennilega bara með flugleiðum í þetta skiptið það er víst ódýrara núna og að sjálfsögðu hentugra því þá sleppir maður við einhverjar lestaferðir og svona en allavega bara að segja ykkur það kem heim á föstudaginn langa já er í skólanum á skírdag sem er soldið furðulegt og er svo í fríi alveg til 3 maí skil ekki alveg þetta kerfi hérna því maður ætti nú að vera í fríi á páskunum en svo er ekki heldur allar hinar vikurnar í apríl .....

leiðinlegt að heyra með ommann að menn ætli að kæra hann fyrir eitthvað rugl en hann er nú kominn langt á veg í lögfræðinni svo hann ætti að salta þessa gaura bara svona svipað og liverpool hefur verið að gera í deildinni á þessu ári... tékkiði á Ommanum

en nóg af bulli í bili....
silli | Comment (48 )
18.1.2004 | 19:19 | Róleg helgi í rassgati
Já helgin er nánast afstaðin og ekki mikið til að skrifa um þið hafið örugglega frá meiru að segja en ég þar sem ég hef lokað mig frá hinum íslenska heimi þar til ég fæ idol spólurnar í miðri viku veit ekki enn úrslitin en þetta hefur vonandi verið skemmtilegt að horfa á;) soldið erfitt að reyna að halda þessu frá sér því þetta er jú á allra vörum og síðum þarna heima en mér hefur tekist það til þessa ...

En allavega á föstudagskvöldið var ekkert að gera svo við hjónin skelltum okkur bara á litla sæta núðlustaðinn okkar í greenwich og hann stendur alltaf fyrir sínu ódýrt og mjög matarmikið. Efitr það var bara haldið heim í holuna aftur og spilað tölvuleiki og eitthvað svona rólegt!

Laugardagurinn var rólegur líka við skelltum okkur í bexleyheath og fórum í smá skoðunarleiðangur þar í kringlunni þar og fórum svo bara í bíó á Paycheck með Bennaranum sem var bara hin mesta skemmtun vel útfærð og skemmtilega hröð;) Whoarinn kllikkar ekki.

Svo var maður svo helvíti þreyttur eitthvað að við bara tjlluðum heima í holunni og var það bara fínt...

Í dag var svo típískur sunnudagur hérna úti frábært veður til knattspyrnuiðkunnar og má ég til með að segja ykkur eitt ég keypti mér skrúfu skó á föstudaginn... já svo maður renni ekki á hausinn hérna en ég fór í svona charity búð hérna á laugaveginum hjá okkur og fann þessa geðveiku tiltölulega nýju Adidas Predator skó og ákkurat mín stærð og ég bara shit ég verð bara að kaupa þetta og hvað haldiði að þetta hafi kostað jú 2 pund og 50 pence sem er svona 300 kall fyrir nánast nýja predator skó sem eiga að kosta já svona 15000 kall sérstaklega með skrúum svo ég var frekar sáttur við það...

En allavega það var geðveikt gott veður í dag frekar heitt og sól og logn í janúar hefði viljað hafa FC Gbæ strákana hérna í dag því ég sakna að spila með þeim það er alvöru leikir frekar en þetta en við mættum 6 til hamingju með það letingjar hérna úti djöf. aumingjar að mæta ekki í bolta...

en við gerðum bara gott úr því og minnkuðum völlinn og mörkin og spiluðum 3 á 3 á pínulítinn mörk svo það var enginn í marki ég setti nokkur og átti bara fínan leik miðað við það að ég var úti!

Svo hjóluðum við til einsa og fórum þar á pubinn og horfðum á steindautt jafntefli hjá chelsea og birm. frekar leiðinlegur leikur. Svo var bara sett í flugírinn og hjólað heim svo þetta var góður brennsludagur ekkert meira en það en ég kvöld þarf ég að fara velja greiðslu fyrir karakterinn og föt og annað sem ég þarf að hafa í senunum mínum svo það er ekkert fleira að segja að sinni þessi poki er tæmdur!

Eitt svona í lokinn djöfulsins aumingjar í mínu liði að tapa svona fyrir botnliðinu varð bara að koma þessu frá mér er alveg brjál yfir þessu...

silli | Comment (19 )
16.1.2004 | 14:20 | Kominn helgi nr. 2 bara
Já þetta er allt saman fljótt að líða það er bara komin helgi nr. 2 í þessari vikur, það er tveir frídagar framundan og ég er búin í skólanum í dag þetta var frekar léttur dagur. Við vorum með svona 5 mínútna masterclass þar sem hver kom inn í fimm mínútur í karakter ( sem við leikum í leikr) og hélt fyrirlestur um eitthvað sem þeir vissu og kunnu ég gerði um mikilvægi þess að hita upp og teygja vel á og voru krakkarnir í bekknum á aldrinum 13 til 16 einn var t.d. að kenna litlum krökkum 5 og 6 ára og þá lékum við 5 og sex ára krakka og var hann að kenna okkur do re mí úr sound of music oooo þetta er svo erfitt stundum að vera í þessum skóla....

Í gær fórum við strákarnir í leikhús að sjá woman in black sem er hryllingsleikrit og hef ég bara alldrei séð svona manni var brugðið og maður hoppaði nokkrum sinnum úr sætinu og var þetta uppsett með tveimur leikurum og voru þeir að segja hræðilega sögu um hana woman in black sem gerðist á jólakvöldi einu... og birtist þessi kona sem var vægast sagt ógeðsleg stundum bara uppúr þurru og þá kom öskur í hátalarana sem voru fyrir aftan okkur og fleira allavega frekar magnað stykki og mæli ég með því að þið sjáið það ef þið verðið hér á ferli...

Ekki mikið að gera í dag ætla reyndar að reyna að kíkja á einher hús þar sem hitt gekk ekki alveg sem skildi fínt hús og allt voðaflott nema eitt herbergið var mjög stórt og hin tvö eins og skókassar ýmindið ykkur bara litla geymslu mjög litla með einu rúmi í ekki mikið hægt að hafa það gott í herberginu... svo það var bara sett stórt L á það og við höldum bara áfram að leita....

Maður verður samt núna að fara nýta fríin í að útfæra karakterinn og skrifa niður hvernig hann er hverju sinni versta er að ég er nemi frá öðru landi og er kanski ekki með allt mitt dót hérna svo það er erfitt að slíta karakterinn frá mér fatalega séð því við höfum ekki aðgang að búningadraslinu hérna fyrir þessa uppfærslu enda meira svona æfing bara.... en ég skelli mér örugglega í einhverjar charity búðir og finn eitthvað ógeðslegt!

en helgin óráðin líka sennilega bara eitthvað rólegt en allt getur gerst vonandi hafði þið það gott líka bara um helgina og skemmtið ykkur yfir idol í kvöld ég veit ekki hvernig staðan er á idol stína er að taka upp og sendir mér tvo síðust þættina eftir helgi svo ég bið ykkur um að halda bara kjafti þar til ég hef séð allt saman!

yfir og út
silli | Comment (23 )
14.1.2004 | 14:44 | Nýjar myndir og fleira..
Jæja þá koma loksins fleiri myndir frá okkur strákunum hérna úti í london, viktor kom með digital myndavél út og verða því fullt af myndum vonandi sem ég á eftir að setja hérna inn af okkur og lífinu hérna úti.

En annars allt bara búið að vera rólegt frí í gær og vorum við bara rólegir hérna heima fórum reyndar út að skokka og var það fínt gott að hlaupa hérna ágætisveður og gott að hreyfa skrokkinn..

Frí aftur í dag og erum við að fara skoða húsið sem við vonandi flytjum inní 1 febrúar núna á eftir og ekki laust við að það ríki smá spenna í okkur því það verður jú nokkuð gott að flytja úr holunni!

Var að fá frábærar fréttir úr höfuðstöðvum rauðu djöflana Saha bara á leiðinni til okkar og löglegur í lok þessarar viku og er það bara algjör snilld og vona ég bara að hann verði jafn heitur og hann er búin að vera undanfarið hjá fullham en góður liðstyrkur fyrir okkur því ég var hættur að kaupa það að hafa alltaf nistelroy einan frammi.

en kíkiði á nýju myndirnar sem teknar voru um síðustu helgi þar sem við vorum í höllinni og fórum niður í bæ og svona

silli | Comment (20 )
12.1.2004 | 18:48 | Komin helgi...
Já það má eiginlega segja að helgin sé komin aftur þrátt að vera nýbúin því ég er komin í frí fram á fimmtudag sem er mjög nett fara í skólann á mánudegi og svo næst þegar maður fer í skólann þá er komin fimmtudagur og önnur helgi að nálgast þannig að ég er með 2 helgar í viku! En það er samt nóg að gera og svona þarf að læra línur og unita senur og fleira kíkja á eitthvað portrait safn og finna einhverja mynd sem ég get tengt karakternum mínum og eitthvað drasl....

En skólinn í dag svona lala soldið mikið um eyður en alltaf gaman að fara í skólann, var bara að koma heim og ætla að hafa pasta í matinn í kvöld viktor er sofandi svo ég elda örugglega eins og í gær þá var hann líka sofandi stóri björninn á það til að leggja sig svona á þessum tíma mér finnst líka orðið svo fínt að elda ætla að prufa smá nýtt með pastainu keypti svona stóran baguette og ætla að skipta honum í 4 hluta og smyrja með hvítlaukssmöri og strá rifnum osti yfir og setja í ofn prufa svona heimatilbúið hvítlauksbrauð með osti;) djöfull er maður duglegur....

svo þarf ég að þvo í kvöld ojbara nenni því ekki sennilega það leiðinlegasta sem maður geriri hérna enda þarf maður að fara uppí næsta hús og setja í vélina en það breytist nú vonandi fljótlega þegar við flytjum skoðum húsið á miðvikudaginn allir voða spenntir það er ég viktor og jack ástralska vinkonan okkar og ef allt gengur eftir þá verður sko gaman;) þá verður kallinn bara komin í gott hús á tveim hæðum og fínerí og get þá sko tekið á móti því fólki sem vill koma í heimsókn...

en ætla að fara gera æfingar og svona og skella mér svo í matseldina heyrumst!

silli | Comment (49 )
11.1.2004 | 19:45 | PS2
hæ Kæru vinir nú er fyrsta helgin mín hérna í útlandinu og var hún bara ágæt róleg en fín, á föstudagskvöldið fórum við hjónin til einsa kalda í höllina og tókum skemmtilegan grip með okkur þangað já elskuna mína og yndi PS2 (playstation) og stefnan að taka nokkur góð mót i pro evolution 3 sem ég fullyrði hér með að sé besti fótboltaleikurinn í dag það er alveg á hreinu ég hef prófað þá alla og það er ekkert sem slær þessum við!

Við sátum því og spiluðum fótbolta leik og drukkum nokkra öllara til að vera 6 um morguninn og gistum við bara hjá einari að góðum og gömlum vana....

Á laugardeginum ákváðum við svo að taka puttana úr rassgatinu á okkur og gera eitthvað og var ákveðið að kíkja til Cambden markaðarins góða við vorum frekar seint á ferðinni en náðum að spóka okkur um í dágóða stund og einhverjir keyptu sér eitthvað og keypti ég mér disk sem heitir Bon Jovi this left side feels alright og er svona breyttar útgáfur af hans bestu lögum í gegnum tíðina og hann er frábær rólegur og þægilegur og gaman t.d. að heyra living on a prayer í rólegri útsetningu svo fylgdi dvd diskur með disknum með nokkrum lögum og fékk ég þennan disk á 1000 kall og hann er glænýr góð kaup það mæli allavega með þessum disk algjör snilld!

Eftir fínt rölt um markaðina var haldið heim á leið og við skelltum okkur heim í sturtu og fórum svo bara aftur til einars enda ekki mikið að gera þessa fyrstu helgi.. og hvað gerðum við jú við spiluðum aftur PS2 fram undir morgun algjörir nördar en þetta er bara svo gaman!

Í dag fórum við svo í fótbolta og var hann ekki mjög sérstakur þessir gaurar hérna hafa ekkert keppnisskap þetta er ekkert eins og að mæta í garðabæin og taka góðan leik uppí 20 og bara já taka vel á því hér nennir enginn að spila vörn það er bara leiðinlegur hluti og þeir nenna ekkert að gera það bíða bara frammi eftir boltanum svo var þetta náttúrulega svo mikið drullusvall að það náði engri átt bara eins og mýri og þeir allir á skrúu tökkum og þessir menn tækla bara eins og þeir kunni ekkert annað og setja bara skrúurnar í mann ég er t.d. með far á lærinu eftir stál takka og vöðvinn í lærinu handónýtur en þessi maður fékk líka fyrir ferðina frá mér ég fór bara og tæklaði hann til baka þegar hann var við endalínuna í næstu sókn og sagði bara við hann Get a real job! nei segi svona en hann fékk alveg að finna fyrir mér en ég er náttúrlega bara á gerfigrasskóm en ekki stáltökkum!

Það var samt gott a komast í smá bolta þó að þetta hafi verið frekar leiðinlegur bolti og veðrið var gott það er janúar og maður spilar á grasi reynar ekki með mörkum bara einvherjum peysum og það er sól og blíða reynar komu skúrir inná milli en samt sem áður bara eins og góður sumardagur heima.....

En svo gerði ég mér ferð á barinn að horfa á mína menn og það var vægast sagt tímasóun þeir voru svo lélegir skoruðum reyndar fullkomnlega löglegt mark en það var tekið af okkur eins og allt þessa dagana ætlum við missum ekki 10 stig í deildinni fyrir að hafa keypt Howard á rangan hátt það er allaveag heitasta fréttinn í dag hérna úti....

En þetta er orðið ágætt enda örugglega flest löngu hætt að lesa þetta og farin að skima bara yfir þetta...

silli | Comment (1 )
9.1.2004 | 18:57 | hinn erfiði heimur leikarans....
já góðir hálsar það er sko ekkert grín að læra að verða leikari og því er ég að kynnast núna... erum að æfa leikritið og vorum að fara svona í fyrsta skipti yfir nokkrar senur og var ég í þremur af þeim svo ég var frá 9 til 6 stanslaust að puða bara og ég er algjörlega heiladauður bara...

Þetta er nefnilega ekkert grín og maður með skap eins og ég þarf að hafa sig allan við þegar er sagt stopp við hverja einustu línu og get ég sagt ykkur það að teknir voru tveir tímar í hverja senu og ég var í þrem og komust við að meðaltali yfir eina bls á þessum tveimur tímum shit hvað þetta er erfitt það eina sem maður heyrði var STOPP strákar ég er ekki að kaupa þetta sem þið eruð að gera breyta þessu, afhverju ertu að segja þetta, hvað ertu að reyna að segja þeim þú ert að tala við... hvað liggur að baki setningarinnar og það liggur við að maður þurfi að hugsa hvenær höfundur hafi skrifað hana svo maður skilji þetta við vorum til að mynda hálftímað pæla hvernig þessar setningar eiga sér stað ég segi: You don't mind? og hinn segir No ekki flókið en það er það samt andskotinn hafi það hvað ég var orðin pirraður en það þýðir ekkert svona er þetta bara og maður er bara að kynnast þessu jafnt og þétt svo förum við að æfa þetta með proppsi og þá verður þetta fínt tala nú ekki um þegar ég er bara nuddaður á bakinu í heila senu ekki slæmt það verst að mér á að finnast það getnaðarlegt og ég er ekki alveg að sjá það gerast en þið verðið fyrst að vita það !

er sem sagt komin heim eftir erfiðan dag og var að kaupa pizzu bara sem ég ætla að henda í ofninn og keypti svo bjór sem ég ætla að sötra í kvöld og slaka á sennniega í höll kóngsins og það verður fínt að fara þangað aftur eftir smá hlé.... fer sennilega með tölvuna það er PS2 og við strákarnir tökum gott mót í pro evo 3 og drekkum vel af brauðsúpunni góðu og höfum það bara gott því það er jú það sem maður á að gera um helgar hafa það gott og drekka bjór algjört lykilatriði kæru vinir!

Á morgun er svo afmælið hjá aron sem er með mér á ári og er stefnan að fara í cetnralinn en það kemur allt í ljós, svo byrja æfingar hjá fótboltaliðinu á sunnudag og mætir maður ferskur í það og svo beint á pöbin að horfa á man u newcastle ekki slæmt það ;)

en þið hafið það gott í kvöld og passiði að píanóið fái sér ekki í glas hann ætlaði að vera edrú allavega þennan mánuð...

kærlig hilsen
silli | Comment (2 )
8.1.2004 | 14:25 | Djöfull er kalt á toppnum....
já það má með sanni segja að það sé kalt á toppnum enda trónir mitt lið þar núna í ensku deildinni! fór í gær á pöbb fínt að komast í þá stemmningu aftur og sáum liverpool aumingjana vinna enþá meiri aumingja chelsea og var ég mjög sáttur við það svo voru það mestu aumingjarnir í arsenal sem rétt náðu jafntefli við everton! þannig að ég var mjög ánægður í gær og gat þetta ekki verið betri dagur góður sigur á bolton og shit hvað Tim er magnaður markmaður!!

sit hérna á bókasafninu og er að bíða eftir að við byrjum aftur eftir hlé sem er eftir korter... hérna er rigning og sól til skiptis og þegar það rignir þá rignir þá tekur maður bara fram pollabuxurnar eins og í morgun og brunar á hjólinu útí bleytuna... reyndar svaf ég yfir mig í morgun og barði viktor á dyrnar hjá mér klukkan 10 í 9 og gleymdi ég að stilla klukkuna mína og vil ég hér biðja hann afsökunar á þessum óþægindum!

bless í bili
silli | Comment (1 )
6.1.2004 | 22:19 | fínt að vera svona í fríi....
hæ hæ búin að vera ágætisdagur já svona frídagur bara... við vöknuðum eldsnemma klukkan 12 í morgun og gerðum okkur ferð í centralinn og fórum þar á oxford og shit það er fáránlega nett að vera hérna á útsölum maður var bara einn í risastóru búðalandi og hefði stína gefið mikið fyrir að vera hérna núna og sennilega bara allar stelpur allavega ég eyddi mestum tíma í HMV og Virgin og var að skoða allar dvd myndirnar sem voru á tilboði og hefði ég viljað kaupa svona 30 verðið á þeim var svona 500 til þúsundkall ég keypti þó bara eina eddie M safn með prinsin fer til ameríku ( sem hefur lengi verið ein af uppáhaldsmyndunum mínum) og svo var önnur í pakkanum sem heitir trading places og hún er nett líka.... svo keypti ég mér pro evo 3 fótboltaleik því ég er núna með PS2 hérna úti og það er mjög nett og einn stýripinna með sem kostaði 500 krónur sem er náttúrulega bara ótrúlegt verð reyndar ekki sony en fyrir PS2 og lítur alveg eins út svo ég er bara sáttur....

annars var mjög heitt í dag sól og heiðskýrt sem er mjög skrítið á þessum tíma og við klæddir eins og eskimóar báðir í nýju úlpunum okkar sem eiga að verja okkur fyrir 20 gráða frostinu sem er heima;)

allavega er búið að vera mjög fínt í dag menn frekar þreyttir eftir allt labbið og fyrir að hafa vaknað svona snemma.....

ég keypti miða fyrir stínu út í gær fann frímiða klukkan 12 í gærkvöldi og fékk hún því ferð fram og til baka á 11000 með sköttum og geri aðrir betur hún verður hérna í 15 daga hjá mér í febrúar og ég get ekki sagt annað en ég sé strax farin að hlakka til....

ykkur til skemmtunar er hér mjög skemmtilegur pistill á skúla sem bóbó skrifar um hinn magnaða körfubolta í langholtskóla þar sem sumir fara á kostum og aðrir ekki....

ætla að fara gera mér samloku með hangikjöti sem amma gaf mér til að eiga hérna úti ...

silli | Comment (0 )
5.1.2004 | 19:26 | London út til komin.....
Halló allir

Já þetta er loksins búið að gerast Siggi.mis.is er farin aftur í loftið með pompi og prakti eins og mér einum er lagið... kom út til london í gærkvöldi eftir fínt flug og gekk bara allt að óskum mér leið allavega vel og kanski er það mikið að þakka hinum kyngimagnaða flug leik Flight simulator sem ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba en hann hefur hjálpað mér mikið að sjá um hvað málið snýst en nóg um það.

Tíminn heima var frábær í alla staði og leið bara alltof hratt það er alveg ljóst ég bara hreinlega trúi því ekki að ég sitji hérna við skrifborðið mitt úti og sé að skrifa ykkur heima á landinu kalda, en hérna er nefnilega ágætisveður hlýtt og já bara fínt! en eins og ég sagði áður lenti ég bara í gær og gekk þá frá öllu og hafði það mikið að segja að undanfarið hefur sólarhringurinn bara algjörlega snúist við og því fór ég ekki að sofa fyrr enn 4 í nótt og var því frekar ósáttur þegar klukkan hringdi klukkan 8 en ég komst samt á lappir!

Fór í skólann og var gaman að hitta alla aftur og ennþá nettari að heyra hvernig dagskráin framundan er núna erum við bara í rehersals fyrir leikritið sem við flytjum í byrjun febrúar eða senurnar sem við flytjum og því erum við í skólanum á mánudögum frá 9 til hálf sex en svo kemur snilldin að við erum í fríi á þrið. og mið. og svo alveg eins frá 9 til hálfsex á fim og föst! og mér fannst þetta nokkuð nett þó maður þurfi jú að æfa sig og svona á frídögum þá getur maður einbeitt sér að slappa af og hafa það gott því þetta geta orðið langir dagar svo getur maður lent í því að maður þurfi ekkert að mæta alla vikuna ef sena manns er ekki tekin en það er ólíklegt allavega mjög nett!

Fórum og versluðum áðan og gerði ég eitthvað nýtt í fyrsta skipti hef reyndar séð mömmu oft gera það en ég tók allt út úr ískápnum því þessir tveir bresku sem búa hérna voru búnir að setja allt á annan endan og ég bara tók til og raðaði öllu aftur og hann er mjög flottur;) alltaf lærir maður að gera eitthvað nýtt! erum reyndar að vinna í húsnæðis málum núna og var skólinn að finn fyrir okkur hús rétt hjá skólanum og það hljómar mjög vel þar sem þetta er bara maður sem er að leigja húsið sitt og verður gaman að sjá hvort það gengur eftir! væri allavega vel til í það...

en svo á morgun ætlum við að kíkja í centralinn og nýta fríið og spóka okkur um í stórborginni og gera eitthvað skemmtilegt þurfum að græja nokkra hluti svo eru náttúrulega útsölur að byrja hérna og hversu gaman er að skoða útsölur í london þar sem allt á að selast;)


Svo þeir sem vilja koma á íslendinga þorrablót 7 feb ættuð bara að panta ykkur miða og skella ykkur þetta verður held ég bara geðveikt það er hægt að kíkja á þetta á Íslendingafélagið í London ég og stína ætlum allavega að fara hún kemur hérna í febrúar og verður hjá mér lengi lengi lengi!

svo kanski á næstu dögum verður kominn svona nettur spjall linkur þar sem við getum spjallað um daginn og veginn!

nú má bara fara commenta og senda mér eitthvað nett í gesta bók eða email sigurdur@hamstur.is ef ykkur dettur eitthvað skemmtilegt í hug;)

en hafiði það gott og hugsiði vel um hana stínu mína sem er ein þarna heima!
silli | Comment (0 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september