hæ aftur...
jæja þá er þetta svona nokkurn vegin komið á hreint.. ég er ekki heima.. átti að fara heim í gær.. bókaði miðann og allt saman.. en svo var mér tjáð að prufunum var frestað um viku... og ég hringdi í icelandair.. og spilaði mig bara nokkuð svona saklausan.. sagði bara að ég hefði verið með vitlausa viku í fílófaxinu og hvort þær gætu ekki reddað þessu fyrir mig.. sem ég var ekki vongóður um.. icelandair ekki alltaf verið vinir mínir.. en viti menn sjarminn virkaði og ég fékk þessu breytt og lendi næsta föstudags kvöld... sem er bara næs næ að klára þá þessar gerfiprufur hérna úti áður en ég fer og er þá bara komin í páska frí í stað þess að þurfa að bruna aftur út..
svo ég get farið í þessa fermingu, haldið uppá afmælið mitt heima í fyrsta skipti í mörg ár... og já svo á maður víst börn út um allan bæ og hún guðdóttir mín á víst afmæli degi á eftir mér... svo það sé á hreinu!
en gríðalega nett og allt að gerast! leikur á morgun við drama centre verð gott að fá útrás á þeim.. þó svo að ég sé að passa mig aðeins.. nó af mikilvægum prufum framundan..
en allavega May the djeng be with you eins og vinur minn King Barwalker sagði svo eftirminnilega einu sinni... og segir enn!
sjáumst á djenginu heima! |