Dagbók - Eldri dagbækur

29.11.2003 | 11:38 | Síðasta fréttin frá london í bili......
Góðan dagin kæru vinir, nú er ég hér að gera mig ready að fara heim til íslands og vonandi að hitta ykkur flest í kvöld í miðbæ Reykjavíkurborgar.

Er hérna einn eftir í hreiðrinu, Viktor er farin til danmerkur að hitta hana Guðrúnu sína og fór hann þangað í morgun eða meira í nótt ég kvaddi hann er hann steig uppí leigubílin klukkan hálf 4. En ég öfunda hann nú pínu að vera búin að fljúga ég á það eftir og það gerir þennan dag lengri en allt saman!

en ég hef ekki mikið að segja ætlaði bara svona kasta kveðju á ykkur þarna heima á landinu kalda og segja....

Sjáumst í kvöld!

Takk fyrir mig í bili.....
silli | Comment (24 )
28.11.2003 | 13:31 | Vélin í rugli....
Var að tékka á textavarpinu eins og ég geri svona stundum til að athuga hvort að vélin sem ég á að fara með á morgun sé ekki að skila sér og svona... en nei þá er hún bara ekkert að skila sér frá danmörku gæti alveg eins verið í rússlandi allavega ekkert á leiðinni heim samkvæmt textavarpinu og ég nýbúin að hrósa félaginu fyrir að vera alltaf á tíma og svona.... dagin áður en ég fer er eitthvað rugl í gangi..... skil ekki svona ef vél á að skila sér klukkan 14:15 frá danmörku þá á hún að skila sér klukkan það en ekki að vera áætluð 17:30 ja hérna hér.

Fengum senurnar okkar í dag og ég fékk þrjár senur sem ég kem með til að vinna með í janúar ég fékk mjög góðar senur fékk reyndar allar hommasenurnar sem gerast í rúminu og það verður eitthvað lotion í gangi en þetta eru samt svona stærstu mómentin í leikritinu og tvær af þessum þremur er bara ég og homma vinur minn í rúminu þannig að já þetta verður athyglisvert.... sýni ykkur myndina þegar ég kem heim....

En langaði bara sona að segja eitthvað ég var á safninu og var að panta mér flug aftur út dreif mig loksins að gera það tók mánudaginn 5 svo nú er bara að bíða eftir að einhver hætti við för sína á sunnudeginum... en allavega komin með miða!

silli | Comment (25 )
28.11.2003 | 00:18 | Eiginlega Föstudagur....
Góða kvöldið kæru hálsar það er næstum því föstudagur eða það er tæknilega séð komin föstudagur og því tæknilega séð sé ég ykkur á morgun hversu tæknilegt er það.....

En ekki mikið að gerast gerði verkefni í dag og gekk það mjög vel hún var mjög ánægð með mig sem Ste og bara sáttur við það, fór síðan til kóngsins að horfa á evrópukeppnina og var að koma þangað og er svona að huga að því að pakka og fleira.

Orðin frekar svona stressaður fyrir þessari heimför fluglega séð en það þýðir ekkert að væla yfir því bara kýla á þetta.

Ætla bara að hafa þetta stutt alldrei þessu vant, ég skrifa ykkur einhverjar línur á morgun um hvernig lífið er hérna á þessum síðasta degi þessarar annar hérna útí london.

Þangað til bara popp og kók,
silli | Comment (23 )
26.11.2003 | 22:09 | Bodyguard....
Já það er sko komin miðvikudagur og allt gengur sinn vanagang! sit hérna heima nýkomin reyndar var lengi í skólanum, viktor var að elda hakk og spagettí og við sitjum hérna hjónin og horfum á Bodyguard sem er alltaf jafn skemmtilegt!

Fluttum ljóðin okkar og í dag fyrir alla kennara og alla hina á fyrsta árinu og var það bara mjög skemmtilegt bæði að flytja og að hlusta á hina sem maður hafði ekki heyrt áður, mér gekk bara fínt og flutt ljóðið án þess að stíga feilspor að ég best veit.

Svo erum við með síðasta verkefnið á morgun eigum að gera svona 5mínútna private moment með karakternum okkar, ég ætla að taka boltan með mér hlusta á eitthvað nett lag og klippa úrklippur af fótbolta köllum og hengja á vegg og grípa í boltan svona einstaka sinnum minn karakter er svona frekar mikil fóbógaur og er það bara fínt fyrir mig.

Elgurinn á afmæli í dag og við hérna á sigganum óskum honum að sjálfsögðu til hamingju með daginn hann er 22 vetra.

Næstsíðasti dagurinn minn hérna á morgun og stefnan er að sjálfsögðu að fara í skólann og fara svo til kóngsins og eyða þar deginum, erum búnir klukkan 3 og það er fótbolti á stöð 5 allan daginn fyrst evrópu leikur mancity og svo liverpool og þó að ég haldi ekki með þessum liðum sérstaklega ekki hommunum í liverpool þá sleppir maður ekki bolta í varpinu;)

Horfðum á einar í dag hann var með svona spunaverkefni þar sem grúppur erum myndaðar og hver hópur fær ljóð og einn leikstjóra á 3 árinu og búa þau til c.a. 30 mínútna leikþátt. Einar stóð sig að sjálfsögðu mjög vel en leikritið var frekar ógeðfellt um starfsmann á einhverju hæli sem nýtir sér eina stelpu í hjólastól og já segjum ekkert meira, en mjög vel hjá þeim og skildi eftir mikið í hausnum þegar maður labbaði út.

En allavega bara halda áfram að dansa kringum jólatréð!!
silli | Comment (25 )
25.11.2003 | 14:25 | Grís og fleira...
Hæ kæru vinir smá hérna frá mér svona í eftirmiðdeginum á þessum annars fína þriðjudegi, Árni Vigfús hringdi í mig áðan og sagði að hann tæki glaður á móti mér heim til þess að leysa hann bensa af meðan hann er í prófum í desember og ég náttúrulega bara ánægður með það, er búin að vera lesa hlutverkið svona til öryggis, og ég þarf núna að setja allt á fullt enda vika í þá sýningu sem ég tek þátt í;) það er ekki laust við að maður sé smá stressaður.... allavega nóg að gera framundan að rifja þetta upp og læra línurnar hans bensa sem eru kanski ekk margar en ég ætla að reyna að láta fólk finna sem minnst fyrir því að hann sé horfin í bili svo það myndist ekki eitthvað fát á sviðinu... eitt þið þarna netgaurar, hörður sérstaklega ef þú lest þett ( sendi þér póst líka) get ég dowloadað disknum hjá hirði t.d. svo ég geti æft mig áður en ég kem heim.... bara spurning minnir einhvern vegin að hörður eigi diskinn einhverstaðar á hann ekki alla diska , svar óskast í comment;) helst sem fyrst...

Annars er veðrið hérna bara milt og gott það eru stjórnmálaumræður hérna útí porti hjá annars ársnemum , geri þetta á næsta ári, þá læra þau einvherja fræga ræðu utan af og flytja hana fyrir fólkið sem ég leið hjá og reyna fanga athygli þeirra.

Sá veðrið heima á mynda á mbl í morgun úfff hvað mig hlakkar nú til að komast í þetta kalda veður.....

Fékk dýrið mitt sem ég á að rannsaka eftir jól og læra hvernig það labbar og hreyfir sig... og það var ekki api nei heldur ekkert annað dýr en Canadian Goose hvað er það ég á að apa eftir kanadískri gæs.... sem er hérna útí tjörn við skólan og í dýragarðinu svona brún stór gæs.. sjáiði þetta ekki fyrir ykkur labba svona með rassinn útí loftið og hendur með hliðum og hausinn fram eða hvernig sem þessi gæs er, alveg sæmilega sáttur en var búin að búast við apanum..... viktor var svo heppin að fá bara tígurinn, hann ætti kanski að fylgjast með danna á hverfis bara;)

í kvöld er það bara boltakvöld hjá okkur strákunum sem er frekar nett ætla að horfa á inter arsenal og halda að sjálfsögðu með inter hata arsenal, þetta verður fyrsti leikurinn sem við viktor getum haldið með sama liðinu í og verður það góð nýbreytni....

en nóg frá mér í bili alltaf að komast í meira og meira jólaskap og ég mæli með að þið hlustið líka á létt..... það er frekar þétt!
silli | Comment (19 )
24.11.2003 | 18:13 | lokavikan....
Þá er lokavikan í skólanum í bili byrjuð... það er samt ekkert loka við hana hún er bara mjög venjuleg. Reyndar eru svona dagbókartímar á næstunni þar sem við tölum um hvað við höfum uppgötvað og hvað við höfum lært og hvað ekki. Við fáum líka að vita dýrin sem við eigum að rannsaka og læra hvernig þau hreyfa sig, ég fæ örugglega apa ég meina ef þið hugsið um mig þá er ég mjög líkur apa eða.... það segja allavega margir hérna!

Á miðvikudagin er svo ljóðakvöld hjá okkur fyrsta árs nemum þar sem við flytjum ljóðið okkar sem við erum búin að vera í vinna í það verður örugglega fínt kanski smá stress en samt allti lagi. lítið búin að hugsa um annað í dag en að fara heim, í hverju ég á að fara og fleira hvað ég ætla að gera og hvað ég á að taka með, maður verður soldið geðveikur á því að vera svona lengi í burtu maður sér bara litla landið sem gull þarna hinum megin við hafið;) sem það er reyndar.

allavega styttist tímin óðfluga og ekkert mikið að frétta frá mér í bili svo ég heyri í ykkur seinna.

og eitt ekki búa með fólki sem nennir ekki að taka til eftir sig eins og james homma ljósa lúði sem hefur ekki gert eitt handtak siðan við fluttum inn í þessa holu ég var að vaska upp og það er of leiðinlegt eiginlega farin að skilja hvernig mömmu líður þrátt fyrir að hún hafi uppþvottavél, það er sennilega leiðinlegast í heimi að vaska alltaf upp eftir alla hina!!!! verum nú dugleg og vöskum upp eftir okkur sjálf miklu auðveldara ( pabbi og pálmi)
silli | Comment (23 )
23.11.2003 | 18:19 | Penthouse og læti...
jæja þá er komið að fréttum frá london á þessum annars fína og síðasta sunnudegi mínum hérna í bili.

Föstudagskvöldið var mjög rólegt hérna hjá okkur hjónunum við áttum bara huggulegt sjónvarps og videokvöld og höfðum það bara gott. Laugardagurinn var svo framhald af rólegheitunum frá því kvöldinu áður ég kláraði samt ritgerðina mína sem ég á að skila á mánudaginn og frekar sáttur með hana. horfði á sjónvarpið og svaf það sem eftir var að deginum. Þegar kvölda tók fór maður að byrja í bjórnum og horfa á pop idol það var bítla þema í þessum þætti og aðeins 6 keppendur eftir. þetta var skemmtilegur þáttur en ég var ekki ánægður með úrslitin en svona er þetta bara.

Eftir þáttin var sturtað og gert sig ready í að fara á clocester sem er ekkert annað en homma bar í greenwich. Já við þurftum að fara á þennan hommbar sem hluti af rannsóknar vinnu fyrir leikritið sem við erum að fara gera. það var bara sæmilegt ekkert hommalegt við þennan bar eiginlega bara pör það er stráka og stelpu pör ekki hommar eða lessur. eina sem var hommalegt var barþjónninn sem var frekar gay.

Við höfðum verið í sambandið við kónginn fyrr um kvöldið og var hann á leið í partý sem var þarna ekki langt frá þessum bar. Eftir smástund á þessum bar héldum ég og viktor í þetta partý sem var á rotherhide street og til að segja svona c.a. hvar það er er það gata sem er beint fyrir framan hina stóru Thames á. og húsið shit það var uppá efstu hæð svona penthouse og íbúðin þvílíkt stór bara einn stór hringur. menn voru að tala um að verðið á þessari íbúð væri svona litlar 400 milljónir og ég trúi því bara frekar mikið því þetta var rosalegt maður fór uppá svalir og horfði yfir thames ánna og sá london í sinni fegurstu mynd að ofan frá. Þvílíkt og annað eins ótrúlega flott og magnað, maður stóð þarna með bjórinn og fílaði sig eins og einhvert mikilmenni í london usss þetta var rosalegt vildi að þið hefðuð séð þetta.

Þetta var fínt partý enda ekki við öðru að búast í svona nettu umhverfi, það var risastórt trommusett og flygill og voru tekin nokkur lög og kóngurinn spilaði á flygilinn og einhver trommaði mjög nett. Ég gerði mér síðan ferð á klósettið sem er ekki frásögu færandi nema hvað að ég steig á viktina ( hef ekki gert það síðan ég kom út) og ég var í fötum og skóm og héld á bjórdós og það stóð 60 kg á viktinni 60 KG !!!!! hvað er það ..... maður drekkur bjór og eitthvað rusl hérna borða reyndar eiginlega ekkert en samt og maður er bara ekki orðin að neinu engvir vöðvar og ekki neitt.... reyndar er maður á stöðugri hreyfingu hérna labba eða hjóla eða í movement tíma en ég meina 60 kg jesús pétur...... viktor hafði einnig lést eitthvað gígantískt svo viktin var ekki að plata .....

Við lögðum af stað heim milli 4 og 5 og það er ekkert grín að koma sér hérna í sveitina aftur ussss, fengum engan leigubíl fundum loksins strætó til að taka í áttina að sidcup og þegar þangað var komið sem var lewisham var klukkan orðin hálfsex og við frekar blautir en þá voru almennir vagnar farnir að ganga svo við fengum þá bara strætó heim sem var fínt. en svo ég setji þetta í samhengi þá er þetta eins og að redda sér í kópavoginn frá hveragerði..... prófiði ;)

Sit hérna og horfi á karate kid 2 og hún er alltaf jafn skemmtileg. svo er það bara meira gláp og ég er að hugsa um að elda spegettí bolognese fyrir hann viktor minn í kvöld.

en það eru bara 6 samt eiginlega 5 dagar í að ég komi heim og þá verður sko dansað.... nóg að gera í síðustu vikunni svo hún verður fljót að líða .

Sé ykkur í vikunni;)
silli | Comment (24 )
21.11.2003 | 12:51 | Jólaskap....
Það er ekki laust við að jólafílingurinn sé að aukast þessa dagana er búin að vera vinna mikið í tölvunum í skólanum eða heima vegna þessa að ég er skrifa ritgerð sem ég á að skila á mánudaginn. Ég sit því alltaf og hlusta á jólalögin á létt 967 á netinu sem er mjög nett:)

Svo er líka bara vika í að ég komi heim því það er bara kominn föstudagur shit hvað þetta líður.... Dagurinn í gær var bara nettur vorum í svokölluðu hot seati þar sem við klæddum okkur sem karakterarnir okkar. Ég tók bara nettan garðabæjar fíling á þetta klæddi mig eins og ég væri að fara í bolta í gbæ. Bara í íþrótta buxur peysu ( versló peysu) og fóbó sokka og derhúfu frekar nettu á því og stóð mig bara mjög vel sem Ste sem er mitt hlutverk. frekar gaman bara.

Svo fórum við strákarnir á 4 og síðustu sýninguna í gær í skólanum og var hún mjög fín.... ekkert smá sem maður fær að upplifa á 3 árinu hérna alvöru leikhús, utanaðkomandi leikstjóri og tæknilið budget uppá 3000 pund fyrir sýningu og það eru 4 sýningar sem maður tekur þátt í og eitt svona devicing verkefni þar sem spuninn ræður ríkjum þetta er alvöru.

Fékk sent handritið af grís í gær frá honum bensa dans sem lék guðbjart í sýningunni í sumar og ég á sennilega að leysa hann af meðan ég er heima sem Guðbjartur ( nördið) það verður örugglega mjög gaman en það er ekki staðfest þannig að ekki flykkjast og panta miða alveg strax til að sjá stjörnuna á sviði;) djók!!!

Eins og ég sagði áðan er bara stutt í að ég komi heim og er ég sæmilega sáttur við könnuna eins og hún stendur virðist vera djamm hugur í fólki heima þennan dag, enda hvað ættuð þið að gera annað..... læra ég held ekki. ekkert rugl.

Það er að koma jól... það er ljós í okkar hjörtum því nú koma heilög jól það er koma jól klapp það er að koma jól klapp.... sorry maður verður bara að taka undir ekki annað hægt þegar svona stemmari myndast.

Planið um helgina er ekki mikið sennilega bara rólegt. förum sennilega á glocester á morgun sem er gay pub að rannsaka barinn fyrir leikritid og svo verður bara lært og horft á rugby það eru úrslitin á morgun og england að keppa svo það verður einhver stemmari hér í bæ!

segjum það þá bara

rassgat í bala
silli | Comment (22 )
19.11.2003 | 16:57 | Flug vesen....
Sæl veriði það styttist óðum í að kallinn komi heim en samt sem áður erum við að skipuleggja far aftur út.... furðulegt. Og gengur það ekkert alltof vel, Einar fer í gegnum danmörku því hann verður að vera komin út á mánudeginum 5. janúar og reyndar ég og viktor líka en kanski ekki eins nauðsynlegt.

En málið er að það er allt bara upppantað hvað eru allir að fara út á þessum tíma akkuru geta þessir íslendingar ekki verið bara heima hjá sér. Viktor keypti í gær á mánudeginum 5. janúar miða á frekar dýru verði með express og ég ekki, ætlaði að gera það sennilega í dag, svo alltí einu losnaði á sunnudeginum 4 sem er betri dagur því þá missum við ekki af degi. svo viktor breytti sínum miða frá mánudegi yfir á sunnudag og ég ætlaði þá bara að versla miðan eftir honum á sunnudeginum en NEI þá var þetta bara einn miði sem losnaði og ég bara einn eftir á íslandi mjög gott, einar flýgur út á laugardeginum til danmerkur sökum þess að allt er uppselt. Þannig að nú er það bara í höndum örlagana hvort ég fæ miða eða ekki soldið mikið rugl þrír í sama skólanum hérna úti frá íslandi og enginn að fara á sama deginum eins og staðan er í dag. Sem er bara skita. Ætti sennilega að panta þarna á mánudeginum bara svona til að vera öruggur með miða út og breyta honum þá þegar sunnudagurinn losnar því ég er ekkert of keen á það að fljúga hérna einn út eins og api.

Hefði keypt miðan á mánudeginum í dag ef þessi eini miði hefði ekki losnað og þá hefðum við bara báð'ir farið á mánudeginum sem hljómar strax betur. En vonandi losnar þessi sunnudagur!

Er að fara syngja með hópnum mínum núna á eftir fyrir fyrsta árið og kennara fara yfir það sem við erum búin að gera á fyrstu önninni svona smá kórfílingur, syngjum tvö lög úr sönleikjum eitt lag úr Rag time þar sem ég syng tenór mjög gaman.

Svo verður haldi í höllina að horfa á bolta, tveir leikir í beinni á tveimur stöðvum það er holland skotland og wales rússland og það þýðir tvö sjónvörp að sjálfsögðu;)

En man ekki eftir meiru í bili ef einhver er að fara á sunnudeginum út hættu við!
silli | Comment (22 )
18.11.2003 | 11:21 | bara eitt....
Höfum bara eitt á hreinu hérna! hef eitthvað tekið eftir því að menn (amma t.d) eru eitthvað tala um einhverja vömb ef eitthvað er hef ég nú bara grennst hérna úti enda er ég í brjáluðum tímum allan daginn og geri þrek æfingar á hverju kvöldi og borða nánast ekkert hérna úti bara svona svo menn fari nú ekki að gera sér einhverjar vonir um að ég sé orðin eitthvað feitur.....

Skitan er bara að ég má ekki lyfta svo sennilega hafa vöðvarnir eitthvað rýrnað allavega miðað við píanóið;)

Meira í dag
silli | Comment (28 )
17.11.2003 | 18:47 | Rigning og viðbjóður
Vorum að hjóla heim í rigningu og drullu dauðans, hvað ég myndi ekki gefa til að vera á bíl hérna í svona veðri í stað þess að vera hjóla með matarpoka eins og fífl!

En ég ætlaði að segja ykkur hvernig laugardagurinn og sunnudagurinn var, Kóngurinn var í verkefni á laugardaginn eins og vitað var en við héldum samt sem áður í höllina með bjór og pizzu og tilgangurinn að horfa á Wales- rússland sem og við gerðum.

Leikurinn var fínn og náðu valsararnir jafntefli á útivelli, eftir þá keppni og nokkra bjóra byrjaði popp idol og það er alltaf jafnskemmtilegt ætla að reyna taka upp næsta þátt og sýna ykkur hann þegar ég kem heim, þeir eru mjög vandaðir hérna enda fundnir upp í bretlandinu. Eftir þann þátt byrjaði Eurovision keppni barna (alveg eins og söngvakeppnin evróvision nema bara krakkar) Þannig að við fundum uppá mesta snilldardrykkjuleik til að gera þetta annars slæma sjónvarpsefni þess virði að horfa á.

Við völdum land fyrir fram og fyrir hvert stig sem landið fékk í atkvæðagreiðslunni var það einn fingur á pændi sem er hálfur líter af bjór. Mark og jerome völdu spán og england og voru þau að berjast um sigurinn og fengu oftar en ekki 12 stig sem þýðir heill bjór og menn voru orðnir ansi þembdir af bjór, ég valdi hins vegar svíþjóð sem fékk heil 9 stig;) gaman það mæli með að við gerum þetta þegar næsta keppni fer fram í vor;)

Eftir það hringdi kóngurinn og var á leið heim, ég sagðist vera í megadjamm fíling og var hann á sama máli og var sveppi í 70 búin að segja að hann yrði í bænum. Svo einar mættu heim um 12 og ég var búin með alveg nokkra þá og hann líka og við mælum okkur mót við þá 70 gaura niður í centralnum nánartiltekið leister Sq. Einar klæddi mig og viktor upp enda vinnur kallinn í herragarðinum og kann þetta ég held bara að ég hafi alldrei verið jafn myndarlegur þó ég segi sjálfur frá;)

Við fengum leigubíl sem verður að teljast heppni því við biðum bara úti á götu rétt hjá einari og skutlaði hann okkur á áfangastað! Svo hittum við þá fyrir utan comedy stað og þeir byrjuðu bara að rugla í öllum eins og þeim er einum lagið mjög fyndnir og nettir gaurar, fórum síðan og reyna finna klúbb allir frekar ferskir og fundum gaur sem fór með á okkur á stóran og flottan klúbb, hann spurði hvaða við værum og við sögðum frá íslandi og hann sagði þá já íslandi og þá sagði auddi blö " yes icelandic seamen from grindavik city collect bottles" Svo spurði ég hvað drykkirnir kostuðu og hann sagði " very cheap very cheap" þá sagði auddi blö " ah so cheap that even your mother looks expensive....." og við bara dóum úr hlátri

Svo héldum við inná staðinn og var það mjög fínn staður gríðalega stór og góð músík við dönsuðum þar og fífluðumst þarna í fólki eins og íslendingar gera í útlöndum shit hvað við erum nett þjóð frekar heppin að vera alltaf svona edrú eins og einhver orðar það......?

En svo var þetta búið um 4 og fórum við og fengum okkur kebab og pizzu og fundum leigara og héldum heim á leið eftir eitt skemmtilegasta kvöld hérna úti því þetta var allt eitthvað svo óplanað og skemmtó, komum heim um hálf 6 og sofnaðir um 6.

Svo vöknuðum við að mark kom og stillit á rugbyin eftir 3 tíma svefn en það var alltí lagi og horfði ég á hann enda rúbbíið mjög skemmtileg íþrótt og tjallarnir unnu þetta og eru því komnir í úrslitin um næstu helgi á móti ástralíu!

Svo lá leiðin illa sofnir subbulegir og já eiginlega ólöglegir úti í hreinu andrúmsloftinu í kringluna að versla einhverjar jólagjafir og drasl. Maður náði að versla eitthvað og svo fórum við í bíó á matrix og fannst mér hún mjög góð ætla ekki að vera með neina gagngrýni hérna en mér fannst þetta allt koma heim og saman og bara flott mynd. eitthvað um að menn séu ekki að fíla þetta en mar veit ekki, veit ekki hvað margir eru búnir að sjá hana heima en ég ætla aftur á hana heima og hlakka til að taka þátt í umræðum með ykkur;)

silli | Comment (0 )
16.11.2003 | 22:09 | Þreyttur eftir langa helgi!
Nenni ekki að blogga til ykkar núna um viðburði helgarinnar en það var mikið í gangi og má þar t.d. nefna flipp með strákunum úr 70 mínútum sveppa og audda blö í central london á laugardagskvöld, ferð í smáralindina hérna í englandinu á sunnudag og margt fleira skemmtilegt ég segi ykkur betur frá því þegar ég er búin í skólanum á morgun. Var að koma heim og nenni bara að lesa fréttir núna ekki að skrifa þær....

bjór!
silli | Comment (0 )
15.11.2003 | 14:25 | 2 vikur....
Já það er bara komin laugardagur hérna í englandi sennilega líka heima ef þið eruð heppinn! Og í dag er 2 vikur þangað til að ég fæ að kíkja aftur heim til ykkar og já það er ekki laust við að mikil spenna sé farin að blunda í litla dvergnum!

Fórum í partý í gær við hjónin og var það ágætt bara svona local partý með liði úr skólanum kóngurinn sat hjá en hann fór á leikritið í gærkveldi og var að fara vinna eitthvað í dag. En endirinn á partýinu var ekkert sérstakur því þegar við vorum að labba heim strákarnir frekar drukknir og ein stelpa búin að vera messa í thijs og zak allt kvöldið og þeir ætluðu fyrst báðir með henni heim en það var bara kjafturinn á þeim þá kallaði thijs zak muppet sem er svona fífl eða asni eða eitthvað og hann brást það illa við að hann réðst á thjis og við hjónin og matt sem er bandarískur vorum komnir frekar mikið á undan því við vorum allir rólegir og bara að labba heim, og svo heyrum við þetta og við hlaupum niðureftir og reynum að stía þá í sundur aðalega stóru mennirnir viktor og matt en það reyndist frekar erfitt zak er frekar sterkur og reyndi að skalla viktor aftanfrá ( var bara út úr því og féll mikið í áliti hjá mér) meðan viktor hélt honum.
Svo náðum við að stoppa þetta eftir að zak og thijs höfðu kýlt hvorn annan og skallað og komust allir heim en jesús pétur þvílikir krakkar stundum algjörlega tilgangslaust og ekki gaman að horfa á bekkjarfélagana fara svona með hvorn annann.
En við skulum vona að þeir sættist það náðist svona semi sátt í gær og vonandi græja þeir þetta sjálfir bara!

En var að vakna og þá hringdi pabbi og talaði ég við hann í góðan hálftíma um allt og ekkert sem var mjög góð byrjun á þessum degi. Heyrði líka í píanóinu sem var að sjálfsögðu blá edrú eins og hann orðaði það best.....? Allavega gaman að heyra frá þeim og að hans sögn gríðarleg stemmning:)

Erum að fara leggja í hann í höllina hans einars að horfa á holland skotland og svo wales rússland sem eru báðir í beinni;) svekkjandi fyrir ykkur! einar verður reyndar ekki heima en hann kemur í kvöld er í einhverju verkefni.

Svo á morgun ætlum við í mollið í blue water að versla eitthvað fyrir jólin og svo á matrix vonandi;)

En þangað til næst ble
silli | Comment (0 )
13.11.2003 | 18:25 | fimur dagur....
Mættur heim og byrjaður að blogga orðin smá rútína hérna úti hjá mér, vorum á pöbbnum með einari kíktum aðeins þangað í smá spjall og einn kaldan svo fengum við okkur að borða og erum að fara á sýningu í kvöld 3 í röðinni hjá 3.árinu og verður það örugglega fínt.

fínn dagur í skólanum byrjaði reyndar með bóklega tímanum sem er ekkert alltof of skemmtilegur en ég hei maður hlýtur að meika einn bóklegan tíma í viku, svo fórum við í acting tíma og héldum áfram að lesa leikritið nú sem okkar karektarar og komst ég að því að ég þarf að kyssa þann sem leikur jamie ef ég er svo "heppinn" að fá það ákveðna atriði... vonum bara ekki þó að atriðið sé fínt!

helgin svona að planast í rólegu heitum næstsíðasta helgin hérna úti í bili, á morgun verður örugglega farið í partý hjá strák í bekknum allavega er það stefnan eins og hún er núna. Á laugardaginn verður glápt á fótboltann leikirnir í playoffsinu að byrja áfram Wales og vonandi tapa skotar. Svo á sunnudaginn kíkjum við örugglega í mollið með kónginum að reyna að versla einhverjar jólagjafir og eitthvað ekki mikill tími framundan til að gera það áður en ég held heim á leið. Og kanski að reyna að byrja á ritgerðinni sem við þurfum að fara skila.

Annars ekkert mikið að frétta héðan úr englandinu enda bara skóli og vinna framundan mikil vinna þessar síðustu tvær vikur.

blee
silli | Comment (0 )
12.11.2003 | 17:26 | Lítið að frétta....
hæ hæ hérna gengur lífið bara sinn vanagang og tíminn líður og líður það er komin miðvikudagur og vikan bara að verða búin nýkomin heim úr töltölulega léttum skóladegi fyrir utan spuna í morgun lenti með heimskri stelpu sem veit ekkert og var sennilega bara stoned fyrir tímann fáviti hún actar eins og hún sé 18 ára vorum í spuna leik um það að maður varð alltaf að segja já og hún fór að tala um einhverja kúlu á kynfærum og eitthvað djöfulsins rugl og ég varð svo pirraður að þurfa að vera þarna með henni að ég nennti varla að horfa á hana og því varð ekki mikið úr góðum spuna eins og von er þetta er manneskja sem ég myndi ekki vilja vera með á sviði allavega FÍFL! ekki það að ég sé eitthvað góður en bara að vera svona vitlaus það er erfitt að lýsa þessu en hún er bara eitthvað alveg off.

nóg um það ég tek þetta bara næst hefur gengið vel í spuna að undanförnu og læt þetta á mig fá;) orðin stressaður fyrir því að fljúga heim bara eins og ég er... dreymdi að ég væri komin heim í nótt það var fínt mjög raunverulegt var heima en allt var eins og hérna og eitthvað voðalega skrítið. en dreymi þetta örugglega bara að ég er mikið að hugsa um það þessa dagana hvað það verður gott að kíkja heim til ykkar enda búin að vera hérna í 60 daga vá 60 daga það er þó nokkuð þó ég segi sjálfur frá.

Þarf að fara byrja að ritgerðinni sem ég á að skila 24.nóvember ekkert stórmál hún er 1000 orð sem er bara pínuts miðað við það sem ég hef skrifað hér, ætla að skrifa um rómeó og júlíu sem var hérna úti þau eru búin núna of farin heim held ég. Þetta verður ekkert mál byrja um helgina og klára um helgina enda ekki nema 2 bls. c.a. í tölvunni.

En ekkert meira frá mér í bili
silli | Comment (1 )
11.11.2003 | 18:51 | Hommahlutverk......
Fengum hlutverkin okkar í gær fyrir leikritið sem við lesum núna og klárum í janúar. Ég leik gaur sem heitir Ste og hann er í fótbolta og svona frekar harður gaur en innst inn er hann HOMMI já hommi þannig að ég fæ að feta í fótspor píanósins og leika hýran mann sem er bara fínt.....?

Þetta felst samt fyrst og fremst í senu vinnu þar sem við bútum senurnar sem við erum í niður og vinnum í þeim og finnum út allt sem við þurfum um karakterana okkar, Þurfum t.d. að fara og skoða hvar leikritið gerist, kíkja á hommabari og finna hvernig það er en þeir gerðu það í leikritinu, gera biography um karakterinn eins og við sjáum hann hvað er hann búin að gera og svona þurfum svo að mæta og sitja fyirr svörum hjá kennaranum sem þessi karakter í tíma! þetta er ekki svona sýning bara undirbúnings vinna fyrir framtíðina en við sýnum samt senurnar fyrir fyrsta árið og kennarana fæ kanski að taka senu þar sem Ste og vinur hans jamie sem er hommi eru að nudda lotion á hvorn annann! en þetta leikrit heitir Beautiful thing ef einhver vill skoða það nánar.

Strákarnir heima að gera góða hluti voru að setja af stað heimasíðu sem heitir Skúli og þar verður hægt að fylgjast með öllu sem þeir taka uppá á djamminu og fleira fáranlega nett! sérstaklega fyrir mig mæli með því að fólk kíki á þessa síðu.

Fór með videoið mitt áðan í viðgerð en það bilaði á öðrum degi eftir að stína kom með það og hef ég ekkert getað horft á það sem hún tók upp fyrir mig nema Idol og sem er nett, en ég hlakka til að sjá restina af idol þegar ég kem heim sit alltaf og horfi á enska idolið sem er náttúrulega mjög gott enda fundið upp hérna. þannig að þegar ég kem heim ekki segja neitt ætla að horfa á þetta allt á sunnudeginum!

Í næstu viku verðum við með söngsýningu með tveim lögum fyrir 1 árið og kennara þar sem við syngjum það sem við höfum lært í vetur maður er komin með svo sterka rödd og farin að læra að syngja alveg frá centralnum að maður syngur bara tenór og fer frekar hátt, syngjum lag sem heitir it takes two úr einhverjum söngleik og till we reach that day úr rag time;) nóg að gera framundan!

Enginn pakki komin mamma allavega ekki enþá!

bæjó
silli | Comment (0 )
10.11.2003 | 18:56 | Stamford Brigde.....
Damien Duff, Frank Lampard, John Terry, Hasselbaink, Eiður Smári, Wayne Brigde, Joe Cole, og fleiri góðir t.d. Crespo eiga það allir sameiginlegt að spila með chelsea, sem er ekki frásögufærandi nema hvað að ég fór á brúna í gær og horfði á chelsea rúlla yfir newcastle 5-0 ekki slæmur leikur það.

En þetta gerðist þannig að við vorum búnir að koma okkur fyrir á pöbbnum rétt hjá einari og tilbúnir að horfa á man liv þegar Eiður smári hringdi í einar og sagði að hann ætti 3 miða á leikinn sem byrjaði þá eftir 2 tíma og einar sagðist vera með 5 félugum sínum og varð hann því að skera úr jerome sagðist ekki komast en ég fór á taugum enda alldrei farið á leik í premier league og vissi að ég myndi tapa ef það yrði dregið því ég tapa alltaf í þannig og viti menn ég tapaði og missti mig bara af reiði en sökum góðmennsku viktors þá gaf hann sætið sitt eftir og sagðist bara fara næst sá það að ég var að deyja þarna mig langaði svo að fara svo ég einar og mark drifum okkur af stað og ferðinni heitið á brúna þetta var svo fljótt að gerast að maður trúði því bara ekki.

Svo komum við og einar náði í miðana og það fyrsta sem ég sé er Sven Göran þjálfari englands úfff ég þá missti ég mig bara hann var bara eitthvað að labba þarna framhjá.
Sætin sem við fengum voru sko ekkert slor West stand sætin á brúnni sem er sama stúka og roman og sven sátu í og fullt af köllum og voru svona leður púðar á sætunum í staðinn fyrir plast sætin, Við byrjuðum á því að labba upp og okkar megin voru allir verðirnir í jakkafötum og læti, við löbbuðum svo á pöbbinn sem var svipaður og súlnasalurinn á hótel sögu ótrúlegt að sjá þetta 30 skjáir hér og þar og við bara rólegir að drekka bjór með einhverjum kóngum usssss.

Svo héldum við út og þegar þangað var komin blasti glæsilegur völlur við okkur og þvílik stemmning ég hélt bara að lífði gæti ekki orðið betra ég var þarna staddur að horfa á menn sem ég sé daglega í sjónvarpinu og í mjög góðum sætum og með stemmninguna í æð!

Leikurinn var góður og mörg mörk og rautt spjald og allt annað að horfa svona á leikinn úr stúkunni, svo kom smárinn inná og fögnuðum við mikið og mátti þá sjá íslendingana á vellinum en þeir voru all nokkrir en ekki á okkar stað;) og að sjálfsögðu setti kallinn okkar hann með glæsilegu marki og fögnuðum við mikið og öskruðum bara áfram ísland!

Svo kláraðist leikurinn og rúsínan í pylsuendanum eftir við fengum að kíkja á players bar;) já hversu rosalegt er það við löbbuðum inn og mættum guducini á leiðinni út sem var að flýta sér eitthvað og beið hans lítil vespa sem hann fór á útí bílahús sem er rétt hjá, manni leið náttúrulega eins kóngi þegar maður labbaði fram hjá öllum sem voru að bíða eftir árititunum og inná barinn;) þar settumst við niður og fengum okkur öl og biðum eftir leikmönnum og fyrstur inn var hasselbaink sem var ekki í hópnum og maður stóð þarna eins og lítill krakki svo komu duff, lampard, terry, cole, eiður, bridge, og fleiri og maður trúði þessu bara ekki maður var á barnum með þessum leikmönnum sem eru bara stjörnur fyrir manni. Við fórum og spjölluðum við eið og hasselbaink en einar þekkir hasselbaink aðeins enda stundum farið með eið eitthvað, allavega stóð ég við hliðina á eiði og hlustaði á hann tala hollensku við hasselbaink um færið sem heskey klúðraði fyrr um daginn þið megið drepa mig þegar ég kem heim;) svo varð eiður að fara og við sátum þarna lengur og virtum þessa gaura fyrir okkur ég tók í höndina á lampard og brigde og sagði good game mait og klappaði á bakið á joe cole sem stoppaði stutt enda bara strákur;) var bara í shokki í gær en samt var þetta svo eðlilegt en samt svo fjarstætt jesús pétur bara þetta var allavega mjög stór stund í lífi mínu og var ég orðlaus lengi í gær....


Svo héldum við heim á leið og kom heim þreyttur ánægður og umfram allt í mikilli þakkarskuld við einar og viktor sérstaklega viktor sem gaf mér sætið sitt af hans einlægnu góðmennsku!

En ef þið viljið spyrja að einhverju um þetta setjiði það þá bara á spjallið og ég svara;)

Menn helgarinnar eru viktor fyrir að vera svona góðhjartaður og einsi fyrir að vera bara alltaf jafn nettur og Eiður fyrir miðana þetta var sannkölluð drauma helgi fyrir mann eins og mig allavega hef ég hitt ýmsa drauma menn um helgina!!!!

Með þessum orðum kveð ég ykkur í bili og minni á það að það eru aðeins 18 dagar í að ég komi heim!

silli | Comment (50 )
10.11.2003 | 00:00 | Rosalegar fréttir frá london....
Já er of þrettur til að blogga núna sökum erfiðar helgar en ég hef rosalega fréttir að færa og segi ég ykkur allt um það á morgun þannig að verið rétt stillt annað kvöld þá verð ég búin að segja ykkur netta sögu;) MJÖG NETTA!!!

Góða nótt
silli | Comment (0 )
8.11.2003 | 15:44 | Eiturlyf og vitleysa.....
Hvað er málið með þessa breta það er bara ekki nóg að drekka áfengi nei nei það verður að hafa öll önnur efni líka þetta eru nú meiri fíflin ussssss!!!! allavega sáum hapeus corpus sýninguna í gær sem var önnur í röðinni hjá 3 árinu og var hún hin besta skemmtun fær alveg 4 stjörnur frá mér og verður það að teljast gott!

Eftir sýninguna héldum svo ég og viktor til New Cross þar sem kóngurinn tjáði okkur að fara verlega sökum glæpa gengja og fleira en við fórum samt sem áður enda með viktor hinn stóra ég meina hver ætlar að fokka í honum ENGINN!!! Þegar við komum út vorum við með kort og löbbuðum eftir því, frekar subbulegt hverfi og þakka ég mikið fyrir sidcup sem er bara dansandi miðað við þetta skítaplace oj bara! En partýið var svona lala það var bara bál úti miðjum garði og voru menn ýmist úti við varðeldinn eða inni þar var alvöru dj og einhver læti einhver skratch keppni og fleira skemmtilegt. Við vorum nú bara þarna strákarnir á fyrsta ári enda bekkjarfélagi okkar chriss einn af húseigendum þarna og svo bara fólk sem við þekktum ekkert, og eiturlyfja notkunin á þessu fólki er rosaleg bara kókaín línur hér og þar og alltaf verið að spyrja do you need anything og eitthvað rugl þetta er bara fífl og ekkert annað! Allavega er bjór nóg fyrir mig það er alveg á hreinu annarhver maður reykir hass hérna og klæjar í nefið þetta er bara óbjóður djöfull er maður heilbrigður maður;) tókum svo næturvagninn heim þegar við höfðum fengið nóg af þessu og fengum okkur pizzu og svo bara svefn.

Planið í kvöld er eitthvað með kónginum bara sem inniheldur bjór og skemmtileg heit! sennilega pop idol hérna eru 7 eftir eða eitthvað svoleiðis (var að sjá að það er komin pop idol leikur á ps2 hvað er það?) og svo bara rugby í fyrramálið og man u liverpool á morgun!

Er að fara í smá kickabout með viktori heyri í ykkur seina!
silli | Comment (0 )
6.11.2003 | 19:10 | mikið um dýrðir...
Kvöldið í gær var mikil snilld því það var svo sannarlega upphitun fyrir gamlárskvöld heima. Við byrjuðum á því að skella okkur á metró að hlusta á kareókí og hittum gaurana og fengum okkur einn kaldan.

Eftir það héldum við svo strákarnir á árinu heim til tom og byrjuðum að brenna peningana og djöfull var gaman að skjóta upp flugeldum sérstaklega af því það er bara nóvember skutum upp fullt af dóti og nágranninn kom út og sagðist ætla að hringja á lögguna en og við s-gðum bara já já gerðu það bara kall, það er nú einu sinni löglegt að skjóta upp flugeldum í dag og að sjálfsögðu gerði hann það ekki, ýmindið ykkur það er gamlárskvöld heima og nágranninn kemur út og segir ég hringi á lögguna ef þið hættið ekki að skjóta þessu upp, Þvílíkt fífl!!!!

en svo var spilað ps2 og svo bara heim á leið með smá matarstoppi.

Skólinn í dag var fínn fyrir utan playstudy í morgun sem er frekar leiðinlegt enda eini bóklegi tíminn sem ég hef, svo lásum við í gegnum leikritið sem við erum að fara vinna senu vinnslu með núna fram að fríi og svo í janúar það heitir Beautiful thing og fjallar um í stuttu máli líf í einni blokk þar sem búa tveir vinir og verða þeir hommar og ástfangnir gaman fyrir mig að fara leika homma, maður ætti kanski að hringja í píanóið hann hefur nú gert það áður ussssss.

Sit núna heima og er að biða eftir þurkaranum og á leið til einars að horfa á liverpool leikinn í kvöld í beinni á channel 5 og elda kjúkling og eitthvað fleira gott, bara svona nett tjill enda frekar léttur dagur á morgun, þurfum reyndar að koma með lag sem einkennir okkur sjálf það er ryðmi og fleira verður örugglega mjög skemmtilegt.

Helgin er svona að planast jafnt og þétt strax kominn helgi þetta er bara ótrúlega nett 22 dagar þangað til ég kem á klakann. Föstudaginn er sennilega partý en svo verður keyptur kassi ( skipun frá einari og jerome ) því það eru 8 liða úrslitin í rugby um helgina og byrjar fyrsti leikurinn á laug kl 7:30 og annar leikurinn klukkan 11, svo verður bara tjillað og drukbkinn bjór og eitthvað nett, á sunnudaginn er svo Stóri leikurinn í rugby England Wales og verður andrúmsloftið í höllinni hjá kónginum allveg magnað því jerome er walesari og mark sem býr með einari harðasti bretinn í bransanum allgjör bulla þegar kemur að í þróttum og ég veit ekkert hvað ég geri...... hvort liði ég vel.... svo er stóri leikurinn í premiaranum liverpool manu klukkan 2 þanniga ð það er bara bolti og bjór og drasl framundan og tel ég það vera góða og uppbyggilega leið til að eyða helginni ekki sammála;)

Jæja nóg bull í bili fariði varlega
silli | Comment (0 )
5.11.2003 | 18:45 | Bombfirenight hér í kvöld.
já hérna er hátíðisdagur og allir að versla flugelda og að sjálfsögðu ég líka við strákarnir í bekknum ætlum að kíkja á pubin og svo heim til Tom og chilla þar spila pro evulution 3 á ps2 og skjóta svo upp með öllum hinum klukkan 12 bara eins og heima á gamlárskvöld sem er mjög nett! fór og keypti flugelda í matvörubúð sem heitir sommerfield soldið mikill munur hérna selja bara einhverjir einhversstaðar og heima allar þessar reglur.... Allavega mjög spenntur ég var að fræðast um þennan dag frá ommanum á msn sem á afmæli í þessum merka degi og hérna er smá fróðleikur.

Gay Fawkes hét hann maðuriinn sem kvöldið er um hann reyndi að sprengja upp parlamentið þann 5,nóv 17 og eitthvað
og það er breskt máltæki sem segir "5th of November, 5th of november gunpowder, treason and plot!


Ég og viktor gerðum dansinn okkar í dag og gekk það einstaklega vel mjög gaman svona dansleikhús eins og ég sagði ykkur frá vorum að semja í gær ásamt því að horfa í snillingana mína í man.U sem tóku þessar skotadruslur í bakaríið shit hvað markið hans forlan var flott. allavega var ánægður með úrslitin í gær og svo einnig með dansinn gekk allt mjög vel og vorum við bæði frekar fyndnir og góðir enda ekki við öðru að búast enda mikill tími farið í að undirbúa þetta .....?

Tenglarnir eru farnir að virka ég var bara eitthvað að skíta á mig og ég fer að bæta við fleiri skemmtilegum tenglum sem ég finn.

Er að deyja í öxlum og baki og kálfum og fleiri stöðum sökum nauðgunar á líkama mínum í þessu námi en svona er það nú bara.

sá að ljúfur hafði skrifað í gestabókina (viggó briem) og breki gaman að sjá ný andlit í bókinni og viggó minn ég sagði þér frá þessu pungur þú bara of gleyminn;)

en núna er það bara æfingar borða og svo út í óvissuna og flugeldana sem mér ætti ekki að leiðast hlustiði vel kanski heyriði eitthvað til íslands,

og eitt ég hata póstinn hvort sem pósturinn heima er að skíta á sig eða hérna þá eru þeir allavega ekki að koma séð og heyrt blöðunum og íþróttablöðunum sem mamma er að sedan á leiðarenda helv. fífl og letingjar fá allavega kaldar kveðjur frá mér.


Happy bombfirenight
silli | Comment (4 )
3.11.2003 | 21:24 | Vaaa er i gangeee
frekar venjulegur mánudagur í dag sem byrjaði á góðum voice tíma og svo í movement sem er svona frekar off tími á mánudagsmorgni en hann var ágætur svo eftir hádegi tók við leiklistar tími þar sem var haldið áfram með sleeping partner æfinguna en nokkrir áttu eftir að gera og viktor var einn af þeim og brilleraði strákurinn bara verð ég að segja alveg með þetta yfirgaf kærustuna vegna þess að hann vildi verða atvinnu knattspyrnumaður (hver vill það ekki;) og hún hafði enga trú á að hann gæti það en maður verður jú að fylgja draumum sínum.

Eftir skóla fórum við á fasteigna stofu en við erum að spá að reyna fá okkur hús til að gera þetta heimilislegra hérna fá stofu og fleira gotterí og konan á stofunni fór með okkur að skoða eina eign sem er rétt hjá skólanum og lestarstöðinni sem er brilliant staðsetning ( gaman að skoða svona hús hef allavega ekki gert það áður) húsið er með tveim svefnherbergjum og svona í viktorian stíl gamalt og flott mjög kósí og litirnir hálfhallærislegir rauður og bleikur en mjög lítið nett og huggulegt allt saman stofa með arin og fleira okkur leist allavega vel á þetta en erum bara að skoða læt ykkur vita hvernig þetta fer allt saman erum bara svona að þreifa fyrir okkur á fasteignamarkaðnum.

Er að fara um næstu helgi á Matrix revolution sem er náttúrulega bara snilld það er opnunar helgi næstu helgi og förum við í eitt stærsta bíóið í london á leister squere en sam sem er með einari á 3 ári fékk nokkra miða og ætlum við að skella okkur þannig að maður kanski sér einhverja fræga þetta er jú frumsýningar helgin. veit ekki hvenær myndin er sýnd heima kanski sömu helgi en ég segi ykkur bara hvernig myndin endar;) þetta er allvega mjög nett númeruð sæti og allt saman!

erum að fara semja dansinn í kvöld sem við eigum að flytja á miðvikudaginn það verður örugglega mjög fróðlegt og skemmtilegt svona hálfgert dansleikhús;) ætlum að negla þetta verkefni!

Stórleikur á morgun og hlakka ég mikið til að horfa á hann hérna heima í sjónvarpinu svo er einhver þáttur um beckham á eftir þannig að það er gott bolta kvöld framundan.

Ég vil fá fleiri skýrslur að heiman á spjallið menn ekki alveg að standa sig!

silli | Comment (3 )
2.11.2003 | 20:28 | Gamlárskvöld....?
Var að koma heim frekar þunnur og subbulegur frá einars palace eftir að hafa setið þar í dag í leti og svínaríi sem var bara mjög gott.

Við fórum aftur á sýninguna í gær og var gaman að sjá krakkana aftur og taka eftir nýjum hlutum og fleira. Fórum svo í partýið með smá stoppi áður hjá kónginum því hann þurfti jú að baða sig smá eftir 2 sýningar. Partýið var mjög fínt og var drukkið og spjallað og fleira ég einar viktor og jerome vorum með svona íslenskan rapp hring þar sem jerome rappaði gluggi, spegill, hurð eða eitthvað það sem hann kann í íslensku og svo voru margir farnir að segja mamma þín beygla;) en allavega fínt partý og fullt af góðu og nettu liði meira af 2 og 3 ári en þau eru á sama aldri og ég svo það er bara fínt. enduðum partýið á því að við fórum í hláturskast og einar tók goblin sem hjálpaði ekki því lágum eins og illagerðir hlutir á gólfinu að veltast um úr hlátri. Nettir þessi íslendingar alltaf svo fyndnir........?

Fórum heim um 5 og á leiðinni keyptum við okkur samlokur og eitthvað drasl á lélegt (select) hjá mjög svo pirruðum afgreiðslumanni sem kemst í sögubækurnar fyrir leiðindi. þegar heim var komið var ekki mikið eftir að gera nema bara leggjast í sófann góða sem er mitt annað rúm hérna og sofna eftir gott kvöld.

Við vöknuðum svo að horfa á rúbbí þar sem wales töpuðu enda að keppa við nýja sjáland sem er spáð að fara í úrslitin. en ég býst við að það þarna heima fylgist ekki mikið með þessari keppni. Eftir það var farið á kurger bing og fengið sér rusl að borða og svo bara eins og áður var sagt var hangið í sófanum og gert litið nema að horfa á sjónvarpið.

Það er svona gamlárskvölds fílingur hérna núna því það eru allir að skjóta upp flugeldum út af einhverri brennu hátíð á miðvikudaginn og því eru flugeldasölurnar opnar hérna núna í viku og þeir sem þekkja mig vita að það er ekki leiðinlegt að hafa flugelda í gangi hérna allan daginn, fór meira að segja inní eina flugeldasölu hérna og missti mig bara strákarnir urðu að draga mig út. en ég ætla að kaupa mér smá í vikunni og taka smá forskot á sæluna á ykkur þarna heima Jibbý!

Það styttist óðum í heimför mína á klakann sem ætti að vera gríðalega mikið fagnaðarefni fyrir ykkur er það ekki;) nei ég hlakka allavega mikið til og núna bara innan við 4 vikur ja hérna hér.

Ég legg til að þið skrifið öll smá pistil á spjallið um hvernig helgin var heima hjá ykkur svo ég fái nú slúður og eitthvað þetta er skipun það verða allir að skrifa eitthvað svo mér verði skemmt;) það er nú ekki svo erfitt að hripa niður nokkur orð eða pikka er það víst!

hlakka til að lesa það sem þið skrifið

Og stína ástin mín þú verður bara að koma aftur þetta gengur ekkert án þín hérna bara bóka far um næstu helgi ok;)

Blentsssss
silli | Comment (2 )
1.11.2003 | 12:32 | Meira frá London....
Góðan daginn öll sömul var að vakna bara og er að búa mér til morgunmat ákvað að skrifa ykkur nokkra línur svona í tilefni dagsins.

Dagurinn í gær var frekar langur vorum í skólanum frá 9 til 8 um kvöldið reyndar út af því að það var svona smá sýning kl 6 sem við horfðum á þetta voru reyndar bara rokktónleikar í á litla sviðinu þar sem ljósa og hönnunareitthvað voru að sýna sitt. Allavega spilaði bandið í klukkutíma og uppá pöllum í búrum dönsuðu tiltölulega naktar stelpur já mar veit ekki.....?

En nóg um það á leiðinni heim fórum við hjónin í safeway og keyptum aðeins í matin og ég keypti lion king á dvd sem var að koma út í gær og áttum við bara gott dvd chill í gær viktor var nefnilega ekki búin að sjá lion king! Hvað er það? en hann var ánægður með myndina enda ekki hægt annað því hún er bara geðveik!

Gerðum ekki mikið annað ég drakk nokkra bjóra en svo er kvöldið í kvöld full planað, við byrjum að fara á sýninguna hans einars aftur til að sjá hvort þeim hafi farið eitthvað fram og svo er það partý eftir það með krökkum úr sýningunni og fleirum í mottingham sem verður örugglega blast! Eftir partýið sem verður einhvern tíman veit ekki hvenær verður örugglega farið í kóngsins höll og gist þar og horft á rúbbí á morgun þannig að það lítur allt út fyrir skemmtilegan dag vonandi eigið þið líka skemmtilegan dag fyrir höndum.

Horfði á nýtt lag frumsýnt áðan í top of the pops en það voru vinir okkar í blue feut. stevie wonder með signed sealed delivered og það hljómaði bara nokkuð vel verð ég að segja.

Næsta vika er full af verkefnum ég kláraði verkefnið mitt á fimmtudaginn með stæl þetta sem sagði ykkur frá og sagði kennarinn að ég væri að gera beautifull things at the moment siggi;) sem er bara mjög gott, ég og viktor þurfum að semja dans fyrir movement tímann á miðv. því shona er að fara til canada að gera eitthvað og þarf hún að sjá hvað við erum búin að taka inn af því sem við erum búin að vera gera. Þannig að það verður mjög gaman hálfgert dansleikhús, ég sem nú örugglega mest allt ætlum að nota tónlistina úr lion king þegar simbi og skari eru að berjast smá klassík og tilfinning í laginu.

Sem sagt nóg að gera á næstunni svo ég segi bara bless

Áfram man.utd og verða þeir loksins í beinni útsendingu í sjónvarpinu heima hjá mér í meistardeildinni á þriðj. hversu nett er það!



silli | Comment (0 )
síða 1 af 1
Dagbók
Um mig
Myndir
Tenglar
Gestabók
Sýn eða Sky
  2010 - september
  2010 - ágúst
  2010 - júlí
  2010 - júní
  2010 - maí
  2010 - apríl
  2010 - mars
  2010 - febrúar
  2010 - janúar
  2009 - desember
  2009 - nóvember
  2009 - október
  2009 - september
  2009 - ágúst
  2009 - júlí
  2009 - júní
  2009 - maí
  2009 - apríl
  2009 - mars
  2009 - febrúar
  2009 - janúar
  2008 - desember
  2008 - nóvember
  2008 - október
  2008 - september
  2008 - ágúst
  2008 - júlí
  2008 - júní
  2008 - maí
  2008 - apríl
  2008 - mars
  2008 - febrúar
  2008 - janúar
  2007 - desember
  2007 - nóvember
  2007 - október
  2007 - september
  2007 - ágúst
  2007 - júlí
  2007 - júní
  2007 - maí
  2007 - apríl
  2007 - mars
  2007 - febrúar
  2007 - janúar
  2006 - desember
  2006 - nóvember
  2006 - október
  2006 - september
  2006 - ágúst
  2006 - júlí
  2006 - júní
  2006 - maí
  2006 - apríl
  2006 - mars
  2006 - febrúar
  2006 - janúar
  2005 - desember
  2005 - nóvember
  2005 - október
  2005 - september
  2005 - ágúst
  2005 - júlí
  2005 - júní
  2005 - maí
  2005 - apríl
  2005 - mars
  2005 - febrúar
  2005 - janúar
  2004 - desember
  2004 - nóvember
  2004 - október
  2004 - september
  2004 - ágúst
  2004 - júlí
  2004 - júní
  2004 - maí
  2004 - apríl
  2004 - mars
  2004 - febrúar
  2004 - janúar
  2003 - desember
  2003 - nóvember
  2003 - október
  2003 - september